Vísir - 14.01.1975, Blaðsíða 4
4
Vísir. Þriöjudagur 14. janiíar 1975.
7-8 PRÓSENT
AUKNING
Á IÐNAÐAR-
FRAMLEIÐSLU
Framleiðsla iðnaöarins óx um hafði fyrirætlanir um fjárfest-
7-8 af hundraði á þriöja árs- ingu i lok ársins. Þær upplýsing-
fjórðungi 1974, miðaö við sama ar sem bárust, gefa til kynna,
timabil árið áður. að framleiðsluaukningin miðað
Til þess benda niðurstöður við árið áður hafi aðallega verið
svokallaðrar hagsveifluvogar i ullariðnaði, sútun og verkun
iðnaðarins, en hún byggist á skinna og veiðarfæragerð. 1
svörum fyrirtækja við spurn- flestum öðrum iðngreinum varð
ingum Landssambands iönað- annaðhvort kyrrstaða eða ein-
armanna og Félags islenzkra hver minni háttar framleiðslu-
iðnrekenda. aukning. I pappirsvörugerð og
Um helmingur fyrirtækjanna, málningargerð er þó um nokkra
sem svöruðu spurningunum, minnkun að ræða. —HH
pOÐ SALA
I STORUM
JEPPUM OG
SMÁBÍLUM
— bílasalan á nýbyrjuðu ári fer
þokkalega af stað
„Liklega er hér um að ræða
fólk, sem er búið aö borga gjöld
sin fyrir slðasta ár og búiö að
rcikna út, hvað það muni þurfa
að borga á þessu”, sagði einn
viðmælenda VIsis, er grennslazt
var fyrir um bilasölu á nýbyrj-
uðu ári.
Haft var samband við nokkur
stærstu bilaumboðin, og voru
svörin yfirleitt á þann veg, að
mun liflegra væri nú yfir bila-
sölu en var i desember, og sum-
ir töldu söluna engu lakari en á
sama tima I fyrra.
Hjá Fiat hafa selzt 20 bilar
þessa tiu fyrstu söludaga ársins,
en 32 seldust allan janúarmánuð
fyrir ári. Mest selst nú af gerð-
unum 127 og 128, sem eru tiltölu-
lega ódýrir, en þeir bilar, sem
seldust siðustu daga ársins sem
leið, voru eingöngu dýrari gerð-
imar. Allir þessir bilar eru af
árgerðinni 1975.
Hjá Sveini Egilssyni hafa
selzt fast aö 20 bilar, mest
Cortina og Escort, ,,en einn og
einn Broncoinn á milli”, eins og
komizt var að orði. Mest eru
þetta bilar af árgerðinni 1974.
Hjá hinu Ford-umboðinu, Kr.
Kristjánssyni, hafa selzt 10 bil-
ar, sömu tegundar og árgerð.
Hekla h.f. hefur selt 8 bila það
sem af er árinu, einkum Volks-
wagen 1200 L. Þar var okkur
sagt, að salan I notuðum biium
væri farin að verða lifleg.
Systurfyrirtæki Heklu, P.
Stefánsson, hefur selt 12-15 bila,
einkum fólksbila, en ' einnig
Land-Rover. Range Rover er
ekki til eins og er, en eftirspurn
nokkur. Hjá báðum umboðum
er um að ræða árgerð 1975.
Hjá Sambandi islenzkra
samvinnufélaga hafa selzt 8 bil-
ar frá General Motors það sem
af er árinu, mest af Blazer. Af
Scouthafa auk þess selzt 7 bilar.
Hér er aðallega um ’74 árgerð
að ræða.
Hjá Agli Vilhjálmssyni er
mikið spurt um nýja bila á nýju
ári og 10—12 bilar seldir. Mest
er salan i jeppunum, Wagoneer
og Cherokee. Megnið af þeim
bilum er árgerð 1974.
Þeirri spurningu, hvort lána-
kjörum hefði verið breytt frá
þvi, sem var i fyrra, var svarað
svipað hjá öllum umboðunum:
Að krónutala hefði jafnaðarlega
verið hækkuð til hlutfalls viö
verðhækkun bilanna, en láns-
tlminn væri sá sami og áður. Þó
var sums staðar tekið fram, að
hægt væri að semja um alla
hluti og þá jafnframt að koma
nokkuð til móts við kaupendur i
lánsupphæðum og timalengd-
um, eftir þvi um hvaða upphæð-
ir væri að ræöa. —SH
Upplýsingarnar komnar fró Croiset:
Samhljóða fyrri upplýsingum
„Uppiýsingarnar frá Croiset
voru I svipuðum dúr og þær,
sem hann gaf Morgunblaöinu.
Þar sem þegar hefur veriö leit-
að samkvæmt þeim upplýsing-
um, töldum við ekki ástæðu til
þess aö hefja leit aftur”, sagði
Haukur Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumaöur i Keflavfk
i viðtali við Visi I morgun.
Stutt er siöan upplýsingarnar
frá Croiset bárust.
„Hann skrifaði þær niður á
blað. Hann tók einnig fram þar,
að sér hefði gengiö ákaflega
erfiðlega að komast i samband
við þetta mál. Hann gat t.d. ekk-
ert sagt um aðdragandann að
hvarfi Geirfinns”, sagöi Haukur
einnig.
Haukur sagði, að þessum
þætti sjáandans Croiset væri
þar meö lokið i rannsókninni á
hvarfi Geirfinns Einarssonar.
Rannsókn heldur áfram hjá lög-
reglunni eins og venjulega og
beinist að þvi að finna ljósa
Benz-sendiferðabilinn. — ÓH
ISLAND A
NÚ LOKJ
TVO STOR-
MEISTARA
í SKÁK
Guðmundur Sigurjónsson hefur
áður verið nærri þvi að öðlast
stórmeistaratignina, en ekki
tekizt fyrr en núna. — Hann hef-
ur nú um skeið stundað skákina
sem atvinnu.
„Þetta er ekkert
lokatakmark,” sagði
Guðmundur Sigurjóns-
son, i morgun i viðtali
við Visi. ,,En það er
alltaf gott að hafa
þennan titil. Maður fær
frekar boð á skákmót.
„Auðvitað er ég mjög
ánægður”.
„Ég er þreyttur eftir þetta og
geri ráö fyrir að slappa dálitiö
af á mótinu hér,” sagði
Guðmundur, sem kom seint I
gærkvöldi til Wijk-aan-Zee I
Hollandi, þar semhann byrjar
að tefia á móti á hádegi I dag.
Guðmundur gerir ráð fyrir að
fá stórmeistaratitilinn form-
lega, þegar þing alþjóðaskák-
sambandsins, FIDE, verður
haldið, sem yfirleitt er siðara
hluta árs. Hann náði fyrri
áfanga þess, sem til þurfti stór-
meistaratitli á móti i Costa
Brava I september I fyrra.
„Ég hef stefnt að þessu. Það
væri of mikið sagt, að ég hafi
gert það árum saman, þvi að nú
er aðeins eitt ár, siðan ég
byrjaði að tefla aftur i alvöru.
Aframhald atvinnumennsku
minnar fer svo eftir atvikum.
Guömundur Sigurjónsson
tryggði sér stórmeistaratitilinn
með þvi að vinna siðustu skák
sina I Hastings-mótinu I gær.
„Guðmundur Sigurjónsson
frá íslandi sýndi mikla
Til er fólk erlendis, sem ekki þekkir neitt annað til tslands en að þaö
eigi stórmeistarann, Friðrik Ólafsson. Hefur það verið mörgum undr-
unarefni, að svo litil þjóö sem tslendingar skuli búa að slikum skák-
snillingum.
nákvæmni”, segir i fréttaút-
sendingu Reuters um skák
Guðmundar við Garcia frá
Kúbu.
Þar með á Guðmundur annað
sætið tryggt með 10 vinninga,
sem er 66,3% árangur. En ekki
eraðvita nema einhverjir fleiri
deili með honum öðru sætinu.
Siðasta umferð mótsins verður
tefld i dag.
Höfðu Guðmundur og Hort
fengið sinum skákum flýtt til
þess að komast á skákmótið i
Wijk-aan-Zee i Hollandi, en það
á einmitt að hefjast i dag.
Tékkneski stórmeistarinn,
Vlastimil Hort, tryggði sér
sigurinn i Hastings, þegar hann
vann skák sina við Planinc I
gær. Þótti Hort þar sýna sterk-
ari taugar I spennunni, sem
magnazt hafði vegna tvisýn-
unnar undir mótslokin. — Fékk
Hort 10 1/2 vinning af 15 mögu-
legum og þar með sigurverö-
launin, sem eru 600 sterlings-
pund, eða tæpar 170 þúsund
Islenzkar krónur.
Guðmundur verður annar
stórmeistarinn, sem Island
eignast I skák. Það var reyndar
lika i Hastings, sem Friðrik
Ólafsson stórmeistari' vakti
fyrst á sér athygli á alþjóð-
legum vettvangi fyrir all-
mörgum árum.
I Wijk-aan-Zee verður teflt I
tveim flokkum, A- og B-flokki,
og teflir Guðmundur I B-flokki.
Aðstandendur mótsins höföu
ekki séð fyrir frammistöðu
Guðmundar I Hastings.
—GP/HH.
A skákmótinu I Hastings, þar sem tsland eignaöist sinn annan stórmeistara, T.v. stýrir Guðmundur
svörtu mönnunum á móti Rússanum, Vaganian. — Þaö var einmitt I Hastings fyrir allmörgum árum,
sem Friörik ólafsson vakti fyrst á sér athygli I erlendu skákmóti.