Vísir - 05.11.1974, Page 5

Vísir - 05.11.1974, Page 5
Visir. Þriðjudagur 5. nóvember 1974, 5 LÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND ÍMORGUN ÚTLÖND Umsjón Haukur Helgason Itarleg ácetlun Kissingers um herferð gegn hungrinu Henry Kissinger, utanrikisráð- Rómar, þar sem hann talaöi i Bak við hann er Aldo Moro, gegnir einnig embætti herra Bandarikjanna, veifar tii morgun á ráðstefnu um matvæli. utanrikisráðherra Italiu, sem nú forsætisráðherra. Ijósmyndara við komuna til Kissinger ávárpaði matvæla- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna i Róm. Þættirnir i áætlun hans eru þessir: Að auka matvælafram- leiöslu rikja, sem flytja út mat, hraða framleiðslu i þróunarrikj- unum, bæta dreifingu og fjár- mögnun matvælaframleiðsl- unnar, bæta gæði matvæla og skapa öryggi gegn skorti. Til að ná siðasttalda mark- miðinu lagði Kissinger til, að myndaður yrði fyrir heiminn allan „varaforði” matvæla, allt að 60 miiljónum tonna. t þessu „kerfi” yrðu einnig riki, þar sem stundum yrðu róttækar breytingar á þörfum á inn- flutningi. Með þvi er átt við Sovétrikin og fleiri kommúnista- riki. Skipzt yrði á upplýsingum um Henry Kissinger utan- rtkisráöherra Bandaríkj- anna lagði í dag fram áætl- un í fimm þáttum, sem miðar að þvi að bjarga milljónum manna frá hungri. birgðir og horfur, og samningar gerðir um, hve mikill varaforðinn skyldi verða. Kissinger sagði, að riki, er flyttu út matvæli, og oliuútflytj- endur ættu að stofna til samtaka til að framleiða þau matvæli og skapa það fjármagn, sem þyrfti. Fyrsta skrefið ætti að vera að stofna nefnd um fjármögnun á þessu sviði. Nefndin mundi veita fjármagn til rikja, sem skorti matvæli, næstu þrjú ár. Þá þyrfti að finna leiðir til að veita umframfjármagni rikja til þróunarrikja, sem lán til langs tima eða framlag. Bandaríkin bjóða 8 milljarða króna Þróunarnefndin, sem alþjóða- bankar hefðu nýlega stofnað, gæti kannað þetta vandamál, sagði Kissinger. Bandarikin væru reiðubúin að vinna með öðrum útflytjendum matvæla að þvi að auka fram- leiðsluna. Bandarikjastjórn hygðist kalla saman fund útflutningsrikja strax að lokinni matvælaráð- stefnunni. Otflytjendurnir gætu þó ekki einir uppfyllt þarfirnar. Rannsóknir og fjárfesting þyrftu að koma til i þróunarrikjunum, svo að auka mætti framleiðslu- aukningu þeirra um 40 prósent, en það væri lágmarksaukning, ef mæta ætti þörfunum. Ella yrði 85 milljón tonna skortur á korni árið 1985. Heilbrigðismálastofnunin ætti að hafa eftirlit með ástandinu i þessum efnum og beita sér fyrir rannsókn á leiðum til að bæta gæði matvæla. Bandarikin væru reiðubúin að leggja fram 65 milljón dollara (um 8 milljarða króna) til rannsókna og áætlana til að vinna bug á næringarskorti og auka gæði. AHUGALEYSI Á KOSNINGUM Ahugaleysi á þingkosningunum i Bandarikjunum i dag er talið geta valdið, að tæpur helmingur af 145 milljón manna á kjörskrá greiði atkvæði. Demókratar gera ráð fyrir að vinna mikinn sigur, þótt sumt bendi til, að repúblikanar hafi sótt i sig veðrið siðustu daga. Repúblikanar gleðjast yfir fréttum og niðurstöðum skoðana- kannana, sem benda til, að þeir muni halda baráttusætum i Norður-Dakóta og Utah. En þeir hafa áhyggjur af viðgangi demó- krata i tveimur gömium virkjum repúblikana Colorado og Kansas. I Colorado virðist Garu Hart sem stjórnaði kosningabaráttu McGoverns i $iðustu forseta- kosningum, munu sigra fram- bjóðanda repúblikana i kosningum til öldungadeildar- innar. 1 Kansas er demókratinn William Roy sigurstranglegur. Núverandi þingmaður, Robert Dole, var náinn stuðningsmaður Nixons i Watergatemálinu, þótt enginn hafi vænt hann um afbrot. Staðan á þinginu og fylkis- stjóraembættum er þessi: Alls Demókratar Repúblikanar Kosið um nú öldungadeild 100 58 42 34 Fulltrúadeild 435 248 187 435 Fylkisstjjórar 50 32 18 35 Fjöldamorðinginn með barnsandlitið Lltil 25 ára stúlka, sem er vcrsti f jöldamorðingi, sem dæmdur hefur verið, i sögu Bretlands, hlaut f gær 12 lifstið- ardóma. Þetta er harðasti fangelsis- dómur, sem nokkur hefur hlotið i Bretlandi. Judith Theresa Ward, með barnsandlit sitt, sýndi engin svipbrigði, þegar dómarinn taldi upp, hverjir biðu bana i sprengjutilræðinu, sem hún hefur hlotið dóm fyrir. Það voru tvö börn, kona hermanns og niu hermenn. Sprengja, sem stúlk- an kom fyrir, tætti I sundur her- mannabifreið. Waller dómari sagði, að glæp- ar hennar væri svo við- bjóðslegur og hatursfullur, að enginn fangelsisdómur gæti jafnað metin. Stúlkan var sek fundin um 15 afbrot vegna starfs hennar sem skæruliða IRA. Réttarhöld i máli hennar stóðu i bænum Wakefield i 22 daga. Ekki voru liðnar margar stundir frá uppkvaðningu dóms- ins, er maður með irskum hreim hringdi til fréttastofu og gaf aðvörun á dulmáli um, að sprengjur mundu springa á þrem aðaljárnbrautarstöðvum i London. „Það er fyrir Judith Ward,” sagði hann. Stöðvunum var lokað, og mikið öngþveiti varð á annatim- anum. Sprengjur fundust þó ekki. Aðvörunin var tekin hátiðlega. vegna þess að maðurinn notaði dulmál, sem venjulega táknar alvöruhotun IRA-manna. Judith fékk samúð með irsk- um lýðveldissinnum, þótt hún væri fædd i Norður-Englandi, eftir að hún fluttist til starfa á trlandi. IRA kom henni i brezka her- inn, og saksóknari hélt þvi fram, að hún hefði notfært sér kunnáttu, sem hún fékk i hernum, er hún sprengdi bif- reiðina i loftið. IRA segir hins vegar. að hún hafi ekki starfað fyrir hreyfing- una. Dómurinn væri ..villi- mannlegur" og afhjúpaði rétt- arfarið á Bretlandi. Friðurinn óti í Portúgal? Að minnsta kosti 30 manns særðust i skotbardaga I Lissabon i gærkvöldi, þegar vinstri sinnar reyndu aðhleypa upp fyrsta fundi nýstofnaðs „hægri-miðflokks” landsins. Lögreglan segir, að hún hafi hafið skothrið yfir höfuð kröfu- göngumanna, sem reyndu að ryðjast inn i Sao Luiz leikhúsið, þar sem „lýðræðissinnaði mið- flokkurinn” hélt fund sinn. Almennir borgarar hófu þá skothrið, og 34 særðust, en enginn mikið áð sögn. 18 hinna særðu eru lögregluþjónar. Þessi bardagi kemur illa við herstjórnina i Portúgal, sem reynir að skapa frið og ýta undir lýðræðisþróunina, en kosningar eiga að fara fram i marz næst- komandi. „Miðflokkurinn" er talinn vera öflugastur af þeim nýstofnuðu stjórnmálaflokkum i landinu, sem standa utan bráðabirgða- stjórnarinnar, sem vinstri menn stýra. Flokkur vinstri sinnaðra öfga- manna, sem kennir sig við öreiga, birti yfirlýsingu i gær. þar sem hart var gagnrýnt, að fundur miðflokksins skyidi leyfður. Sjónarvottar segja. að lögregl- an hafi skotið táragasi til að hrekja upphlaupsmenn burt. Mörg hundruð vinstri sinnar hafi svarað með grjótkasti. Bardagar urðu viða um gö(ur. Miðflokksmenn hvöttu til frelsis fyrir fjölmiðla og verkalýðsfélög. Upphlaupsmenn ruddust inn i aðalstöðvar flokksins. en sér- þjálfað lögreglulið rak þá á brott.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.