Vísir - 05.11.1974, Blaðsíða 2

Vísir - 05.11.1974, Blaðsíða 2
2 Vlsir. Þri&judagur 5. nóvember 1974. risœsm'- Finnst þér of mikið um aug- lýsingar i sjónvarpinu? Baldvin Gislason, útger&arstjóri: — Ég er alveg ánægður með aug- lýsingarnar eins og þær eru núna. Krakkarnir hafa gaman af þeim og eru fljótir að læra setningarn- ar utan að. Jú, þau biðja frekar um þær vörutegundir, sem búið er að auglýsa i sjónvarpinu. Fjöldi auglýsinganna finnst mér lfka hæfilegur, nema þá um jólin. Kristinn Eggertsson, verziunar- ma&ur: — Mér finnst það ágætt eins og það er. Mér fyndist til dæmis alveg ófært, ef farið væri aö setja þær inn i þætti. Til þeirra islenzku er lika stundum litið vandaö. Bergmundur Sigur&sson, véi- stjóri: — Nú orðið er orðið full- mikið um þær. En það er svo sem ágætis afþreying að horfa á þær. Það er þó heldur lakara, ef fariö er aö endurtaka þær sömu ár eftir ár. Helgi Þór&arson, fyrrverandi út- geröarmaöur: — Þær mættu vera færri. Manni leiðist þær og vill frekar fá að sjá eitthvert efni, fréttir og þess háttar. Rósa Hallgrimsdóttir, skrifstofu- stúlka: — Það er of mikið af þeim. Maður horfir þó yfirleitt á þær, ef maður er viö sjónvarpið á annað borð. Jón Þór Armannsson, verzlunar- skólanemi: — Það er allt of mikiö um þær. Þaö fer að koma aö þvi lfka, aö maður læri margar þeirra utan að. „Vonandi leitar borgarróð eftir óliti íbúa Laugavegs" Arni Björnsson hringdi: ,,Ég bý við Laugaveg. Vegna banns við bilastöðum þar og frekjuláta kaupmanna þeirra vegna, vil ég benda á, að enn búa 7 til 800 borgarar við þessa götu. Þeir ættu vonandi ekki að hafa minna til sins máls að leggja heldur en búðaeigendur. Afnám bifreiðastæðanna er fyrsta skrefið i þá átt að gera Laugaveg að göngugötu og banna öðrum en strætisvögnum að aka um hana. Þó verður vist að leyfa sendibilum að aka vörum I verzlanir, og til greina kæmi, að bilar fatlaðra, sem þá yrðu merktir, fengju að standa framan við verzlanir. Það er engum nema sjúkling- um vorkunn að ganga þessar 10 til 15 minútur, eða nota strætis- vagna. Hins vegar er tillitsleysi við ibúa þessarar ágætu götu að leyfa þessa dynjandi bila- umferð nótt sem dag. Vonandi endurskoðar borgar- ráð ekki afstöðu sina án sam- ráðs við hinn þögla meirihluta götunnar, heldur leitar eftir áliti hans.” FARÞEGARNIR SKAPA SJÁLFIR SÓÐASKAPINN y skrifar: Vegna athugasemda um skituga strætisvagna I Kópa- vogi. Ég get ekki látið hjá liða að svara grein, er birtist i laugar- dagsblaði Visis þann 19. október 1974 og fjallar um skituga strætisvagna i Kópavogi. Greinarhöfundur er „gramur Kópavogsbúi” liklega kvenkyns. Um þrifnaö á vögnunum ætla ég ekki aö dæma.Hann mætti ef til vill vera betri, en þó held ég að það sé ekki verr gert en gengur og gerist með þrifnað á slikum farartækjum. Þegar við tökum við vögnun- um á morgnana, eru t.d. gólfin hrein, skoluð út, en „gramur Kópavogsbúi” segist koma i vagninn um klukkan 8.30. ár- degis. Þá eru mjög margir far- þegar búnir að fara um vagninn, eða frá klukkan 6,45 og berst eðlilega óþrifnaður inn á gólfin, ég tala nú ekki um, ef blautt er. Vagnarnir eru ekki þrifnir eftir hverja ferö, þó þess væri vissulega þörf, þvi margir ganga þannig um vagnana. Strax eftir fyrstu ferö er gólfið oröið fullt af bréfarusli og öðrum óþrifnaði, oft utan af sælgæti eða öðru. Fólk hendir ruslinu bara undir næsta sæti eða fram á gólfið og svo kvartar það um óþrifnað i vögnunum. Það athugar ekki að þaö skapar þennan óþrifnað sjálft, gengur sjálfsagt svona um heima hjá sér, og þá er ekki von á góðu. „Gramur Kópavogsbúi” get- ur þess einnig, að þekkja megi fingraförin sin frá þvi i fyrra. Það má vera, að greinar- höfundi hafi tekizt að finna fingraförin sin, en það sannar bara ennþá betur sóðaskapinn hjá sumum farþeganna. MOTMÆLIR „MOÐUR- SÝKISSKRIFUM" Gu&ni Helgason hringdi: „Margt af þvi, sem hefur veriö sagt um myndina „The Exorcist”, erbölvu&vitleysa.Ég sá hana úti i Kaupmannahöfn, og fannst hún ekki mjög hrylli- leg. Og mér finnst blóðug morð I myndum langtum hryllilegri en sum atriðin i Exorcist. Þetta er bara einhver móðursýki i þeim, sem eru á móti henni.” Þaö hitnar sifellt I kolunum I umræOum um Exorcist. Visir hefureinnig fengiO nokkrar upphringingar aörar var&andi eíniö. En þaö viröist slá nokkuö út I fyrir mönnum, og ber einna mest á þvi, aö þeir vilja ekki láta banna sér neitt, en ekki endilega, aö þeirséu fylgjandi þvi, aö „The Exorcist” veröi sýnd hérlendis. Annars hefur máliö tekiö þá merkilcgu stefnu, aö Kirkjuþing hefur tekiö fyrir ályktunartillögu frá biskupi, þar sem varaö er viö a& sýna myndina hérlendis vegna hinna skaölegu áhrifa hennar. Á ekki að stilla þau líka? Hálfblindaöur ökumaöur hringdi: „Þessa dagana er verið að ljúka ljósaskoðun, og frá og með þessum mánaðamótum eiga allir bilar að vera með rétt stillt ljós. En ég er viss um, að varð- andi þessa ljósaskoöun er gloppa i „systeminu”. Þessi gloppa er að mér virðist varð- andi „aukaljósin”, þ.e. þoku- luktir og þess háttar ljós, sem eru framan á bilum til viðbótar lögboðnum ökuljósum. Þegar svo skyggnið er eins og það er i dag (mánudag) freistast marg- ir til að láta þessi ijós loga, annaöhvorteinséreða með aðal- Ijósunum. Þá er ég kominn að aðal- kjarna málsins. Svo virðist sem þessi ljós séu bara alls ekki stillt, og vegna þess, að I þess- um ljósum eru oft sterkar perur, geta ljósin snarblindaö ökumenn, sem á móti koma.” Því ó að banna? Kristinn Atlason skrifar: „Ég get ekki lengur orða bundizt vegna skrifa um kvikmyndina „The Exorcist”. Ég sá þessa mynd I Danmörku i sumar. Við vorum fjórtán saman i hóp, misjafnlega taugasterk. Myndin hefur ekki haft áhrif á geðheilsu okkar. Eitthvað virðast nefnd tilfelli i þessu sambandi sjaldgæf eða orðum aukin. Eftir þau blaðaskrif, sem hér hafa orðiö um þessa mynd, ætti öllum að vera ljóst, um hvað hún fjallar. Ættu þá þeir, sem óttast slæm eftirköst, að geta setið heima. Þvi i ósköpunum ætti að banna þeim, sem áhuga hafa á, að sjá þessa mynd, en þeir hljóta að vera fjölmargir, ef marka má aðsóknina að henni erlendis.” KLAMMYNDIR LilÐA iKKI TIL SJÁLFSMORÐA Hvort á aö banna? Myndin vinstra megin er úr kvikmyndinni Exorcist, en hægra megin er dæmigert atriöi úr „klámmynd.” Þaö til vinstri getur enginn bannaö, en ef þaö hægra megin er sýnt, geta kvikmyndahús átt málshöf&un yfir $ér. T.S....dóttir skrifar „Mig langar að hafa orð á þvi, sem Erlendur Vilhjálmsson hafði að segja um starf kvik- myndaeftirlitsins. Hann sagði, að kvikmyndaeftirlitiö benti lögreglunni á.efum klám væri aö ræða. Af hverju að banna klám, frekar en þessa umtöluðu mynd „The Exorcist”. Ég hef ekki heyrt hingað til að fólk hafi framiö sjálfsmorð eða verið sett á taugahæli eftir að hafa séð einhverja klámmynd. Að minu mati liður manni bara vel á eftir. Þetta, sem þið kallið klám, er ekkert annað en þarfir mannsins og er ég viss um, að þið hafiö allir gert eitthvað svona lagaö, þ.e.a.s. ef þið eruð menn til þess. Þetta er bara mannlegt eðli sem enginn getur gert að, svo er þetta sett á filmu, og þar eru bara fengnar persónur til að leika þetta. „Ég tek það fram, að ég er alls ekki á móti myndinni „The Exorcist”, ég er sammála Páli Danielssyni. Er ég las bréf Magnúsar nokkurs varð ég mjög hneyksluð”.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.