Vísir - 10.10.1974, Blaðsíða 3

Vísir - 10.10.1974, Blaðsíða 3
Vlsir. Fimmtudagur 10. október 1974. Þetta er tiltölulega ódýrt efni" Þjóðhátíðir 4 sunnudaga í viðbót „Það er nú nokkuð vandreiknað, hvað þessar upptökur hafa kostað,” sagði Gunnar Vagnsson, fjármála- stjóri rikisútvarpsins, i samtali við blaðið i morgun. Undanfarna mánuði hefur útvarpið verið að útvarpa upptökum sinum frá þjóðhátiðum viða um landið. Útvarpið sendi i sumar menn um landið til að fylgjast með þessum hátiðum og festa þær á tónband. „Þetta efni er tiltölulega ódýrt. Viö sendum 2 menn á hvern staö. Þaö er yfirleitt rólegra hjá okkur i upptökum á sumrin, þannig aö við gátum notað okkar fasta starfslið i þetta verkefni. Kostnaðurinn er því ekki annar en launa- kostnaður viðkomandi manna, en mest af vinnunni var að visu unnið I eftirvinnu. Þar að auki er einhver tækja- og feröakostnaður. Nýi upptökubill útvarpsins var ekki keyptur fyrir þetta verk, þannig að verð hans reiknast ekki hér með. Þetta er almennur upptökubíll, sem nauðsynlegt er að hafa við slíkar stofnanir, en að vlsu má segja, að það hafi komið sér ákaflega vel að fá hann einmitt til landsins rétt fyrir þjóðhátiðirnar. Um 14 þjóðhátlöum hefur nú verið útvarpað, enda heyrist á útvarpshlustendum, að þéir séu orðnir harla leiðir á þessu slfelLda þjóðhátlðarútvarpi annan hvern sunnudag. Þó munu þeir eiga eftir að heyra það I eina 4 sunnudaga til viöbótar. Sennilega verður svo öllum heilu hátiðarhöldunum útvarpað aftur að 100 árum liðnum, þvi einn megintilgangur upptakanna var að eiga þessa miklu hátið á spólum til seinni tlma. Þjóðhátiðin var einnig fest á filmu af sjónvarpinu vfða um landið. Tveir menn á vegum þess óku á milli staðanna, og verða filmur, þær, sem þeir tóku, settar saman I væntanlega stórmynd i nokkrum hlutum um hátlöina miklu. Inn i myndirnar frá hátlðarhöldunum verður svo skotiö myndum, sem Magnús Bjarnfreðsson og flokkur hans tóku á ferðalagi sinu um byggðir landsins sumarið 1973. Kostnaðinn af þeirri mynd gat Gunnar Vagnsson heldur ekki tjáð okkur, en taldi, að hún kostaði svipað og aðrar land- kynningamyndir, sem sjón- varpið hefur látið gera. —JB „Stjörnur" framtíðarínnar í fjárkröggum Topparnir I umbúðahönnun þetta árið — frá vinstri Kristin Þorkeisdóttir hjá Auglýsingastofu Kristfnar, Þröstur Magnús- son, Guðjón Eggertsson hjá Auglýsingastofu Gfsla B. Björnsson- ar og Hilmar Sigurðsson hjá Argus. Ljósm. Visis: ÓH Þegar skammdegið hellir sér yfir okkur, kveikjum við venju- íega öll þau ljós, sem við getum. Vlsismenn ráku augun I stórt og myndarlegt neonljósaskilti, sem Fíat umboðið hefur komið sér upp og nýtur birtunnar frá Neon-rafljósageröin fram- lciddi skiltið, sem er um 1 1/2 metri á hæð. Þeir hafa einnig framleitt skilti fyrir Loftleiðir og Landsbankann. Það er áreiðaniegt, að ekki ganga við- skiptin verr fyrir bragðið. Um leið lýsa þau upp gráan hvers- dagsleika okkar hinna i skamm- deginu —JH— — Leiklistar- nemar heimsóttir Það er enginn leikur að verða leikari, þó margir séu e.t.v. þeirr- ar skoðunar. Skyidi fólk almennt vita, að nú leggja milli 50 og 60 manns stund á leiklistarnám i tveim skólum. A tlmabili myndaðisl gap I leikarastéttina. Engir leikarar útskrifuðust I nokkur ár og vissa aidursflokka vantaði i hópinn. Árið 1972 fannst sumum komið nóg og voru mynduð samtök áhugafólks um leiklist (SÁL) sem vildu ýta undir stofnun rikisleik- skóla. Ekkert gekk og stofnaði það sinn eigin skóla. Fékk það til kennara og húsnæði hjá æsku- lýðsráði við Frlkirkjuveg, þar sem það hefur lagt stund á leik- listarnám. Nú I haust var svo stofnaður annar slikur leikskóli leikhús- anna. Blaðamaður Visis fór á kreik I Fólkið, sem mun skemmta okkur I framtlðinni, situr nú á skólabekk. gær og heimsótti báða skólana. Leikskólileikhúsanna er til húsa i Lindarbæ, og voru þeir hressir I bragði krakkarnir þar, en þeir eru Umbúðir utan um ost, kftti og físk verðlaunaðar Fjórar auglýsingastofur og nokkrir iðnrekendur hiutu i gær verðlaun Félags islenzkra iðnrekenda fyrir hönnun um- búða -utan um Islenzkan iðn- varning. Verðlaunin afhenti Tove Kjarval, formaður dómnefnd- ar, i Norræna húsinu i gær. Þá um leið var opnuð sýning á finnskum umbúðum I kjallara hússins. Asamt finnsku umbúöunum verða sýndar Islenzku umbúðirnar, sem hlutu verðlaun i umbúðasam- keppninni. Islenzku umbúðirnar, sem. verðlaun hlutu, eru utan um alla mögulega hluti, eins og öskubakka þjóðhátíðarnefnd- ar, konfektkassa, kítti, ost, smjör, tilbúinn áburð og hrað- frystan fisk, svo nokkur dæmi séu nefnd. Var almennt álit þeirra er skoðuðu sýninguna I gær, að margt hinna islenzku umbúða stæðu þeim finnsku alls ekki að baki. Þó eru Finnar viðfrægir fyrir sérlega vöndun við umbúðagerð. 1 tengslum við sýninguna er haldið námskeið i Norræna húsinu um umbúðir. —óH að hefja þriggja ára nám. Hjá þeim eru kennarar næstum jafn- margir og nemendur, eða tíu, en nemendurnir eru tólf. Andlit skól- ans út á við er þriggja manna skólaráð skipað þeim Vigdisi Finnbogadóttur fyrir Leikfélag Reykjavikur, Kristbjörgu Kjeld fyrir Þjóðleikhúsið og Klemenz Jónssyni fyrir Félag íslenzkra leikara. Sjálf stjórn skólans er raunar I höndum nemendanna sjálfra og kennara. Skólinn er dagskóli, um 35 tlmar á viku.og þvl fullur vinnudagur. Þar sem þau lifa ekki á loftinu frekar en annað fólk, verða þau að vinna með skólanum. Leilistarnám hefur hingað til ekki verið metið til jafns við annaö nám, sem þó er sjálfsagt, þar sem það er sizt léttara. Vonast þau til, að fólk almennt geri sér grein fyrir þvi, og ætla, I von um góðan skilning, að æskja inngöngu i námslánakerfið. Þau vonast til, að rlkis leikskóli verði kominn i gagnið næsta haust, og þar sem þau telja að báðir skól- arnir, sem nú eru starfandi.séu i rauninni einn hópur, vonast þau til að þeir veröi sameinað- ir I einn rlkisleikskóla. Viðræö- ur eru þegar hafnar milli Vig- dlsar og Ingibjargar Briem, framkvæmdastjóra SÁL, um sameininguna. Ef af sameiningu verður, mun hópurinn verða sterkara afl gagnvart yfirvöld- um og meiri llkur á styrkj- um til dæmis i formi námslána. Þegar blaðamaður Visis yfirgaf þetta duglega fólk, var það einmitt að útbýta i hópnum um- sóknareyðublöðunum um lánslán. Næst lagði blaðamaður Visis leið sina niður i Hótel Vik, en það húsnæði hefur leiklistarskóli Sál tekið á leigu undir starfsemi sína. Þau hafa sjálf gert nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu, og þar er heimavist fyrir tiu manns. Nemendur skólans eru 43, og skiptast i þrjár bekkjardeildir. Annars er skólinn fjögurra ára skóli og slðasta árið verður nemendaleikhús. Hann er rekinn með skólagjöldum nemenda, sem eru þrjú þúsund krónur á mánuði, og fé af framlögum frá rikinu, en skólarnir fengu vissa upphæö sameiginlega I styrk. Það fullnægir þó engan veginn fjárþörfinni, og eru þau fyllilega sammála nemendum Leikskóla leikhúsanna um að skólarnir þurfi báðir að ganga inn i náms- lánakerfi framhaldsskólanna. Sameiginlegt eiga skólarnir það að vera miðaðir við nútima aðstæður, það er þeim er ekki eingöngu ætlað að útskrifa starfs- krafta til leikhúsa heldur einnig útvarps, sjónvarps og kennslu i leiklistarskólum og öðrum skólum. Má I þessu sambandi geta þess, að grunnskólafrum- varpið gerir ráð fyrir kennslu i leiklist. _ ju. LYSA UPP SKAMM- DEG/Ð

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.