Vísir - 11.01.1975, Síða 9
Vlsir. Laugardagur 11. janúar 1975,
9
SUNDAY TIMES
MÓTIÐ HEFST
I NÆSTU VIKU
í næstu viku hefst SUNDAY
TIMGS tvfmenningskeppnin og
er spilað á Churchilihótelinu i
London. Átján pör frá fjórtán
löndum eru meðal þátttakenda,
en styrkleika mótsins má ráða
af þvi, að meðal keppenda eru
fjórir heimsmeistarar, niu
Evrópumeistarar, tveir S-Ame-
rikumeistarar, einn N-Ame-
rikumeistari auk 33 iandsmeist-
ara.
Mótið hefst 16. janúar á há-
degi en lýkur kl. 3 laugardaginn
18. janúar.
Bridgesamband íslands valdi
Simon Simonarson og Stefán
Guöjohnsen til þess að spila á
mótinu og mega þeir halda vel á
„spööunum” og reyndar hinum
litunum lika, þó ekki væri stefnt
hærra en i miðjan flokk. Farar-
stjóri þeirra félaga er Þórarinn
Sigþórsson.
Frægustu þátttakendur móts-
ins eru vafalaust Frakkarnir
Boulenger og Svarc, en þeir
unnu sér Evrópumeistaratitil I
Israel i nóvember. Þá eru frá
Italiu Burgay og De Falco, frá
Brasiliu Chagas og Assumpcao,
en þeir eru á leið i heims-
meistarakeppnina sem haldin
verðurá Bermuda ilok janúar.
Frá Bandarikjunum koma Son-
tag og Weichsel, en þeir voru i
fyrsta og öðru sæti I mótinu fyr-
ir tveimur árum, sinn á móti
hvorum makkernum.
Englendingar eru með sina
LANDSLIÐSMÁL
Á HREYFINGU
Stjórn Bridgesambands Is- flokki og unglinga.
lands hefur nú ákveðiö að halda Komast 16 pör i hvorn flokk,
landsliðstvimenninga með Butl- sem valin verða úr hópi
erfyrirkomulagi bæði i karla- umsækjenda. Skal karlaliöið
A LEIÐ TIL LONDON:
Simon Simonarson og Stefán Guðjohnscn. A milli þeirra stendur fararstjórinn, Þórarinn Sigþórsson.
landsliðsmenn og eru fremstir I
flokki Priday og Rodrigue, Flint
og Rose, Reese og Dixon, Coyle
og Silverstone.
Sú nýlunda er i sambandi við
mótið að hluti þátttakenda á
kost á að spila I einmennings-
keppni daginn áður en mótiö
hefst. Er það frægur klúbbur i
London, The Ladbroke Club,
sem býður til keppni og eru
glæsileg verðlaun I boði fyrir þá
heppnu sem vinna.
Nánari fréttir af Sunday
Times mótinu munu birtast á
fréttasiðum blaðsins i næstu
viku.
Hér er laglegt spil frá keppn-
inni i fyrra og má ekki á milli
sjá, hvor spilar betur, vestur
eða suður.
Staöan var allir utan hættu og
vestur gaf.
A 4
V K-5
♦ 7-5-3-2
♦ A-K-9-8-6-3
♦ A-10-2 é 7-5
V A-D-G-10-4 V 9-6-3-2
♦ 6-4 + A-10-9-8
* D-10-5 * G-7-2
A K-D-G-9-8-6-3
V 8-7
♦ K-D-G
♦ 4
Sagnirnar:
Vestur Noröur Austur Suöur
1? 2« 2 W 4 A
P P P
Vestur hitti á eina útspilið,
sem gat gert sagnhafa erfitt
fyrir, tigulsex. Austur lét áttt-
una og sagnhafi tók slaginn. Það
var augljóst að vestur ætlaði sér
að trompa tigul og til þess að
hindra það, spilaði sagnhafi
þrisvar laufi og kastaði tigul-
hjónum. Vestur átti slaginn á
laufadrottningu og hann spilaði
tigli, sem sagnhafi trompaði.
Ekki gat sagnhafi farið strax I
trompið, þvi þá myndi vestur
drepa, taka hjartaás og spila
blindum inn á kónginn. Þá ætti
sagnhafi enga örugga inr.komu
á hendina og vestur fengi
væntanlega trompslag.
Hann spilaði þvi hjarta, en
vestur var vandanum vaxinn og
lét tiuna. Kóngurinn átti slaginn
og nú kom tromp. Vestur gaf
fyrsta trompið en drap siðan
drottninguna með ásnum og
spilaði hjartafjarka. Austur
komst inn á hjartaniu og spilaði
tigli og vestur fékk fjórða slag
varnarinnar á tromptiuna.
jVljótt á mununum
í sveitakeppni BR
gefa sig fram við Július Guð-
mundsson i sima 35331 eða póst-
hólf 256 i Kópavogi, en ungling-
ar við Jakob R. Möller. Frestur
til þess að sækja um er til 17.
janúar en áætlað er að keppnin
hefjist um 25. janúar.
Átta efstu i hvorum flokki að
lokinni keppni munu hefja
landsliðsæfingar um tveggja
mánaöa skeið eftir fyrirkomu-
lagi, sem stjórn BSl setur, en að
þeim loknum munu þar til
skipaðar landsliðsnefndir velja
þau landslið, sem senda á út.
Nánar verður fjallað um þessi
mál siðar.
Nú er lokið átta umferðum I
aðalsveitakeppni BRIDGE-
FÉLAGS REYKJAVIKUR og
er orðið mjótt á mununum, þótt
sveit Þóris Sigurðssonar skipi
ennþá efsta sætið.
Röð og stig efstu sveitanna er nú
sem hér segir:
stig
1. Sveit Þóris Sigurðssonar 133
2. Sveit Helga Sigurðssonar 127
3. Sveit Hjalta Eliassonar 121
4. Sveit Þórarins Sigþórss. 115
5. Sveit Jóns Hjaltasonar 95
6. Sveit Björns Eysteinssonar 88
7. Sveit Gylfa Baldurssonar 80
8. SveitEsterar Jakobsdóttur 74
Næsta umferð verður spiluð i
Domus Medica n.k. miðviku-
dagskvöld kl. 20.
Sveitakeppni fclagsins, lauk
nú skömmu fyrir jól, með sigri
sveitar Sævars Magnússonar,
og hlaut hún 142 stig.
Röð efstu sveita varð annars
þessi:
1. Sveit Sævars Magnússonar
142 stig.
2. Sveit Kristjáns Andréssonar
136 stig.
3. Sveit Öla Kr. Björnssonar 123
stig.
4. Sveit Ólafs Gislasonar 98 stig.
5. Sveit Jóns Gislasonar 92 stig.
Byrjað verður aftur að spila
n.k. mánudag þann 13. janúar,
og er þá fyrirhugað eins konar
kynningarkvöld. Verður spiluð
eins kvölds tvimenningskeppni,
og gefst nýliðum kostur á að
spila með reyndari mönnum
félagsins.
Auk þess verður kynnt starf-
semi félagsins.
Er þess vænst að sem allra
flestir bridgeáhugamenn og
konur mæti i Skiphóli kl. 8 á
mánudagskvöldið.