Tíminn - 18.05.1966, Page 1
xB
24 síður
xB
111. tbl. — Miðvikudagur 18. maí 1966 — 50. árg.
Framtil sigurs!
„Framsóknarflokkurinn gengur heill og einhuga til þessara kosninga. Hann er skipaður dugmiklu, umbótasinnuðu
fólki, sem engin sérréttindi hefur a8 verja eða viðhalda. Stuðningur við B-listann á sunnudaginn kemur er því stuðn-
ingur við framfara- og umbótastefnu. Stuðningur við það, að við kappkostum að standa traustan vörð um þjóðerni
okkar i tungu.
Stuðningur við það, að íslenzkt framtak og íslenzkir athafnamenn fái að njóta sín við uppbyggingu okkar eigin at-
vinnuvega.
Og við unga fólkið, sem nú neytir kosningaréttar í fyrsta sinn, vil ég segja þetta: Stuðningur við B-listann er um
leið stuðningur við þá stefnu að auðvelda æskufólki að afla sér menntunar og eignast hús og heimili.
Fram til sigurs fyrir B-listann á sunnudaginn kemur".
Kristján Benediktsson
Þannig fórust Kristjáni Bene-
diktssyni, borgarráðsmanni Fram-
sóknarflokksins, orð í niðurlagi
ræðu sinnar í útvarpsumræðunum
i gærkveldi Kristján gerði harða
hríð að Sjálfstæðisflokknum og
! benti á nauðsyn þess, að nú yrði
gerð vorhreingerning í borgarmál-
um Reykjavíkur í kosningunum á
sunnudaginn. M. a sagði Kristján:
„Eitt þýðingarmesta og vanda-
samasta verkefni ráðamanna borg-
arinnar er að ávaxta sem bezt þá
fjármuni, sem borgararnir eru
krafðir um í hinn sameiginlega
sjóð — borgarsjóðinn
Þetta er mikið fé. kannski meira
en ýmsir kynnu að halda. Áætl-
aðar tekjur borgarsjóðsins í ár
eru t.d 842 milljónir króna Og
séu fyrirtæki borgarinnar tekin
NYJfl SILDARLílTARSKIPID
TILBÚID EFTIR 13 MflNIHII
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
f dag undirritaði sjávarútvegs-
farið þess á leit við ríkisstjórn-
ina, að hún kannaði möguleika á
málaráðherra, Eggert G Þorsteins smíði nýs síldarrannsóknarskips
son, samning við brezka fyrirtæk- Hefði hann lagt áherzlu á, að að-
ið Brooke Marine Ltd. um smiði alástæður þess, að nýtt skip væri
á nýju síldarleitarskipi, en smíða- i nauðsynlegt, væru í fyrsta lagi að
tími skipsins er hámark 13 mán- j síldveiðitíminn hefði lengst mjög
aðir, þannig, að skipið ætti að j og gerðu síldveiðarnar því kröfu
geta hafið starfsemi við íslands j til lengri síldarleitar en undanfar-
strendur snemma á síldarvertíð- j in ár, og þyrfti nú helzt að
inni 1967. Smíðaverð skipsins eru í standa yfir árið um kring. Og í
rúmar 38 milljónir króna, en þar öðru lagi þá væru þau skip, sem
eru ekki innifalin ýmis tæki, sem nú eru notuð í góðri samvinnu
ekki er búið að ljúka smíði á, og við Landhelgisgæzluna, að ganga
ekki er vitað til fulls hvað kosta. ■ úr sér, og ekki hægt að nota þau
Sjávarútvegsmálaráðherra rakti.til eins langrar síldarleitar, og
forsögu þessa máls stuttlega á | þörf væri á.
fundi með blaðamönnum í dag.! Jakobi var síðan falið að ann-
Skýrði hann frá því, að Jakob ast undirbúningsrannsóknir, m. a.
Jakobsson hefði snemma á s. 1.1 um kostnað við smíði, slíks skips
hausti skrifað ráðuneytinu bréf og 1 Ráðherra gat þéssi 'að aðalfund-
ur LÍÚ hefði síðan tekið málið
upp og skorað á ríkisstjórnina að
láta smíða skipið, og jafnframt
Framhald á bls. 22.
með verður heildarupphæðin um
1290 milljónir króna á einu ári
Engan þarf því að undra, þótt
ýmislegt sé hægt að gera fyrir þá,
sem slíka geipifjármuni hafa
harida á milli.
í sambandi við skipulagsmál
borgarinnar hefur skort framsýni
hjá ráðamönnunum á undanförn-
um árum, þótt ekki sé fastara að
orði kveðið. Miklabrautin er til-
tölulega ný gata og húsin við
hana byggð á síðustu tveim ára-
j tugum.
Nú kemur allt í einu í Ijós, að
þessa götu verður að breikka í
8 akreinar í framtíðinni ef sæmi
lega greiðfær leið á að verða gegn-
um borgina. Vitanlega kostar það
stórfé að kaupa og rífa þau hús,
sem fjarlægja verður vegna þess-
arar breikkunar. Kemur þá fyrst
í hugann stóra blokkin á horni
Lönguhlíðar og Miklubrautar.
Ef heildarskipulag hefði verið
gert af borginni, þótt ekki hefði
verið nema fimmtán árum fyrr,
mundu margar milljónirnar hafa
I sparazt Meirihlutinn í borgar-
stjórn skellti skollaeyrunum við
öllum tillögum um skipulagningu
meðan stætt var. Hann vildi hafa
laust skipulag. Kæmi áhrifamikill
flokksmaður og vildi breyta ein-
hverju sér í hag var venjulega
látið undan Með þessu móti gátu
vissar lóðir og húseignir hækkað í
verði. Þannig var þetta t.d með
staðsetningu Morgunblaðshallar-
innar Það er vissulega ekkert
einkamál Sjálfstæðisflokksins eða
borgarstjóra, hversu mikið það
kemur til með að kosta reykvíska
skattgreiðendur að brjóta Suður-
götunni leið undir Grjótaþorpið,
bak við Morgunblaðshúsið — eða
hitt, hvað allar lóöirnar kosta, sem
fara undir hið stóra torg, sem
koma á að austanverðu við þetta
mikla hús Þegar byggð er ákveð-
in, þarf að gera sér grein fyrir,
hvað holræsi og götur kosta.Þetta
hefur sjálfsagt ekki verið gert, þeg
ar húsaröðin norðan í Eskihlíð-
inni var ákveðin, þ.e. Háahlíðin:
Þarna eru sjö einbýlishús. Sjálf-
sagt er útsýnin úr gluggum þejrra
Framhald á 11. síðu
REKSTURSHAGNAÐUR FLUG-
FÉLAGSINS 8.2 MILUÓNIR
KJ—Reykjavík, þrtðjudag.
Aðalfundur Flugfélags ís-
lands h.f. var haldinn í dag
að Hótel Sögu, og kom þar
m.a. frafh, að farþegaflutn-
Frá aðalfundi Flugfélagstns. Örn 6. Johnson forstjórl í ræSu stól. (Tímamynd Kárl)
ingar jukust um 22.7% á s.l.
ári og reksturshagnaður nam
8.2 millj. í lok þessa mánaðar
kemur ný Fokker Friendship
vél til félagsins, og þá mun
einnig að vænta lokaákvörð-
unar um þotukaupin, sem ver
ið hafa á döfinni að undan-
förnu.
Birgir Kjaran stjórnarformaður
félagsins setti fundinn, og til-
nefndi Magnús J. Brynjólfsson
fundarstjóra, og Jakob Frímanns
son fundarritara. Örn Ó. Johnson
forstjóri minntist þeirra Guðmund
ar Vilhjálmssonar, Valgarðs
Blöndal og Sigurðar Ólafssonar í
upphafi fundarins.
Þá tok Birgir Kjaran til máls og
ræddi um hina ágætu reynslu sem
fengist hefur af „Blikfaxa" og að
nýr „Fokker“ væri vænlanleg
seinna í þessum mánuði. Síðan
ræddi Birgir um væntanleg þotu
kaup og um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa, þannig að hlutaféð
hækkar úr 19.9 millj. í 23.9 millj.
og einnig að fyrirhuguð er aukn
ing hlutafjárins í allt að 64 millj.
króna. Var þetta hvorttveggja sam
þykkt síðar á fundinum, og einnig
að gefa starfsmönnum félagsins
kost á að kaupa hlutabréf, og
verðlauna þá með hlutabréfum eft
ir eins ár þjónustu eða meira.
Saimþykkt var að <reiða hluthöf
um 10% arð.
Örn Ó. Johnson forstjóri fé-
lagsins tók því næst til máls ræddi
um reksturinn á síðasta ári oig
framtíðarverkefnin. Farþegafjöld-
inn jókst um 22.7% eða úr 106.
786 í rúma 131 þúsund farþega.
Auk þessa voru 5.743 farþegar
fluttir í leiguflugi. Vöru- og póst
flutningar jukust einnig, svo í
heild jukust flutningar félagsins
um 24% miðað við árið ‘64. Fjöl
förnustu leiðirnar innanlands eru
á milli Reykjavíkur annarsvegar,
Framhald á 11. síðu