Vísir - 07.10.1974, Blaðsíða 17

Vísir - 07.10.1974, Blaðsíða 17
Vlsir. Mánudagur 7. október 1974. 17 — Hvað kostar tvöföld kaskó- trygging:?..Það kemur nefnilega svo oft fyrir að ég keyri á tvo bila i einu. Þann 14.9. voru gefin saman i hjónaband af sr. Þorsteini Björnssyni Guðrún Ásmundsdótt- irog Magnús Þorkelsson. Heimili þeirra verður að Álfhólsvegi 43, Kópavogi. (Ljósmst. Gunnars Ingimars) Þann 21.9. voru gefin saman i hjónaband i Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði af sr. Braga Bene- diktssyni Þórhildur Sigurjóns- dóttir og Jón ólafsson. Heimili þeirra verður að Hverfisgötu 50, Hafnarfirði. (Ljósmst. Gunnars Ingimars) Þann 14.9. voru gefin saman i hjónaband i Langholtskirkju af sr. Sigurði H. Guðjónssyni Laufey Hrönn Þorsteinsd. og Isleifur Arni Jakobsson. Heimili þeirra verður að Kársnesbraut 79, Kópav. (Ljósmst. Gunnars Ingi- mars) 4 * + 4 4 4 4 4 4 4 4 $ 4 4 4 4 4 4 i i ! -x-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-kJ ★ i ★ I I ! ★ ★ ! ★ ! i i ★ ★ ★ W Nt fc- Hrúturinn, 21. marz.-20. sept.Fulla tungliö gerir þig órólegan. Þú ættir aö reyna að taka lifinu með ró, gættu þin á öllum vélum. Reyndu að æsa þig ekki upp yfir þvi sem ekkert er. Nautið, 21. aprll-21. maiMorgunstund gefur gull i mund, eins og þú veizt. Með minnkandi tungli færðu ný áhugamál, sem lifga upp skammdegiö. Reyndu aö fá sem flesta með þér. Tvlburarnir, 22.mai-21. júni.Peningamálin eru eitthvað óörugg núna. Skipuleggðu þau betur. Ljúktu áriðandi verki af snemma dagsins. Hafðu samband viö nákomna i fjarlægö. Krabbinn, 22. júni-23. júli Morgunninn er upplagður i nákvæmnismálin. Þú dettur niður á patentlausn i einhverju máli. Hafðu gát á mannasiðunum. Ljónið, 24.júlI-23. ágúst. Þú átt I einhverjum erfiðleikum og gætir auðveldlega tekið vitlausa afstöðu til þeirra. Reyndu þvi að leita hjálpar hjá þeim, sem þú telur liklegastan til að ráða þér heilt. Meyjan, 24. ágúst-23. sept.Láttu ekki smáerfið- leika seinnipartinn eyðileggja góöa morgun- skapið. Vertu bara viss um að hafa peninga- málin á hreinu. Hringdu i gamlan kunningja i kvöld. Vogin, 24. sept.-23. okt.Eitthvað merkilegt er i uppsiglingu. Vertu búinn að ljúka öllu áriðandi af snemma. Yfirmenn eru eitthvað tæpir á tauginni i dag. Drekinn, 24. okt.-22. nóv. Láttu námið sitja i fyrirrúmi I dag. Ekki láta undan freistingunum. Varastu að lenda i stælum við ættingja. Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des.Varastu að flækja þig inn i fjármál annarra. Hugsaði heldur um þin eigin peningamál. Kvöldið býður upp á óvæntan atburð. Stcingeitin, 22. des.-20. jan.Láttu ekki ástandið valda þér streitu. Segðu ekkert sem komið gæti vinnufélaga i uppnám. Mundu að of mikil kaffi- drykkja er slæm fyrir heilsuna. Vatnsberinn, 21. jan-19. feb.Endurskoðaðu lifn- aðarhættina heilsunnar vegna. Varaðu þig samt á að fara eftir þvi sem aðrir segja.Þú veizt bezt sjálfur hvernig þér liður. Fiskarnir, 20. feb.-20. marz. Gefðu ungviðinu meira af tima þinum. Varastu að nöldra heima við. Reyndu að stuðla aö meira ástriki innan heimilisins. 4 I 4 4 4 4 4 I Í i 4 4 4 4 O |í KVÖLD | | í DAG T □ J :□ > * | f DAG | Útvarp kl. 21.25 „Gullfestin" Kvikmyndahandrit sem útvarpssaga í kvöld les Erlingur E. Halldórsson þriðja lestur sogu sinnar Guí- festin, en lestrarnir verða i allt fjórir. Við ræddum við Erling um þessa sögu: ,,Ég skrifaði þeta upphaflega sem kvikmyndahandrit, og labbaði mig með það til Jóns Erlingur E. Halldórsson les I kvöld þriðja lestur útvarpssög- unnar Guiifestin, Þórarinssonar hjá sjónvarpinu. Hann taldi.aö gerð myndar eftir þvi myndi kosta um 80 milljónir, en hann gekkst þó fyrir þvi aö handritið var þýtt og sent til norrænna sjónvarpsstöðva. Litið hefur nú komið út úr þvi ennþá, nema hvað finnska sjónvarpið sendi mér langa greinargerð um verkið og var hún fremur lofsamleg. Það var fremur auðvelt að snúa handritinu i skáldsögu, en sagan fjallar i mjög stuttu máli um gömul hjón i sveit annars vegar og hins vegar stórfram- kvæmdir með jarðýtu i túnfæt- inum hjá þeim. Þau berjast hart fyrir þvi að halda húsi sinu og það kemur til árekstra milli kotbóndans og tækninnar. Umhverfið er Islenzkt og sag- angeristinútimanum. Sagan er hlutlaus frásögn, en myndrik. Ég hef haft kaflana stutta og nokkuð sjálfstæða”, sagði Er- lingur. „Sagan er þannig saga gömlu hjónanna og viðbragða þeirra gagnvart manninum i ýtunni og verkstjóranum, fulltrúa félags- ins, sem sér um framkvæmd- irnar.” — JB. SJÓNVARP • Mánudagur 7.október 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.35 Onedin skipafélagið Nýr, breskur framhaldsmynda- flokkur. 1. þáttur. Blásandi byr. Þýðandi Óskar Ingimarsson. Myndaflokkur þessi gerist á árunum um og eftir 1860 i Liverpool i Eng- landi, sem þá er ört vaxandi útgeröar- og verslunarbær. Aöalpersónan, James Onedin, er ungur skipstjóri, harðskeyttur og óvæginn og ákveðinn i að eignast sitt eigið skip og afla sér auðs og metorða, hvað sem það kostar. James Onedin er leikinn af Peter Gilmore, en meðalleikaranna eru einnig Anne Stallybrass, Edward Chapman, Brian Rawlinson, Howard Lang, Jessica Benton og James Heyter. 21.25 íþróttir Svipmyndir frá iþróttaviðburðum helgar- innar. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 22.00 Söngur Andalúsiu Heimildamynd frá BBC um spænska skáldið Federico Garcia Lorca, ljóð hans og æviferil. Þýðand og þulur Óskar Ingimarsson. 23.00 Dagskrárlok. ÚTVARP # Mánudagur 7. október 13.00 Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 Slðdegissagan: „Skjóttu hundinn þinn” eftir Bent Nilsen Guðrún Guðlaugs- dóttir les þýðingu slna (9). 15.00 Miðdegistónleikar 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16,15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Sagan: „Sveitabörn, heinia og iseli”, eftir Marie Hamsun.Steinunn Bjarman les þýðingu sina (11) 18.00 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá k v ö 1 d s i n s . 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Mælt mál. Bjarni Einarsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn Björn Teitsson sagn- fræöingur talar. 20.00 Mánudagslögin 20.35 Ævikvöldið-Séra Arelius Nfelsson flytur fyrra erindi sitt um málefni aldraðs fólks. 21.00 Sellókonsert i a-moll op 129 eftir Robert Schumann Janos Starker og Sinfóniu- hljómsveit Lundúna leika. Hljómsveitarstjóri: Stanis- law Skorowaczewski. 21.25. Útvarpssagan: „Gull- festin” eftir Erling E. Halldórsson. Höfundur les (3). 22.00 Fréttir.- 22,15 Veðurfregnir. tþróttir Umsjónarmaður: Jón Asgeirsson. 22.40 Hljómplötusafnið I umsjá Gunnars Guðmunds- sonar. 23.35 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.