Vísir - 10.10.1974, Blaðsíða 13

Vísir - 10.10.1974, Blaðsíða 13
Vlsir. Fimmtudagur 10. oktdber 1974. 13 — Og það var Hjálmar sem sagði, að þú værir ekki nokkurs virði i eldhúsinu. ÚTVARP # 13.00 A frívaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Skjóttu hundinn þinn” eftir Bent Nielsen Guðrún Guðlaugs- dóttir les þýðingu sina (12). 15.00 Miðdegistónleikar 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið 17.10 Tónleikar. 17.30 Pilagrimsför til lækninga lindarinnar i Lourdes Ingibjörg Jóhanns- dóttir les frásögu eftir Guö- rúnu Jacobsen (1). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir 19.15 Frá Evrópumeistara- keppninni i handknattleik: Fyrri leikur Saab og FH i Linköbing Jón Asgeirsson lýsir siðari hálfleik. 19.45 Tilkynningar. 19.50 Mælt málBjarni Einars- son flytur stuttan þátt um Islenzku. 19.55 Flokkur Islenzkra leik- rita, II: „Skugga-Sveinn” eftir Matthias Jochumsson Leikstjóri: Helgi Skúlason. Inngangsorð flytur Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor. Persónur og leik- endur: Sigurður lögréttu- maður i Dal: Valur Gisla- son. Asta, dóttir hans: Soffia Jakobsdóttir. Jón sterki: Valdemar Helgason. Gudda hjú i Dal: Arni Tryggvason. Gvendur: Guðrún Þ. Stephensen. Lárenzius sýslumaður: Ævar R. Kvaran. Margrét, þjónustustúlka hans: Asdis Skúladóttir. Hróbjartur vinnumaður: Lárus Ingólfs- son. Helgi stúdent: Kjartan Ragnarsson. Grimur stúdent: Pétur Einarsson. Geir kotungur: Daniel Williamsson. Grani kotungur: Jón Hjartarson. Galdra-Héðinn: Brynjólfur Jóhannesson. Skugga- Sveinn: Jón Sigurbjörnsson. Haraldur: Jón Gunnarsson. ögmundur útilegumaður: Guðmundur Pálsson. Ketill útilegumaður: Þórhallur Sigurðsson. 22.00 Fréttir. 22.15 Veður- fregnir. Niðurlag — 4. og 5. þáttur leikritsins „Skugga- Sveins” (sbr. ofanskráð). 22.55 Frá alþjóðlegu kóra- keppninni „Let the Peoples sing”„ Guðmundur Gilsson kynnir. 23.15 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Skrifstofu- starf, 1 - 5 Fyrirtæki I miðbæ Reykja- vfkur óskar eftir skrifstofu- stúlku. Vinnutimi 1-5. Vélrit- un, nokkur sölustörf, snúningar. Þarf að hafa bif- reið til umráða. Umsóknir með uppl. um aldur, mennt- un, fyrri störf og kaupkröfur sendist augld. VIsis merktar „Skrifstofustarf 6480”. -tf-k-k-k-K-K-k-k-k-k*-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-*Ht-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-K-k-k-K-k-k-k-k m ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ * * ! ! ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ í 1 ★ ★ ★ ★ ★ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥■ ¥ ! ! & já Spáin gildir fyrir föstudaginn 11. október Hrúturinn, 21. marz—20. april. Morgunninn fær- ir þér nýja vini og nýjar hugmyndir. Taktu ekki neins konar áhættu 1 dag. Sýndu nákomnum ást- riki. t kvöld skaltu huga vel að heilsunni. Nautið, 21. aprll—21. mal. Þú kemst vel frá kaupum i dag. Ef þú hefur augun vel hjá þér, gætirðu dottiö ofan á stóra vinninginn. Reyndu að gleðja foreldrana. Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Þú nærð góðu sambandi viö nágranna eða einhvern skyldan þér. t náminu skaltu reyna að taka eftir nokkru óvenjulegu. Kvöldið fer einkar vel fram. Krabbinn, 22. júnl—23. júll. Reyndu aö láta erfiöiö borga sig. Þú átt það skilið. Ef þú ert áreiöanlegur nýtur þú trausts og viröingar. Þú ættir aö nota hendurnar úr þvi þú ert svo hepp- inn að vera laghentur. Ljónið, 24. júll—23. ágúst.Haltu þvi áfram I dag, sem þú byrjaðir á i gær. Smábreytingar til lag- færingar ættu ekki aö saka neitt. Þú skalt samt vara þig á að ofreyna þig. Meyjan, 24. ágúst—23. sept.Þú skalt halda þig I skjóli þar til þú hefur rannsakað málin frá öllum hliöum. Flas er aldrei til fagnaöar eins og menn ættu að muna. Vogin, 24. sept.—23. okt.Dagurinn er góöur til að vera með fólki, sem þú annars hittir sjaldan. Þú nærð betra sambandi við það og skilningur milli vina eykst til muna. Drekinn, 24. okt—22. nóv. Aðrir munu fylgjast með gerðum þinum, vertu þvi viss um að gera engar vitleysur. Settu markiö hátt og vertu viö- mótsþýður viö undirmennina. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.Þú kemst þrepi ofar i starfinu vegna eftirtektar þinnar en varaöu þig aö koma þér ekki illa við yfirmenn, þeir eru hálftæpir á tauginni i dag. Steingeitin, 22. des.—20. jan. Gættu þess að halda einkamálum innan ákveðins ramma fólks, annars komast lygasögur á kreik. Einhver sem minna má sin þarfnast uppörvunar. Vatnsberinn, 21. jan.—19. feb.Reyndu að stuðla aö samstarfi og skilningi milli fólks sem þú um- gengst. Þú átt gott með að átta þig á vandamál- um annarra og benda á leið til bóta. Varastu samt að vera of afskiptasamur. Fiskarnir, 20. feb.—20. marz.Nýtizku aöferðir er sjálfsagt aö nota i sambandi við viðgerö á ein- hverju eða hvað varðar heilsuna. Vertu viss um aö skjólstæöingar fái það sem þeir þarfnast. ★ ★ ★ I 1 I X ¥ ¥ ¥ X ¥ ¥■ ¥■ ¥• ¥ ¥■ ¥ ¥ ¥■ ¥■ X ¥• ¥■ ¥■ ¥■ ¥■ * -¥ -¥ ■¥ X ¥■ ¥• ¥ •¥ ■¥ ¥■ ¥ ¥- ¥ ¥- ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ I DAG | D KVÖLD | Q DAG | D KVÖLD | Q □AG | Skugga-Sveinn í útvarpinu kl. 19,55 GLÆNÝR SKUGGA-SVEINN Helgi Skúlason leikstýrir þeirri nýju upptöku á Skugga-Sveini sem við heyrum I kvöld. Þarna rabbar hann við Ævar Kvaran, sem I leikritinu I kvöld leikur Lárenzlus sýslumann. Eftir hálfan mánuð verður flutt leikritið Hallsteinn og D6ra eftir Einar H. Kvaran. Þvl verki leikstýrir Ævar. Ljósm. Bj. Bj. Útvarpshlustendur fá i kvöld að heyra leikrit Matthiasar Jochums- sonar, Skugga-Svein, i nýrri upptöku. Leikritið i kvöld er annað leikritið i flokki 13 íslenzkra leikrita sem útvarpið hyggst flytja á hverjum fimmtudegi allt til næstu áramóta. Slikur flutningur ætti að gefa mjög góða yfirsýn yfir sögu is- lenzkrar leikritunar. Við fyrstu sýn gæti virzt sem á þeim vett- vangi væri ekki um auðugan garð að gresja, en við nánari athugun kemur i ljós að islenzk leikrit eru bæði mörg og góð. Þessu fá hlustendur að kynnast. næstu fimmtudaga. Leikritið Skugga-Svein þarf ekki að kynna. Flestir Is- lendingar hafa séð það, heyrt eða lesið einhvern tima á lifsleiðinni. A undan flutningnum i kvöld mun Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor flytja inngangsorð um verkið og höfundinn. Siðar i vet- ur, eða nánar tiltekið i lok nóvem- ber, mun Sveinn Skorri auk þess flytja erindi um islenzka leikritun fyrr og nú. Leikstjóri Skugga-Sveins i kvöld verður Helgi Skúlason og með hlutverk Skugga-Sveins fer Jón Sigurbjörnsson. Ketill er leikinn af Þórhalli Sigurðssyni. Næsta fimmtudag verður flutt leikritið Sverð og bagall eftir Indriða Einarsson undir leikstjórn Hildar Kalman, en upptaka þess verks er gömul. Þar næsta fimmtudag heyrum við leikritið Hallstein og Dóru eftir Einar H. Kvaran, þar flytur Tómas Guðmundsson inngangs- 'erindi, en Ævar Kvaran leikstýrir. -JB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.