Vísir - 14.01.1975, Síða 7

Vísir - 14.01.1975, Síða 7
Vlsir. Þriðjudagur 14. janúar 1975. 7 cTVIenningarmál VILLULJÓS Þórir S. Guðbergsson: Ljós að næturlagi tsafold, Reykjavík 1973 Það er ekki öilum gef- in sú list að skrifa bæk- ur. Ekki einu sinni sam- kvæmt formúlu. Þeir eru nú orðnir þó nokkrir islenskir rithöfundar, sem hafa spreytt sig á að skrifa unglingareyf- ara að erlendri fyrir- mynd. Enid Blyton hef- ur verið flestum þessara höfunda nokkurs konar andlegur páfi, þó að sjálfsögðu gæti einnig annarra áhrifa. Ég hef orðið þess vör i umræð- um manna á milli um barna og unglingabækur, að menn eru ýmist á móti reyfurum yfirleitt og telja þá af hinu illa eða þá að menn sveipa sig blæju frjáls- lyndis og segja: — Krökkunum finnst gaman að þessu, þau hafa bara gott af þessu, þau æfast I lestrinum. — Frá minum bæjar- dyrum séð er hvorug afstaðan góð. Það gildir það sama um reyfara fyrir börn og fyrir full- orðið fólk, að þeir eru misjafnir að gæðum, allt eftir þvi, hvað höfundarnir kunna til verka og hvað þeir vinna verk sitt af mik- illi alúð. Lögmál reyfarans Reyfarar lúta i grundvallar- atriðum sömu lögmálum. Allir betri höfundar hafa gert sér grein fyrir þessu og hlita þvi þessum lögmálum vitaö eða ómeðvitað. Auk þess sem margir þeirra hafa til viðbótar skapað sér sin eigin sérstöku lögmál, sem verða þeirra eign og einkenni. Það væri of langt mál að fara ýtarlega út I þetta hér, en ég get ekki stillt mig um að nefna nokkur atriði, svo lesandinn sjái, hvaö ég er að fara. I góðum reyfara þurfa vett- vangslýsingar að vera ljósar. All- ar ytri aöstæður þurfa aö geta staöist gagnrýni raunsæs les- anda. Atburðarásin má aldrei orka fáránlega á lesendur. Spenna þarf helst að vera jöfn og stigandi. Reyfarar gera sömu kröfu til persónusköpunar og aör- ar bókmenntir. Höfundur, sem ekki hlitir þessum reglum og fleiri til, getur ekki vænst góös árangurs. Ég hef áður hér I blað- inu örlitiö fjallað um vinnubrögð sænska sósialistans, Sven Wern- ströms, sem notar reyfaraformið I ákveðnum tilgangi. Hann þekkir það út i æsar og hagnýtir sér það markvisst. Mér þykir liklegt, aö svipað vaki fyrir höfundi þessar- ar bókar. Þ.e. að nota reyfara- formiö til að koma ákveðnum skoðunum á framfæri, þó að þær skoðanir séu vissulega aðrar en skoöanir Wernströms. En ég ætla ekki hér að fjalla um skoðanir þeirra. Sven Wernström færist mikið I fang, þar sem hann hyggst meö skrifum sinum stuðla að nýrri þjóðfélagslegri sýn og endurmati verðmæta. Hann vinnur vel og kemst vel frá þvi, sem hann er að gera. Hann gerir tilraunir meö form og tjáningaraðferðir og er þvi stundum mistækur. Þórir S. Guðbergsson ætlar sér ekki eins stóran hlut. Hann elur ekki á neinum hugmyndum um að um- bylta samfélaginu, aðeins bæta þaö. Hann skrifar sinar bækur út frá heföbundnu gildismati vest- ræns þjóðfélags, reyndar ýkir hann dálitið siögæðisstandardinn. En góður vilji dugir honum ekki, hann virðir lögmál reyfarans að vettugi, og útkoman verður lika næsta bágborin. Hringurinn þrengist Bókin hefst á þvi, að sagt er frá þrem drengjum á leið i útilegu. Strax á leiðinni i rútunni verður maður þess var, að venjuleg úti- lega eins og viö þekkjum flest yrði þessum drengjum þunnur þrettándi: „Hins vegar er ég enn að velta fyrir mér, hvað þessir út- lendingar eru að bauka i Múlan- um, og hvort við eigum eftir að lenda i ævintýrum stórum og miklum...” Þeirhafa sýnilega lif- að sig inn I heim ævintýrabók- anna. Útlendingarnir gáfu sig út fyrir að vera jarðfræðingar. En þeir félagar sáu fljótiega i gegn- um svo augljósa blekkingu. Gunnar segir: „Aður en ég fór að heiman, rannsakaði ég vandlega jarðfræðibók bróður mins. Ég gat hvergi fundið nokkuð, sem benti i þá átt, að á þessum slóðum væri vottur jarðlaga eða steingerv- inga, sem gætu gefið tilefni til margra vikna rannsókna.” Og seinna I bókinni: „Segðu mér Svenni, sagði Gunnar, er nokkuð um merkileg jarðlög hér i grennd? Nei, ekki segir amma. Nokkrar rispaðar steinhellur frá isöld. Það er allt og sumt.” Og þar með þurfti ekki vitnanna viö. Útlendingarnir hlutu að hafa illt i hýggju. Margt verður til að treysta illan bifur barnanna á útlendingunum. Drengirnir sjá ljós að næturlagi upp I fjalli. Útlendingarnir, sem aöeins eru tveir, hafa slegið upp 5 tjöldum. Þeir blanda litt geði viö fólkið I sveitinni, koma þó viku- lega á bæ nokkurn, þar sem býr gömul kona, og biðja hana fyrir bréf. Bréfin eru með ærið ugg- vænlegri utanáskrift: Mr. Abra- ham ibn Abdullah, Ras Tanura, Persian Gulf, Arabia. En aftan á bréfinu stóöu þessi orð: Abs. Martin and Walter, c/o The fal- conry club, Box 15045, London, W.C.I., England. Auk alls þessa tala þeir ekki lýtalausa ensku. Sem sagt hringurinn þrengist óð- fluga. Labb-rabb Svo ég geri langt mál stutt. Illar grunsemdir barnanna áttu eftir að sannast. Gamla konan á bóndabænum ól á svipuðum grun- semdum. Sökum elli sinnar og vizku brást hún rétt við á hættu- stund. Hún kom sér upp labb- rabbtæki og með hjálp þess, drengjanna og barnanna, sem voru hjá henni i sumardvöl, tókst að koma lögum yfir þrjótana: „Oddvitinn sagði okkur á eftir, að þetta væru italskir Englendingar. Þeir játuðu á sig brotið. Maður- inn, sem þeir skrifuðu til Arabiu, er rikur oliukóngur, sem safnar nú fálkaungum til þess að temja. Og auðvitað borgar hann fyrir þá svimandi háar upphæðir. Hann fær þá senda hvaðanæva úr heim- inum.” Við sögu koma auk drengjanna, gömlu konunnar og sumardvalar- barnanna, tvær telpur, sem koma á eftir drengjunum I útileguna. Hlutverk þeirra er ekki stórt i sögunni, en þær eru engu aö siður nauðsynlegar til að lýsa stöðu og hlutskipti kvenna I ævintýra- heimi: „Þegar stúlkurnar höföu lokið við að glóðarsteikja pylsurnar á hlóðum, sem strákarnir höföu útbúið, var sest að snæðingi. Ammi namm, sagði BOKMENNTIR B Þ S , eftir Bergþóru Gisladóttur Gunnar og sleikti út um. Munur að hafa góða kokka. Mér finnst ég ekkert hafa borðað þessa daga (þ.e. sem drengirnir matreiddu sjálfir). Svo brosti hann striðnis- lega til vina sinna tveggja.” Ævintýrið um útlendingana fléttast annarri sögu, þ.e. sögu Svönu. En sú saga er nokkuð dapurleg. Svana og gamla konan eru einu nokkurn veginn heillegu persónur bókarinnar, þrátt fyrir fáránlega atburðarás, sem þær verða fyrir hnjaski af. Drengirnir eru engum drengjum likir. Sam- töl þeirra minna meir á samtöl kvenfélagskvenna i hópferð en drengja i útilegu. Flest fólk þess- arar bókar er yfirmáta trúað. Og trú þess birtist i ákveðnum trúar- athöfnum, bænum og guðsorða- lestri, frekar en maður verði hennar var I daglegri breytni þess. Þegar drengirnir búast til svefns I tjaldinu: „Þessi bók inni- heldur mesta leyndardóm lifs- ins.... I henni er allt vegarnesti, sem þiö þurfið á lifsbrautinni. Vinir hans tóku upp Nýja testa- menti sin. Einlægni og einbeitni skein úr svip þeirra. Augu þeirra hvörfluðu frá einu versi til ann- ars, þangað til Gunnar slökkti á vasaljósi sinu.” Vettvangslýsingar þessarar bókar eru óljósar. Margt er van- hugsað og getur ekki staðizt. T.d. sé ég ekki betur en höfundur láti oddvitann fara meö verksvið hreppstjóra svo aðeins eitt dæmi sé tekið um ónákvæmni. Hvers vegna útlendingarnir kjósa að handsama fálkaungana við ljós að næturlagi skil ég ekki, enda ekki vön slikum veiöiskap, en á þvi heföi mátt vera skýring i bók- inni. Varanlegur skaði? A bókarkápu stendur: „Höfundur bókarinnar, Þórir S. Guðbergsson hefur þegar skrifað um 9 barna- og unglingabækur á siðustu árum og nú siöast „Asta og eldgosið I Eyjum”, sem hann skrifaði ásamt konu sinni, Rúnu Gisladóttur. Sumar af bókum höf- undar eru uppseldar, en hann er mörgum kunnur fyrir barnasögur og leikrit i Rikisútvarpinu og barnablaðinu Æskunni”. Kannski segir þetta eitthvað, hvar við er- um stödd i dag viö bókaútgáfu fyrir börn. Enginn, sem hefur les- ið bækur Þóris, efast um hans góða vilja. En góður vilji dugir ekki til að gera góða bók. Til þess þarf verkkunnáttu. Þvi biö ég nú Þóri S. Guðbergsson, Rikisút- varpið, Barnablaðið Æskuna og uppalendur almennt að staldra við og spyrja sjálf sig: Er börnum virkilega allt bjóðandi, er sama hvernig skrifað er fyrir börn? Ég persónulega er þeirrar skoðunar, að það, sem menn lesa sem börn, móti smekk þeirra sem fullorðinna. Of mikiö af slæmri lesningu veldur börnum og ung- lingum varanlegum skaða, sem kemur I ljós, eftir að þau eru orð- in fullorðin. Bókin er á titilblaöi ársett 1973, en kom ekki út fyrr en i haust. Nokkrar myndir eru i bókinni, en engin deili á þeim sögð né höfund- ar getið. Ragnar Björnsson: VEIFAÐ RÖNGU TRÉ Hr. ritstjóri. Eftir lestur á ritsmið tónlistar- gagnrýnanda yðar um flutning Jólaoratóríu Bachs I Dóm- kirkjunni 29.12. 74 og 5.1. 75 finnst mér nauðsynlegt að senda yður eftirfarandi lfnur, þótt það sé reyndar gagnstætt mlnu eðli að svara sllkri tegund skrifa. En hér var að minu viti og fleiri tónlistarmanna um alvarlegri hlut að ræða en svo, að hann ætti að vera yður dulinn. Um nokkurn tima hefur verið rædd meðal tónlistarmanna þróun sú, sem orðið hefur hér á landi viö tilkomu söngkennara- deildar Tónlistarskólans i Reykjavik, en söngkennara- deildin hefur útskrifað nemend- ur til tónlistarkennslu innan hins almenna skólakerfis. Siður en svo vil ég gera litið úr þeirri kunnáttu, sem út úr þvi námi kemur, hún er vafalaust góð til þeirrar kennslu, sem hún er ætluð, og það er svo sannarlega mikils virði að kunna og vita réttu tökin á þvi uppeldisstarfi. En þarna sem og annars staðar þurfa menn að þekkja sin tak- mörk. Tilfelli tónlistargagn- rýnanda yðar sýnir, sem þvi miður er ekki fyrsta eða eina tilfellið um nemendur söng- kennaradeildar, að þeim hættir til að misskilja sinn náms- árangur, en skrifa og láta eins og tónlistin og tónlistariökun sé að stiga sin fyrstu spor. En litið hefði nú áunnizt I tónlistarmál- um hér og erlendis, ef þriggja ára nám söngkennaradeildar heföi verið Alfa og Omega tónlistarnámsins. Ég veit, hr. ritstjóri, að góöir tónlistargagnrýnendur eru ekki finnanlegir á hverju strái og ef þeir fyndust, þá e.t.v. ekki fáan- legir til starfsins. En að hleypa inn I slikt starf einhverjum frambjóðanda getur verið mjög hættuleg ráðstöfun. Gagnrýni verður að vera málefnaleg, ekki byggð á innantómum stór- yrðum eða jafnvel einhvers konar pólitiskri eða per- sónulegri afstöðu, slik blaða- mennska flokkast undir sorp, og held ég óhætt aö fullyrða, aö undir þá tegund rita hefur al- menningur ekki viljaö setja dagblaðið Visi. Ekki skulu hér rædd skrif herra Cortesar, slikur ritstill dæmir sig sjálfur og veröur höfundi ekki til mikils sóma. En ég furöa mig á þvi, að pilturinn skuli hafa lagt á sig að hlusta þrisvar sinnum á umrædda meðferð Jólaóratóriunnar, slikt heföi tónlistarmaður tæplega lagt á sig nema þá af slæmum hvötum, og góðum gagn- rýnanda nægir einn slikur flutningur á verki, sem hann þekkir, til þess aö sannfærast. Aðalatriðið er þó sá alvarlegi misskilningur, sem ég nefndi I upphafi og virðist hafa skapazt I kollum sumra þeirra, sem lokið hafa prófi úr söngkennaradeild. Ég er ekki viss um, aö allur almenningur átti sig á þeim reginmun á þvi tónlistarnámi, sem stendur samfleytt 115-20 ár, gegnum margs konar stilteg- undir, marga og ólika kennara i einu og sömu greininni, niður- rif, uppbyggingu, efa og siöan tilraunir til eigin stilsköpunar og tjáningar og hins vegar söng- kennaranáms, sem stendur i þrjú ár. Nám hins fyrrnefnda tryggir honum ekki að verða listamaöur, langt i frá. Það gef- ur honum einungis möguleika á öflun þeirrar tækni, þekkingar og áþreifanlegu reynslu, sem þarf til listsköpunar, og verður ekki án verið. Hafi draumarnir brostið — eða breytzt — á þess- um námsferli, gerast menn oft gagnrýnendur að námi loknu og með fyrrnefnda reynslu að baki orðiö ómetanlegir tónlistar- mennt þjóða. Herra ritstjóri. í ungu, fá- mennu og afskekktu þjóðfélagi er ekki óeðlilegt, aö alls kyns spámenn- teygi sig út i dags- ljósið. Yðar og annarra forráöa- manna er að þekkja, hvað i tunnunni er, og ákveða, hvort betra er að veifa röngu tré en öngu. Með kveðju Ragnar Björnsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.