Tíminn - 11.06.1966, Blaðsíða 9
■ SM'
TIMINN
LAUGARDAGUR 11. Júní 1968
9
Svipmynd
stjóra hjá
— l»að er svo mikið dekrað
við flugmennina hjá SAS, var
okkur sagt. Þeir fá meira en
hálfa milljón í árslaun og í
fríum sínum geta þeir legið á
suðrænum baðströndum sér
að kostnaðarlausu. Þeir þurfa
heldur ekki að borga neitt fyrir
menntunina.
Tii þess að kanna hvað væri
bæft í þassu, heimsóttum við
Niels Hansen, flugstjóna hjá
SAS. Hann er maður á bezta
aldri, 39 ára, og hefur miðlungs
laun miðað við flugmenn SAS
f heild. Sem stendur er hann
flugstjóri á Caravelle vél hjá
SAS, sem flýgur til Parísar,
Mosfevu og Lundúna.
575 krónur á mánuði.
Faðir Niels Hansens var
bóndi á Margiager-landareign-
inni, sem var hart leikin í
kreppunni um 1930. Jörðin var
seld á nauðungaruppboði og
faðir bans gerðist fulltrúi. í
dag lifir þessi 77 ára gamli
maður á ellilífeyri sdnum.
Niels sonur hans fór í þorps
skólann og hann stóð sig vel
þar, í það minnsta var hann
beztur í sáimum. Þessi kunn
átta nægði honum ékki í
gagnfræðaskólanum, þar sem
hann þurfti að sitja tvö ár í
sama bekk. Að loknu gagn-
fræðaprófi gerðist hann skrif
stofumaður hjá sláturfélagi.
Hann ætlaði sér að gerast
herflugmaður og gekk undir ný
liðasfcoðun hjá hernum eftir
síðari heimsstyrjöldina.
Til þeess að komast í flug-
skóla hersins þurfti viðkomandi
að hafa verið yfirmaður í hern
um og NieLs varð liðsforingi,
sem menntaði nýliða.
1948 sótti hann ásamt 1200
yfirmönnum um stöðu sem
flugmaður í flughernum. Af
þessum 1200 umsækjendum
voru 42 settir á strangt nám-
skeið á Aunö og þjálfaðir á
KZ 2 flugvél. Hann fékk 575
kr. á mánuði og ókeypis vist.
Aðeins 21 af 42 urðu flugmenn.
Á hverjum föstudegi mættu
nemendurnir á skrifstofu
skólastjórans. Sumum var til
kynnt að þeir þyrftu ekki að
mæta aftur. Þegar æfingar hóf
ust á Kastrupflugvelli voru að
eins 26 eftir. Þegar nemendurn
ir lufcu náminu og fóru að
fljúga í júní 1949 voru aðeins
21 eftir. Fjórir þessara nem
enda létust fljótleg.a vegna
slysfara.
Sem liðþjálfi fékk Niels
Hansen 90 króna þóknun á
dag, þannig að mánaðarlaun
hans urðu alls 5400 krónur.
Þetba gerði honum kleift að
kvænast Jytte, aeskuvinkonu
sinni og þau hafa eignazt þrjú
börn.
Niels flaug í byrjun brezkri
Spitfire vél. Hann fór að
þjálfa unga herflugmenn árið
1950 og það varð honum mik
il ánægja, þegar dönsku flug
nemendumir voru sendir i
þjálfun til Bandarikjanna, að
þar stóðu þeir sig bezt af
1000 flugsveitum.
Þegar SAS færði út kvíam
ar um 1950 var mikill skortur
á flugmönnum og þejr leituðu
til he'rflugmanna. Niels Han
sen var einn þeirra sem réði
sig til SAS og eftir undir-
búningsjþjálfun var hann gerð
ur að aðstoðarflugstjóra og
féfck hann þá 6200 krónur
á mánuði.
38.000 krónur á mánuði.
— Hvað fáið þér á mánuði
sem flugstjóri?
— 38.000 krónur á mánuði
og af þeim renna 2300 kr.
í lífeyrissjóð. Ef ég héldi
áfnam að fljúga þangað til
ég verð sextugur, sem er ó-
senni'legt verða árleg eftir
laun mín um 200 þúsund.
Flugmenn SAS gangast und-
ir þol- og læknisskoðanir ann
að hvert ár og fullnægi þeir
ekki kröfunum, þá er flug-
mannsferli þeirra lokið. Þeir
eru tryggðir gegn sjóndepru
og heyrnardeyfð fyrir 120
þús. kr.
Mikið hefur borið á því
undanfarið, að flugmenn um
fertugt, séu dæmdir úr leik
vegna æðastíflunar og það veld
ur því, að maður með fulla
starfsorku verður að leita sér
að nýrri atvinnu, og líf þeirra
gjörtoreytist.
— Hvað um framhaldsmennt
un?
— Þegar SAS baupir nýja
gerð af flugvél, þurfa flug-
mennirnir að setjast á skóla
bekk til þess að fá að fljúga
þeim. Ég hef réttindi til þess
að fljúga DC 3, DC 6, DC 7c,
VIKA FLUGMANNSINS
Niels Hansen á fri á mánudegi, en á þriðjudagskvöldi
flýgur hann til Parísar og kemur aftur næsta morgun.
Á fimmtudag flýgur hann til Moskvu og leggur af
stað heimleiðis næsta morgun. Hann er kominn heim
til sin um miðnættið.
Á Iaugardagskvöldi flýgur hann til London og er kom-
inn til Kastrup flugvallar nssta morgun.
Það tekur hann heila klukkustund fyrir hverja brott-
för að yfirfara tékklistann og að loknu hverju flugi þarf
hann að eyða hálftíma f að skrifa skýrslu.
Caravelle og DC8. Ég hef að
baki rúma 10 þúsund flug-
tíma en kílómetrana hef ég
ekki lagt á mig að reikna út.
Öryggi framar öðru.
Við heimsótbum hann á mið
vikudegi, þar sem hann var
að dytta að sumarbústaðnum á
samt fjölskyldu sinni. Á
fimmtudegi mætti hann hress
á flugstöðinni. Flugmennirnir
tveir sem fljúga áttu vél-
inni fóru á veðurstofuna til
þess að fá nýjustu fréttir af
veðrinu, loftþrýstingi, úrkomu
og skyggni. Einnig til þess
að fá upplýsingar um væntan
legan flugtíma og varaflug-
velli, sem lenda ætti á, ef þess
gerðist þörf.
— Við vitum að búið er að
yfirfara flugvélina og öryggi
hjá SAS er fyrsta flokks, sagði
flugstjórinn.
í stjórnklefa vélarinnar yf-
irfer áhöfnin 65 atriði áður en
hreyflarnir eru ræstir, 14 at
riði þegar búið er að ræsa þá,
og 10 atriði á leiðinni á flug
br,autina. Þegar flugvélin er
komin á loft eru auk þess yf-
irfarin 12 atriði, þannig að
samtals eru 101 atriði yfirfar
in við hverja brottför.
— Ég treysti fyrst og fremst
á sjálfan mig, sagði Niels
Hansen, þegar hann- var kom
inn upp í stjórnklefann, þvi
að ég held að það sé farþeg
unum og flugfélaginu fyrir
beztu.
— Eru laun flugmanna svip
uð í öðrum löndum?
Aðstoðarflugmaður eftir táu
ára sbarf fær í árslaun:
f Danmörku: 300 þús. kr.
í Svfþjóð: 330 þús. kr.
f Frakklandi: 470 þús. kr.
Flugstjóri eftir 10 ára starf
fær í árslaun:
í Danmörku: 450 þús. kr.
f Sviþjóð: 500 þús. kr.
f Frakklandi: 870 þús. kr.
OG
BONDINN
Álit landbúnaðamefndar
Landtoúnaðarmál hafa hvað
eftir annað verið til ákafrar
umræðu á undanförnum árum,
einkum sá bluti þeirra, sem
nefna má „landbúnaðarpólitík“,
en það eru, framleiðslu og
verðlagsmálin aðalega.
í þessum skrifum og ræðum
við hin fjölbreytilegustu tæki
færi hefur mörgu verið haldið
fram um íslenzkan landbúnað.
sem við lítil rök hefur stuðst,
oft vegna litilla upplýsinga um
ísjenzkan landbúnað, og erlend
an og þar af leiðandi erfiðs
samanburðar. En oft vegna lít-
ils velvilja í garð landbúnaðar
ins og viljaleysis til að komast
að þvi rétta.
Því hefur meðal annars ver
ið haldið fram að landbúnaður
inn hér hefði litla framleiðni,
það er lítil afköst miðað við
tilfcostnað, vinnu og fjármagn,
og að framleiðnin ykist hægt.
Að hann nyti óhæfilega tnik-
Ula styrkja eða opinberrar að
stoðar og verndar, og að ofan
á allt annað yrðu qeytendur
hér að greiða óhæfilega hátt
verð fyrir landbúnaðarvörurn
ar og mikið hærra, en gerist
i nágrannalöndum okkar.
Bændum hefur verið það
ljóst, hve erfitt getur verið að
eltast við að leiðrétta það,
sem augljóslega er þó rangt
í slíkum málflutningi, og að
annað getur orkað tvímælis svo
að ekki er hægt að fullyrða
hvað réttast er, nema afla nán
ari upplýsinga. Það hefur og
verið skoðun margra, að sem
gleggstar upplýsingar um
stöðu íslenzks landtoúnaðar og
samanburður við landbúnað
nágrannaþjóðanna yrðu hon
um til framdráttar, og að auk
in kynning á þvi yrði tii að
draga úr tortryggni og mis-
skilningi.
Á aðalfundi Stéttarsambands
bænda 1963 kom fram til-
laga, og var samþykkt, um að
kjósa nefnd í samvinnu við
Búnaðarfélag íslands, til þess
að gera athugun á ástandi ís-
lenzks landbúnaðar með það
fyrir augum, að þessi félags
samtök geri heildaráætlun um
framtíðarskipulag á búvöru
framleiðslu í landinu og fram
tíðar skipulag íslenzkra búnað
armála yfirleitt.“ Eins og "seg
ir orðrétt í tillögunni.
Þar segir ennfremur: „Athug
un þessi nái yfir öll svið bún-
aðarmála. Skal með henni fást
siamanburður á opintoerri að-
stoð við landbúnaðinn hér á
landi og því, sem gerist með
viðskiptaþjóðum vorum, svo
að um það fáist upplýsingar,
hvaða áhrif mismunur á opin-
berri aðstoð hefur á markaðs
aðstöðu íslenzks landlbúnaðar
á erlendum mörkuðum. Einn
ig skal gerður samanburður á
verði landbúnaðarafurða i
hverja vörueiningu, og fyrir
komulagi þeirra mála.
Með þessum athugunum skal
leitt í ljós hvort landlbúnað
arframleiðsla hérlendis skuli
miðast við þarfir þjóðarinnar
eða vera jafnframt til útflutn
ings.
Þá skal gera athugun á því
hver sé hlutur þeirra, er
landtoúnað stunda, í heildar
framleiðslu þjóðarinnar, svo
að upplýsingar fáist um það,
hver sé hin efnahagslega að-
staða landbúnaðarins gagn-
vart öðrum atvinnuvegum."
Nefnd þessi var skipuð og
Pramhald á bls. 15