Vísir - 10.10.1974, Síða 8
Vlsir. Fimmtudagur 10. október 1974.
8sas^ssœr ÆW ésx, ÆMjmBmaálJJHÍM
Vísir. Fimmtudagur 10. október 1974.
»«aam4WMBWMsaiBHfsqKn<waaMBMintja*»>il'iwwg>caiiBHBpMBH«M>r^WqpBBT| m i mi aiiwii y m iíijiii i iihb nn i im
i3EBfigiia3»y j iiin iirjijj^”^
: ....!•. ?. . ..-:.£z
Jafnvel Danir voru stein-
hissa á úrskurði dómarans
— sem dœmdi gott mark af íslenzka landsliðinu og danskur línúvörður tók annað mark af íslandi
Viðurkenndi mistök sín eftir leikinn. Kjartan L. Pálsson segir frá landsleiknum í Álaborg
../íf
'<HwL
Einn af hinum efnilegu, ungu leikmönnum Vals, Torfi Asgeirsson, sendi knöttinn f mark Hellas. Ljósm.Bjarnleifur.
Valsmenn tóku þreytta
Svía í kennslustund!
Valsmenn tóku ,,snill-
inga” Hellas hins sænska á
hné sér i gærkvöldi ósköp
föðurlega og sýndu gestun-
um, hvernig leika á hand-
knattleik. Sannarlega voru
yfirburðir Vals miklir, þeg-
ar komið var út i seinni hálf-
leikinn. Hnifjafn fyrri hálf-
leikur, — einstefna i net
þeirra sænsku i seinni hálf-
leik, þannig var leikurinn.
Eflaust eru Hellasmenn farnir að
þreytast eftir þrjá erfiöa leiki, og það
ljúfa og góða lif, sem þeim, eins og
öörum gestum okkar i iþróttum, er
búiö.
Fyrri hálfleikurinn virtist ætla að
boða æöismikil átök i hinum siðari. En
þetta brást sem sé. Valur skoraði
fyrst, en Hellas komst yfir i 2:1. Eftir
þaö komst Valur yfir i 5:4, og loks
aftur i 10:9, en þá var nýhafið algjört
Með rangt
nafn
ó bakinu!
Gamlar og góðar minningar á
þjálfari Valsmanna tengdar
þessari peysu, sem Lars Kahl
bar i gærkviildi. Jú, Ililmar
Björnsson bar einmitt þessa
sömu peysu með númerinu 15 á
bakinu.i fyrra, þegar hann var
keppandi með Iiellas. Sviarnir
hafa þann skemmtilega sið að
merkja hvcrja peysu meö
skirnarnafni eigandans, en eitt-
hvað hefur þetta þó brenglazt
a.m.k. höfðu þeir engan Ililmar
I liði sinu i gærkvöldi, hann var
maöurinn hak við Valsliöið utan
vallarins, og þvi hefur liklega
farið sem fór. _jgp____
hnignunarskeið Svianna I leiknum, og
siðustu minútur hálfleiksins skoraði
Valur 4 mörk gegn einu og var staðan I
hálfleik 12:10 fyrir Val
Valsmenn byrjuðu sterkt i seinni
hálfleik, 13:10, en voru óheppnir að fá
á sig tvö hálfgerð klaufamörk. En
þetta stöðvaði ekki Valsliöið, jafnvel
ekki þótt Sviar jöfnuðu I 14:14. Þeir
náöu 17:14 og úr þessu var vart nokkur
i efa um, að þeir rauðu á vellinum voru
með Sviana I „kennslustund á pabba-
kné”.
Úrslitin urðu 27:20, stór sigur það
hjá Val. Og leikurinn var góður.
Maöur undrast, að þetta lið skyldi
komast hjá þvi að verða Reykjavikur-
meistari á dögunum.
Eftir að Ólafur Jónsson var búinn að
stilla sina miklu kanónu, var ekki að
sökum að spyrja. En það voru ekki
bara 7 mörk hans, heldur hvernig hann
stýröi sókninni og ruglaði andstæðing-
ana, frábært. Það, sem ég sé annars
athyglisverðast við Valsliðið, eru efni-
legir nýliðar, eins og þeir Jóhannes
Stefánsson, Bjarni Guðmundsson og
Steindór Gunnarsson. Þetta eru bráð-
friskir, ungir menn og greinilegt, að
menn biða I röðum utan við þetta lið
eftir að fá tækifæri.
Jón Karlsson átti góðan leik I gær-
kvöldi, og Gisli Blöndal og Gunnsteinn
voru fyllilega það, sem við má búast af
þeim.
Satt að segja kom mér það á óvart,
hversu auðveldlega botninn datt úr
Hellas-liöinu. Sannarlega var ekki
hinn auglýsti snillingsbragur á seinni
hálfleiknum enda þótt sá fyrri væri
betri. Skyttur á liðið ekki nógu góðar,
meöan Valsmenn höfðu slikar i kipp-
um. Langbezti maður liösins, Mats
Nilsson var hvildur allt of lengi siðast I
fyrri hálfleik, — og þá byrjaði botninn
að siga úr tunnunni.
Dómarar leiksins, Jón Friðsteinsson
og Kristján örn Ingibergsson, sluppu
áfallalitið frá starfi sinu, en sá siðar-
nefndi gerði þó tvær nokkuð áberandi
skyssur, og Jón reyndar eina lika.
Mörkin:
VALUR:
ólafur Jónsson, 7, Gunnsteinn
Skúlason 4, Jón Karlsson 4 (1
úr viti), Gisli Blöndal 4 (1 úr
vlti), Bjarni Guðmundsson 3,
Jóhannes Stefánsson 3, Torfi
Asgeirsson 1, Steindór Gunn-
arsson 1,
HELLAS:
Mats Nilsson 7, Johan Fisch-
erström 4, Dan Eriksson .3,
Lars Kahl 2, Kenneth Johans-
son 2, Arne Stenquist 1, Leif
Nielsson 1. — JBP—
„Berjist.........ber jist..
...berjist..." var það
síðasta, sem íslenzku
landsliðsmennirnir fengu
að heyra frá þjálfara sin-
um Tony Knapp, er þeir
hlupu inn á iðjagrænan og
uppljómaðan leikvöllinn í
Álaborg í gærkveldi. Nú
var kominn tími til að
mæta erkióvininum, sem
aldrei fyrr hafði tekizt að
sigra í landsleik í knatt-
spyrnu, og í þetta sinn átti
það að takast.
Um leið og flauta dómarans
norska gall, þutu islenzku leik-
mennirnir af staö og fyrir þá 11,
sem voru I danska landsliðs-
búningnum og liölega 7000 áhorf-
endur, var það næstum þvi eins
og að þeir væru að sjá eldgos
brjótast út á eyjunni, sem þeir
eitt sinn réðu yfir.
Já, svo sannarlega börðust pilt-
arnir vel og svo sannarlega voru
þeir óheppnir. Þeir áttu i fyllstu
merkingu fyrstu 20 minútur leiks-
ins. Danir fengu nóg að starfa I
vörninni — kölluðu aftur aukalið
og það hafði einnig nóg að gera
við að verjast ásækni Islendinga.
Hvaö eftir annað brunuðu þeir
hvitu I gegnum eldrauðan
varnarmúr Dana og bókstaflega
óðu i tækifærum. 1 blaðamanna-
stúkunni heyröist litið annaö sagt
en flott-flott, og þaö var aðeins,
þegar þeim rauðu tókst aö brjót-
ast upp að marki hinna, sem klið-
ur fór um hópinn þar. Þaö var
ekki oft enda tækifærin nær öll á
hinn bóginn. Þrjú þeirra sllk, að
maður sá boltann I netinu, en á
siðustu stundu tókst þeim rauðu
að bjarga.
En kapp er bezt með forsjá
stendur i góðri bók og það fengu
islenzku piltarnir að finna, er 20
min. voru liðnar af leiknum.
Þá fóru allir nema markvörður-
inn og tveir varnarmenn fram i
upphlaup, sem Danir sneru upp i
hraðaupphlaup. íslendingar
misstu boltann og honum var
spyrnt fram á Flemming Lund,
smávaxinn atvinnumann, sem
leikur i Belgiu, og hann einn á
báti gat hindrunarlaust hlaupið
nær alla leið upp að marki, þar
sem Þorsteinn stóð einn til varnar
og varð að sjá á eftir boltanum
yfir höfuð sér i netið.
Fimm minútum siöar kom loks
hið langþráða mark Islands.
Grétar Magnússon átti allan heið-
urinn af þvi....óð i gegn með
hörku og frekju og gaf á Matthias
Hallgrimsson, sem sendi boltann
með þrumuskoti i netið.
Eftir þetta sóttu Danir i sig
veðrið og náðu yfirtökum án þess
þó að komast i almennileg færi —
utan einu sinni er Benny Nilsen —
einn af fjórum atvinnumönnum
Dana i þessum leik — átti
þrumuskot i stöng. Þannig gekk
það lika fyrst I siðari hálfleik, en
þá léku þeir dönsku sinn bezta
kafla i þessum leikkafla, sem
virkilega var gaman að horfa á,
en þar voru atvinnumennirnir
aðalstjörnurnar. Þeir skoruöu sitt
annað mark — sigurmarkið i
leiknum — á þessu timabili eftir
hornspyrnu, sem óréttilega hafði
verið dæmd á islenzka liðið. Ulrik
Le Fevre skoraði með skalla af
2ja metra færi, gjörsamlega
óverjandi fyrir Þorstein, sem
aldrei i þessum leik þurfti að
kasta sér öfugt við danska mark-
vörðinn Benno Larsen.
A þessum tima varð Guögeir
Leifsson að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla. Gisli Torfason tók hans
stöðu og Eirikur Þorsteinsson
kom inn á. Sföar i leiknum kom
svo Jón Gunnlaugsson inn á fyrir
Asgeir Eliasson — fyrsti lands-
leikur Jóns og þá fór Jóhannes
Eðvaldsson I miðjuna. Við það
breyttist leikurinn Islendingum i
hag.og þeir pressuðu án afláts.
Ásgeir Sigurvinsson komst
tvivegis I færi — Teitur Þórðarson
sömuleiðis og Matthias var
dæmdur rangstæður eftir að hafa
hlaupið vörn Dananna af sér..af
dönskum linuverði leiksins, sem
viðurkenndi eftir leikinn að þar
hafi hann verið of fljótur á sér.
Loks rétt fyrir leikslok skoraði
tsland mark, en þá tók hinn
norski dómari til sinna ráða og
sagði að Jóhannes Eðvaldsson
hefði hrint á bakið á dönskum
leikmanni áður en hann skallaöi
aö markinu.....Jafnvel dönsku
blaðamennirnir hristu höfuðið
yfir þeim úrskurði, enda hann
algjör fjarstæða....Þrátt fyrir
þetta dæmdi sá norski nokkuð vel
og var samkvæmur sjálfum sér
og þeir dönsku á llnunni létu litið
á sér bera.
Það tókst sem sé ekki að sigra
Dani I þetta sinn, en sjaldan
höfum við verið eins nálægt þvi.
Jafntefli
það rétta
— segir NTB
um landsleikinn
Ef Danir hefðu ekki náð I
atvinnuleikmenn I lands-
leikinn gegn Islandi I
Alaborg — einkum þá Ulrik
Le Fevre og Benny Nielsen
frá Belgiu — heföu þeir
tapað landsleiknum, segir
norska fréttastofan NTB I
gærkvöldi.
— tslendingarnir áttu
mörg tækifæri til að skora úr
og mark var dæmt af liðinu
undir lok leiksins. Þeir komu
stórkostlega á óvart, þó svo
islenzka liöiö léki aðeins
með tveimur mönnum I
framlinunni. Landsleikurinn
var áfall fyrir danska knatt-
spyrnu og einkum var
varnarleikurinn lélegur.
Jafntefli heföi gefiö hina
réttu mynd af gangi leiksins.
Asamt Le Fevre og Benny
Nielsen voru þaö hinir tveir
atvinnumennirnir I liðinu,
Flemming Lund og Morten
Olsen, sem stóðu sig vel. Þaö
voru fyrst og fremst
„peningaspilararnir”, sem
björguðu Dönum frá stórri
skömm, segir NTB aö
lokum.
Fjórir slasaðir — vafa-
samir gegn A-Þýzkakmdi
Frá Kjartani L. Pálssyni,
Kaupmannahöfn i morgun:
Fjórir leikmenn islenzka
landsliðsins i knattspyrnu eru
slasaðir — þrir þeirra slösuðust
i landsleiknum við Dani i Ála-
borg i gærkvöldi — og eru þvi
miður litlar likur á að þeir geti
leikið gegn Austur-Þýzkalandi i
Evrópukeppni landsliða á
laugardag.
Guðgeir Leifsson meiddist á
mjöðm og var farið með hann á
sjúkrahús. Meiðsli Guðgeirs eru
það slæm, að útilokað má telja
að hann geti leikið á laugardag.
Matthias Hallgrimsson er drag-
haltur og sama er að segja um
' Grétar Magnússon. Þá er Karl
Hermannsson meiddur, en hann
lék ekki með i landsleiknum.
Þessir leikmenn „ sváfu á is”
i nótt ef svo má segja, og allt er
gert, sem hægt er til að reyna að
koma þeim i lag aftur. Ef það
heppnast ekki er staðan hættu-
leg — enginn varamaður, nema
Magnús Guðmundsson, mark-
vörður, i landsleikinn á laugar-
dag.
Ef þeir hefðu ekki verið með
þessa fjóra atvinnumenn hefði
leikurinn ekki endað svona. Þeir
björguðu Dönum i þetta sinn.
Hinir voru nánast stadistar á viö
þá.
Leikaðferð íslendinganna 4-4-2
kom Dönum mjög á óvart I
byrjun. Þessir tveir i framlinunni
— Teitur og Matthias — tættu
vörnina i sig með aðstoð hinna.
Asgeir Sigurvinsson átti stórkost-
lega kafla i leiknum. Prjónaði sig
i gegn og lagði á báða bóga. Þá
var Grétar Magnússon mjög
góður og gafst aldrei upp allan
timann. Asgeir Eliasson og Gisli
Torfason áttu einnig góðan leik,
en litið fór fyrir Guðgeir Leifssyni
þann tima, sem hann var inn á —
enda hálf meiddur. Jóhannes Eð-
valdsson var sterkur i vörninni og
eftiraðhannkom fram á miöjuna
naut hann sin enn betur. Það
heföi bara átt að ske fyrr I leikn-
um. Marteinn Geirsson var
traustur og urðu ekki á mistök, en
aftur á móti komu þau fyrir hjá
bakvörðunum. Þeir höföu lika
mikiö að gera, þvi þeir dönsku
komu mest upp kantana og þá á
fullri ferö með góöar þver-
sendingar og skiptingar.
Það var sárt að tapa þessum
leik fyrir Islenzku strákana. Þeir
stóðu sig allir svo vel og vörðust
svo hetjulegri baráttu. En gamla
góða heppnin, sem alltaf er með
sumum en öðrum ekki, fylgdi
þeim ekki i þessari viðureign við
erkióvininn, sem við höfum aldrei
verið eins nálægt að sigra á knatt-
spyrnusviöinu og i þetta
sinn....Klp.
Manch. Utd., sem stefnir að þvi
að vinna sæti sitt I 1. deild strax
aftur, gerði sér lítið fyrir og vann
nágranna sina, Manch. City, 1-0 á
leikvelli slnum Old Trafford I
gær. Það var I 3ju umferð enska
deildabikarsins og eina mark
leiksins skoraði Gerry Daly úr
vitaspyrnu á 76. min. City er sem
kunnugt er i 3ja sæti I 1. deild.
Margir óttuðust, að mikil læti
yröu á vellinum i þessari viður-
eign „erkifjendanna” — en þó
völlurinn væri næstum troðfullur
fór allt fram með friði og spekt —
jafnt á leikvelli sem meðal áhorf-
enda.
1 leikjunum I gær var litið um
óvænt úrslit nema hvað Colchest-
er 13ju deild sló Carlisle út. Úrslit
urðu þessi:
Bury—Leeds 1-2
Chelsea—Stoke 2-2
Chester—Preston 1-0
Colchester—Carlisle 2-0
Crewe—Aston Villa 2-2
Hartlepool—Blackburn 1-1
Manch.Utd.—Manch. City 1-0
Reading—Burnley 1-2
W.B;A.—Norwich 1-1
I undanúrslitum i skozka
deildabikarnum urðu úrslit þessi I
gærkvöldi.
Airdrie—Celtic 0-1
Falkirk—Hibernian 0-1
Sagt eftir landsleikinn:
Jóhannes Eðvaldsson, fyrirliöi lslands, tók aðalmarkskorara Dana,
Niels Chr. Holmström, að sér I leiknum meö þeim árangri, að Holm-
ström mátti sln lltils. Hér berjast kapparnir um knöttinn — Jóhannes
til vinstri. Simamynd AP i morgun.
Með slíku áframhaldi
fáum við 14-2 skell!
Kjartan L. Pálsson rœðir við leikmenn — íslenzka og danska — og fleiri
Asgeir Sigurvinsson:
„Þetta var mun betra en á móti
Belgiu heima og við áttum a.m.k.
skilið jafntefli. Við fengum 5-6
dauðafæri og þeir náðu þvi ekki
einu sinni-Ef Danir hafa nokkurn
timann verið héppnir I leikjum
við okkur, þá var það núna.”
Flemming Lund, danski atvinnu-
maðurinn frá Antwerpen:
„Við unnum og ég er ánægður
með það, en ég er óánægður með
frammistöðu danska liðsins.
Jafntefli var ekki ósanngjarnt
miðað við tækifærin. Islenzka
liðið kom mér virkilega á óvart.
Það var mun betra en ég hafði
hugsað mér. Það gerði mistök
eins og i fyrsta markinu, sem ég
skoraði. Það var ekki hægt
annað en að skora þar. Ég hafði
Nú er Milljarður i fangelsi
Þið viljið fá að vita hvers')
vegna Brúni vildi eyði-
leggja Spörtu ,
Hann vildi verða formaður,
en tókst ekki. Þá lagði )-Hugsasér
hann hatur á Rikka '
og vildi eyðileggja,
allt
Bommi, óvænt þetta,
mjög óvænt
allt opið, þegar markvörðurinn
kom út. Þið eigið góða leikmenn i
þessum hóp, þótt mér þætti
Sigurvinsson beztur af þeim
öllum”.
Jón Gunnlaugsson, sem nú lék
sinn fyrsta landsleik:
„Það var gaman að fá að vera
með i þessum leik, þótt það væri
nú heldur stutt, sem ég fékk að
leika. Við áttum að ná jafntefli i
það minnsta. Markiö, sem dæmt
var af i lokin, var 100% löglegt og
Matthias var ekki rangstæður
þegar hann komst einn innfyrir.
Þar fyrir utan vorum við hroða-
lega óheppnir i upphafi og lok
leiksins”.
Ulrik Lefevre frá Bruegge Fc. I
Belgíu:
„Ég lék meö.þegar við unnum
Island 14:2 og skoraði þá 3
mörk...Nú var það eitt
mark...Framfarir hjá ykkur hafa
veriðstórkostlegarsiðan þá, og ef
þessu heldur svona áfram, fáum
við 14:2 skell fljótlega. Við áttum
að vinna þennan leik—en islenzka
liðið átti að geta skorað fleiri
mörk en þetta eina. Allt liðið var
gott—enginn veikur hlekkúr
nema þá helzt bakverðirnir, sem
voru oft seinir. Beztir fannst mér
Jóhannes Eðvaldsson — einn
bezti skallamaður, sem ég hef séö
i langan tima og Asgeir Sigur-
vinsson, en hann er einn af 10 til
15 beztu knattspyrnumönnum I
Belgiu...Stórkostlegur leik-
maður.”
Jóhannes Eðvaldsson fyrirliði Isl.
liðsins:
„Þetta var allt i lagi nema að
við áttum að ná jafntefli. Það var
ekkert að markinu, sem þessi
norski dómari dæmdi af og sagði,
að ég hefði brotið af mér — það er
bölvuð vitleysa. Daninn bakkaði
inn i mig og datt svo um koll
vælandi”.
Ellert B. Schram, formaður KSl:
„Ég er stoltur af islenzka
liðinu. Það lék vel og barðist
nema á kafla i fyrri hálfleik og
þeim siðari. Markið, sem var
dæmt af var i lagi — það bakka ég
ekki með. Jafntefli var það
minnsta, sem við áttum að fá — i
lokin var það ekki spurning um
hvort Danir sigruðu heldur hvort
við jöfnuðum”.
Jack Johnson fyrrum þ jálfari
ÍBA:
„Ég var hreykinn af þvi að
þekkja alla Islenzku leikmennina.
Danir fitja upp á nefið, þegar
talað er um islenzka knattspyrnu,
en þeir máttu þakka fyrir þennan
sigur...tsland átti að vinna, og
þegar staðan var 1:0 fyrir Dani
átti hún að vera 3:0 fyrir Island”.
Tony Knapp, þjálfari
„Það er sama hvenær islenzk lið
leika...nær alltaf ómögulegir
dómarar og linuverðir. Við áttum
að ná jafntefli það var það
minnsta.Við áttum opnari færi en
þeir og fyrstu 20 minúturnar og
siðustu 15 var aðeins eitt lið á
vellinum...það islenzka”.
Knud Lundberg einn þekktasti
blaðamaður og Iþróttamaður
Danmerkur:
„Jafntefli var sanngjarnt eftir
tækifærunum, sem þiö fenguð. 1
byrjun höfðum við betri bolta-
meðferð, þegar við náðum tökum
á leiknum, en oft spilaði islenzka
liðið eins vel og það danska —
þetta er það bezta sem ég hef séð
til islenzka landsliðs i langan
tima.”
A u s t u r - Þý zkaland, sent
islenzka landsliðið í knattspyrnu
leikur við á laugardag I
Magdeburg, vann litinn sigur á
Kanada I gærkvöidi — 2:0 i
Frankfurt am Oder. Lið Kanada
er á keppnisferðalagi um Evrópu
til að öölast reynslufyrir keppn-
ina á Olympiuleikunum I Kanada
1976.
Aðeins 2000 áhorfendur sáu
leikinn og piptu þeir mjög á sina
menn — þótti frammistaöa þeirra
slök. Fyrra markið skoraöi þýzka
liðiðá 17.min, og var Martin Hoff-
mann þar að verki. Siöara ntarkið
skoraði Ilans-Jurgen Dörner
alveg i lokin og álitu flestir, að
hann hafði verið rangstæöur,