Vísir - 14.01.1975, Blaðsíða 5
Vlsir. Þriðjudagur 14. janúar 1975.
REUTER
AP/NTB
í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND llmsjón: G.P.
Skutu úr sprengjuvörpu á
ísraelsþotu í París
Parisarlögreglan leit-
ar nú mannanna, sem i
gærdag réðust með
sprengjuvörpum á isra-
elska farþegavél á Orly-
flugvelli.
að flugvélinni, sem ekið var i
flugtaksstöðu. Mennirnir i bif-
reiðinni óku burt, þegar tilræðið
misheþpnaöist.
Skömmu siðar fann lögreglan
bifreiðina yfirgefna og voru tvær
rússneskar sprengjuvörpur i
aftursætinu.
Lögreglan segir, að árásin hafi
ekki staðið nema i eins og fimm
sekúndur. Svo mikið var fátið á
tilræöismönnunum, að þeir gáfu
sér ekki tima til að miða vel,
þannig að skeyti þeirra geigaði. í
flýtinum missti annar þeirra
rússneska skammbyssu, sem lög-
reglan fann, þegar hUn kom á
vettvang.
Tvenn ofstækissamtök vilja
eigna sér verknaðinn. Annars
vegar arabiskir skæruliðar, sem
kenna sig við alsirskan Utlaga, er
fórst i bilasprengju i Paris 1973.
Segjast þeir vera valdir að þrem
bilasprengingum i Parls i ágUst.
— Hins vegar eru samtök króa-
tiskra skæruliða, sem segjast
hafa staðið að árásinni.
Arásarmennirnir, hverjir sem
þeir voru, skutu úr sprengjuvör-
unum af bilastæði sem vissi að
flugvellinum. Skeyti þeirra hæfðu
þó ekki israelsku vélina sem var
með 143 farþega innanborðs.
Munaði þar litlu.
Minniháttar skemmdir urðu i
staðinn á júgóslavneskri flugvél,
sem stóð þar nærri, og þrennt
særöist. — Flugþjónn Ur júgóslav-
nesku vélinni, burðarkarl og lög-
regluvörður, sem var við Isra-
elsku vélina.
Sjónarvottar segjast hafa séð
tvo menn standa við kyrrstæöa
bifreið og miða sprengjuvörpunni
Kynþátta-
V •
oeirðir
Undir niöri sýöur enn i Bost-
onbúum óánægjan meö blöndun
þeldökkra og hvltra i skólum
borgarinnar. Annö veifiö brýzt
hún upp á yfirboröiö i óeiröum,
eins og i gær, þar sem kom til
átaka milli nemenda fyrir utan
einn skólann.
Lörreglan varö aö skerast i
leikinn, og tókst henni aö stilla
til friöar, áður en verra hlauzt
af. En þrettán nemendur varö
hún aö hneppa i varðhald, áöur
en yfir lauk. — Á myndinni hér
viö hliöina sést einn óeiröar-
seggurinn leiddur á brott.
MYND AP I MORGUN
Ford vill lœkka skatta
— en hœkka í staðinn olíu og bensín
Ford Bandaríkjafor-
seti hefur boðið þjóð
sinni umtalsverða
skattalækkun, en um
leið hærri gjöld á olíu og
bensin til að rétta við
efnahag landsins og af-
stýra alvarlegri orku-
kreppu.
Tillögur hans hafa hlotið sæmi-
legar undirtektir hjá þingmönn-
um, einkanlega skattalækkanirn-
ar, en það þykir þó fyrirsjáanlegt,
að þingmenn muni vilja gera
ýmsar breytingar á hinum fyrir-
huguðu efnahagsráöstöfunum,
áður en þær verða samþykktar i
þinginu.
Ford leggur til, að skattar fyrir
árið 1974 veröi lækkaðir um 12%,
en það þýðir 16,000 milljón dala
tekjumissi fyrir rikissjóð. A móti
vill hann setja 3 dala innflutn-
ingsgjald á hverja oliutunnu, sem
flutt verður inn I Bandarikin á
næstu þrem mánuðum..
Þessar tillögur kunngerði Ford
i sjónvarpsræðu i gærkvöldi, en i
dag kemur þingið i fyrsta skipti
saman til fundar eftir jólahlé.
Margir þingmenn hafa strax
látið I ljós ánægju sina með
skattalækkunina, sem gert er ráð
fyrir, en eru hins vegar gagn-
rýnni á innflutningsgjöld oliunn-
ar. Segja þeir, að þau gjöld verki
á veröbólguna til hins verra.
t sjónvarpsræöu sinni I gær-
kvöldi sneri Ford baki viö fyrri
stefnu sinni I efnahagsmálum
og boöaöi fyrirhugaðar ráö-
stafanir til aö rétta viö efnahag
Bandarikjanna: skattalækkanir
og hækkanir á oliu og benslni.
Vildi ekki
hjálpa konu
úr bílslysi
i fjóra daga lá kona nokkur i
Kaliforniu slösuö hjá bíl sinum,
sem oltiö haföi út af þjóövegin-
um, og beiö þess, aö einhver
lieyrði neyðaróp hennar.
Tveir drengir heyröu loks
köllin i henni og sóttu hjálp.
Vatnslaus og matarlaus hafði
hún legið i skjóli við klett og gat
sig hvergi þaðan hreyft. Henni
hafði tekizt að skriða Ut um
glugga á bilnum, sem lá á
hvolfi, þvi að hún hafði óttazt,
að i honum mundi kvikna.
Þegar henni hafði verið
bjargað kunni hún þá sögu að
segja, að maður einn hefði heyrt
neyðaróp hennar ,,en hann vildi
ekki láta blanda sér i málið”, og
skildi hana eftir ósjálfbjarga.
,,Ég sá mann á föstudaginn.
Hann var á gangi og með honum
hundur. — Hann spurði, hvað
væri að, og þegar ég sagði hon-
um, að ég hefði lent i slysi og
væri meidd, sagðist hann ekki
vilja láta blanda sér i þetta”,
sagði Barbaralu Wilson, 46 ára
kona frá Ventura i Kaliforniu.
„Siðan bætti maðurinn við:
,,Auk þess á hver kona, sem
er nógu vitlaus til að vera ein á
ferð i bifreið eftir þjóðvegi 33,
allt það skilið, sem fyrir hana
getur komið á leiðinni”.”
Framdi
einka-
ritari
Playboy
sjálfs-
morð?
Einkaritari Hugh
Hefners, útgefanda
timaritsins „Playboy”,
fannst látinn i hótelher-
jbergi i Chicago i gær.
Það eru ekki nema tveir mán-
uðir liðnir, siöan hún var dæmd
fyrir aö hafa lagt á ráðin um út-
vegun og dreifingu kókains. —
Var mikill úlfaþytur út af þvi
máli, vegna þess að grunur vakn-
aði um það, að Hefner veitti gest-
um sinum kókain I veizlum sin-
um.
Lögreglan segir, að ungfrú
Arnstein, sem var 32 ára og hafði
starfaö lengi sem hægri hönd
Hefners, hefði tekið of stóran
skammt af svefnlyfjum. Þó var
ekki slegið föstu, hvort um hefði
verið að ræða slysni eða hvort
^rnstein heföi fyrirfarið sér.
Einkaritarinn hafði verið
dæmdur skilorösbundið i 15 ára
fangelsi. Dómnum hafði hún á-
frýjað.
Semja um sjálfstœði Angola
— Viðrœður Rhodesíustjórnar og
innfœddra komnar í strand ó
meðan
Portúgalsstjórn og
þrjár sjálfstæðishreyf-
ingar i Angola hafa gert
með sér samkomulag
um sjálfstæði til handa
þessari nýlendu Portú-
gala i Afriku.
Gengið verður nánar frá sam-
komulaginu i dag undir lok fund-
ar, sem fulltrúar Portúgals-
stjórnar annars vegar og frelsis-
samtakanna hins vegar hafa átt
undanfarna daga i Penina i
Portúgal.
A meðan viröast samningatil-
raunir Rhodesiustjórnar við inn-
fædda vera komnar i strand.
Greinir þá nú á um, hvernig túlka
beri þau atriði, sem samkomulag
náðist um i Lusaka fyrir nær
mánuði.
Samkvæmt þeim samningum
átti að binda enda á skæruhern-
aðinn, en i staðinn ætlaði
Rhodesiustjórn að láta lausa
pólitiska fanga. Nokkrum var
sleppt úr fangelsum, en siðan
sagði Rhodesiustjórn, að skæru-
liðar hefðu ekki staðið við sitt, og
fleiri yrðu ekki látnir lausir, fyrr
en skæruhernaðinum heföi verið
hætt.