Tíminn - 18.05.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.05.1966, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 1966 TÍMINN ISPEGLITIMANS frægar leikkonur á kvikmynda- hátíðinni í Cannes. Eru það þær Jeanne Moreau og Monica Vitti, en kvikmyndir, sem þær leika í eru sýndar á hátíðinni. Kvikmyndin, sem Jeanne More au leikur í nefnist Mademois- elle, en kvikmyndin, sem Mon- ica Vitti er kvikmyndin Mode- sty Blaise, þar sem hún leikur meistaranjósnara á við James Bond. Geraldine Chaplin, dóttir leikarans fræga Chaplins er nú í Cannes á kvikmyndahátíðinni þar eins og fleiri kvikmynda- leikarar. Fyrir skemmstu birtist við hana viðtal í franska dagblaðinu France Soir. Þar sagði hún frá hlutverki sínu í kvikmynd þeirri, sem faðir hennar er nú að Ijúka, Greifa frúin frá Hong Kong. Sagði Geraldine, að hennar hlutverk í kvikmyndinni væri heldur lít ið, en hún hefði notið þess, því hún hefði fengið taekifæri til þess að dansa við Marlon Brando. Vicky, sem er 14 ára systir Geraldine kemur einnig fram í þessari kvikmynd. — Þegar að því kemur sagði Ger- aldine, að hún fari að leika í kvikmyndum að ráði, þá ætla ég að draga mig í hlé. Þegar hún var þriggja ára hermdi hún eftir öllum, röddum og hreyfingum. Hún verður áreið- anlega mikil leikkona. ¥ Bandaríska leikkonan Kim Novak gekk sem kunnugt er í hjónaband fyrir rúmu ári síð- an nánar tiltekið 15. marz 1965. Eiginmaðurinn var Richard Johnson brezkur gamanleikari og sagði Kim þegar hún gift- ist að hjónabandið ætti að end- ast meðan ævin entist. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn, því nú hefur Kim tilkynnt skilnað sin og eigin- mannsins eftir 14 mánaða hjónaband. Kim Novak heldur sig nú í smáþorpi í Kyrrahafs- ströndinni þar sem hún á hús og eini félagsskapur hennar þar er danskur hundur, sem hún á. ★ Birgitte Bardot á nú að fara að leika í nýrri kvikmynd und- ir stjórn Serge Bourguignon, sem stjórnaði kvikmyndinni Sunnudagur með Cyzéle, sem sýnd var í Stjörnubíoi fyrir skemmstu. Kvikmyndin á að heita Prologoe og fjallar um franska tízkusýningarstúlku, sem kemur til London til þess að sýna þar franska tízku. Serge Bourguignon vonast til þess að geta fengið samning við Bítl- ana til þess að koma fram i þessari kvikmynd með Birgitte en enn er þó ekkert ákveðið í því máli. Annars hefur Bir- gitte verið önnum kafinn að undanförnu því hún hefur ver- ið að syngja inná sjöttu plöt- ua sína og söng hún að þessu sinni á ensku. Platan kemur ekki á markaðinn fyrr en í júní.“ ★ Elvis Presley ætlar ef til vill að fara að ganga í hjónaband, að því fréttastofan Reuter herm ir. Sagt er, að hann hafi gefið kunningjakonu sinoi, Piscilla Beaulieu, sem er 22 ára og hann hefur þekkt frá þvj. árið 1959, demantshring, og þykir það benda til þess að hjóna- band sé í aðsigi. ★ Kvikmyndahátíðin í Cannes stendur nú sem hæst og hafa nú verið sýndar allmargar kvik myndir þar. Meðal þeirra, sem sýndar hafa verið er rússneska kvikmyndin, Halló, hér er ég, og fékk hún mjög lélega dóma og var fjöldi áhorfenda, sem gekk út löngu áður en kvik- myndinni var lokið. Þá var einnig sýnd franska kvikmynd- in Stríðinu er lokið, sem tek- i var undir stjórn Alain Res- nais, sem sá um gerð kvik- myndanna Hirosima, ástin mín, og í fyrra í Marienbad. Aðalhlutverkið i kvikmyndinni leikur sænska leikkonan Ing- rid Thulin, sem þekkt er úr ýmsum kvikmyndum sænska leikstjórans Ingmars Berg- mans. Kvikmynd þessi var sýnd utan hátíðarinnar og fékk ekki leyfi til þess að taka þátt í keppninni. Var það franska rík- isstjórnin, sem það bannaði af ótta við það að efni kvikmynd- arinnar kæmi illa við kaun Francos einræðisherra Spánar. h* Hér á myndinni sjáum við Elísabetu Englandsdrottningu og eru tvær litlar stúlkur að færa henni blómvendi í tilefni þess að hún hafði opnað nýja byggingu, læknaskóla i Hamm- ersmith í London. 1 Á VÍÐAVANGI Brandari dagsins Brandari dagsins í blöðunum í gær var fyrirsögn Alþýðu- blaðsins á forsíðunni: Æskan flykkist um Alþýðuflokkinn! Þjóðviljinn, Vísir og Morgun blaðið hafa sameinast um það, að reyna að gera lítið úr hæfi leikum frú Sigríðar Thorlacins Slíkum skrifum er reyndar óþarft að svara. Enginn, sem kynnzt hefur frú Sigríði, efast um mannkosti hennar og hæfi leika — og þeir eru orðnir æði margir, sem til hennar þekkja fyrir störf hennar, blaðaskrif og útvarpsflutning. Slíkur mál flutningur gegn frú Sigríði ger ir því meira en missa marks. Menn fá skömm á þeim mönn um ,sem láta öfund og illmælgi stjórna málflutningi sínurn — þótt þeir finni að kjörfylgi Framsóknarmanna sé vaxandi og miklar líkur bendi til, að Reykvíkingar muni kjósa trú Sigríði Thorlacius fulltrúa sinn í borgarstjórn. Samdrátturinn í í- búðabyggingunum Linuritið ,sem birtist í Tím anum í gær yfir tölu fullgerða nýrra íbúða í Reykjavík ár hvert miðað við hverja eitt þús. íbúa, hefur svipt hulunni betur en flest annað af Iiinum mikla samdrætti í íbúðabyggingum í borginni og gefur góða skýr- ingu af þeim húsnæðisvandræð um sem nú ríkja — en Sjáif stæðisflokkurinn þykist ekki sjá og telur óþarfi að leysa. Hrapið er frá 13,8 íbúðum á hverja þúsund íbúa 1957 niður í 7.4 íbúðir á þúsund íbúa árið 1954 og 8 íbúðir 1965 og sýni iegt er, að vegna lítillar Ióða úthjutunar á síðasta ári, að hrapið verðxu- enn meira á þessu ári. Verndin, sem vantar Bæði Morgunblaðið og Vísir fagna því í forystugreinum í gær, að löggilt hefur verið í alþjóðareglum möskvastærð á fiskimiðum við ísland og Austur-Grænl. Þetta er fagn- aðarefni, en um leið ástæða til þess að minnast þess, að þetta nægir hvergi nærri til vernd ar islenzkum þorskstofni. Sú staðreynd, að erlendir togarar moka upp átján sinnum fleiri ungþorskum á fsiandsmiðum heldur en fslendingar, minnir á brigðir ríkisstjórnarinnar í landhelgismálinu. Sem yfirbót á afsalssamninginn við Breía lofaði ríkisstjórnin hátíðlega að halda áfram útfærslu landhelg innar. En síðan eru liðin sex ár, og ríkisstjómin hefur bæði þagað og haldið að sér hönd um í málinu. En hið eina, sem verulega þýðingu hefur fyrir verndun þorskstofnsins við fs- land, er það, að friða land- grunnið allt fyrir ágangi er- lendra togara.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.