Vísir - 31.10.1974, Qupperneq 16
VISIR
Fimmtudagur 31. október 1974.
STÖÐU-
MÆLAR
AFTUR Á
LAUGA-
VEG?
— margt lýtur að
því, segir formaður
umferðarnefndar
„Ef einhver breyting
yrði gerð aftur á tilhög-
un bilastæða við Lauga-
veg, verður að miða þá
breytingu við, að þrátt
fyrir hana geti strætis-
vagnar haldið tima-
áætlun. Ég held það
verði ekki horfið til
fyrra ástands”.
Þetta sagði Valgarð Briem, for-
maður Umferðarnefndar Reykja-
víkur i viðtali við Visi i morgun.
Eins og kunnugt er, hafa Kaup-
mannasamtökin mótmælt hinu
algjöra banni við bilastöðum á
Laugavegi vegna minnkandi við-
skipta iverzlunum þar. Samtökin
sendu bréf varðandi málið til
borgarráðs. Ráðið óskaði eftir
þvi, að umferðarnefnd og stjórn
SVR fjölluðu frekar um málið og
legðu niðurstöður sinar fyrir það.
„Umferðarnefnd hefur ekki
komið saman til að fjalla um mál-
ið ennþá. En ég hygg að margt
lúti að þvi, að nokkrir stöðumælar
verði settir upp á ný við sunnan-
verðan Laugaveg, til þess að
breytingin verði ekki eins sár fyr-
ir kaupmenn. Aðrar hugmyndir
hafa ekki komið upp. En eins og
ég sagði, þá er nefndin ekki búin
að fjalla um málið á fundi sin-
um”, sagði Valgarð.
Valgarð sagðist hafa setið
fund, sem kaupmenn við Lauga-
veg héldu með borgarstjóra. Þar
sögðu kaupmenn að mjög hafi
dregið úr viðskiptum eftir breyt-
inguna.
„Við munum sem sagt reyna að
finna þá lausn, sem getur dregið
úr þessum afleiðingum hjá kaup-
mönnum, án þess þó að það skerði
upphaflegan tilgang stöðubanns-
ins, sem var sá að strætisvagnar
gætu haldið timaáætlun,” sagði
Valgarð Briem að lokum.
___________________—ÚH
Léttist í pyngju
brauðkaupenda
Pyngja þeirra, sem keyptu
brauð ásamt öðru i dag, er léttari
en endranær. Brauðið hefur
hækkað I verði.
Rúgbrauð hækkar ú 73 kr. i 77,
og franskbrauðshleifurinn fer úr
56 kr. i 60. Vinarbrauð, tvibökur
og annað af þvi tagi hækkar einn-
ig-
—ÓH
Lenti í spili
og lézt
Dauðasiys varð um borð I Rósu
HU frá Hvammstanga um
hádegisbilið i gær. Báturinn var á
rækjuveiðum i Húnaflóa, þegar
maður lenti I spilinu. og lézt af
völdum áverka, samstundis, að
þvi að taiið er.
Maðurinn var frá Vestmanna-
eyjum, en þar sem enn hafði ekki
náðst i alla ættingja i morgun, er
ekki hægt að birta nafn hans.
—ÓH
200 þús. króna boð
komið í bílflakið
— Eigendur
brenndu
bílanna
bera
skaðann
sjálfir
„Tilboð er komið upp
á 200 þúsund, en nýir
kosta svona bilar um
470 þúsund, þannig að
tjónið er mikið.”
A mánudaginn skýrði Visir
frá aðför brennuvargs nokkurs
að nokkrum bílum i Gerðunum.
Einn bilanna, sem varð fyrir
barðinu á honum, var glænýr
Mini bill. 1 gær var þessi bill
auglýstur til sölu i smá-
auglýsingum Visis, með fyrr-
greindum árangri.
Eigandinn er ung stúlka, sem
sjálf verður nú að bera allan
skaðann af athæfi brennu-
vargsins. Billinn var ekki
tryggður fyrir bruna og ekki
hefur náðst I brennuvarginn.
„Lögreglan kom hingað um
nóttina og barði upp á”, sagði
bróðir eigandans. „Þá höfðu
þeir verið að kljást við eld i
öðrum bilum i nágrenninu og
sáu þá, er billinn okkar fuðraði
upp. Það er óskemmtilegt aö
vera vakinn upp við slikt.”
SLUPPU
MEÐ
SKRÁMUR
Þeir sluppu með minniháttar
meiðsl, piltarnir tveir, sem sátu
á mótorhjólinu. Þeir komu.ak-
andi eftir Vesturgötunni i gær-
dag, þegar fólksbill svinaði á
þeim. Hjólið lenti á f ramstuðara
bilsins, og piltarnir köstuðust i
götuna. Taiið er, að þeir hafi
verið á talsverðri ferð. Kona,
sem ók bilnum, varð hjólsins
ekki vör fyrr en of seint.
Áreksturinn varð á mótum
Vesturgötu og Ægisgötu, en þar
er Veturgata aðalbraut og
stöðvunarskylda á Ægisgötu.
— ÓH/Ljósm. Visis: BG
INNFLUTNINGUR ÝMISSA VARA
FRJÁLS FRÁ NÆSTU ÁRAMÓTUM
— Tollur lœkkar um 10%
Innflutningur verður sementi,
gefinn frjáls á sælgæti, um og
húsgögnum, óáfengu öli,
um
næstu
straumbreyt-
spennum um
áramót. Áður
riktu sérstakir kvótar
um innflutning þessara
vörutegunda.
Vegna inngöngu Islands i
EFTA lækka einnig verndartollar
á iðnaðarvörum, sem fyrir eru
framleiddar I landínu um það bil
um 10%. Tollar þessir hafa stöð-
ugt lækkað frá inngöngu tslands I
EFTA árið 1970 og verða með öllu
horfnir árið 1980.
Hér er um að ræða vörutegund-
ir, sem einnig eru framleiddar I
-landinu svo sem föt, hreinlætis-
vörur og sælgæti. Til dæmis má
þannig nefna að tollur á brjóst-
sykri frá EFTA löndum lækkar úr
60% I 50% en tollur á brjóstsykri
annars staðar frá lækkar úr 90% i
80% um áramótin.
Þessar lækkanir er ísland
skuldbundið að gera vegna aðild-
ar sinnar að EFTA. Um áramótin
koma einnig til framkvæmda
lækkanir, sem við erum ekki
skuldbundin til að gera en tökum
upp engu aðsiður.Þarerm.a. um
aö ræða lækkun á innflutningstolli
á hráefni til iðnaðar og iðnaðar-
vélum.
— JB.
ÁSATRÚARMENN VILJA FÁ
HELGISTUND í SJÓNVARPI
Ásatrúarmenn hafa farið þess
á leit við útvarpsráð, að þeir fái
til umráða að minnsta kosti eina
„Helgistund” I sjónvarpi. Það
fyigir ekki sögunni, hvern þeir
hyggjast setja fram fyrir sjón-
varpsvclarnar, en að öllum
likindum yrði það allsherjar-
goðinn sjálfur, Sveinbjörn Bein-
teinsson.
„Umsókn Asatrúarmanna
hefur ekki verið tekin fyrir á
fundum útvarpsráðs,” sagði
Guðmundur Jónsson, ritari út-
varpsráðs, þegar Visir leitaði
hjá
upplýsinga
un.
ijá honum i morg-
„Það eru mörg dæmi þess, að
sértrúarsöfnuðir hafi fengið að-
gang að úfvarpi og sjónvarpi.
Bæði með messur og útvarpser-
indi,” sagði Guðmundur
ennfremur. Hann kvað hvergi
vera að finna I reglugerð rikis-
útvarpsins reglur um aðgang
sértrúarsöfnuða að útvarpi og
sjónvarpi. Það væri algjörlega á
valdi útvarpsráðs að ákveða
slikt hverju sinni. „Og þar sem
trúfrelsi er á þessu landi þykir
það sjálfsagt, að það fái að njóta
sin einhvers staðar og einhvern
veginn I dagskrá, en það er ekk-
ert um það i reglugerð, i hvaöa
hlutfalli það eigi að vera,” sagði
Guömundur.
Þegar Visir sneri sér til
Jörmundar, eins af forsvars-
mönnum Asatrúarfélagsins i
morgun, var engar upplýsingar
að fá um beiðni félagsins. Hins
vegar vildi hann koma þvi á
framfæri, að Asatrúarmenn
væru með haustblót i Lindarbæ I
kvöld....
— ÞJM.