Tíminn - 20.05.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 20.05.1966, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 20. maí 1066 ------------1-------- TÍMINN 9 BÆNDUR — BÆNDUR NÚ GETUM VIÐ BODID ^ DRÁTTARVÉL MED VÖKVASTÝRI MARGVÍSLEGAR TÆKNILEGAR ENDURBÆTUR * GLÆSILEGT ÚTLIT * AUKIN ÁHERZLA Á ÖRYGGI EINKENNIR MASSEY FERGUSON DRÁTTARVÉLARNAR. SUÐURLANDSBRAUT 6 — SlMI 38-5-40. * * * * * * * * * Getum nú boSið MASSEY FERGUSON landbún- aSardráttarvél 45.5 hestafla með VÖKVASTÝRI. Verð kr. 129.000,00 með söluskatti. MF-203 er auk þess á allan hátt útbúin fyrir mesta vinnuálag við mokstur og hvers konar aðra vinnu. Drif sama og á MF-165, 58 ha. vélinni. Hjólbarðar 7.50x16 (8 strigal.) og 13x24 (6 strigal.) Framendi vélarinnar er umluktur massívum stál- ramma, sem hindrar skemmdir á vélinni við mokstur. Öflugri öxlar og drifútbúnaður. Tvöföld kúpling. Mismunadrifslás og innbyggð Ijós. RÆÐA HALLDÓRU Framiialö af bi* ? eiga SjálfstæSisflokkinn og beita honum sem baráttutæki sínu, sér til hagsmuna og framdráttar og um leið allri alþýðu manna til óþurftar. Þeim stéttum er það líka hagsmunamál, að verðbólgunni sé viðhaldið, því að hún kemur því til leiðar, að þær þurfa ekki að endurgreiða nema brot þess láns- fjár, sem þær fengu í upphafi. Sparifjáreigendur greiða hitt. Og því miður lítur úr fyrir, að ástandið í húsnæðismálum unga fólksins eigi eftir að versna enn meira, vegna heimildar seðlabank- ans til að verðtryggja lán til langs tíma og skyldu lífeyrissjóðanna til að lána fólki aðeins út á 1. veð- ■rétt. Síðartalda ákvæðið gerir fólki ómögulegt að fá samtímis bygg- ingarlán hjá lífeyrissjóði og Hús- næðismálastjórn sem lánar ein- göngu út á 1. veðrétt. Hingað til hefur fólki þó ekki verið fyrirmun- að með öllu að fá lán hjá báð- um þessum stofnunum. Það, sem ég hef drepiS hér á, ætti að nægja til að opna augu ungs fólks, sem ekki hefur enn rekið sig á þessar staðreyndir, fyr- ir því ófremdarástandi, sem hér ríkir í húsnæðismálum. Borgar- stjórnarmeirihlutinn hér í Reykja- vík hefur undanfarna áratugi feng- ið næg tækifæri til að sýna hin- um ungu borgurum hug sinn. Við vitum, að hann hefur alltaf brugð- izt því trausti, sem unga fólkið hefur sýnt honum í þessum mál- um, því að braskarar og kaupa- héðnar hafa staðið hjarta hans nær. 22. maí næstkomandi gefst Reyk víkingum tækifæri til að láta í ljósi vilja smn, varðandi framtíð- arstjórn þessara mála sem og ann- arra borgarmálefna. Aðeins þeir, sem ánægðir eru með núverandi ástand og telja að vel hafi verið fyrir frumþörfum borgaranna séð að undanförnu, kjósa íhaldið. MINNISVARÐI Framhald af bls. 6. Balchen ofursti öðlaðist heims- frægð 29. nóvember 1929, er hann fór fyrstu flugferðina yfir suður- skautið í leiðangri Byrds aðmíráls 1928—1930. Til að koma í kring áætlun landkönnunarmiðstöðvar klúbbsins hefur hann kallað sér til aðstoðar hóp merkra landkönn- uða af skandinavískum uppruna. Landkönnuðaklúbburinn var stofnaður árið 1904. Hann er vís- inda- og menntastofnun og eru félagar hans hvaðanæva að úr heiminum. Tilgangur hans er að hvetja menn til landkönnunar starfa og vekja áhuga á náttúru- vísindum. Forsetar klúbbsins hafa verið margir frægustu landkönn- uðir 20. aldar — meðal þeirra Greely, Peary, Vilhjálmur Stefáns- son og Roy Chapman Andrews. William Beebe, Richard E. Byrd, Peter Freuchen, Sir Hubert Wilk- ins, Robert Scott og fjöldi ann- arra hafa og staðið að starfsemi klúbbsins. Nú á tímum er starf landkönn- uða fólgið í rannsóknum á réttri hagnýtingu auðlinda jarðar. Þetta er bráðnauðsynlegt, því að auðlind ir, sem áður voru taldar ótæm- andi, eru að ganga til þurrðar, en maðurinn verður að rannsaka og skilja stöðu sína í heiminum með hliðsjón af umhverfi sínu, eigi siðmenningin að halda velli. Þetta eru ástæðurnar fyrir því, að landkönnuðaklúbburinn er starf- ræktur, og hvers vegna hann nú á 63. aldursári leitast við að færa úr kvíarnar, til þess að mæta kröfum nýs landkönnunartímabils. UNGLINGAR ÓSKAST- GOTT KAUP í BOÐI Nokkra röska og ábyggi- lega pilta og stúlkur vantar til sendi og innheimtustarfa næstu daga. Vinnutímiun er seinni hluta dags. Gott kaup Upplýsingar á skrif- stofu B-listans HringDraut 30, horni Tjarnargötu og Hringbrautar. LAUGAVEGI 90-92 Stærsta úrva* bifreiða á einum stað — Salan er örugg hjá okkur. ORDSENDING TIL STUÐN- INGSMANNA B-LISTANS Kosninganefnd vill minna alla þá, sem fengið hafa happdrættis miða í kosningahappdrættinu senda að gera skil hiS allra fyrsta. Það er mjög nauðsynlegt að allir velunnarar B-listans bregði fljótt við og hafi samband við skrifstofuna, Hringbraut 30, sem opin verður alla daga frá klukkan 9 að morgni til kiukkan 10 að kveldi. Þeir, sem ekki háfa tök á að koma á skrifstofuna geta hringt í síma 23757, 23824 og 12942 og verður þá andvirði miðanna sótt. VERUM SAMTAKA OG TRYGGJUM SIGUR B-LISTANS. Kosninganefnd. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.