Tíminn - 20.05.1966, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 20. maí 1966
TÍMINN
GERUM
VIÐ40
REIKNINGANA
ÍHALDSSTJÓRN
Ræða Guðmundar Gunnarssonar, verkfræðings, í útvarpsumræðunum um borgarmálin
Góðir Reykvíkingar!
Þann 22. maí göngum við að
kjörborðinu og veljum 15 full-
trúa í borgarstjórn.
Það er ætlun löggjafans að full-
trúar í borgarstjórn séu úr sem
flestum starfsgreinum, og hafi
sem víðtækasta þekkingu á þeim
viðfangsefnum er til afgreiðslu eru
í borgarstjóm.
Framsóknarflokkurinn hefur að
sjálfsögðu þetta, sem meginreglu
við val fulltrúa sinna í væntan
legum kosningum.
Deila má um það, hve margir
fulltrúar skuli vera í borgarstjóm.
Þó virðist augljóst að eftir því
sem borgin stækkar og starfsemi
hennar verður víðtækari þá fjölgi
fulltrúunum. Þetta virðist borg-
arstjórnarmeirihlutinn hér í
Reykjavík ekki geta samþykkt,
það er afstaða út af fyrir sig,
enda ætíð afstaða íhaldsafla að
vera á móti sjálfsögðum endurbót-
um og lagfæringum fjöldanum til
handa. En annað mál og alvar-
legra er að skjóta upp kollinum
hjá okkur hér í þessum kosning-
um, og það er sú stefna borgar-
stjóraarmeirihlutans að gera eina
stétt manna, lögfræðinga, allt að
því allsráðandi um borgarmálefni.
Ekki má skilja orð mín svo að ég
hafi neitt á móti lögfræðingum
sem slíkum, því að með lögum
skal land byggja, .en er lagamál-
efnum borgarinnar virkilega svo
komið eftir nær 40 ára stjóm
íhaldsins hér, að borgarstjóri telji
að hann verði að hafa í borgar-
stjómarmeirihlutanum 4—5 lög-
fræðinga.
Við hljótum að spyrja hvað á
að gerast hér á næsta kjörtíma-
bili er krefst slíks fjölda lögspek-
inga í borgarstjórn, og við óskum
svars fyrir kosningar.
Meirihluti borgarstjórnar klifar
mjög á því hve mikið eigi að gera
á næsta kjörtímabili og hefur að
því tilefni gert og birt margar
sundurleitar og loðnar áætlanir,
svo sem gatnagerðaráætlun, gang
stéttaráætlun, áætlanir um skóla-
byggingar, barnaheimili . leikvelli,
höfn og ýmislegt fleira. Já, og
ekki má gleyma rúsínunni í pylsu
endanum, sjálfu heimsins bezta
skipulaginu, sem á að gjörbreyta
svo borginni að dæmi eru ekki til
um slíkt. Og kjörorð borgarstjórn
armeirihlutans er áfram. Áfram á
þeirri braut er þeir hafa markað
í borgarstjórn og ríkisstjórn og
alþjóð er nú kunn í gervi óða-
verðbólgu og stjórnleysis.
En við Framsóknarmenn segj-
um: Stöldrum við og athugum
ofckar gang. Kapp er bezt með
forsjá. Hver borgar brúsann? Er
það borgarstjórnarmeirihlutinn
og stóreignamennimir. Nei, það
eruð þið launþegamir, sem nú vinn
ið myrkranna á milli til þess að
hafa ofan í ykkur og á, þið eigið
að herða sultarólina og borga.
Meirihluti borgarstjóraar skal sjá
fyrir því að koma útsvörunum í
lóg. Stöldmm frekar við og hug-
leiðum hvemig stendur á því að
gera þarf öll þessi reiðinnar ósköp
nú. Því það er staðreynd að þetta
þarf allt að gera og meira til.
Hefur þá ekkert verið gert af því
sem borgarstjómarmeirihlutinn
hefur lofað að gera fyrir hverjar
Guðmundur
kosningar hingað til, og ef svo er
hvers sök er það?
Stöldrum enn við og lítum í
kring um okkur og spyrjum hvers
vegna verða Reykvíkingar að vera
áu þeirra hluta er allar aðrar borg
ir telja sjálfsagða, svo sem, svo að-
eins eitt sé nefnt, varaniegar göt-
ur og gangstéttir. _
Lítum á nýja skipulagið, hvem-
ig stendur á því að alls staðar
vantar skóla, barnaheimili og leik
velli svo eitthvað sé nefnt, i þau
bæjarhverfi sem annars eru löngu
fullbyggð. Og enn segi ég staldr-
ið við og lítið á borgarreikning
ana og athugið hvað fer mikið
fé í eyðsluhítina, og hvað fer úl
framkvæmda og þá um leið hvern
ig er framkvæmdunum háttað.
Hvernig stendur á því að ekki
er hægt að samræma framkvæmd-
ir borgarinnar og lagður níður sá
siður er nú virðist ríkja meðal
borgarstofnana að hvert borgar-
fyrirtæki vinni fyrir luktum dyr-
um án samráðs við hin fyrirtæk-
in.
Heyrzt hafði að uppi væru há-
værar raddir innan borgarstjórn-
armeirihlutans aS þessu yrði að
kippa í lag, en nú virðast, þær
raddir hafa verið kæfðar. Þvi svo
langt er nú komið að einn af ágæt-
ustu og mikilhæfustu starfsmönn-
um borgarinnar sjálfur, borgar-
verkfræðingurinn lætur hafa það
eftir sér í Morgunblaðinu, sem
svar við gagnrýninni á þann fram
kvæmdamáta að borgarfyrirtæki
grafi hvort í hælana á öðru, að
þetta sé allt í lagi, því að með
tilkomu stórvirkra vinnuvéla sé
svo ódýrt að grafa fyrir lögnun
um að þetta skipti engu máli.
Kjósandi góður, ef þú treystir
ekki dómgreind þinni gegn svona
rökfærslum, þá farðu og spurðu
verktakana hvað það kosti að
grafa upp göturnar. Spurðu raf-
veituna, símann, vatnsveituna og
holræsadeildina, hvað það hafi
kostað í viðgerðum og breyting-
um á lögnum þeirra að hitaveit-
an er lögð svo seint sem raun
ber vitni.
Já. kjósandi góður, stöldrum við
og lítum á hitaveituna, óskabarn
og stolt okkar Reykvíkinga. Það
er ef til vill að bera i bakka-
fullan lækinn að gagnrýna hita
veituframkvæmdir, en seint er góð
visa of oft kveðin. Nú er loksins
svo komið að hitaveitulagnir í göt-
ur þeirrar Reykjavíkur er risin
var 1964 em langt komnar þó
nokkuð vanti þar á ennþá. En
ekki er nóg að hafa hitaleiðslurn-
ar þegar þær eru vatnslausar eða
vatnslitlar, þegar mest á reynir
og menn sitja skjálfandi í kulda
strax og kul gerir.
Hér fór sem oftar hjá meir:-
hlutanum, það hefur gleymzt að
sja hitakerfinu fyrir nægilegri
varmaorku, bæði með nýjum fjar-
veitum og kyndistöðvum er nýtt-
ar verða þegar kaldast er.
Enn heldur skipulagsleysið
áfram. Árbæjarhverfið er að rísa
án hitaveitu, en henni er lofað
að ári (ári of seint), þannig að nú
verða húsbyggjendur að leggja
tvöfaldan kostnað við að byggja
kyndiklefa, kaupa katla og kýndi
tæki. Hvernig verður hugsað fyr-
ir þessum málum í Fossvogshverf-
inu, Breiðholtinu og þeim nýju
hverfum er rísa á næstu árum. Á
sarna sagan að endurtaka sig þar?
Að lokum þetta: Framsóknar-
menn í borgarstjórn munu leit-
ast við að stuðlað verði að hag-
kvæmni og sparnaði í rekstri borg-
arstofnana. Framkvæmdaáætlun
verði gerð til lengri tíma. Nýja
skipulagið verði athugað gaum-
gæfilega áður en lengra er haldið.
Reykjavíkurborg hafi forystu í
hitaveitumálum Stór-Rvíkur og
leiti samvinnu við nágrannasveit-
j nar um fjarveitu frá næstu háhita
svæðum. ÖIl eða flest verk á veg
um borgarinnar verði boðin út, og
útboð þannig uppbyggð að öruggt
sé að borgin njóti beztu fáanlegra
kjara, bæði varðandi efni og
vinnugæði.
Kjósandi góður, staldraðu ögn
við við kjörborðið 22. maí og gerðu
upp reikningana við 40 ára íhalds
stjórn í Reykjavík með þvi að
kjósa B-listann.
Guðmundur Gunnarsson.
IHALDIÐ HEFUR ALLTAF BRUQDllT
UNGU FÓLKI í HÚSNÆDISMÁL UNUM
Úr ræðu Halldóru Sveinbjörnsdóttur, bankagjaldkera, í útvarpsumræðunum.
Menningarástand þjóða má oft
ráða af því, hvernig þær búa að
þegnum sínum, hverja aðstoð þær
ljá fólkinu til að gegna því hlut-
verki að byggja upp heilbrigt þjóð
félag. Þar sem manngildi er hæst
metið, er að því stefnt,/að engan
einstakling skorti fæði, fatnað eða
húsnæði.
Við þurfum ekki lengi að hug-
leiða þessa upptalningu, til að sjá,
hvaða atriðið hefur orðið tilfinn-
anlegast útundan hjá þeim mönn
um. sem meirihluti Reykvíkinga
hefur að undanförnu valið til for-
sjár nauðsynjamála okkar. Það
eru tvímælalaust húsnæðismálin.
Á hverjum morgni blasa við
okkur í Morgunblaðinu myndir
af ungum og glaðlegum piltum og
stúlkum. sem hafa bundist eigin-
orði og eru að takast á hendur
það erfiða hlutverk að leggja
hönd að b.vggingu þjóðfélags okk
ar
Þetta unga fólk er fullt á áhuga
á að gegna sínu hlutverki sem
bezt, og það væntir þess líka, að
samfélagið leggi þeim eftir megni
lið til þessa starfs, sem þvi rfður
svo mikið á að vel takist til um.
Fyrsta viðfangsefni hinna ungu
hjóna er að verða sér úti um
samastað, húsnæði, og um leið
byrja erfiðleikamir. Eigi þau ekki
til efnafólks að telja, verða þau
yfirleitt að taka húsnæði á leigu
og þá tíðast að sæta afarkostum.
Þvi að í skjóli alltof lítils fram-
boðs á leiguhúsnæði, líðst húseig-
endum svo að segja hvað sem er.
Húsaleigubyrðin verður ungu
hjónunum tíðast það þung, að
enginn möguleiki er á að spara
sér saman fé til að geta byggt
eða keypt eigin húsnæði, nema
þurfa að grípa til hreinna örþrifa-
ráða, svo sem óhæfilega iangs
vinnutíma beggja hjónanna. Þar
við bætist sú staðreynd, að verð-
bólgusjúkt þjóðfélagið gerir spari-
fé þeirra stöðugt verðminni, þvl
lengur sem það er nt á vöxt-
um. sem kallað er eóa með öðr-
um orðum; Það stelur nokkrum
hluta af svarifé þeirra, til að borga
Halldóra
af skuldasúpu þeirra manna, sem
hafa afstöðu til að taka lán til
langs tíma.
Nú er það ekki annað en eðli
legur hlutur, að hinum ungu hjón
um fæðist barn. Við það aukast
erfiðleikarnir um allan helming.
Barnafólk er víðast hvar óveikomn
ir leigjendur. Ennfremur leiðir af
sjálfu sér, að kona, sem annastl
þarf imgt barn getur ekki lengur
unnið utan heimilisins, og þvf fell
ur sá möguleiki til fjáröflunar tíð-
ast fljótt úr sögunni, nema hjón-
um takist að koma barni sínu til
gæzlu og þá oftast hjá foreldrum
eða nánum vandamönnum, því
skortur á barnaheimilum er það
mikill, að svo til engin hjón með
eitt barn geta fengið þar nokkra
aðstoð. Verður því oft þrautarlend
ing ungu hjónanna að hefja bú-
skap sinn í litlu og ófullnægjandi
húsnæði hjá foreldrum annars
hvors þeirra.
En þótt færa þurfi slíkar fórnir,
leggja ungu hjónin samt á bratt-
anna, í þeirri von, að þeim auðn-
ist fyrr eða síðar að koma á lagg-
irnar sínu eigin heimili.
Og hver er nú líklegasta lausn-
in á þeim þungbæra vanda sem
unga fólkinu ber svo brátt að
höndum?
Lausnin getur ekki orðið önn-
ur en sú, að gera ungu hjónunum
jkleift að- eignast eigið húsnæði,
lán þess að þau þurfi að takast
á herðar þær þrælabyrðir, sen
slíta þeim út löngu fyrir tímann,
hamla eðlilegu uppeldi barnann?
og rýra möguleikana á þeirri lífs-
hamingju, sem þau eiga tvímæla
laust heimtingu á.
Og hverjar eru svo horfurnar
í þessum málum i dag? Er þess
að vænta, að úr þeim greiðist bráð
Iega? Nei, síður en svo. Ástand-
ið hefur aldrei verið verra en nú,
og ekki verður annað séð en það
eigi enn eftir að versna til muna.
Byggingarkostnaður hefur aldrei
fyrr verið svo himinhár, sem hann
er í dag, og lánamöguleikarnir
hafa aldrei verið minni í hlutfalli
við byggingarkostnað. Að vísu er
mikið byggt, en þau hús eru ekki
ætluð til íbúðar, heldur til aðset-
urs og athafna fyrir kaupsýslu-
fólk og hvers konar braskaralýð,
sem 'eru eftirlætisstéttir núverandi
valdhafa. Og þær byggingar eru
ekki smáar í sniðum, og til þeirra
skortir ekki lánsfé, því það eru
þessar stéttir, sem í raun og veru
Framtoald á 9. síðu.