Vísir - 05.11.1974, Side 8
Vísir. Þriöjudagur 5. nóvember 1974.
Vlsir. Þriöjudagur 5. nóvember 1974.
^m
Ækmw
Player ástralskur
meistari í 7. sinn
Gary Player sigraöi aö venju i áströlsku opnu golfkeppninni, sem lauk i gær i Lake
Karrinyup. Þetta var I sjöunda sinn, sem Player sigrar I þessari keppni og heldur á
brott með 5000 dollara verðlaun.
,,Ég hef aldrei veriö eins á taugum I neinni keppni — sagöi þessi frábæri golfleikari,
sem hefur unnið öll stærstu golfmót heimsins á undanförnum árum, cr blaöamenn
töluðu viðhann eftir keppnina.” „Þaö voru allir aðóska mér til hamingju meö sigurinn
áöur en keppnin hófst og á meöan á henni stóö”.
Player komst lfka f vandræði siöasta daginn, er hann lék á 72höggum, en forusta hans
var það góö fyrir, aö hann slapp meö skrekkirtn. Hann lék 72 holurnar á 277 höggum,
sem er 11 undir pari. — Annar var Norman Wood, sem eitt sinn var golfkennari hér á
landi, á 280höggum. Wood er nú talinn einn af beztu atvinnumönnum I golfi I Evrópu.
Player sagði, aö Wood hcföi sigraö i þessu móti, ef hann heföi „púttaö” eölilega, en
hann notaði að meðaltali 36 pútt á 18 holur, sem er óvenju hátt meöal atvinnumanna.
t þriðja sæti kom Bandaríkjamaöurinn Tom Kite á 282 höggum og fjóröi varö Brian
Jones Astralfu á 283 höggum.____________________
Öll íslenzka þjóðin
kœmist þar tyrir...
Heimsins stærsti iþróttaleikvangur er
i Rio de Janeiro í Brasilfu. Hann tekur
220.000 áhorfendur þar af 178.000 I sæti.
Frá þvi að hann var opnaður hefur alls 18
sinnum verið uppselt á leiki, sem fram
liafa farið á honum. Nú siöast fyrir
nokkrum dögum er 1. deildarliðin
Flainengo og Flummenes kepptu þar.
t Asiu er stærsti leikvöliurinn Þjóöarleik
vangurinn f Kambódiu, sem tekur 117.000
inanns — flesta i sæti. t Afriku eru tveir
vellir jafnstórir, Nasser-leikvangurinn I
Kairo og ieikvöllurinn i Kinshaza f Zaire,
þar sem keppni Foreman og Ali fór fram,
Þeir taka báðir 100.000 manns.
1 Evrópu er stærsti leikvöllurinn
Ilampden Park f Glasgow, sem tekur
134.000 manns. Til samanburöar við þessa
velli má geta þess að Laugardalsvöllur-
inn okkar tekur innan viö 20.000 manns, og
þar hefur áhorfendafjöldinn mest orðið á
einum leik 18.000 manns, en þaö var á
leik Vals og Benfica fyrir nokkrum árum.
Ég hef engan tíma
til að stœkka meira
— segir risinn í körfuboltanum, Pétur Guðmundsson, sem er 212 senti-
metrar á hœð — notar skó númer 50 — og er rétt aðeins 16 ára gamall
,,Ég held, að ég sé
hættur að stækka, enda
varla timi til þess, þvi að
ég er á æfingu eða að
keppa i körfubolta á
hverju einasta kvöldi
vikunnar og i skóla á
daginn. Það er lika
komið nóg i lengdina,
þvi ég er orðinn 212
sentimetrar á hæð og
það er ekki nema rétt
vika siðan ég varð 16 ára
gamall”.
Þetta sagði stærsti körfuknatt-
leiksmaður landsins, Pétur
Guðmundsson, er við hittum hann
á æfingu hjá unglingalandsliðinu i
körfuknattleik i gærkveldi, en
þangað gerðum við okkur sér-
staka ferð til að spjalla við
þennan sextán ára risa.
,,Ég er búinn að vera i körfu-
bolta f tvö eða þrjú ár, og hef
Aðalf undur KRR
Aðalfundur Knattspyrnuráðs
Reykjavikur verður haldinn i
ráðstefnusal Hótel Loftleiða
laugardaginn 9. nóvember nk. og
hefst kl. 13,30.
\i
Keflvfkingurinn Björn Skúiason, sem er I unglingalandsliöinu I körfu-
knattleik, er meöalmaöur.á hæð. Samt nær hann rétt undir hendur á
^félaga sínum Pétri Guðmundssyni.
Keino vill fara heim Aftur sigur i Fœreyjum
Kipchoge Keino, einn þekktasti hlaupari heims —oiympiumeistari og heimsmethafi
meö öðru — liefur tilkynnt, aö hann muni leggja gaddaskóna á hilluna innan skamms og
snúa heim til Kenya, þar sem honum standi opiö starf sem landsliðsþjálfari I frjálsum
iþróttum.
Keino, sem hefur verið atvinnumaöur I Michael O’Hara sirkusnum eins og at-
vinnumannafélagsskapur frjálsiþróttamannanna er kallaöur, sagöi f viðtali við banda-
riskt iþróttablað á dögunum — „Ég er orðinn 35 ára gamall, hef hagnazt vel á fþróttum
og vil nú deila þeirri þekkingu, sem ég hef hlotiö meöal landsmanna minna”.
tslenzka kvennalandsliöinu i
handknattleik tókst mun betur
upp i siöari landsieiknum viö
þaö færeyska, sem háöur var I
Klakksvfk I gærkveldi en þeim
fyrri, sem leikinn var i Þórhöfn
á sunnudaginn,
í leiknum i Þóhshöfn sigruöu
islenzku stúlkurnar með
fjögurra marka mun 11:7 en I
leiknum i gærkveldi var
munurinn ellefu mörk — eða
18:7 fyrir island.
tslenzku stúlkurnar höfðu al-
gjöra yfirburði i leiknum I gær
eins og úrslitin gefa til kynna.
Erla Sverrisdóttir var. i miklum
ham i leiknum og skoraði 9
mörk. Alda Helgadóttir skoraði
3 og þær Björg Jónsdóttir,
Oddný Sigsteinsdóttir og
Arnþrúður Karlsdóttir 2 mörk
hver.
í sambandi við þessa leiki var
forseti Iþróttasambands
Færeyja, Liggjas Johansen,
sæmdur merki Handknattleiks-
sambands islands, og er hann
fyrsti útlendingurinn, sem
verður þess heiðurs aðnjótandi.
—klp—
GUÐMUNDUR PÉTURSSON SKRIFAR FRÁ EM í BRIDGE í ÍSRAEL
Horfðum á þá ítölsku hirða allt sitt
Evrópumeistaramótið i
bridge— hið 31. í röðinni —
hófst í ísrael á sunnudag. 19
þjóðir taka þátt í mótinu og
er það talsvert minni þátt-
taka en verið hefur á
undanförnum mótum.
Aðeins ein þjóð úr Austur-
Evrópu mætti til leiks —
Júgóslavía — og Grikkland
hætti þátttöku á síðustu
stundu. island sendir sveit á
mótið og spila f henni
Ásmundur Pálsson, Guð-
laugur Jóhannsson, Guð-
mundur Pétursson, Hjalti
Elíasson, Karl Sigur-
hjartarson og örn Arnþórs-
son, en fyrirliði án spila-
mennsku er Alfreð Alfreðs-
son, sveitarstjóri.
Guðmundur Pétursson, blaða-
maður á Visi, skrifar um keppnina
og fyrsta grein hans fer hér á eftir.
„Við komum til ísrael á föstu-
dagskvöldið og búum á elzta, en þó
einu bezta hótelinu i Tel Aviv.
tsland fékk eitt i töfluröð og mætir
þjóöunum þvf i þessari röð.
3. nóv. Finnland og Italia
4. nóv. Belgia og Austrriki
5. nóv. Sviþjóð — fri
6. nóv. Israel og Þýzkaland
7. nóv. Portúgal — fri
8. nóv. Noregur og Holland
9. nóv. Júgóslavia og Irland
10. nóv, Skoðunarferð
11. nóv. Spánn og Tyrkland
12. nóv. Danmörk og Frakkland
13. nóv. Sviss og Bretland.
Alfreð Alfreðsson fyrirliöi stillti
nýliðunum upp i fyrsta leik íslands
á Evrópumótinu i Tel Aviv. Eftir
mikil læti i Finnum, sem létu Karl
og Guðmund taka flestar ákvarð-
anir á fimmta sagnþrepi, vorum
við þó 21 stigi yfir eftir fyrri hálf-
leik, og höfðum þó gefið game,
misst auðvelda slemmu og svikið
lit.
Seinni hálfleik spiluðu Asmundur
og Hjalti, meðan Karl og Guð-
mundur hvildu. Finnar ruddust i
fjögur game, sem Asmundur og
Hjalti létu eiga sig. Sumum þeirra
hefði ef til vill mátt hnekkja. En án
þesr að gera nokkuð rangt, missti
islenzka vörnin af möguleikum sin-
um. — Þegar staðið var upp,
reyndist lokastaðan vera 75-72 eða
ellefu gegn niu fyrir ísland.
Hafi einhverjir haldið, að italska
sveitin væri þriðja flokks, þá skiptu
þeir um skoðun, áöur en fyrsti
mótsdagurinn var á enda. — Þeir
byrjuðu á að vinna Breta
nltján-eitt, og ku hafa verið vel aö
þeim sigri komnir, án þess að
Bretar hafi spilað neitt tiltakanlega
illa.
I sveit þeirra eru tveir ungir
menn, sem enginn hefur heyrt eða
séð áður. — Þeir spila eins og
fimm stjörnu herforingjar. —
Bellantini og Bresciani eru kunnir
af fyrri Evrópumótum og heims-
meistarann Bianchi þekkja allir,
en félaga hans, Matteucci, hef ég
aldrei heyrt getið um.
Þetta kompani hreinlega slátraði
okkur — Asmundur og Hjalti, Karl
og Guðmundur spiluðu allan
leikinn. Það var dapurlegt að sitja
i sláturhúsinu austur og vestur og
melda þrjú eðlileg game, sem voru
óvinnandi vegna legu, nema eitt
var drottningarleit. Auðvitað
fundum við ekki drottninguna.
Annars sátum við og horfðum á
ungu ttalana hirða allt sitt, nema ef
við gátum rifið af þeim einn og einn
bút. Bútarnir þessir reyndust vera
unaðsleg skemmtispil, þar sem
tveir og þrir og fjórir niður blöstu
við. Þótt við slyppum einum og
tveimur betur en efni stóðu til
grunaði okkur að ekki væri ísland
að græða á þvi. Ég var farinn að ör-
vænta að ég fengi að spila spil, þar
sem ég eygði vinningsmöguleika.
En ég fékk mitt tækifæri i spili
nr. fimm. Norður gjafari, N-S á
hættu
4 AK10932
V-----------
♦ KG9643
4 8
4 7
V AKD109875
♦ 2
4 ÁK10
A okkar borði voru sagnir:
N A S V
lt 3 t dobl p
3 sp. 4 hj. 4 sp. 5 hj.
6 t dobl pass hringinn
Þeir spiluðu Róman-sagnkerfið.
— Þrir tiglar hjá mér i austur
lofuðu þéttum lit, niu slögum eða
svo og báðu makker að segja grönd
ef hann stoppaöi tigul, en þau hefði
ég aldrei spilað.— Ég er búinn að
heyra, að allt annað hefði áreiðan-
lega heppnazt betur, og að ég hefði
ekki átt að dobla. Nú, jæja, ég van-
mat norður og er vlst eini bridge-
spilarinn, sem komið hefur á
Evrópumót og vanmetið italskan
keppanda.— Þeir spiliiðu sex hjörtu
á hinu borðinu dobluðu og græddu
fimmtán stig á spilinu.
Það var smá sálarbót að við
gátum snúið á þá og Asmundur
þrælaði heim fimm spöðum i 15.
spili með smáaðstoð meðan við
Karl stálum lokasögninni og
unnum fjögur lauf. Siðari hálf-
leikur var martröð, sem liknandi
gleymskan miskunnar sig vonandi
ffjótlega'yfir. — Leikurinn fór min-
us fimm.
Þriðja og fjórða umferð
voru spilaðar i gær og
eftir þriðju umferðina
náði Portúgal óvænt for-
ustu með stórsigri gegn
Spáni (20-0). ítalir sýndu
þá, að þeir eru aðeins
mannlegir og gerðu ekki
nema jafntefli við Finna.
í skeyti Reuters i nótt
segir:
Italir, sem stefna i enn einn sigur
á Evrópumótinu, virtust vera að ná
sinum þriðja sigri gegn Finnum og
höfðu vel yfir i hálfleik. Hins vegar
sneru Finnar dæminu við i siðari
hálfleiknum og náðu jafntefli.
Júgóslavia vann sinn fyrsta sigur á
mótinu — tók Holiand 15-5, og
komst af botninum, en Island lenti i
neðsta sætinu eftir tap gegn Belg-
um.
Úrslit I 3. umferð:
Italia— Finnland 10-10
Júgóslavia—Holland 15-5
Belgia—ísland 16-4
Noregur—trland 20-0
Bretland—Austurriki 16-4
Portúgal—Spánn 20-0
Sviþjóð—Sviss 20-0
Tyrkland—Þýzkaland 17-3
Danmörk—ísrael 17-3
Frakkland átti fri
Staðan eftir þessa þriðju umferð
var þannig.
1. Portúgal 54 stig. 2. Italia 49. 3.
Sviþjóð 47 4. Noregur 47 5. Frakk-
land 40 6. ísrael 39 7. Sviss 37 8.
Holland 37 9. Bretland 33 10.
Danmörk 33 11. Tyrkland 29 12.
Irland 25 13. Finnland 20 14. Belgia
20 15. Þýzkaland 16 16. Júgóslavia
15 17. Spánn 12 18. Austurriki 11 19.
tsland 10 stig.
1 fjórðu umferðinni vann Island
Austurriki með 16-4 og hifði sig upp
um fimm sæti. Mest á óvart kom
hin unga sveit Sviþjóðar Þar sem
keppendur hafa þó mikla reynslu I
stórmótum, og vann stórsigur á
Bretlandi. Sviarnir sigruðu með 80
Imp-stigum gegn 10, sem þýðir 20
til Svia, en minus tveir hjá Bretum.
Efsta sveitin, Portúgal, lenti i
hörkuleik gegn Tyrkjum og var góð
að ná sjö vinningsstigum úr leikn-
um eftir að hafa verið 38 Imp-stig-
um undir i hálfleik. Italia vann
góðan sigur á Belgiu — en Sviar
hafa þó forustu. Israel vann góðan
sigur á Frakklandi — einni
þeirri þjóð, sem fyrirfram var talin
hvað sigurstranglegust.
Annars urðu úrslit þessi i 4. um-
ferð.
Finnland—Júgóslavia 15-5
ítalia—Belgla 17-3
Irland—Holland 12-8
Island—Austurriki 16-4
Tyrkland—Portúgal 13-7
Sviþjóð—Bretland 20-2
Noregur—Spánn 12-8
Danmörk-Þýzkaland 18-2
Israel—Frakkland 16-4
Sviss fri.
Eftir fjórðu umferðina var stað-
an þannig:
ll.lrland 37
12. Finnland 35
13. Bretland 31
14. Island 26
15. Belgia 23
16. Júgóslavia 20
17. Spánn 20
18. Þýzkaland 18
19. Austurriki 15
1. Sviþjóð
2. ttalia 66
3. Portúgal 61
4. Noregur 59
5. ísrael 55
6. Danmörk 48
7. Sviss 47
8. Holland 45
9. Frakkland 44
10. Tyrkland 42
Danska sveitin er skipuð þeim
Hulgaard—Hulgaard, Möller-S.
Werdelin, O. Werdelin og Aastrup.
I frönsku sveitinni eru Boulenger-
Svarc, Lebel-Mari, og Leenhart-
Vial. Brezka sveitin virðist sterk
með Pr-iday-Rodrigue, Rose-Shee-
han, og Casino-Flint. I sveit Israel
eru Stampf-Schwarz, Schaufel-
Frydrich, og Romiklev. I þeirri
itölsku eru Bellantini-Bresciani.
Bianchi-Matteucchi, og Mosca-
Sfarigia.
ofsalega gaman af þvi. Það má
kannski segja að þetta sé heldur
mikið af þvi góða hjá mér. Ég
þarf að mæta tvisvar I viku á
æfingu hjá unglingalandsliðinu,
þrisvar i viku á æfingu hjá 2.
flokki Vals og svo eru leikir þar
fyrir utan. Við þetta gæti ég bætt
ef ég vildi, þvi ég er enn i 3. flokki
og á að mæta á æfingar þar, en
það finnst bara enginn timi til
þess”.
Við spurðum Pétur að þvi,
hvort hæðin hái honum nokkuð i
daglegu lifi:
„Ég get varla sagt það. Það er
að visu stundum óþægilegt en hún
kemur sér llka vel, eins og t.d. i
körfuboltanum. I sambandi við
föt og skó er það ekki svo slæmt,
ég fæ á mig allt sem ég þarf með.
Að visu þarf ég að láta sauma á
mig buxur og sérpanta skó, en
skór á mig finnast ekki hér á
landi, enda þarf ég númer 50 af
þeim.
Ég er llka farinn að venjast þvi,
að fólk horfi á mig með undrunar-
svip, og það snertir mig ekki
lengur. Heldur ekki þegar ég hitti
fyrir fólk, sem vill vera fyndið á
minn kostnað, þótt það sé samt
leiðinlegt til lengdar. Maður
Malmö áfram
Sænska meistaraliðið Malmö
varð fyrst liða til að komast 1
átta-liða-úrslit i Evrópumótunum
i knattspyrnu. t gær gerði Malmö
jafntefli við Reipas I Finnlandi 0-0
i Evrópukeppni bikarliða. Malmö
vann heimaleikinn 3-1. Átta-liða-
úrslitin verða i marz.
Margir stórleikir verða I
Evrópukeppninni nú i vikunni, en
athygli mun þó mest beinast að
leik Magdeburg og Bayern
Munchen I Evrópubikarnum.
Hann verður á morgun i Magde-
burg og nægir austur-þýzka liðinu
1-0 sigur, þar sem Bayern vann
heimaleikinn 3-2 eftir að hafa
verið tveimur mörkum undir i
hálfleik.
verður bara að taka þvi eins og
öðru”.
Þegar hinn frægi bandariski
körfuknattleiksþjálfari,
Harsman, kom hingað i sumar og
sá Pétur i fyrsta sinn, varð hann
mjög hrifinn af honum sem körfu-
knattleiksmanni og vildi óður og
uppvægur fá hann til að koma til
Bandarikjanna, þar sem hann
sagði að hann gæti orðið stór
stjarna, ef hann fengi rétta
þjálfun:
„Jú, það er rétt — hann hafði
orð á þvi við mig og aðra, sem
hann talaði viðhér. Éghef mikinn
áhuga á þessu og bið eftir þvi að
fá að heyra nánar frá honum. Ég
er I fyrsta bekk i Menntaskól-
anum I Hamrahlið og ætla i fram-
haldsnám þegar ég hef lokið prófi
þaðan.
Spurningin er bara hvort ég á
að fara strax eða ekki fyrr en ég
hef lokið prófi. Það er beðið eftir
áliti Harsmans á þvi og eftir þvi
sem ég hef heyrt, er von á svari
frá honum mjög fljótlega.
En þetta er fjarlægur draumur
enn sem komið er og á meðan læt
ég mér nægja Val og unglinga-
landsliðið, enda nóg að gera þar.
Unglingalandsliðið mun keppa á
Norðurlandamótinu i Sviþjóð i
byrjun janúar og einnig munum
við leika i Noregi i sömu ferð, og
svo er tslandsmótið I 2. og 3.
flokki að hefjast og margir leikir
þar framundan”.
Þar með var þessi geðugi ungi
risi þotinn inn á æfingu og um
hann hópuðust félagar hans i
ung 1 i nga1 i ð i nu ásamt
þjálfurunum Gunnari Gunnars-
syni og Kristni Stefánssyni, og
allir þurftu þeir að lita upp til
hans i orðsins fyllstu merkingu.
—klp—
+**»*******************
Risinn ungi úr Val, Pétur Guð-
mundsson, á auðvelt með að ná
upp I körfuna, þótt hún sé 3,05
metra frá gólfi, enda er hann
sjálfur 2,12 metrar á hæð og er
ekki nema 16 ára gamall.
Ljósmyndir BjBj.
Enn tapar liðið
hans Wilsons!
Huddersfield Town, liðið, sem
hann Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta, heldur svo mikið upp
á frá æskudögum slnum i
Huddersfield, gengur afar illa um
þessar mundir. I æsku Wilson var
það stórveldi enskrar knatt-
spyrnu — vann deildakeppnina i
þrjú ár I röð.
Huddersfield, sem lék I 1. deild
leiktimabilið 1970-1971, en féll þá
niður i 2. deild og þaðan beint
niður i hina þriðju, er nú i fall-
hættu i 3. deildinni eftir enn eitt
tapið Þá for Huddersfield til
Norður-Wales og lék við
Wrexham, sem sigraði með 3-0.
Á sama tima léku Miðlanda-
liðin Port Vale og Walsall i
Burslem og varð jafntefli 1-1. Sá
leikur var einnig I 3. deild. I
fjórðu deild léku Brentford,
Lundúnaliðið, sem lék hér á landi
1951, og Bradford City. Jafntefli
varö 1-1. Bæði þessi lið mega
muna fifil sinn fegri — léku eitt
sinn i 1. deild.
B
O %
M
M
1
Vonaégsjái ^ er viss um þaö.
þig fljótt aftur. ) Bróðir minn er
blaðaljósmyndari og
: C'^.égferalltaf með
Uionum á stórleikina
á hótelið á ströndinni