Vísir - 10.10.1974, Blaðsíða 2

Vísir - 10.10.1974, Blaðsíða 2
2 Visir. Fimmtudagur 10. október 1974. vfeasra: LesiO þér erlend blöO? Höröur GuOmundsson, kennari: — Ég kaupi yfirleitt og les Bo Bedre. Þaö er margt skemmtilegt i þvi, sem hægt er aö nota til heimilisins. Einstaka sinnum kiki ég i Andrés önd, en annar lestur fer bara eftir þvi hvaö til fellur á biöstofum og þess háttar. Hængur Þorsteinsson, tannlæknir: — Ég les aöallega þýzk blöö, þ.e. Spiegel helzt. Ég vil frekast lesa um þaö sem snert- ir alþjóðamál I erlendum blöö- um. Onnur erlend blöö, sem ég les, eru fagrit I sambandi viö vinnu mina. Helga Ragnarsdóttir, skrif- stofumaöur:— Ég held bara ekki. Alla vega kaupi ég engin slik blöö. Þaö er helzt aö maöur liti I erlend blöö á biðstofum o.þ.h. mmmmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmBmaatmmmmmmmmstammmmamtBimmmmBumBHmmgmtmammmmmmmHKHmmtmsmmmmmmammmí M LESENDUR HAFA ORÐIÐ i Biblían fer ekki með íygi Jón Baldvinsson skrifar: Asgeir H.P. Hraundal skrifar 8. október i VIsi undir fyrirsögninni: „Drottinn blessi prestsvigsluna” og ræöst þar allharkalega á Bibli- una þar sem hann likir henni við Mánudagsblaðiö og kallar hana sorprit. Aumingja maðurinn get- ur varla gengið heill til skógar. Ég get glatt Asgeir með þvi að ég er giftur og það er farsælt og blessað hjónaband og ekki til þetta „þegiðu kona” hjónaband eins og Ásgeir talar um. Ég get þá liklega frætt þennan bibliuhatara á þvi að Biblian segir ennfremur að maðurinn á að elska konu sina og virða, svo orð hans fá ekki staðizt. Ég kalla hann bibliuhat- ara af þvi að hann spottar Bibli- una og talar á móti henni með þvi aö segja Drottinn blessi prests- vigsluna. Það mun Drottinn aldrei gera þvi þá væri hann ekki samkvæmur sjálfum sér. Þessi Asgeir hefur liklega aldrei i Bibli- una litið eftir skrifum hans að dæma, eða þá að hann er svona mikið á móti Auði Eir með þvi að hrópa húrra fyrir prestsvigsl- unni. Auður Eir hlýtur ekkert hnoss fyrir að vera prestur og hún getur aldrei á sinni ævi gert neitt svo gott og blessað hér á jörð að hún verði hempunnar verð. Ég er ekki á móti þvi að konur vinni innan safnaðar, en Biblian tekur skýrt fram að konur eiga ekki að vera prestar, forstöðumenn eða stjórna söfnuðum. Það kann vel að vera að Ásgeir sé i rauðsokka- hreyfingunni og vilji jafnrétti i þessu eins og öðru en það er ekki hægt þvi þá brýtur hann lögmálið, eða er Ásgeir tilbúinn að fara upp - á fæðingarheimili og fæða af sér barn og brjóta það lögmái lika? Mikið er ég hræddur um að það yrði erfið fæðing. Ekki vildi ég vera viðstaddur og á sama hátt vil ég ekki hlusta á kvenprest þar sem Biblian þvertekur fyrir það. í skrifum Asgeirs koma engin rök fram sem styðja það að kona eigi að þjóna fyrir altari. Svo segir Asgeir að ég sé með þessu að segja blessuðum konunum að þegja. Ekki veit ég hvaðan hann hefur þetta orðalag, ég veit það bara að það getur verið mjög svo gott að vera þar sem konur eru og heyra I þeim hljóðið. Ja, minna má það nú ekki vera en að ætla sér að breyta heilögu orði bara af þvi að nú er tuttugasta öldin, það er of mikið af þvi góða. Kirkjur landsins eru nú ekki allar jákvæð- ar svo kannski þær mættu vera færri og jákvæðari. Ég vil ein- dregið hvetja Ásgeir til að kaupa sér Bibliu og byrja strax aö lesa hana. Þá mun ekki líða á löngu þar til augu hans opnast og hann sér þá hve mikið glappaskot hann hefur gert. Þegar Biblian er ann- ars vegar og verið er að ræða á- kveðin mál þá er Óvinurinn alltaf hins vegar og reynir aö tæla og blekkja. Vei þeim manni sem fylgir honum að máli, betur væri að sá maður hefði aldrei fæðzt. Til ykkar sem kristnir eru þarf ég ekki að segja að þið vitið jafnvel og ég að Biblian er sönn og fer ekki með lygi og vil ég biðja ykk- ur að biðja með mér fyrir Asgeiri og Auði Eir um það að Asgeir öðlist þroska og trú og að Auður Eir segi af sér og fái rikuleg laun hjá Guði. íbúar á Suðureyri við Súgandafjörð ættu að lita i Bibli- una og sannprófa það sem ég skrifaði þriðja október I Visi og sjá hvort það hafi verið ég sem var að skálda eða hvort þetta eru heilög orð, þvi þau voru skrifuð beint upp úr Bibliunni, og þurfa menn þvi ekki að vera að tala ó- hróður um Ritninguna. Ég ætla að biðja fyrir þér, Asgeir minn, svo og Auði Eir, að augu ykkar megi opnast þvi Ritningin segir: biöjið og yður mun veitast, og þvi trúi ég þvi að Guð muni snúa þér og Auði Eir á réttan veg. Um biskupinn vil ég segja að ekki var vfgslan honum lofsverð og til sóma og það ætti hann sjálfur að vita. En það er nú svona að vera biskup, að þótt hann sé nokkurs konar verkstjóri, þá er hann ekki einvaldur og verða öll mál að fara fyrir prestaþing, og er ég hrædd- ur um að þeir prestar sem hafa stutt Auði Eir séu ekki verðugir prestsnafnbótarinnar og bið ég þá lika að skoða hug sinn og gera breytingu á þvi að útnefna kven- mann sem prest, þvi Drottinn fyrirgefur þeim sem vita ekki hvað þeir gera ef þeir aðeins biðj- ast fyrirgefningar og þakka fyrir bænheyrsluna eins og Biblian segir. Hví fœst Vísir ekki í Landakotsspítala? Forvitinn skrifar: „Hvers vegna er ekki hægt að fá Visi á Landakotsspitalanum nema með ærinni fyrirhöfn fyrir sjúklinga? A þennan spitala koma öll hin dagblööin, og þeim er dreift ókeypis. En Visir er settur hjá. t anddyri spitalans er litil verzlun, en þar fæst Visir ekki. Þvi verða Visisaödáendur, (sem ekki eru svo fáir) að biða og biða frammi i köldu anddyrinu eftir þvi, að sölubörn fari framhjá og komi inn til þess að selja blaðiö. Astæðan fyrir þvi, að sjúklingarnir veröa að hima frammi i anddyrinu, er sú, aö blaðasala i húsinu er bönnuð. Láir reyndar enginn stjórn spitalans slikt bann. Sölubörnin verða þvi að „stelast” inn i anddyriö til þess aö selja blaðið. Ég fæ ekki séð, að sjúklingar hafi gott af þvi að dvelja of lengi i anddyrinu, þar sem sifellt er verið að opna og loka dyrum. Ég veit, að margir aðstand- endur sjúklinga koma með blaðið með sér i kvöldheimsóknum til þeirra. Er ekki hægt að bæta úr þessu, með þvi að Visir liggi jafnt frammi og önnur blöð eða a.m.k. að hann fáist seldur i verzlun Rauða krossins i spitalanum.” Viö leituöum svara fyrir „For- vitinn” hjá afgreiðslustjóra Visis, Óskari Karlssyni. Hann sagði, að verzlunin i spitalanum vildi ekki taka blaðiö til sölu án þess að hann vissi ástæðurnar fyrir þeirri ákvörðun. Þetta er verzlunin I Landakotsspitala sem lesandinn kvartar yfir aö selji ekki Visi. Ljósm. Bj. Bj. Guömundur Ragnarsson, sjómaöur: — Nei, það geri ég yfirleitt ekki, enda kaupi ég engin erlend blöö. Helga Jósepsdóttir, nemi: —Ég geri mjög lltið að þvi. Ég kaupi yfirleitt ekki slik blöö. Stundum kaupi ég þó einhverja enska sakamálareyfara. Gissur Simonarson, húsasmiður. — Það er helzt að ég kaupi dönsk blöð endrum og sinnum. Það eru Hjemmet og Familie Journal. Svo er ég áskrifandi aö erlendu fagtimariti. „HVAD VÍRÐUR UM ÁFtNGIÐ?" Utanlandsfari, ungur að árum, s P y r : „Hvað verður um það áfengi, sem upptækt er gert i tollinum á Keflavikurflugvelli? Ég spyr nú vegna þess að i sumar kom ég ásamt unnustu minni til Kefla- vikur eftir utanlandsferð. I fri- höfninni keyptum viö okkur skammt af áfengi og tóbaki. Tollurinn tók þetta svo af okkur, þar eð við vorum undir lögaldri, að mér skildist. Að auki var lögð á okkur sekt. Mér var sagt þarna á staðnum að áfengið færi aftur til frihafnarinnar. Ég er mikill áhugamaður um bókhald ýmiskonar, og i þessu tilfelli hef ég áhuga á aö vita hvernig þetta áfengismagn, sem þannig streymir að nýju til frihafnar- innar er bókfært. Stendur rikið (tollurinn) i þvi að selja rikinu (frihöfninni) áfengi þetta? Ef svo er, þá skil ég vel.aö ekki skuli farið fram á að fólk sýni nafnskírteini i fri- höfninni þegar verzlað er. Það sýnist líká álitamál hver hefur brotið af sér, sá sem kaupir áfengið eða sá sem selur. Er það ekki nokkuð undarlegt hjá þessari blautustu þjóða allra blautra að leyfa aöeins fólki yfir 21 árs að kaupa áfengi með eðli- legum hætti. Mér virðist að þeir sem á annað borð ætla að ná sér i þessa vörutegund kræki i hana, og þá viröist aldur ekki skipta neinu máli, en svartamarkaðs- braskarar einir græða á þessari tilhögun”. „ÞÚSUND MANNS" ■ HVAÐ? Við erum tvö hundruð þúsund manns — Ibúar íslands — aðeins tvö hundruð þúsund, likt og I götu I stórborg erlendis. Og helmingurinn af þessum tvö hundruð þúsundum er það sjálf- sögðu börn, aldraðir og krankir. En af hinum, þessum fullorðnu og fullhraustu, hafa 884 verið teknir ölvaðir eða grunaðir um ölvun við stjórn á bifreið þessa niu mánuði, sem liðnir eru af ári, þar sem fólki er þó hrósað fyrir hófsemi á hátiðastundum. Og nú telja menn vist, að þarna verði slegið met á þessu ári, og yfir þúsund ölvaðir ökumenn verði teknir i ár. Og það er eins og þetta sé mörgum bara „glens eða nýjar fréttir”, „allt i gamní, maður, allt i gamni”, sagði karlinn, sem var að gera út af við kerlu sina. En hvað skyldi fólki finnast, ef það mætti eiga þess von — ekki einhvern daginn — heldur daglega, að mæta óargadýri á götunni? Samt má fullyrða, að hættan af lausu ljóni eða tigrisdýri yrði ekki i raun og veru nærri eins mikil og af bifreið með fullum bilstjóra. Enda yrðu vist flestir sammála um að ráða niðurlögum slikra kvikinda sem fyrst. Nú er okkur hinum vegfarendum á götum og gangstéttum spurn: Er ekki orðiö býsna dýrt að hætta bflnum sinum svona, þótt sleppt sé nú að hugsa svo hátt að nefna limi og lif — sleppum nú hinu hyskinu, sem kynni að hafa götuna til afnota? Og við gætum lika spurt i mestu einfeldni, hvaða viðurlög liggja viö þessum ökuferðum óviturra ökumanna? Mér er sagt að I Noregi, sem stundum er taíið landið, sem stendur okkur næst, sé fangelsisdómur óumflýjanlegur ásamt sviptingu ökuleyfis. Og þar eru færri umferðarslys og færri ölvaðir við akstur en i öðrum löndum hér nærri hvað þá heldur i Ameriku, samkvæmt sömu skýrslum. En hvað er gert hér? Ætli sektir séu háar? Fangelsin yrðu of fá, enda fullnýtt, og feiknadýr. En mætti maður leyfa sér að spyrja: Hvar er sómatilfinning og tillitssemi Islenzkrar mannssálar? Það er lika dýrmæt eign. Arelius Nielsson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.