Vísir - 18.10.1974, Qupperneq 9
Vísir. Föstudagur 18. október 1974.
Vlsir. Föstudagur 18. október 1974.
.
''<V & g
ukwhj
' VERHFMr
«*waw
VgHHIW hirkfrrt.
§' I
Yngsta iþróttafélagið i Reykjavik — Leiknir úr Breiöholti — iék sinn fyrsta leik I karlaflokki I hand-
knattleik I gærkvöldi. Ekki var ráöist á garöinn þar sem hann er lægstur, þvi mótherjinn var Valur meö
Gisla Blöndal og aöra meistaraflokksmenn I fararbroddi. En I Leikni eru heidur ekki neinir „smákall-
ar”, cins og sjá má á iiösmyndinni. Þar er t.d. Hermann Gunnarsson (Val), Vikingarnir Hafliöi Péturs-
son, Jón ólafsson og örn Guömundsson, Valsmennirnir Finnbogi Kristjánsson og Jón Carlsson, IR-ing-
urinn Gunnar Haraldsson og KR-ingurinn Halldór Sigurösson, svo einhverjir séu nefndir. Þá vantaöi I
liöiö landsliösmennina Guögeir Leifsson og Martein Geirsson, en þeir fengu fri I gærkvöldi. Leiknum
lauk meö sigri Leiknis 15:12 og á hinni myndinni má sjá Halidór Sigurösson skora eitt af mörkum Breiö-
holtsliösins I þessum sögulega leik. Þeir vöktu mikla athygli fyrir skemmtilegan samleik og einnig þótti
búningur þeirra sérkenniiegur — aö sjálfsögöu Ilensonbúningur — en hann er einn sá skrautlegasti, sem
menn hafa séö um dagana. Ljósmyndir Bj.Bj.
Vinnur pressuliðið
londslið Birgis?
— og blaðamenn stjórnarmenn Handknattleikssambandsins
Siöan Birgir Björnsson geröist
landsliöseinvaldur og þjálfari
landsliösins hefur hann gert rót-
tækar breytingar á islenzka
landsliöinu i handknattleik. Sex
nýir leikmenn fara I keppnisför
landsliösins til Sviss i þessum
mánuöi og hafa ekki allir veriö á
eitt sáttir meö val Birgis. Þess
ber þó aö geta, aö leikmenn eins
og Geir Hallsteinsson og Björg-
vin Björgvinsson hafa ekki gefið
kost á sér i keppnisförina tii
Sviss.
Mótið I Sviss er skipað sterkum
þjóðum — auk Islands og Sviss
leika þar Vestur-Þjóðverjar og
Ungverjar. Lið Birgis er þannig
skipað.
Markverðir. Hjalti Einarsson,
FH, Guðjón Erlendsson, Fram og
Birgir Finnbogason, FH. Aðrir
leikmenn Pétur Jóhannesson,
Fram, Viðar Slmonarson, FH,
Einar Magnússon, Viking, Ólafur
Einarsson, FH, Ólafur Jónsson,
Val, Jón Karlsson, Val, örn
Sigurðsson, FH, Pálmi Pálma-
íslond með í fyrsto
sinn í NM í blaki
Norðurlandamótið verður hóð í Svíþjóð í byrjun nœsta
mónaðar — íslenzka liðið leikur óður einn leik í Edinborg
Norðurlandamótið i
blaki verður haldið i Svi-
þjóð i byrjun næsta
mánaðar og verður ís-
land með í þvi móti i
fyrsta sinn i sögunni.
Norðurlandamót i þess-
ari iþróttagrein, sem
mjög er að ryðja sér til
rúms hér á landi, hefur
verið haldið undanfarin
ár, en aldrei fyrr með
þátttöku allra Norður-
landanna.
Mótið fer fram fyrstu dagana i
nóvember, en islenzka liðið held-
Ólafur og Svíinn
settir í leikbann!
son, Fram, Stefán Þórðarson,
Fram, Gunnar Einarsson, FH og
Bjarni Guðmundsson, Val.
Á sunnudag verður pressuleik-
ur I Laugardalshöllinni og leikur
þá lið, sem iþróttafréttamenn
hafa valið, gegn landsliði Birgis.
Lið pressunnar er þannig skip-
aö. Markverðir Ólafur Benedikts-
son, Val, og Gunnar Einarsson,
Haukum. Aðrir leikmenn Gunn-
steinn Skúlason, Val, Geir Hall-
steinsson, FH, Björgvin Björg-
vinsson, Fram, Hilmar Björns-
son, KR, Stefán Jónsson, Hauk-
um, Hörður Sigmarsson, Hauk-
um, Brynjólfur Markússon, 1R,
Agúst Svavarsson, 1R, Arni Ind-
riöason, Gróttu, Stefán Gunnars-
son, Val, Stefán Halldórsson, Vik-
ing, og Trausti Þorgrimsson,
Þrótti.
Það verður fleira til
skemmtunar i Höllinni á sunnu-
dag — meðal annars leikur hið
ósigrandi lið iþróttafréttamanna
meö Omar Ragnarsson og Björn
Blöndal i broddi fylkingar við
stjórn HSÍ, og tóku stjórnarmenn
þeirri áskorun blaðamanna að
mæta þeim á fjölum Laugardals-
hallarinnar eftir tvo næturfundi.
Ennþá hafa stjórnarmennirnir þó
engann fengið til að standa i
markinu — helzt hallazt að þvi, að
stjórnin skipi einhvern landsliðs-
markvarðanna I þá erfiðu stöðu.
Nœr allir miðar seldir ó
Það er meira tjón fyrir FH en
Saab, ef þeir Ólafur Einarsson og
Leif Olsson veröa settir i leik-
bann, skrifuðu sænsku blööin eftir
átakaleik Saab og FH á dögunum.
Þessir umræddu leikmenn lentu I
hörkulegum átökum I lok leiksins
I Linköbing og var báðum visaö af
leikvelli.
I gær fékk FH svo bréf frá
alþjóðahandknattleikssamband-
inu I Sviss, þar sem félaginu var
tilkynnt að Ólafur og Sviinn
mættu ekki taka þátt i siðari leik
liðanna i Evrópukeppninni vegna
þessara agabrota. Sviinn Wad-
mark, sem er einn af fremstu
handknattleiksleiðtogum heims,
hefur greinilega átt þar hlut að
máli. FH-ingum er ekki kunnugt
um, að nein aganefnd sé til hjá
alþjóðasambandinu og hafa sett
sig i samband við það til að kanna
málið betur. Engin fordæmi
munu vera fyrir þvi, að leikmenn
séu settir i leikbann þó þeim sé
visað af leikvelli. Væntanlega
verða svör komin frá alþjóða-
sambandinu fyrir Evrópuleikinn
á morgun.
Aðgöngumiðasala að leik FH og
Saab hófst i gær og seldust öll sæti
upp á svipstundu. Miðar voru
Evrópuleik FH og Saab
seldiri Laugardalshöll og Iþrótta-
húsinu i Hafnarfirði. Eftir eru 300
stæði á hvorum stað — og 50
barnamiðar i Laugardalshöll-
inni. Sala á þessum miðum hefst
kl. 5.30 i dag.
— hsím.
ur utan fyrir mánaðamót og mun
leika einn leik við Skotland i
Edinborg þann 30. október.
Landsliðshópurinn var valinn
fyrir nokkrum vikum og hafa ver-
ið tvær til þrjár æfingar á hverri
viku siðan þá og vel mætt á allar
æfingarnar. Halldór Jónsson,
sem einnig er leikmaður með lið-
inu, er aðalþjálfari liðsins, en lið-
ið er að mestu skipað sömu leik-
mönnum og léku landsleikina við
Noreg á Akureyri og Hafnarfirði i
vor.
Aðeins þrir menn, sem þá léku,
gáfu ekki kost á sér i þessa ferð —
Vikingarnir Páll Ólafsson og
Torfi Rúnarsson og landsliðs-
maðurinn i knattspyrnu, Asgeir
Eliasson, sem mun leika með
hinu nýja blakliði Þróttar i vetur.
Það lið er að mestu skipað piltum,
sem voru i iþróttakennaraskólan-
um I fyrra, og urðu þá íslands-
meistarar.
Þeir fóru nokkuð vel af stað i
fyrsta mótinu i nýja búningnum
— komust I úrslit i Haustmóti
BLÍ, sem fram fór um siðustu
helgi, en töpuðu þar fyrir liði stú-
denta. —klp—-
Valsstúlkurnar
tóku við sér!
Víkingsstúikurnar tóku forustu
i Reykjavikurmótinu i handknatt-
leik kvenna, er þær sigruðu
KR-stúlkurnar með 8 mörkum
gegn 4 i Laugardalshöliinni i
fyrrakvöld.
Tveir aðrir leikir fóru fram
þetta sama kvöld — Valur sigraði
Armann 7:5 og IR sigraði Þrótt
15:9. Þetta var fyrsti leikur.
IR-stúlknanna i mótinu og eru
þær þvi taplausar eins og
Vikingsstúlkurnar. Aftur á móti
hafa öll hin liðin — Valur, Ar-
mann, Fram, KR og Þróttur tap-
að stigum.
Valsstúlkurnar töpuðu fyrsta
leiknum i mótinu, gegn KR, en i
leiknum við Armann tóku þær
aftur við sér, enda máttu þær ekki
við þvi að tapa þeim leik, ef þær
ætluðu að eiga möguleika I
Reykjavikurmeistaratitilinn.
Næstu leikir i meistaraflokki
kvenna verða á miðvikudaginn I
næstu viku, þá leika...:
Fram—IR, Þróttur—KR og Vik-
ingur—Valur. Ætti siðasti leikur-
inn að geta orðið nokkuð fjörugur,
ef mark má taka á fyrstu leikjun-
um.
— klp |
Vantaði 42 til að tvö-
falda óhorfendatöluna!
— íslandsmótið í körfuknattleik hefst um helgina
Yfir áttatiu liö frá tuttugu og
fimm félögum taka þátt i tslands-
mótinu I körfuknattleik, sem
hefst meö leikjum i 1. deild i
tþróttahúsinu I Njarövik á morg-
un. Þetta er sjö liðum fleira en
tóku þátt i tslandsmótinu i fyrra,
en þaö mót tókst meö afbrigöum
vel og skipuiega, enda taiiö eitt
bezta tslandsmót I körfuknatt-
leik, sem hér hefur fariö fram.
Mótið hefst með tveim leikjum i
1. deild og fara þeir fram i
íþróttahúsinu i Njarðvik. Fyrsti
leikurinn, sem hefst kl. 14.00, er á
milli UMFN og Armanns en sið-
ari leikurinn á milli Snæfells og
1R.
I Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
fara fram tveir leikir á morgun —
Fram leikur við UMFS i 2. deild
og IR leikur við 1S i meistara-
flokki kvenna.
A sunnudaginn verður keppn-
inni i 1. deild karla haldið áfram
og leika þá IS—Snæfell og Val-
ur—HSK. Fara þeir leikir fram I
Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og
hefjast kl. 18.00.
Keppnin i 1. deildinni I fyrra
var mjög skemmtileg enda
aðsókn að leikjunum góð
sérstaklega þegar fór að liða á
mótið. Vantaöi aðeins 42
áhorfendur til að áhorfendatalan
tvöfaldaðist frá árinu áður, en
önnur eins aukning hefur ekki átt
sér stað I flokkaiþróttagrein hér á
landi I fjölda mörg ár.
Hvort körfuboltamenn ná þessu
aftur I ár, er ekki gott að segja
um, en þó eru allar likur taldar á
þvi, þar sem liöin eru mjög áþekk j
11. deildinni i ár — jafnvel jafnari j
en þau voru i fyrra. — klp — |
BH
Keppendur tslands i heimsmeistarakeppni eldri meistara. Frá vinstri Guömundur Oíeigsson, Helgi Eiriksson, fyrirliöiog næstur honum eru framkvæmda-
stjóri keppninnar og hinn mikli bikar, sem Astraliumenn hlutu I keppninni, siöan Ingólfur Helgason og Óli B. Jónsson.
ísland í 11. sœti af 28!
Þetta var í einu orði sagt —
yndisiegt. Móttökur allar frá-
bærar sem áður og árangur
íslenzku sveitarinnar miklu
betri, en í þeim mótum, sem
við höfum áður tekið þátt i.
Ellefta sæti af 28 þjóðum seg-
ir þar sína sögu, sagði Helgi
Eiríksson, fyrrum banka-
stjóri, þegar Visir ræddi ný-
lega við hann en hann ásamt
öðrum Islendingum tók þátt í
golfkeppni í Broadmore í
Colorado-fylki i Bandaríkjun-
um frá 17. ágúst til 1. septem-
ber sl.
Helgi Eiriksson keppti nú i fimmta
skipti á golfmótinu I Broadmore,
sem kalla má „Heimskeppni eldri
meistara” (World senior golf
championship) — og var fararstjóri
og fyrirliði islenzku sveitarinnar.
Aðrir keppendur Islands voru Guð-
mundur Ófeigsson og Ingólfur
Helgason, sem tóku þátt i mótinu i
annað sinn, og Óli B. Jónsson, sem
nú fór i fyrsta skipti. Einnig voru
eiginkonur þeirra meö i förinni, þær
Jóhanna Arnadóttir, Kristin Guð-
mundsdóttir, Hanna Gabriel og
Guðný Guðbergsdóttir. Þær tóku
einnig þátt i keppni — nema eigin-
kona Helga, Jóhanna.
Sveitakeppnin er aöalkeppnin á
Broadmore-mótinu. Þátttökuþjóðir
voru .28 úr öllum heimsálfum.
Aldurstakmark er 55 ár — það er
keppendur mega ekki vera yngri.
Þarna gekk islenzku sveitinni miklu
betur en áður I þau fimm skipti, sem
Island hefur átt þar keppendur. Hún
varð i 11. sæti á 472 höggum og svo
hörð var keppnin, að með þriggja
högga betri árangri hefði hún lent I
sjöunda sæti. Sveit Astraliu sigraði i
keppninni að þessu sinni á 436 högg-
um, en sveit Bandarikjanna, sem
hefur yfirleitt alltaf sigrað, varð !
öðru sæti. Aðeins tvær Evrópuþjóðir
náöu betra sæti en tsland — Sviþjóð
og Vestur-Þýzkaland. Keppt var i
fjögurra manna sveitum og taldi
árangur þriggja beztu i hverri sveit.
Helgi Eiriksson, sá fjölhæfi iþrótta-
maður gegnum árin, lék bezt Islend-
inganna.
Sveitakeppnin stóð yfir 23.-24.
ágúst, en áður höfðu keppendur
fengið tvo æfingadaga á hinum
glæsilega en erfiða golfvelli, sem tal-
inn er i hópi 14 erfiðustu golfvalla i
Bandarikjunum. Völlurinn er I 6-7
þúsund feta hæð yfir sjávarmál og
tók nokkurn tima að venjast þunna
loftinu, auk þess, sem nær alltaf er
leikið „upp I móti”. Grinin eru við-
sjárverð I þetta mikilli hæð og tals-
verður munur hvort leikið er að eða
frá Klettafjöllunum. Lengd þessa
glæsilega vallar er 7000 jardar — tor-
færur miklar og 27-30 stiga hiti
keppnisdagana. En það er lika kost-
ur við hæðina — högglengdin verður
meiri. 1 Broadmore er nú verið að
byggja þriðja golfvöllinn og verða
lagðar i hann átta milljónir dollara
— hálf milljón dollara hefur farið i
moldina, sem aökeypt hefur verið.
Einstaklingskeppni var háö 26.-30.
ágúst og var um 400 þátttakendum
raðað i flokka eftir árangri þeirra i
sveitakeppninni — og voru keppend-
ur frá 55 ára aldri upp i 84 ár. út-
sláttarkeppni var og oft mikil harka
eins og verða vill á stundum, þegar
tveir berjast I holukeppni. Tveir Is-
lendinganna stóðu sig prýðilega —
þeir Helgi Eiriksson og Ingólfur
Helgason hlutu önnur verðlaun I sin-
um flokkum.
Þarna hlaut Helgi Eiriksson enn
ein glæsileg verðlaun i sitt mikla
verðlaunasafn og fjölbreytilega. Svo
skemmtilega vill til, að fyrstu verð-
laun sin hlaut hann fyrir sextiu ár-
um. Það var 1914 og Helgi var I
sigursveit úr Knattspyrnufélaginu
Vikingur, sem sigraði i boðhlaupi
drengja. Siðar varð Helgi helzti
máttarstólpi þess félags á knatt-
spyrnuvöllunum — tslendsmeistari
— og formaður Vikings. Hann var
einnig meö afbrigðum fjölhæfur i
frjálsum iþróttum — tslandsmethafi
og meistari þar, þó einkum sé árang-
ur hans i hástökki enn i minnum
hafður. Og Helgi á verölaun úr
mörgum öðrum iþróttagreinum.
1 einstaklingskeppninni voru að-
eins veitt tvenn verðlaun i hverjum
flokki. Sigurvegari i aðalflokknum
varð Larry Pendelton, Bandarikjun-
um. öllum Islendingunum gekk vel
til að byrja með, en siðan féllu þeir
Guðmundur Ófeigsson og óli B.
Jónsson úr keppninni — en Helgi og
Ingólfur komust I verðlaunaflokkinn.
Konurnar tóku þátt meöal annars i
púttkeppni og stóðu sig vel. Kristin
Guðmundsdóttir var i 2.-3. sæti og
varð að keppa til úrslita, þvi þar
voru einnig aðeins veitt tvenn verð-
laun. Á fimmtu holu tapaði Kristin I
keppninni um önnur verðlaunin. Um
40 konur tóku þátt I keppninni. Allir
þátttakendur Islands i þessari miklu
golfkeppni i Broadmore voru sam-
mála um, að ferðin hefði heppnast
einstaklega vel — ferð, sem aldrei
mun liða þeim úr minni. —hsim.
Norrœnir
frjólsíþrótta-
leiðtogar þinga
í Reykjavík
Þing frjálsíþróttaleiötoga á
Noröurlöndum veröur haldiö hér i
Reykjavik um helgina — aö Loft-
leiöahótelinu. Þetta er 31.
Norðurlandaþingið og hiö þriðja,
sem haldiö er hér á landi. Þingiö
sækja þrir Sviar, þrir Norömenn,
tveir Danir og einn Finni — og
auk þess sitja þaö átta tslending-
ar. Þingið hefst kl. 9.30 i fyrra-
máliö.
Vilja þjólfarann heim á ný!
Eftir jafntefliö viö Danmörku 1
Evrópukeppninni i knattspyrnu um
siöustu helgi var mikiö fjaörafok
meöal knattspyrnuforustunnar f
Rúmeniu. Menn heimtuöu, aö
þjálfarinn Stanescu yröi settur af,
og Stefan Kovacs, sem þjáifar
franska landsliöiö, yröi kallaöur
heim.
Kovacs er maöurinn á bak viö
sigurgöngu hollenzka liösins Ajax á
undanförnum árum, og er talinn
einn bezti þjálfari heims. Hann
lenti i útistööum viö forráöamenn
Ajax, þegar þeir vildu selja Cruyff
og fleiri leikmenn frá félaginu, og
sagöi þá starfi sinu lausu
Rúmenarnir kölluöu hann þá
heim, en hann fékk leyfi til aö vera
utanlands eitt ár i viöbót, er Frakk-
ar fóru fram á aö fá hann til aö vera
meö landsliðiö. Fór heil pólitisk
nefnd til Rúmeniu til aö ræöa um
ráöningu hans og haföist þaö I gegn
eftir diplomatiskum leiðum eins og
sagt er.
Taliö er, aö erfitt veröi fyrir
Rúmeniu aö fá þessum samningi
rift — Frakkar vilja ekki sjá af
Kovacs, og hann vill heldur ekki
fara heim.
Þennan fræga þjálfara fáum viö
aö sjá hér á landi næsta sumar, er
franska liöiö kemur hingað til aö
leika viö þaö islenzka i Evrópu-
keppninni, en hann hefur lofaö þvi,
aö franska liöiö veröi mjög sterkt á
næsta ári — þ.e.a.s. ef hann fær friö
til aö vera meö liöiö svo lengi.
— klp —