Tíminn - 18.05.1966, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 18. maí 1966
TÍMINN
Ensku Fordverksmiðjurnar selja nú miklð af hinum nýja Zephyr, enda er billinn ein helzta nýjungin í bifreiða
framleiðslunni i Bretlandi um þessar mundir. bar við bætist ,að hann er mjög fallegur útlits og einkar rúm-
góður sex-manna bíll. Helzta nýjungin er sú, að bíllinn hefur sjálfstæða gormafjöðrun fyrir hvert hjól. Má
geta þess, að það er aðeins Rolls Roye, sem hefur slíka fjöðrun af brezkum bílum. Mercedes Benz er með
sams konar fjöSrun og hefur þessi útbúnaður reynst vel og er einkar hentugur og þægilegur fyrir „þvotta-
brettin" á okkar ágætu vegum. Zephyr hefur diskhemla sem eru með InnbyggSu vökvahemlunarkerfl tll að-
stoðar. í bilnum er Aeroflow loftræstingakerfl, sem hefur reynzt mjög vel i okkar veðráttu í Cortinu-bílunum
t. d. Þeir Ford-umboðinu hjá Sveini Egilssyni segjast ekki hafa undan aS selja.
FRAM TIL SIGURS
Framhald af bls. 1.
fögur, enda munu þessar lóSir
hafa verið eftirsóttar á sínum tíma
og engin gatnagerðargjöld kom-
in til sögunnar þá
Borgin hefur hins vegar orðið
að snara út á þriðju milljón vegna
gatnagerðarinnar einnar í Háu-
hlíðinni. Þær sjö fjölskyldur, sem
þarna búa, eru sjálfsagt borginni
þakklátar fyrir milljónirnar, sem
fóru í að sprengja götuna inn í
hæðina.
En á hitt er að líta, að fjöl-
margir borgarbúar hafa beðið eft-
ir götum áratugum saman og fyrir
þetta fjármagn hefði mátt mal-
bika fjölmennar götur eins og
Hvassaleiti eða Efsfasund, svo að
dæmi séu tekin.
Ekki fer milli mála að forráða-
menn borgarinnar hafa reynzt mis
virtir í meira lagi og þeim hafa
orðið á stórfelld mistök, sem ekki
leynast, þótt reynt sé yfir að
breiða.
Það er heldur ekki einleikið,
hversu hér vantar mikið af þeim
framkvæmdum sem borgarinnar er
að sjá um. Ekki veit ég þó betur
en að Reykjvíkingar borgi útsvör-
in sin af mikilli skilvísi, enda hart
eftir gengið, ef misbrestur verður
með að standa í skilum. Frú Sig-
ríður Thorlacius benti réttilega á
það hér í umræðunum í gærkveldi,
að barnaheimili og leikskólar
þyrftu að vera helmingi fleiri en
nú eru til að hægt væri að full-
nægja þörfinni á því sviði. Ekki
á borgin ennþá neitt bókhlöðuhús.
Flestar skrifstofur hennar eru í
leiguhúsnæði og sumir skólanna
reyndar líka Ráðhús er ekkert svo
sem kunnugt er. Skólahúsnæði
vantar í stórum stíl. S1 vetur var
þrísett í á annan hug kennslustofa
og þekíkist slík ábyggilega hvergi
í nálægum löndum
Enn meiri hörgull er þó á ýmsu
öðru húsnæði, er til skólastarfsins
PILTAR,
rFÞlD EICI0 UNIlUSIDNa
ÞÁ Á ÉC HRINMNfl /
Áfor/M /}ímvnfíssofí\
/ftf+kr//éer/ £
þarf og þekkja víst flest heimili
í borginni þá sögu af eigin raun.
Um helmingur af því íbúðarhús-
næði, sem borgin á, er að dómi
borgarlæknis annað tveggja mjög
lélegt eða með öllu óíbúðarhæft.
Eru þannig í eigu borgarinnar á
annað hundrað íbúðir, sem dæmd
ar hafa verið heilsuspillandi hús-
næði.
Eftir malbikuðum götum hafa
margir beðið í tvo áratugi eða
meira og enn seinna gengur með
gangstéttirnar. Og ekki hefur íhald
inu í Reytejavík nægt 20 ár til
að útrýma herbröggunum úr borg-
inni. Hitaveitan er í megnasta
ólagi svo sem margix þekkja af
biturri reynslu sl. vetur Mér er
ekki kunnugt, að annað eigi að
gera þar til úrbóta, en að fjölga
vatnsgeymunum á Eskihlíðinni
Hér er stiklað á stóru og mörgu
sleppt. Þó átti þetta sýnishom
að niægja til að varpa ljósi á það
ófremdarástand sem ríkir í íram
kvæmdum borgarinnar á ýmsum
sviðum. Það gagnar lítið núna
fyrir íbúa Reykjavíkur, þótt reynt
sé að skella skuldinni á fyrrver-
andi borgarstjóra og talað um að
á áratugnum 1950—60 hafi sama
og ekkert verið , malbikað, hita-
veitan vanrækt o.s.frv Sami meiri
hluti stjórnaði málum borgarinn-
ar þá og sá, sem núna ræður og
biður ákaft um atkvæði
Að sjálfsögðu snúast umræður
hér fyrst og fremst um borgarmál-
in. Ekki verður hins vegar kom-
izt hjá að minnast lítillega á lands
mál almennt. Ekki sízt, þar sem
sömu flokkar hafa ráðið málum
á Alþingi og í borgarstjórn síð-
ustu árin
Fyrir átta árum eða 1958, þeg-
ar kosið var til borgarstjómar, tal
aði núverandi forsætisráðherra á
fundi hjá Sjálfstæðisflokknum.
Hann virtist þá hafa þungar
áhyggjur af því, hve lífskjör al-
mennings væm bágborin og út-
listaði það á marga vegu. Engum
blandaðist hugur um, að lífskjör
manna hafa stórum versnað síðan
1958 og fólk verður nú að vinna
miklu meira en þá til að hafa
svipaða afkomu. Mætti nefna opin
berar tölur þessu til sönnunar.
Áhyggjur forsætisráðherra af lífs
kjörunum virðist hins vegar hafa
dvínað með árunum Nú finnst
honum, að fólk eigi ekki að vera
að nöldra þetta og mögla. Það sé
bara til þess fallið, að ergja hann
sjálfan og ráðherrana, sem allir
hafi það gott og blessunarlega
hóflegan vinnudag.
Skattaálögur ríkisins hafa vaxið
óðfluga síðustu árin og frá 1960
úr 1500 milljónum í 3800 milljón-
ir króna en sú hækkun nemur
153%. Þetta eru háar tölur og
því eðlilegt að annað falli í skugg-
ann. Borgarstjómarmeirihlutinil
hefur þó gert betur, þótt ekki sé
mikið um það afrek talað á þeim
bæ Frá 1960 hafa álögur borgar
sjóðs og helztu fyrirtækja borgar-
innar aukizt úr 420 milljónum í
1260 milljónir eða um rösk 200%.
Forsætisráðherrann stenzt því
borgarstjóranum ekki snúning, ef
farið er í samjöfnuð um það, hvor
snjallari að auka álögur á almenn
ing. Vissu þó allir um hæfni for-
sætisráðherrans í þessum efnum
og gátu vænzt þess, að heimsmet
væri nefnt í því sambandi fremur
en um flest annað.
Fyrir síðustu borgarstjórnar-
kostningar talaði þáverandi for-
sætisráðherra, Ólafur Thors á
fundi hjá Sjálfstæðisflokknum.
Hann kom beint að efninu að
vanda og sagði umbúðalaust: „Við
verðum að verja vígið.“
Og vígið var Reykjavík. Meiri-
hlutinn hér skiptir að dómi for-
sætisráðherrans öllu máli Hann
var Iíka sá maður er gerzt vissi
og talaði af reynslu og þekkingu.
Augljóst er að úrslit kosning-
anna í Reykjavík að þessu sinni
geta haft mikil áhrif á landsmálin
og verulegt tap Sjálfstæðisflokks
ins í höfuðborginni mundi vera
þungt áfall fyrir forsætisráðherr-
ann og ríkisstjórnina. Hér er sá
meirihluti sem ríkisstjórnin bygg
ir tilveru sína á. f síðustu alþbjSBT
kosningum fengu ríkisstj órnarfftýkk
amir aðeins 48% atkvæða ut-
an Reykjavíkur og voru þar því
í algjörum minnihluta
Magir munu á kjördegi næsta
sunnudag vilja með atkvæði sínu
mótmæla lélegri stjórn á Reykja-
víkurborg, miklum útsvarsálögum
og vanefndum loforðum borgar-
stjórnarmeirilutans. En ætla
mætti einnig, að margir þættust
þurfa að nota tækifærið til að gera
upp sakirnar við ríkisstjórnina.
Kvitta fyrir vanefndir þeirra lof-
orða að stöðva dýrtíðina og fyrir
allar gengisfellingarnar og gerðar
dómana undanfarin ár. Kvitta fyr
ir það að þurfa að vinna ivöflad
an vinnudag til að fjölskyldan
Svarbréf til
Jóns Snorra
Þorleifssonar
Heiðraði stéttarfélagsformaður.
Ég þakka bréf þitt, en á því
skilst mér, að þú ætlist til, að ég
kjósi G-listann. Þar sem mér
finnst fleira mæla á móti slíkri
kosningu en með, en mér þykir
að öðru leyti leitt að geta ekki
orðið við ósk þinni, þá vil ég nú
segja þér hvað aftrar mér frá að
verða við beiðni þinni.
Þeirri hugmynd virðist aukast
mjög fylgi að farsælast yrði fyrir
okkur að koma á tveggja flokka
kerfi, ég er eindreginn fylgjandi
þeirrar hugmyndar og sé raunar
enga aðra leið til að pólitískt jafn
vægi náist í okkar þjóðfélagi. Til
þess að þetta geti orðið þurfum
við að efla einn flokk á móti
stærsta flokknum sem nú er.
Það er vitað mál að Alþýðu-
bandalagið er fyrst og fremst heim
kynni kommúnista og er þar með
útilokað að hann geti orðið sá
stóri flokkur sem við þurfum. fs-
lendingar eru það frjálshuga og
stórhuga að þeir munu aldrei
sætta sig við kommúnistaskipulag.
(Hvernig kosningar heldur þú að
okkur þætti það, að mega aðeins
kjósa þann eina sem væri í fram-
boði eða engan ella, ætli að okk-
ur fyndist valfrelsið ekki lítið?
Ef við lítum á þróunina síðustu
áratugi dylst það ekki, að komm
únistar hafa orðið stjórnmálum
okkar til hinnar mestu óþurftar.
Við áttum ágætan verkalýðsflokk
„Alþýðuflokkinn" hann barðis fyr
ir mörgum góðum málum og kom
þeim fram í samvinnu við Fram-
sóknarflokkinn, mál sem urðu al-
þýðumanni til heilla og þar með
allri þjóðinni. Síðan koma komm-
únistar til sögunnar með aðstoð
íhaldsins tókst þeim að lama Al-
þýðuflokkinn sem síðan hefur sí-
fellt hrakað og er nú rétt og slétt
vinnuhjú hjá þeim flokknum sem
hjálpaði að koma honupi á kné.
í dag er vinnandi fólk eins
sundrað eins og frekast má verða,
það gengur jafnvel svo langt að
eini auðvaldsflokkurinn hefur
meirihluta fylgi í sumum verka-
lýðsfélögum, — hann hrindir óneit
anlega frá sér kommúnisminn! —
enda er kommúnisminn lyftistöng
auðvalds allra landa (þar sem
hann er ekki lögboðinn eða bann-
aður) vegna þeirrar sundrungar,
sem hann veldur í röðum vinstri
manna.
Nú hefur það gerst að einn
flokkur „Framsóknarflokkurinn“
hefur stóraukið fylgi sitt, sérstak-
lega í þéttbýlinu og er það vel,
því þar með er ljóst hvaða flokk
fólk er iíklegast til að efla svo að
pólitískt jafnvægi náðist milli
hægri og vinstri afla í landinu.
Þegar þú nú hefur kynnt þér
þau rök sem ég hef lagt hér fram
þá vænti ég að þú sjáir hversu
fráleitt það er að kjósa flokk,
sem hefur enga möguleika til að
verða neins ráðandi í þjóðfélaginu.
Straumur vinstri manna virðist
liggja til Framsóknarflokksins, eig
um við ekki að fylgja straumn-
um, það er allt í lagi, þegar hann
fer í rétta átt.
Með kærri kveðju,
Stéttarfélagi.
geti lifað. Og síðast en ekki sízt
kvitta fyrir afsalssamningana, sem
gerðir hafa verið við útlendinga
og undirlægjuhátt í viðskiptum
við þá.“
Auk Kristjáns töluðu af hálfu
Framsóknarflokksins þau Hall-
dóra Sveinbjörnsdóttir, banka-
gjaldkeri, Guðmundur Gunnars-
son, verkfræðingur og Einar Ág-
ústsson, borgarfulltrúi. Ræðna
þeirra verður getið síðar hér í
blaðinu.
FLUGFÉLAGIÐ
Framhald af bls. 1.
Akureyrar, Egilsstaða, Vestmanna
eyja oig ísafjarðar hinsvegar. Og
fjölfamasta millilandaleiðin er
auðvitað Reykjavík — Kaupmanna
höfn. Þá ræddi forstjórinn um
opnun söluskrifstofu í Frankfurt,
Færeyjaflugið, Grænlandsflugið,
tilkomu „Blikfaxa”, væntanleg
þotukaup og að þau væru á loka
stigi. Nýting á flugvélakostinuin
var góð á reikningsárinu og skil
aði millilandaflugið 13.3 millj. kr.
hagnaði, og afskriftir þar namu
8.3 millj. en 5 milljóna halli varð
á innanlandsfluginu er 6.9. millj.
höfðu verið afskrifaðar. Þetta
mikla tap stafar af verulegu leyti
af óhagstæðum rækstri Dakota
flugvélanna þriggja, en „Blikfaxi'*
skilaði aftur á móti hálfri milljón
í hagnað þrátt fyrir fullar afskrift
ir. Heildarvelta Flugfélags fslands
nam 222.5 millj. á árinu 1965.
f stjóm félagsins vom lcjömir:
Birgir Kjaran, Björn Ólafsson,
Bergur G. Gíslason, Jakob Frí-
mannsson og Óttar Möller, sem er
nýr í stjórninni. Varastjórnin
skipa þeir Eyjólfur Konráð Jóns
son, Sigtryggur Klemenzson og
Tbor R. Thors. Endurskoðendur
em þeir Magnús Andrésson og
Einar Th. Magnússon.
ORGELHLJÓMLEIKAR
Framhald af bls. 2.
an ei-tt ár við framhaldsnám í Lon
don Síðastliðið sumar var hann
í París og kynnti sér franska org-
eltónlist. Hann hefur leikið opin-
berlega á orgel í Danmörku, Sví-
þjóð og Tékkóslóvakíu. Nú leikur
hann í Sinfóníuhljómsveit íslands
á fiðlu
Þar sem þetta eru fyrstu tón-
leikararnir íkirkjunni, þótti rétt
að efnisskráin væri eingöngu org-
elverk að þessu sinni, en fyrirhug-
að er að hefja strax á næsta
hausti reglulegt hljómleikahald,
en hafa þá blandaða efnisskrá með
orgelleik, fiðluleik og söng eftir
atvibum. Aðgangur er ókeypis.
Maðurinn minn,
Stefán Jónsson
rithöfundur, Hamrahlíð 9,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. mal kl. 10.30
f. h.
Athöfninni verður útvarpað.
Anna Aradóttir.