Tíminn - 20.05.1966, Page 1
12 QÍnnp
113. tbl. — Föstudagur 2w. maí 1966 — 50. árg.
BOÐSKAPUR SEÐLABANKANS
Lánsf járhðftin stórauk-
in eftir kosningarnar?
i
r
f
I
W8M
Kristján Benediktsson Baldur Óskarsson
Jón A. Ólafsson
Helga Þórarinsdóttir
:
lii
Á aðalfundi Seðlabankans, sem
haldinn var í síðastl. mánuði, lét
ríkisstjómin boða, að þörf væri
á enn víðtækari lánsfjárhöftum
en þegar er beitt. Þetta kom m.a.
fram í ræðu Jóhannesar Nordals,
bankastjóra, sem er aðalmálpípa
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmái-
um. f ræðu sinni benti hann m.a.
á ýmsar leiðir til að framkvæma
enn víðtækari lánsfjárhöft.
Rök ríkisstjómarinnar fyrir
auknum lánsfjárhöftum eru eink-
um þau, að ofþensla sé á vinnu-
markaðinum og verði hún þó
miklu meiri, þegar stórfram-
kvæmdirnar hefjast í Straumsvík
og Hvalfirði. Þess vegna sé ekki
aðeins nauðsynlegt að draga úr
opinberum framkvæmdum eins og
Geir Hallgrímsson hefur þegar
boðað varðandi framkvæmdir
Reykjavíkurborgar, heldur verði
einnig að þrengja að rekstri og
framkvæmdum einkafyrirtækja og
félaga. Það verði helzt gert með
auknum lánsfjárhöftum.
Borgarstjórnarkosningarnar eru
höfuðástæða þess, að enn hefur
ekki verið hafizt handa um aukin
lánsfjárhöft, eins og boðað var á
aðalfundi Seðlabankans. Sjálf-
stæðisflokkurinn veit að það væri
allt annað en vænlegt til kjörfylg-
is að auka lánsfjárhöftin rétt fyr-
ir kosningar. Fjöldi fyrirtækja á
í stórfelldustu rekstrarerfiðleikum
vegna lánsfjárhaftanna og myndu
þessir erfiðleikar vitanlega stór-
aukast ef þessi höft væru aukin,
enda megintilgangur þeirra að
draga saman atvinnureksturinn.
Við seinustu áramót nam frysta
spariféð í Seðlabankanum um
1300 millj. kr. { herbúðum stjórn
arinnar er talað um, að frysta
spariféð þyrfti að vera komið vel
yfir 2000 millj. fyrir næstu ára-
mót, ef lánsfjárhöftin ættu að
koma að tilætluðum notum.
Það er alveg efalaust, að ríkis-
stjórnin mun ekki hika við að
auka lánsfjárhöftin, ef flokkar
hennar fá sæmilega útkomu í
borgarstjórnarkosningunum. í
kjölfar þessa myndu fara stórkost
lega auknir erfiðleikar fjöl-
margra fyrirtækja og minnkandi
geta þeirra til að veita starfsfólki
sínu kjarabætur Því er það jafnt
hagur atvinnurekenda og laun-
þega. afs dregið verði úr lánsfjár-
höftunum. en sameiginlegur óhag
ur þeirra, ef þessi höft verða enn
hert.
Eina leið atvinnurekenda og
launþega til að koma í veg fyrir
það er að veita stjórnarflokkun-
um þá ráðningu í kosningunum
á sunnudaginn, að þeir þori ekki
að herða þessi höft, heldur dragi
frekar úr þeim. Þetta geta at-
vinnurekendur og launþegar gert
með því að kjósa Framsóknar-
flokkinn. sem einn flokkanna hef-
ur alltaf barizt gegn hinum
hóflausu og skaðlegu lánsfjár-
höftum, sem núverandi ríkisstjórn
hefur beitt.
Greiðið atkvæði gegn lánsfjár-
höftunum á sunnudaginn kemur.
Lýsið andstöðu gegn þessuro
skaðlegu höftum með því að
kjósa Framsóknarflokkinn.
Bára Magnúsdóttir Inga Lára Guðinundsdóttir
Egill Sigurgeirsson
Sigríður Thorlacíus Einar Ágústsson
Kjósendafundur B-list-
ans í Austurbæjarbíói
Almennur kjósendafundur B-listans verður haldinn í Austurbæjarbíói í kvöld,
20. maí og hefst hann klukkan 20.30. Hús i8 verður opnað kl. 20.00, en kl. 20.15
byrjar lúðrasveitin Svanur að leika, stjórnandi Jón Sigurðsson. Ræður og ávörp
flytja Kristján Benediktsson, borgarráðsmaður, Baldur Óskarsson, formaður FUF,
Helga Þórarinsdóttir, rannsóknarstúlka, Óðinn Rögnvaldsson, varaform. HÍP, Jón
Abraham Ólafsson, varaform S.U.F., Sigríður Thorlacius, húsfreyja, og Einar
Ágústsson, alþingismaður. Á fundinum syngur Magnús Jónsson, óperusöngvari,
einsöng. Undirleik annast Ólafur Vignir Albertsson. Fundarstjóri verður Egill
Sigurgeirsson, hrl., og fundarritarar Bára Magnúsdóttir, jazzballettkennari og
Inga Lára Guðmundsdóttir, ritari.
REYKVÍKINGAR — FJÖLMENNIÐ Á FUNDINN.
Magnús Jónsson
Óðinn Rögmaldsson