Tíminn - 11.06.1966, Síða 8
VETTVANGUR
TfMINN
ÆSKUNNAR
LAUGARDAGUR 11. júní 1966
EG
ER
Ást. Draumar. Söngur. Ljóð. Það er Kennar tif. Fædd í Sviss, býr við Bodenvatn, heill*
aði stúdenta og listamenn á Signubökkum, komin til íslands í leit að ævintýri og hamingj-
unni, sem hún trúir þó ekki að sé til. Hún flytur franska söngva á síðkvöldum í hjarta
Reykjavíkur: Gestir Hótel Borgar heillast og undrast rödd og þokka þessarar ungu
stúlku. ,ío
Ég túlka Ijóð'ið ekki síður en
lagið. Veruleiiki söngsins finnst
mér felast í innlifun efnis, ekki
siður en hljómfalli. Einkum er
þetta aðall þjóðlagasöngs. Ástin,
hin óhamingjusama ást, því önnur
er ekki til, er mér kærast efni.
Tregi og sorg, hinir óaðskiljan
legu förunautar ástarinnar búa
í flestum söngvum mínum. Sólin
er aldrei án skugga. Dagur aldrei
án nætur. Sú staðreynd einkennir
alla mína túlkun, mitt viðhorf,
mitt líf.
Ég söng fyrst sextán ára. Síð
an hef ég sungið vlða í Evrópu,
í Sviss, Austuxríki, Þýzkalandi og
á skemmtistöðum Parísarborgar.
Ég hef hlotið frama og frægð. En
allt slíkt er mér einskis virði.
Peningar eru skítur.
Ég syng bara vegna sjálfrar
mín og söngvanna minna. Þótt
enginn í heiminum hlýddi á minn
söng myndi ég samt syngja. f
söngnum finn ég mínar sæl
ustu stundir.
Ég trúi ekki á hið góða í mann
RÆTT VIÐ GERMARNE BUSSET:
inum. Vonskan og ljótleikinn hafa
birzt mér svo víða, svo oft og á
svo ólíkum stöðum, í kirkju
jafnt sem krá. Ég treysti engum.
Ég kenndi hundinum mínum að
þiggja ekkert af ókunnugum. Ég
geri sjálf hið sama.
Auk söngsins er ljóðið mitt tján
ingarform. Ég yrki um blekking
una, flóttann, skuggann og nótt
ina. Ég yrki til að lifa. Án ljóðs
væri heimuxinn tómur. Við verð
um öll að flýja hið hversdags
lega. Þvi hvað er heimurinn
annað en eintómir virkir dagar.
Framhald á bls. 12.
Germarne Busset:
ANDENKEN
Ieh fiiehe die Strasse, die hinfiirt zur Stadt,
ich fliehe den Gedanken, der mich umfangen hat.
Das grosse Vprgessen, wo find ich es bloss?
Verfluchte Probleme, ihr lasst nicht los.
Ich erinnere mich wieder an jene Nacht-
Du lagist nacht vor mir.
Du hielst mich umfangen im Dunkel der Naoht.
Ich sehe sie wieder vor mir Deine Augen,
sie brannte wie Feuer,
sie liebkosten sie befahlen,
sie Zwangen mich in iihren Bann.
Nun ist es vohbei,
unwiederruflich vorbei,
Ich frage Dich?
Wie kann man ein Gliick vergessen, das in seinar Grösse kaum zu
ertragen war?
Ich höre sie wieder, deine rauhen Worte, Zigeunerin
nanntest Du mich in jener Nacht.
Bist Du gliicklich?
Nur ein Jdiot kann immerzu glucklioh sein.
MINNING
Ég forðast götuna, sem liggux til öorgarinnar,
ég flý hugsunina, sem hefur gripið mig.
Algleymi, hvar fæ ég þig fundið?
Bölvuð vandamál, þið sleppið mér ekkL
Ég minnist aftur þessarar nætur.
Þú lást nakinn fyrir mér.
Þú umfaðmaðir mig í jnyrkri næturinnar.
Ég sé þau aftur fyrír ijier, augun þín,
þau brunnu eins og eldur,
þau gældu við mig þau skipuðu,
þau þvinguðu mig í bann þitt.
Nú er það á enda,
óafturkallanlega á enda.
Ég spyr þig?
Hvernig getur maður gleymt hamingju, sem í stærð sinni var
varla hægt að bera?
Ég heyri þau aftur, hrjúfu orðin þán: Sigaunastúlka
nefndir þú mig þessa nótt.
Ert þú hamingjusamur?
Aðeins heimskingi getur alltaf verið hamingjusamur.
(Lausleg snörun).
Ódýrasfa Rínarferð ársins
Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavík efnir til 14 daga utanlandsferðar 7. júlí n. k.
Flogið verður til Kaupmannahafnar, en þaðan ekið til Rínarlanda. Þar verður dvalið um kyrrt í 5 daga, en siðan
ekið til Kaupmannahafnar aftur og dvalizt þar í 6 daga. Heim verður haldið 21. júlí.
Fargjaldið er ótrúlega lágt kr. 10.200 og innifalið í því verði er fararstjórn, gisting og fullt fæði í Rínarlöndum,
en morgunverður í Kaupmannahöfri.
Miðapantanir og allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Framsóknarflokksins, Tjarnargötu 26 símar
15564 og 16066. Stjórn FUF í Reykjavík.
Útgefandi: S.U.F. - Ritstjórar: Baldur Óskarsson og Hermann Einarsson