Tíminn - 08.06.1966, Síða 5

Tíminn - 08.06.1966, Síða 5
MTOVIKUDAGtm 8. jfiní 1966 TtMINN 17 VORLCIÐANCRI ÆGIS L ÝKUR UM MIÐJAN JÚNÍ Fyrriihluta hins árlega vorleið- angurs ÆGIS er nú 'lokið. Eins og á undanförnum árum voru 'hafsvæðin norðan og austan- lands könnuð allt norður á 68. breiddarbaug og austur á 4° v. 1. Vestanlands takmörkuðust atíhug- anir við grunnslóðir vegna veðurs. Ekki varð vart yið hafís. Helztu niðurstöður leiðangurs- ins eru þessar: Sjávarhiti norðanlands og aust an er með lægsta móti (0°—3°), og áhrifa hins kalda Austur-ís- landsstraums gætir mjög út af NA-landi. Sjávarhiti er þó heldur hærri nú en í fyrravor en það er kaldasta ár, sem athuganir ná til. Hitadreifing er nú jafnari á öllu þessu svæði og er þannig litill hitamismunur norðan og norð- austanlands. Þörungamagn er nokkuð á grunnslóðum norðan- og austan- lands en minna á djúpmiðum. Átumagn er talsvert á djúptnið- um norðaustan og austanlands og mun meira nú en í fyrra. Annars staðar er mjög átusnautt, enda kalt f yfirborðslögum sjávar. Ekki varð vart við neinar síldar lóðningar, þar til komið var aust- ur í hlýrri sjó um 120 sjóm. 70° Þessi mynd sýnir glugga- útstillingu hjá Loftleiðum í New York, þar sem lögð er áherzla á, að ferðamenn hafi 2ja, 3ja og 4ra daga dvöl á íslandi. Og eink- unnarorðin eru: ísland — nýjasta uppgötvun ferða- mannanna. er um 31—34 cm. að lengd og að- aluppistaðan er árgangurinn 1959. ÆGIR Iagði upp í síðari hluta leiðangursins 1. júní .Leiðangrin- um lýkur með sameiginlegum fundi íslenzkra, norskra og rúss- neskra haf- og fiskifræðinga á Ak- ureyri þann 15. og 16. júní næst- komandi. Sæmdur riddara- krossi Forseti fslands hefur í dag sæmt Birgi Kjaran, hagfræðing, r/v frá Langanesi. Talsvert síld-1 riddarakrossi hinnar íslenzku fálka armagn virðist vera í hafinu 100— ] orðu, fyrir margháttuð þjóðfélags- 270 sjóm. austur af landinu en aðalveiðin hefur farið fram 240— 270 sjóm. 90° r/v frá Langanesi. Sú síld, sem hér er um að ræða, J ENSKUR ATVINNUGOLFLEIKARI KENNIR HJÁ GOLFKLÚBBI NESS KJ-Reykjavík, miðvikudag. f sumar mun enskur atvinnu- gol®eikari kenna hjá Golfklúlbbi Ness, en klúlbíburinn hefur aðsetur yzt á Seltjarnarnesi og eru virkir félagar núna um 80 tal§ins. GoHkennari, Mr. Riley er 26 ára gamall, og hefur verið at- vÍTmugolfleikari í 6 ár, en golf- iðkun hóf hann 14 ára gamall og þykir víst ekki snemmt í heima landi hans. Mr. Riley hefur und- anfarin tvö og hálft ár kennt í Þýzkalandi og þar áður í Hollandi. IHann hefur tekið þátt í keppni atvinnugolfleikara í Englandi, þar sem góðar fjárfúlgur eru í veði, en aðspurður sagði Mr. Riley við fréttamenn fyrir skömmu, að að venjulegur aitvinnugolfleikari gæti þénað ekki minna en 2 þús- und pund á ári í Englandi, og þeir sem bezt kæmu sér áfram þénuðu allt upp í 7 þúsund pund á ári. Golfleikarar þeir, sem séð hafa til Mr. Riley hér segja, að hann hafi afar fallega golfsveiflu, högg hans séu nákvæm og teigskot löng. Hann sé fljótur að sjá hvað nem- endum hans kemur bezt, og því ágætis kennari. Aðsetur Golfklúlbbs Ness er yzt á Seltjarnarnesi, og þar hafa klúbb meðlimir komið sór upp smekk- legum golfskála við níu holu gdf- völlinn. MOT PRESTS- KVENNA Prestpkvennafélag íslands gengzt fyrir . móti fyrir prestkon- ur að Laugarvatni dagana 22. og 23. júní. Dagskrá mótsins gerir ráð fyrir ýmiss konar kynningu og skemmtiatriðum auk venju- legra aðalfundarstarfa. En áherzla er lögð á það, að konurnar hafi tækifœri til þess að eiga óskipu- lagðar samverustundir ■ og geti nptið útivistar á þessum fagra stað. Þátttöku ber að tilkynna til frú Ebbu Sigurðardóttur .Hlíðargerði 17, Reykjavík fyrir 14. újní og er þess vænzt, að félagskonur fjöl- menni. (Frá Prestttkvennafélagi íslands). störf. Reykjavik, 2. júní 1966. OrðuritarL PIANOSNILLINGUR A TONLEIK- UMIKEFLAVÍK OG Á ÍSAFIRÐI 16 sátu skóla■ málaráðstefnu inga í hverju einstöku landi, og fjallað var um ýmis málefni, sem verið höfðu til athugunar frá þvi síðasta ráðstefna var haldin. Af nýjum viðfangsef-num má nefna íþróttahúsnæði skóla og notkun þess til almennrar félagsstarfsemi. Ákveðið var að halda næstu nor- rænu skólabyggingaráðstefnu í Osló vorið 1967. Norræn ráðstefna um skólabygg- ingar var haldin að Hótel Sögu í Reykjavík dagana 23. og 25. maí. Ráðstefnuna sátu 16 menn, sem fjalla um skólabyggingamál í menntamálaráðuneytum og fræðslumálaskrifstofum eða á veg- um þessara aðila í Norðurlanda- ríkjunum fimm, þar á meðal nokkr ir arkitektar. Á ráðstefnunni var skýrt frá | þróun mála á vettvangi skólabygg-1 Frétt frá menntamálaráðuneytinu Sækja þing Alþjóða vinnumálastofnun- ° Eggert G. Þorsteinsson, félags- annnar málaráðherra, Jón S. Ólafsson, full trúi í félagsmálaráðuneytinu, Á þingi Alþjóðavinnumálastofn Hannibal Valdimarsson, forseti A. unarinnar, sem haldið verður í S.Í., Kjartan Thors, forma|Sur Genf í næsta mánuði mæta eftir- Vinnuveitendasambands íslands. taldir menn af íslands hálfu: Félagsmálaráðuneytið 31. mai 1966 , GB—Reykjavík, þriðjudag. Bandaríski píanóleikarinn Dan- iel Pollock var væntanlegur hing að í dag, þriðjudag, og mun halda hér tvenna hljómxleika, f Kefla- vík í kvöld, en annað kvöld mun hann leika á ísafirði, svo fremi flugveður verði. á vegum tónlistar félaganna á báðum stöðum, en enga í Reykjavík að þessu sinni. Hins vegar mun hann leika inn á segulband fyrir Ríkisútvarpið. Daniel Polloek var eitt af þess- um undralbörnum. Hann lók fyrst opintoerlega 8 ára og vakti furðu lærðra sem leikra, og árið eftir lék hann með fílharmóníuhljóm- sveitinni í New York. Mesta frægð hlaut hann er hann sigraði í fyrstu Tsjakovskykeppninni í Moskvu vorið 1958. Benedikt Gröndal form. útvarpsráðs Frétt frá menntamálaráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið hefur ksipað Benedikt Gröndal, alþingis mann, formann útvarpsráðs yfir- standandf kjörtímahil ráðsins og Sigurðs Bjarnason, alþingismann varaformann. Menntamálaráðuneytið, 26. maí 1966. Farfuglinn flytur ferðaáætlun Farfugla í sumar Farfuglinn, tímarit Bandalags ís lenzkra Farfugla, 1. tbl. 10 árg., er nýlega komið út. Meðal efnis í ritinu má nefna ferðaiáætlunina fyrir sumarið. Áætl-aðar eru 25 einsdags- og helgarferðir, og tvær lengri sumarleyfisferðir. Önnur sumarleyfisferðin verður á Fjallahaksvegi syðri og nyrðri í ferðinni verður einnig komið að Langasjó og gengið á Sveinstind. Lengri ferðin verður í Arnarfell hið mikla, þangað var efcki farið síðastliðið sumar, en sú ferð hefur ávallt notið mikilla vinsælda, og er nú tekin upp í ferðaáætlunina að nýju. í Arnarfellsferðinni verð- ur auk þess farið í Vonarskarð og gengið á Bárðarbungu í Vatna- jökli, ef veður og ástæður leyfa. I helgarferðunum er helzta ný- mælið ferð á Hattfell og Enstrur og sautjándajúníferðin í Ljósufjöll .og Drápuhlíðarf jall. Ólafur Björn Guðmundsson skrifar aðra grein sína um íslenzk- ar jurtir, fjallar hann að þessu sinni um hn-oðrana. í blaðinu ræðir Óttar Kjartans- son við Sigurjón Rist, vatnamœl- ingamann um vetrarferðalög. Snýst talið meðal annars um far- artæki og ferðahúnað, og ýmis at- riði sem varast ber í slfkum ferða- lögum. í blaðinu er skemmtilegt dag- bókarbrot eftir Björgvin Ólafsson, veðurathugunarmann á Hveravöll- um. Segir hann þar frá lífi þeirra einbúanna inni á hálendinu, sem ekki reynist eins einmanalegt og margur gæti haldið. Annað efni í blaðinu, eru frétt- ir frá aðalfundum Farfugladeildar Reykjavíkur og Bandalags ís- lenzkra Farfugla, og smáaleturs- dálkurinn „Úr malpokanum.“ 389 NEMENDUR I GAGNFRÆÐA- SKÓLA KEFLAVÍKUR í VETUR GS-Keflavík, fimmtudag. Gagnfræðaskólanum í Keflavík var slitið 31. maí s.l. í skólanum voru 389 nemendur. Undir ung- lingapróf gen-gu 115 nemendur og stóðust 106 prófið. Landspróf þreyttu 17 nemendur og hlutu 15 fraimhaldseinkunn. Undir gagn fræðapróf gengu 60 nemcndur og stóðust allir prófið. Hæstu einkunn í I. bekk fékk Arnbjörn H. Arnbjörnsson, 9.09. I II. bekk varð hæs-tur Björgúlfur Stefánsson með 8.82 og í III. bekk Vignir Bergmann 7.83. Hæstu einkunn í landsprófsdeild hlaut Jón Guðmundsson, 8.86 og í gagn- fræðaprófi Erla Þorsteinsdóttir, 8.69. Rögnvaldur Sæmuudsson, skóla- stjóri gat þess í skólaslitarræðu sinni, að skólanum hefðu borizt góðar gjafir á vetrinum. Slysa- varnafélag kvenna í Keflavík gaf kennslubrúðu, sem notuð er við kennslu á lífgun úr dauðadái með blástursaðferðinni og Lionsklúbb urinn gaf skólanum og læknishér- aðinu sjónprófunartæki. Við skólaslitin færðu 10 ára gagnfræðingar skólanum Ijósprent unartæki að gjöf, Félagssamtök og einstaklingar veittu að venju verðlaun fyrir námsafrek á vetr- inum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.