Vísir - 08.11.1974, Síða 3

Vísir - 08.11.1974, Síða 3
Vlsir. Föstudagur 8. nóvember 1974 3 Vestmannaeyjamyndin í síðasta sinn Féll niður landganginn og rotaðist Loftskeytamaðurinn á Laxfossi rotaöist I gær, er hann féil niöur úr Iandganginum á skipinu. Skipið lá í Hafnarfjarðarhöfn, og var háflæði, þannig að landgangurinn var brattur upp. Loftskeytamaðurinn var á leið um borð I skipið með bókakost þess I fanginu. 1 miðjum landganginum skrikaði honum fótur, og féll hann niður á bryggj- una með bækurnar i fanginu. Hann var fluttur á slysadeild, en rannsókn þar benti ekki til alvar- legra meiðsla. —óH Sföasta tækifæriö til aö sjá Vest Eins og fram hefur komið i mannaeyjamynd ósvaldar viðtölum við Ósvald er ósenni- Knudsen veröur f kvöld. Þessi legt, að myndin verði sýnd oftar nýja mynd hefur veriö sýnd. tvisvar á sögusýningunni á Kjar- valsstööum, en lokasýningin þar veröur klukkan hálfnfu í kvöld. hér á landi. Er því siðasta tækifærið i kvöld að sjá þessa ágætu mynd. —JB „The Exorcist" vekur óhug: f SETJARINN FEKK SIG FULLSADDAN „Ég kæmi aldrei til meö aö sjá þessa mynd”, sagöi setjari hjá prentsmiöjunni, sem nú er aö ganga frá „The Exorcist” i fslenzkri þýöingu Fá varö nýjan setjara til aö ljúka viö bókina, eftir aö sá fyrri haföifengiö nóg af ósköpunum. „Það er vafalaust mjög mis- jafnt, hvernig menn taka lýsingunum I bókinni. Þeir, sem aldir eru upp f kristUegu um- hverfi, eru vafalaust við- kvæmari en aðrir fyrir djöfla- lýsingunum I bókinni”, sagði annar setjaranna. „Ég veit það með mig, að mér leið allt annað en vel, þegar ég var að setja bókina niðri i prent- smiðju að kvöldi til. Þarna eru allskonar aukahljóð og svo fór, að ég lagði ekki i meira þarna um kvöldið. Ekki bætti það heldur úr skák, að setjara- vélin var ekki I góðu lagi”. Eins og menn hafa séð i blöðum undanfarna daga eru ekki allir á eitt sáttir meö væntanlegar sýningar hér á landi, á kvikmyndinni, sem gerð var eftir sögunni. Þótt lýsingár i bókinni séu ekki alltaf mjög geðslegar, hlýtur kvikmyndin þó að virka enn sterkar á fólk. —JB Eigandi óskila- bílsins fundinn Meö nokkurri fyrirhöfn tókst lögreglunni I Árbæjarhverfi aö finna eiganda „óskilabflsins”, sem sagt var frá I blaöinu I fyrradag. Óviss grunur var um það, að maður I Vestmannaeyjum hafði eitt sinn átt bilinn. Sá maður fannst út I Eyjum og gat gefið upplýsingar um, hvaða númer hefði verið á bilnum i hans eigu. Bifreiðaeftirlitið rakti svo slóð bilsins á skrám sinum. Að endingu fannst nú- verandi eigandi, sem reyndist búsettur I Mosfellssveit. Þegar lögreglan hafði samband við hann, var hann búinn að sjá fréttina i Visi og hafði I hyggju að setja sig I samband viö lögregluna. Hann gaf þá skýringu á veru bflsins þarna, að hann hefði lánað frænda sinum hann. Frændinn notaði bilinn nokkurn tima og skildi hann siðan eftir á lögreglustöðinni. Eigandinn fékk hins vegar nýjan bil og hafði litlar áhyggjur af þessum. Eigandinn ætlar aö sækja bilinn i dag á lögreglustöðina. Það veröur þvi ekkert úr þvi, aö Guðbergur Auðunsson teiknari hirði hann, likt og hann haföi stungið upp á i VIsi I gær. Eftir að fréttin um óskilabilinn kom i Visi I fyrra- dag, lögðu margir leið sina upp I Arbæjarlögrelgustöð. Sumir komu til að skoða gripinn, og margir vildu kaupa. Lögreglan hefði eflaust fegin viljað losna við hann á þann hátt. Af kaupum varð þó ekki. —ÓH ökumenn, sem leiö hafa átt upp I Breiöholt eftir nýja veginum, hafa kvartaö undan þvf hversu óslétt malbikiö er. Ljósm. Bj.Bj. Bílarnir skoppa til á nýlögðu malbikinu Þeir, sem lagt hafa leiö sfna upp i Breiöholt eftir aö nýja akreinin á veginum þangaö var tekin I notkun, hafa furöaö sig á þvi, hversu óslétt nýja malbiks- lagiö er. Blaðið fékk þær upplýsingar hjá gatnamálastjóra, að sjálf- stýring á malbikunarvélinni hefði bilað, er þetta verk var unnið og hefði það haft sitt að segja um árangurinn. Auk þess var notað grófara og sterkara burðarlag á þennan veg en almennt tiðkast, sem leitt hefði til þess, aö ekki var unnt aö slétta fullkomlega jafn vel úr þvi. Þá bætist það við, að sögn gatnamálastjóra, að viðkomandi malbikunarvél var þarna notuð i sinni breiðustu stillingu, og þar sem skólarnir höfðu tekið til starfa, voru færri menn að vinna við vélina en almennt gerist. Til stendur að steypa lag ofan á núverandi malbikslag næsta vor, og hverfa við það ójöfnunarnar. —JB RÆKJA SKAG- STRíNDINGA í NIDURSUÐUDÓSIR Upp úr áramótunum munu landsmenn geta gætt sér á niöur soöinni rækju frá Rækjuvinnsl- unni á Skagaströnd. Rækju- vinnslan hefur nú veriö starfandi i þrjú ár, og afgreitt rækju þriggja vertföa meö vélpillun. Áöur var rækjan pilluö I höndunum og eru vélarnar mikil hagræöing. Vfsir talaði við Kristófer Arna- son verkstjóra, og sagði hann, að veriö væri að byggja 1000 fer- metra hús, þar sem bæði verður vinnsla og niöursuða þegar hún verður tekin upp. Hingað til hefur rækjuvinnslan haft aðsetur i húsakynnum Hólaness, sem hefur veriö starfrækt siðan 1943. Ekki er hægt að sjá nákvæm- lega fyrir, hvenær niðursuðan getur hafizt, en siðustu áætlanir miðuðu viö næstu áramót eða að niöursuöan hæfist meö næstu vertiö. Mun hún þá verða sett I dósir eftir hreinsun. Eitthvaö verður sett á innlendan markaö en ekki hefur erlendur markaöur fengizt ennþá, og mun þar seglum veröa hagað eftir vindi eins og Kristófer komst að orði. Rækjuvinnslan vinnur nú 6 tonn á sólarhring og er það afli sjö báta. Rækjan er soðin á leið gegn um vélarnar, siðan sett I salt- pækil, lausfryst og pökkuð I tveggja kilóa pakkningar. Fastafólk er fjórtán manns á vakt fyrir utan igripafólk og áhafnir bátanna. Framkvæmda- stjóri er Guðmundur Lárusson. —JH MEÐVITUNDARLAUS AF LYFJA- NOTKUN í LÆSTU HERBERGI • Lögreglan var fengin til aö fara inn I herbergi manns nokkurs I gær, þvi hann haföi ekki látiö i sér heyra I langan tima. Maðurinn býr vestur I bæ. Fólk i sama húsi vissi, að hann var I herbergi sinu. En hann svaraði ekki köllum né banki, og var þvi fariö að óttast, að eitthvað hefði komið fyrir hann. Þegar lögreglan kom inn I her- bergið, lá maðurinn út af meðvitundarlaus. 1 ljós kom, að ástæöan var ofnotkun lyfja. Maðurinn var fluttur i Borgar- sjúkrahúsið. —ÓH UTBOÐ Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir tilboðum i eftirfarandi verkþætti og efni vegna fyrir- hugaðra byggingaframkvæmda við 308 íbúðir í Seljahverfi í Reykjavik: Verkútboð: Gluggasmiði: efni og vinna. Hita og hreinlætislagnir innanhúss: efni og vinna. Blikksmiði: efni og vinna. Efnisútboð: Þakjárn, gler, hreinlætistæki og fylgi- hlutir, ofnar. útboðsgögn verða afhent i Lágmúla 9, 5. hæð, Reykjavik, gegn 5000- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á Hótel Esju 2. hæð kl. 14,00 föstudaginn 13. desember 1974.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.