Tíminn - 27.04.1966, Blaðsíða 16
Fimm kindur þrílembdar,
og allar hinar tvílembdar!
SJ-Reykjavík, þriðjudag.
Að Gröf í Hrunamannahreppi
í flæSarmálinu.
(Ljósm. VS).
KVIKMYNDIR UR SKARAFELLSSYSLUM
Um næstu helgi verða sýndir
í Gamla bíói á vegum Skaftfell
ingafélagsins nokkrir kvik-
myndaþættir, sem teknir hafa
verið fyrir tilstilli stjórnar
Kvikmyndasjóðs Skaftfellinga.
Flestir 'hafa þesir þættir verið
áður almenningi tíl sýnis, en
síðan eru liðin sjö ár. Þá þótti
sumum á skorta, að lítig var
um landslagsmyndir úr hérað-
inu, en nú hefur verið gengið
að fullu frá alllöngum þætti er
sýnir fjölda staða í sveitum
þessa héraðs.
Skýringartexta með þessum
þætti hafa samið Jón Jónsson,
jarðfræðingur og Jón Aðal-
steinn Jónsson, cand. mag., er
einnig hefur samið texta við
aðra þætti mydarinnar og flyt-
ur alla skýrigartexta hennar.
Auk landslagsþáttarins verða
að þessu sinni sýndir nokkrir
þættir úr atvinnusögu héraðs-
ins, er sýna lifnaðarhætti fólks
Framhald á bls. 15
MJOLK I PLASTPOKUM
SELD Á SAUÐÁRKRÓKI
SJ-Reykjavík, þriðjudag.
Um s. 1. helgi tók Mjólkursam
Iag Kaupfélags Skagfirðinga á
Sauðárkróki í notkun nýja mjólk
urátöppunarvél, sem flutt var inn
á vegum Véladeildar SÍS, og hef-
nr Hafsteinn Kristinsson, mjólkur
fræðingnr hjá Búnaðarfélagi ís
lands, verið til ráðuneytis um kaup
in og uppsetningu vélarinnar. Á
næstunni er ráðgert að setja upp
stærri sjálfvirkar vélar á Sauöár
króki, Egilsstöðum og Selfossi,
Vél sú, sem sett var upp á
Sauðárkróki, kostar um 100 þús-
und krónur uppsett. Mjólkin er
sett í plastpoka, sem eru úr sterku
polyethylini, og þola mikið hnjask.
Hægt er að velja um poka er
taka % 1 til 1 líter. Rjómi og
súnnjólk er sett í sams konar um
búðir.
Stúlka starfar við vélina og lok
ar hverjum poka, og í því liggur
sú hætta, að mjól’kin verði ekki
fullkomlega hrein, en hún kemur
gerilsneydd og fitusprengd úr
vélinni. Mjólkursamlagið á Sauð
árkróki hefur vélina til reynslu,
en þar sem hún afkastar ekki
nema 300 lítrurn á klst. og er ekki
sjálfvirk ætlar samlagið að fá
stærri sjálfvirka vél, sem á að af
kasta 1500 lítrum á klst. og verða
sams konar vélar settar upp á Eg-
ilsstöðum og Selfossi. Báðar vél-
artegundirnar eru franskar, en
norskur maður verður til ráðu-
neytis um uppsetningu á stærri
vélunum.
Þegar mjólk er sett í plastum
búðir geymist hún betur en í brús
um, og fyrir minni byggðarlög a.
m. k. þykir þetta ákjósanleg lausn.
Tíminn hafði samband við Svein
Guðmundsson hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga og sagði hann, að
húsmæður væru mjög ánægðar
með plastumbúðimar. Aftur á
móti væri ekki hægt að anna eft-
irspurn enn, þar sem vélin væri
ekki látin vinna með fullri af-
kasitagetu. Líterinn er seldur á
kr. 7.75 en verður ódýrari þegar
stærri vélin verður tekin í notkun.
Sérstakar plastflöskur sem eru not
aðar undir plastpokana, eru seld-
ar á 20 krónur stykkið.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Sauðárkrókur — Suðurgata 3, sími 204.
Kópavogur — Neðstatröð 4, sími 4-15-90.
Hafnarfjörður — Norðurbraut 19, sími 5-18-19.
Keflavík — Framnesvegur 12, sími 1740.
Akureyri — Hafnarstræti 95, sími 1-14-43 og 2-11-80.
Vestmannaeyjar — Strandvegur 42. sími 1080.
ÞORKELL
MÁNI í
LANDHELGI
KT-Reykjavík, þriðjudag.
Togarinn Þorkell máni var tek-
inn í morgun að meintum ólögleg
um veiðum vestur af Surtsey. Það
var varðskipið Óðinn, sem tók
togarann fastan og var farið með
hann til Vestmannaeyja, þar sem
málið var tekið fyrir í dag.
hafa þau tíðindi gerzt, að 21 kind
í eigu Emils Ásgeirssonar hafa
borið 47 lömbum — fimm Inndur
voru þrílembdar og sextán tví-
lembdar!
Tímimn ræddi við Emil í dag, og
sagðist hann ekiki geta neitað því
að þetta væri dálítið óvenjulegt,
en það bæri að hafa í huga að
hann hefði reynt til þess að fá
tví- og þrílembinga undanfarin ár.
„Þessi 21 kind sem ég á eru allar
tví- og þrílembingar og ég Iæt
þær bera svona snemma til að fá
væn lömb, sagði Emil. Hann
kvaðst hafa gefið fénu mjög vel
yfir fengitímann og tókst svo vel
til í ár að fjórði parturinn varð
þríleimbdur.
f fyrra fékk Emil eina þrí-
lem'bda á. Meðalfallþungi lamb-
anna í fyrra var um 21 kíló, en
þrílembinganna um 45 kíló.
Allar kindumar bára í húsi
og sagði Bmil að lömbin döfnuðu
ágætlega enda væri ekkert til
sparað í fóðurgjöf. Emil sagði að
lokum að ekkert lambanna væri
mislitt enda sæktist hann ekkert
eftir því.
Óánægja meS póst-
göngur
JJ-Skagaströnd, laugardag.
Mikil óánægja ríkir nú 'hér
yfir póstsamgöngum og síma-
sambandi, en þau mál hafa að
undanförnu verið í mesta
ólestri. Bréf frá Reykjavík eru
yfirleitt orðin tíu daga til
þriggja vikna gömul er þau
Framhald á bls. 15
HANDBÚK FYRIR DANSKA
FERÐAMENN Á ÍSLANDI
SJ-Reykjavík, þriðjudag. lágt, og bifreiðastjórum
22. apríl sl- kom út hjá Borg gefnir drykkjupeningar..
ens Forlag í Kaupmannahöfn Is
landsk Parlör eftir Erik Sönder-
holm, fyrrverandi sendikennara á
fslandi.
Islandsk Parlör er 60 lesmáls-
síður og er ætlað að veita dönsk-
um ferðaimönnum nokkra innsýn í
íslenzka tungu og málfræði. í bók
inni eru nokkrir kaflar á dönsku
og íslenzku um peninga, hótel,
póst, apótek o. fl. Fyrir framan
suma kaflana er inngangur, þar
sem ferðamaðurinn er fræddúr
um íslenzkar siðvenjur og honum
gefnar gagnlegar ábendingar.
Þannig er sagt á einum stað að
hótelin í Reykjavík séu yfirleitt
góð, en úti á landi gegni víðast
hvar öðru máli, þar séu hótelin
líti'l og án verulegra þæginda.
Ferðamanninum er bent á að hann
geti alls staðar tjaldað nema á
túnum, og vatn í ám og lækjum sé
yfirleitt gott til drykkjar.
Þá er sagt, að farmiðagjald með
langferðabifreiðum sé yfirleitt
aldrei
Framsóknarkonur
Hinn árlegi bazar kvenfélagsins
verður haldinn 8. maí. Þær konur,
sem gefa vilja muni góðfúslega
korni þeim til Rannveigar Gunn
arsdóttur Grenimel 13. Guðnýjar
Laxdal, Drápuhlíð 35. Sólveigar
Eyjólfsdóttur, Ásvallagötu 67
eða á næsta félagsfundi.
Bazarnefndin.
Framsóknarkonur
Kópavogi
Freyja Félag Framsóknar-
kvenna í Kópavogi heldur fund i
Framsóknarhúsinu Neðstutröð 4,
fimmtudaginn 28. þ. m. kl. 8:30.
Fundarefni: Kosningarundirbún-
ingufinn. Stjórnin.
HUSBRUNI I
SVARFAÐAR-
DAL
PJ-Dalvík, þriðjudag.
Um kl. 11.30 í morgun var
slökkviliðið hér á Dalvík kall
að út en eldur hafði komið upp
á bænum Brekku í Svarfaðar-
dal. Brekka er í 6—7 km. fjar
lægð frá Dalvík og er slökkvi
liðið kom á staðinn, var eldur
inn orðinn svo magnaður, að
ekki var við neitt ráðið. Gjör
eyðilagðist húsið í eldsvoðan-
um.
Á Brekku í Svarfaðardal nef
ur búið Klemens Vilhjálmsson
með konu sinni, Sigurlaugu
Halldórsdóttur. Dóttir þeirra
hjóna bjó þar einnig með eitt
barn og svo uppkominn upp-
eldissonur þeirra.
Karlmennirnir voru úti í fjár
húsi, er eldur komst úr olíu
ofni í vegg og logaði fljótt
glatt. Húsmóðirin gerði þeim
þegar viðvart og reyndu beir
að slökkva eldinn með blautum
strigapokum, en án árangurs.
Var þá hrinrrt eftir hjálp.
Eins og áður er sagt, reynd
ist slökkvistarfið árangurslaust,
en einhverju af innanstokks-
munum tókst að bjarga, flestu
skemmdu af vatni.
Tjónið mun hafa veríð til-
finnanlegt fyrir hjónin. Húsið
var að vísu vátryggt, en inn-
búið hefur trúlega verið lágt
tryggt.
F ramsóknarkonur
Felag Framsóknarkvenna i Reykjavík heldnr fund i Tjarnargötu 26, miðvikudaginn 27. þ. m. og
hefst hann kl. 8.30. Dagskrá: Félassmál Ljóðalestur, Bryndis Pétursdóttir, ieikkona. Ávörp flytja Einar
4<rústsson. Kristján Renediktsson. Haildóra Sveinbjörnsdóttir og Sigríður Thorlacius.
Ailar stuðninaskonm R listans i Reybjavík eru velkomnar á fundinn meðan húsrúm leyfir. Félagskon-
$ ur, takið með yður gesti.