Tíminn - 02.06.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.06.1966, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 2. júní 1966 TÍMINN Leikfélag Akureyrar: Bærinn okkar Leikfélag Akureyrar sýndi Bæ urgeir eru kornungir leikendur. í inn okkar eftir bandaríska höfund inn Thorton Wilder á hvítasunnu i Iðnó. Leikurinn hefur verið flutt ur í Iðnó og er því mörgum kunnur. Hrefriskilningslega sagt finnst naér Bærinn oikkar leiðinlegt verk og fjarri því að vera athyglisvert nema fyrir þann „nýstárlei'ka“ sem gætir í formi: sviðsbúnaður í lág marki, látbragðsleikur, keenur í staðinn; leiksviðsstjóri túlkar rás viðburðanna og sjálft umhverfið, líkit og sögumaður. Slikur nýstár- leiki telst nú vart lengur til stór tíðinda, oig er ekki um það að saknst. En hér var hvort tveggja ofnotað, látbragð og fyrirsögn, einkum það fyrrnefnda. Frúr hans standa löngum stundum tóanhent ar við sömu sýslu, og tilbreyting arleyisið verður þess valdandi að hreyfingar þeirra hljóta, þegar fram í sælkir, að verða hjákátleg ar. Mjólkurpósti er ofgert á sama hátt: látbragðsleikur með einlhiæfúm endurtekningum. Það er þó fyrst og frenist lofsöngur Wilders um fagurt mannlíf smá- borgara sem gerir bæinn okkar leiðinlegan f mínum augum, en nóg um það. LeiMélag Akureyrar hefur hæfi leikamönnum á að skipa, svo ekki verður um villzt. Má í þessu til- felli einkum nefna Júlíus Oddson og Guðlaugu Hermannsdóttur sem fóru snoturlega með hlutverk Gibbshjónanna. Látleysi Bjargar Baldvinsdóttur var þungt á met- unum í hlutverki frú Webb einstrenigingshátturinn sem fyrr getur, fcom þö hvað harðast niður á þeim Guðlaugu o® Björgu. Marinó Þorsteinsson kom skemmti lega fyrir í hlutverki Webb ritstjóra, og Sigurgeir Hilmar sýndi býsna góðan leik í hlutverki George Gibbs. Sama mætti og segja um Sunnu Borg sem lék dott ur þeirra Webbhjóna, en þau Sig- minniháttarhlutverkum var það einkum Kristín Konráðsdóttir sem athygli vakti. Leiksviðsstjóri og sögumaður var Haraldur Sigurðs- son, og fór hann mynduglega með það hlutverk, sem skiptir raunar 'hvað mestu máli. Það er ekki þessu fólki að kenna að Bærinn okkar er leiðinlegur, þar sem segja má að flestum hlutverkum væru gerð sæmileg skil miðað við það sem hér er upp á lagt, en þá hlýtur að hafa verið hart í ári í bandarískri leikritagerð, þegar Pulitzer-verðlaunum var útnlutað á þennan bæ. Jónas Jónasson stjórnaði leikn um, og fœ ég ekki betur séð en hann hafi unnið verk sitt af sam- vizikusemi, en hefði þó betur látið fólki sínu eitthvað í hendurnar. Ljósameistari var Árni Valur Viggósson, og var auðséð að þar er kunnáttumaður að verki en vel má gera sér í hugarlund að lýsingin hafi tekizt enmbetur á Akureyri þar sem ljósameistarinn 'hefur vanizt aðstæðum eða lagað þær í bendi sér. Sýningu Leíkfélags Akureyrar var vel tekið. Baldur Óskarsson. MINNING Valgerður Tómasdóttir Fædd var hún á Þingeyri, 21. 3. 1888. Hafði hún því fyllt 78. aldursárið, er hún lézt í sjúfcra skýlinu á Þingeyri 14. apríl sl. en þangað hafði hún verið flutt fyrir þrem dögum. Hún var fædd og uppalin á Þing eyri í litlum bæ, sem kallaður var Nýibær. Móðir hennar, Ingibjörg Bjarnadóttir, bjó þar með öldr- uðum foreldrum sínum, og var faðir hennar þá farlama. Hann dó 1906. Móðir hennar, Valgerður Þorsteinsdóttir, lifði til 1934 og bjuggu þær mæðgurnar saman í litla bænum, eftir að börn Ingi- bjargar voru flogin úr hreiðrinu. Ingibjörg giftist ekki, en eign aðist þrjú börn, sem hún ól upp af miklum dugnaði, en lítilli að- stoð annarri en frá sinni góðu móður, sem var vel ættuð kona, vel gefin og merk. Ingibjörg var mikil dugnaðar- kona, vel greind og kjarkmikil og barðist fyrir uppeldi barna smna með æðrulausri þrautseigju. Þó að bærinn, sein Valgerður Tómasdóttir ólst upp í, væri hvorki hár né víður, minntist hún æsiku'heimilis síns ætíð með BRÉF TIL BLAÐSINS Glímt við próf Ég var að blaða í nokkrum prófverkefnum skólanna í grasa- fræði og rakst m.a. á þessar spurn ingar, sem lesendur geta sjálfsagt spreytt sig á til gamans: 1. Til hvers er bókin Flóra ís ‘lands notuð og hver er höfundur hennar? 2. Hvers vegna er gróðurríki íslands fremur fábreytt? (Nefn ið þrjú atriði). 3. Hvaða aðalbreytingar urðu á gróðurfari íslands við landnámið? 4. Lýsið sægróðurblettunum við strendur íslands og nefnið dæmi um aðaltegundir í þeim. 5. Lýsið frumu Framhald á bls. 12. ást, og án allrar beizkju, þó að lífskjörin væru vitanlega ærið kröpp. Faðir Valgerðar var amerískur skipstjóri á einni af sprökuveiði- skipum þeim, sem höfðu aðsetur á Þingeyri um þetta leyti. Hafði hún lítið af honum að segja, en frábæran dugnað og óbilandi kjark mun hún hafa erft fra hon um ásamt sinni dugmiklu móður. Valgerður naut barnaskóla- náms á Þingeyri og stundaði það nám sem önnur störf sín um æv- ina, af trúmennsku og dugnaði. Snemma varð hún að fara að vinna fyrir sér, til að létta undir með mömmu sinni. Hún var ekki nema sjö ára, er hún fór í sumar vist til Gísla Oddssonar, frá Lokin hömrum, er þá bjó á Lækjarósi, og var hún þar í nokkur sumur, og minntist hún veru sinnar þar með ánægju, enda hefur þá þegar enginn orðið fyrir vonbrigð- um með verkin hennar Valgerð- ar. Þá var hún og á barns- og únglingsáldri barnagæzla og létta stúlka hjá Lauritz Berg og konu hans, Mörthu á Höfða, en kap- teinn Berg var forstjóri fyrir hval veiðistöð í Framnesi. Þá vann hún og þar á stöðinni að vetrar lagi þegar fjölskylda forstjórans var flogin með farfuglunum af landi burt. Til marks um það, hvernig fjöl ! skyldunni hefur fallið við telpuna er það, að þegar dætur Bergshjón anna komu til æskustöðvanna hér fyrir nokkrum árum, heimsóttu þær Valgerði og sendu henni síð- an vinsamlegar kveðjur. Þegar hvalveiðistöðin var flutt héðan til Mjóafjarðar, skömmu eftir aldamótin, fór Valgerð ! ur með þangað. Dvaldist hún nokk jur ár fyrir austan og var m. a. kaupakona hjá prestinum á Desj- armýri í Borgarfirði eystra. j Einnig var hún eitt sumar kaupa ;kona hjá bændahöfðingjanum og dugnaðarmannmum Guðmundi Péturssyni í Ófeigsfirði. Minntist hún oft dvalar sinnar á því fjöl menna merkisheimili og dáðist mikið að reglusemi og stjórnsemi húsbóndans og nærgætni húsráð- enda. Þar var fast gengið eftir því að vel væri unnið, en viður- gerningur allur og aðbúð var fram úrskarandi. Til Þingeyrar lá þó leið hennar brátt aftur, á vit sinnar góðu móð ur og ömmu, og vann hún þar í fiskivinnu og í „húsum“ á vet- urna. Var þá saltfiskurinn þveg- inn (vaskaður) upp úr köldum sjó í óhituðum húsum, „upp á akkorð, og mun Valgerður oftast hafa ver ið þar fljótust að vaska. Þá vann hún nokkur ár i sjúkrahúsinu á Þingeyri hjá Kristjönu Rristjánsdóttur, spítala ráðskonu og Gunnlaugi Þorsteins- syni, héraðslækni. 27. júní 1916 giftist hún Jóni Sigurðssyni skósmið á Þingeyri, ættaður var hann frá Hálsi á Ingj aldssandi. Stundaði hann skósmíði þar í þorpinu, unz vinnu við sjó Framhald á bls. 12. meðferð, en hann lifði eftir sem áður á veiðum og söfnum jurta og skeldýra. Sé markaður tími, sem maðurinn hefur lifað á öðru en veiðum, er það ekki nema einn af hundraði þess tíma, sem hann hefur lifað á jörðinni. Það er ör- stutt síðan, sé borið saman við allan þann langa tíma, sem mað- urinn hefur búið á jörðinni, að mannkynið tók að stunda jarð- rækt og skepnuhald eða landbún- að. Þá verður bylting í sögu mann kynsins. Hvar þetta hefur gerst vita menn ekki nákvæmlega og um nákvæma tímasetningu er held ur ekki að ræða. í Palestínu hafa verið grafnar upp rústir hjá Jeríkó, leifar þorps, þar sem menn hafa stundað land búnað fyrir um það bil níu þús- und árum, eða um 7000 fyrir Krists burð. Þarna hafa einnig fundist leifar frá steinöld, seim hafa mælst um 800 árum eldri. Af þessu má draga þá ályktun að um 8000 fyrir Krist hafi menn tekið að stunda landbúnað á þess- um slóðum. Einnig hafa fundist svipaðar mannvjstarleifar í Kurd- istan, íran og írak. Sumt bendir til þess að leifarnar þar séu jafn- vel eldri en þær hjá Jeríkó. Belt hellirinn liggur við strendur Kasp íahafsins í íran, í þessum helli hafa fundist minjar, sem benda til þess að þar hafi hafst við veiði- þjóð um 6600 f. Kr., en um 5800 byggði fólk þennan helli sem hélt bæði geitur og sauðfé. Um 5300 voru íbúar hellisins teknir að gera leirker, rækta korn, halda svín og skömmu síðar nautpening. Flest bendir til þess að bún- aðarbyltingin hafi orðið á þessu svæði frá Palestínu og að Kaspía- hafi á áttunda til sjötta árþúsundi fyrir Krist. í Ameríku hafa fundist leifar, sem benda til þessarar atvinnu- byltingar frá fjórða til þriðja ár- þúsunds. í Mexíkó, Perú og víð- ar hafa fundist leifar, sem votta þetta, hvort íbúar þessa svæðis hafa staðið einir að þessar upp- götvun þ.e. ræktun nytjajurta og dýratamningu eða að hér hafi kom ið til innflutt þjóð, um það er 'engin vitneskja ennþá fyrir hendi. Það er talið vitað, að atvinnu- byltingin breiddist austur á bóg- inn frá svæðinu Palestína-Íran. Sióðina má rekja. í Kína verður þessi bylting um 5000 f. Kr. Hafði hin nýja þekking borist þangað, eða var hún þar uppkomin? Um þetta vita menn ekkert. í Suð- austur Asíu gegnir sama máli. Uppkoma landbúnaðar, sem fylgir föst búseta og menning er nú talin hefjast í Litlu-Asíu; þó er þetta ekki fyllilega sannað. En það er vitað, að nokkrir þjóðflokkar í Litlu-Asíu stunduðu jarðrækt og héldu húsdýr um 7000 if. Kr. það getur verið að þetta fyrirkomulag buskapar hafi verið til staðar annars staðar. En um þetta leyti býr meginhluti mann- kynsins við veiðimennsku, er á veiði og safnara stiginu. Frá Litlu Asiu ma rekja útbreiðslu þessara búskaparhátta eða atvinnubylting- ar til Evrópu og Afríku. Á Egyptalandi hafa fundist komgeymslur við Fayum vatnið i frá því um 4500 f. Kr. Þaðan breiðist þekkingin á kornrækt upp Nílardalinn til Súdan um 3500 f. Kr. og til Kenya um 3000 f. kr. Atvinnubyltingin breiðist til Ev rópu meðfram Miðjarðarhafi að norðan og upp með Dóná. Milli 4500 og 2000 f. Kr. þróast þessir nýju búnaðarhættir á Balkanskaga, Ítalíu, Frakklandi, Spáni Ungverja landi, Sviss, Þýzkalandi, Hollandi, Danmörku, Bretlandseyjum og á Norðurlöndum. Um 1500 f. Kr. var svo komið að hreinar veiði- þjóðir voru aðeins við líði nyrst í Evrópu. Víðast var veiðiskapur stundaður jafnframt landbúnaði á þessu svæði. Smátt og smátt kemst þessi breyting á um allan heim, nema á stöku stað, þar sem frum- stæðar veiðiþjóðir búa í mikilli einangrun, svo sem sums^ staðar í frumskógum Brasilíu, í Ástralíu og Eskimóar á Grænlandi. Þessar þjóðir fengu að lifa í friði fyrir þessari byltingu og öðrum vegna þess að engir urðu til þess að ásælast lönd þeirra. Um 1780 (e. Kr.) var svo komið að allt mann- kynið byggði tilveru sina framar öðru á landbúnáðir, veiðiþjóðfé- lög voru að vísu til, en þau voru algjör undantekning frá reglunni. Þessi atvinnubylting hefst á nýju steinöld og form hennar rík- ir í heiminum fram að síðari at- vinnubyltingunni, iðnbyltingunni, sem hefst um 1780, en með þeirri byltingu breiðast nýjir framleiðslu hættir og atvinnu út um heim- inn á skömmum tíma. Iðnbylting-' in hefst á Englandi seint á 18. löld. Um 1850 hafði hún breiðst til Frakklands og BelgíU, fyrir aldamótin síðustu hafði hún bor- ist til Þýzkalands. Svíþjóðar, Bandaríkjanna, Ítalíu, Rússlands og Japan, þessar þjóðir iðnvæðast meira og minna á 19. öld og nú nær hún einnig til Kína, Indlands, Suður-Ameríku og Afríku. Aðaleinkenni þessara nýju at- vinnuhátta felast í nafninu, iðn- aðurinn verður megi atvinnuveg- urinn í stað landbúaðar áður. Um 1750 eru um 80 af hundraði íbúa veraldarinnar bændur eða sveitafólk, 1950 hefur hlutfallið lækkað niður í 60 af hundraði og með iðnvæðingu hinna fjölmennu ríkja Asíu lækkar stöðugt tala þeirra, sem stunda landbúnað sem aðalatvinnu. Tæknin orsakar það, að færri og færri þurfa að fram- leiða matvæli og iðnaðurinn dreg- ur stöðugt til sín fleira fólk, en þrátt fyrir þetta stóreykst mat- vælaframleiðslan viða, þrátt fyrir fólksfækkun í þessari atvinnu- grein. Þar sem framleiðsluaukn- ingin er stórstígust fækkar bænd- um örast. Þar er tæknin á hæsta stigi og því þarfnast atvinnugrein in ekki slíks vinnukrafts, þar sem frumstæðari framleiðsluhættir tíðs ast. Þótt margir vinni að iðnaði í þeim þjóðfélögum, þar sem iðn- aður er hvað mestur þáttur þjóð- arbúskaparins, þá er iðriaðurinn ekki eins mannfrekur og landbún- aðurinn var við frumstæð skilyrði, i þessum iðnaðarþjóðfélögum er 'mikill fjöldi starfandi við ýmis- konar þjónustufyrirtæki, verzlun, dreifingu, samgöngur o.fl. og fl. Með aukinni sjálfvirkni mun fólk, sem starfar að iðnaði fækka og vinnudagur flestra atvinnugreina styttast. Mannkynssagan fræðir okkur um margar atvinnubyltingar, það er talað um byltingar, þegar viða- mikiar breytingar verða á efna- hafskerfi og þjóðfélagsháttum. Full mikil áherzla er oft lögð á þessi fyrirbrigði, sem oft ná mjög skammt og verka aðeins á tak- markaðan hóp þjóðfélagsþegn- anna. Það er talað um verzlunar- byltingu á 11. öld í Evrópu, iðn- aðarbyltingu á Hollandi á 11. öld og sams konar fyrirbrigði á 13. öld á Englandi. Þessar byltingar ná þó skammt, þær ollu vissum breytingum innan Vissra hópa og á takmörkuðum svæðum, en heild- armynd þjóðfélagsins breyttist ekki. Það er oft talað um þýð- ingu borganna i miðöldum í Ev- rópu og vöxt þeirra og viðgang, en menn gæti þess að Evrópa á miðöldum var svo til hreint land- búnaðarsvæði, borgirnar voru ekki annað en markaðsstaðir fyrir land búnaðarafurðir og birgðastöðvar. í Rómverska ríkinu tii forna voru tollar og skattar að mestu leyti runnir frá landbúnaði eða um 90 af hundraði, iðnaður og verzlun á þeim öldum var sáralítil mið- að við þátt landbúnaðarins i þjóð arframleiðslunni. Miðalda Evrópa lifði svo til algerlega á landbún- aði, víða var iðnaðurinn heimilis- iðnaður eins og vefnaðariðjan hér á landi til foma. Evrópumenn mið alda voru langflestir bændur eða Framhald á bls. 12. - - ’iit Jí¥á1u <MÍ' ááu'mm \

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.