Vísir - 28.12.1974, Síða 1

Vísir - 28.12.1974, Síða 1
vism 64.árg. — Laugardagur 28. desember 1974. — 262. tbl. Skoteldar halda lífinu í hjólparsveitunum - Sjá bls. 20 Erlendar fréttamyndir ársins Sjá bls. 4 og 5 Lúxus að hringja — Sjá bls. 20. Flugvöllurinn lokaðist um leið og hann var ruddur — Sjá bls. 20. Innlendar fréttamyndir ársins Sjá bls. 6, 7 og 8 Verzlunin við útlönd: 12,3 meiri halli milljörðum en í fyrra T' ■ smsii s»l *r m': " • :r .• ; & ■ ■ '' j Við fluttum inn fyrir hvorki meira né minna en 15/5 milljörðum meira en við fluttum út fram til 1. desember. Þetta er 12,3 milljörðum meiri halli á vöruskiptajöfnuði en var á sama tímabili í fyrra. 1 nóvember einum var hallinn 1,4 milljarður i ár en 0,8 mill- jaröur I fyrra. bað dregur nokkuð úr sárasta sviðanum, jiegar tekið er með i reikninginn, að við höfum flutt , inn skip fyrir riflega hálfan mill- jarð meira i ár en var i fyrra og til álframleiðslunnar fyrir rúmlega 1,3 milljarði meira en þá var, auk 465 milljóna aukningar á inn- flutningi til Landsvirkjunar, að mestu vegna Sigölduvirkjunar, og um 135 milljónum meira tií flugvélakaupa. En allt samanlagt erþetta 2,5 milljörðum meira en i fyrra, svo að eftir stendur 9,8 milljarða meiri halli en var á sama timabili árið 1973. Útflutningurinn var alls 29,4 milljarðar fram til 1. desember og innflutningurinn rúmar 44,9 milljaröar, svo aö hallinn varð yfir 15,5 milljarðar króna. 1 fyrra var hallinn á sama timabili tæplega 3,3 milljaröar. tJtflutningurinn nam þá 23,9 mill- jörðum og innflutningurinn 27,2 milljörðum. Útflutningur á áli og álmelmi varð i ár 4,4 milljarðar en 4,1 milljaröur á sama tímabili i fyrra, hvort tveggja fram til 1. desember. —HH TiTÁÐ BRENNA ÁRIÐ ÚT Langar spýtur og stuttar, kassar úr pappa, jafnt sem timbri, vörupallar, divanar, jólagreni, eggjabakkar og jafn- vel erlent góðgæti. Allt kemur að jafn góðum notum i baráttu strákanna við að gera brennurnar sinar sem myndarlegastar. Þessir strákar við Ægisiðu hafa löngum átt vinninginn, og brennan þeirra i ár ætlar að verða hin myndarlegasta. Þarna er hann Skúli, einn af forsprökkum þeirra brennu- manna, að læða stórum planka upp til Ingvars, sem stendur uppi á kestinum. Ljósm. Bj.Bj. Sjá myndir frá brennunum á bls 3. Taylor fór ekki i jólaköttinn Brezki landhelgisbrjóturinn, Kichard Taylor, hefur nú afplánað um 20 daga af refsidómi sinum. Hann situr i fangelsinu I Siðu- múla og mun að likindum stutt i það, að hann verði látinn laus. Eins og kunnugt er, var Taylor skipstjóri brezka togarans C.S. Forester, sem varðskipið Þór tók fyrstan brezkra togara i landhelgi eftir útfærzluna i 50 mllur. Að visu var Forester fyrir innan Í2 milur, þegar hann var tekinn. Þótt Taylor sæti i fangelsi um jólin, fór hann samt ekki i jóla- köttinn. Hjón nokkur færðu honum sælgæti og flösku af léttu vini i jólagjöf. Hann fékk að halda sælgætinu, en vinið verður geymt fyrir hann. Einnig fékk Taylor heimsókn skipverja af einu varöskipinu, og færði sá Taylor lopapeysu aö gjöf. Hápunkturinn á jóla- haldinu i fangelsinu var sá, að Taylor fékk að hringja I fjöl- skyldu sina til Englands. Hann hefur ekki viljað ræða við blaðamenn. -ÓH. I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.