Vísir - 16.01.1975, Page 5
Vfsir. Fimmtudagur 16. janúar 1975
5
REUTER
AP/NTB
I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND UmSjÓn: G.P.
Verða gœzlusveit-
irnar kallaðar burt úr
Golanhœðum í apríl?
Waldheim telur óliklegt, að dvöl
gæzluliðsins i Golanhæðum og á
Sinaiskaga verði framlengd i
april.
Kurt Waldheim,
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna,
efast um, að unnt verði
að framlengja veru
gæzluliðs Sameinuðu
þjóðanna á Sinaiskaga
og i Golanhæðum, þeg-
ar gæziutimi þeirra
rennur út i vor.
Sendifulltrúi Egypta hjá SÞ
hafa tekið i sama streng, og
segja að kalla verði gæzluliðið
burt, ef ísraelsmenn hafi ekki
dregið framvarðarsveitir sinar
aftur á þessurn stöðum, þegar
timi gæzluliðsins rennur út.
Rabin, forsætisráðherra ísra-
els, hefur þó lýst þvi yfir, að
Israelsmenn geti með engu móti
skilað Sýrlandi Golanhæðum —
ekki einu sinni þótt friður yrði
endanlega saminn.
Tekoah, fulltrúi ísraels hjá
SÞ, lét hafa eftir sér, að ísraels-
menn væru óánægðir með yfir-
lýsingu Waldheims um gæzlu-
sveitirnar, og að þeim fyndist
nær fyrir Waldheim að hvetja
aðila vopnahlésins til ,,að
standa við gerða samninga og
skilmála vopnahlésins.” Kvað
hann veru gæzluliðsins einmitt
hafa verið ófrávikjanlegt skil-
yrði vopnahléssamninganna.
Gæzlutimi öryggissveita
Sameinuðu þjóðanna hefur einu
sinni verið framlengdur, siðan
vopnahléið var gert, en sá fram-
lengingartimi rennur út i april.
Hjá Sameinuðu þjóðunum
hafa margir orðið til þess að
láta i ljós undrun með yfirlýs-
ingu Waldheims, sem skýrði
blaðamönnum frá þvi, að hann
teldi, að Egyptar og Sýrlending-
ar myndu ekki fallast á fram-
lengingu dvalar gæzluliðsins.
Likt og Tekoah, sem þykir það
mikil býsn, að Waldheim skuli
taka til greina þann möguleika,
að þetta skilyrði vópnahlés-
samningana verði ekki haldið.
Tekoah fulltrúi israels hjá
S.Þ. furðaði sig á ummælum
Waldheims framkvæmda-
stjóra og lýsti yfir óánægju
israclsmanna með þau.
Bezt að
sofa á
því bara
Æ, allt þetta þras um orku-
kreppu, verðbólgu og Watergate
gerir mig syfjaðan. Ég held ég
sofi bara á þvi.
Eitthvað þessu likt mætti lesa
út úr svipnum á Ho Hum, isbirn-
inum þeirra i Vancouver-dýra-
garðinum. — Þegar aðrir sátu
fastir i nær mannhæðarháum
sköflum, eftir mikla snjóbylinn,
sem gerði þar vestra um helg-
ina, tók bangsi tilverunni með
stakri ró.
Snarpur
kippur
Snarpur jarðskjálfta-
kippur skók borgina
Messina á Sikiley
snemma i morgun og olli
miklum spjöllum á
byggingum. — Tveir
menn, 51 og 67 ára gaml-
ir, létu lifið í jarðskjálft-
anum, og varð hjartabil-
un báðum að aldurtila.
Jarðskjálftakippurinn mældist
7 stig á Mercallikvarða, sem
mælir mest 12 stig.
Skelfingu lostnir ibúar Messina
þustu úr húsum sínum út á götur
borgarinnar, klæddir náttfötun-
um einum. Stóð jarðskjálftinn i
sex sekúndur, en annar, sem
mældist vera 4 stig, kom tveim
stundum síðar.
Jaröskjálftinn er sagður hafa
átt upptök sin um 18 milur suður
af Messina.
Borgaryfirvöld hrósuðu happi
yfir þvi, að Messína hefur verið
byggö með hliðsjón af jarðskjálft-
unum miklu 1908, sem nær lögðu
borgina þá i eyði og urðu 30 þús-
undum að bana. Eru allar bygg-
ingar jarðskjálftatreystar.
Jarðskjálftinn fannst einnig i
Reggio Calabria á Italiu, en tiús
þar eru einnig byggð með hliðsjón
af jarðskjálftum.
Chou En-Lai
9 mánuði á
sjúkrahúsi
Cho En-Lai, forsætis-
Brezkir útgefendur
hóta uppsögnum
„Brezk blaðaútgáfa
stendur frammi fyrir
miklum vanda og á nú
yfir höfði sér allsherjar-
skyndiverkfall prent-
ara,” sagði Harold Wil-
son, forsætisráðherra, i
neðri málstofu brezka
þingsins.
Ráðherrann kvaddi sér hljóðs
utan dagskrár og skýröi frá þvi,
að Prentarafélagið brezka hefði i
hótunum, eftir að 7000 prenturum
hefði verið tilkynnt, að þeim yrði
sagt upp með 36 stunda fyrirvara,
ef þeir hættu ekki að spilla dag-
legri útkomu dagblaða.
Prentarafélagið hefur sagt sig
úr landssámtökum brezkra iðn-
aðarmanna.
Goodman lávarður, formaður
sambands blaðaútgefenda, hafði
áður látið þau orð falla i gær, að
ástandið I Fleet Street, sem heita
má heimili brezkrar blaðaútgáfu,
væri það alvarlegasta, sem hann
minntist.
„Vera má, að við stöndum á
þrepskildi einhverrar verstu
vinnudeilu, sem komið hefur upp i
árafjöld. Ómögulegt er að sjá
fyrir afleiðingar hennar á þær
þúsundir, sem starfa i iðninni.”
Úrslitakostir útgefenda voru
settir, að undangengnum fjölda
skammtima vinnustöðvana
prentara hjá hinum og þessum
blöðum, en það hefur leitt til
rekstrarerfiðleika viðkomandi
útgáfa, sölutaps og samdráttar i
auglýsingum.
Aðstoðarframkvæmdastjóri
prentarafélagsins, Joe Wade,
kvaðst viss um, að félagarnir
yrðu æfir vegna hótana útgef-
enda. Kvað hann málið mundu
verða tekið fyrir á fundi i dag, og
þá mundi bera á góma, hvort ekki
bæri að auka skæruverkföllin.
ráðherra Kina, sem leg-
ið hefur veikur á sjúk»-a-
húsi um nokkurra mán-
aða bil lét hvorki kalsa-
veðrið i Peking i gær né
heldur veikindin aftra
sér frá þvi að fara af
sjúkrahúsinu til að
fylgja gömlum félaga
sinum til grafar.
Chou var i gær viðstaddur
minningarathöfn yfir Li Fu-Chun,
sem var einn sex varaforsætis-
ráðherra Kina, en hann lézt i sið-
ustu viku.
Þetta er i annað skiptið, sem
Chou er sagður hafa farið af
sjúkrahúsinu, þar sem hann hefur
verið meira og minna rúmfastur
siðustu 9 mánuði. — Fyrra sinnið
var tilefnið hátiðahöldin vegna 25
ára afmælis lýðveldisins.
Þeir Li Fu-Chun og Chou En-
Lai voru skólafélagar i Frakk-
landi á 3. tug aldarinnar, og lögðu
þá grundvöllinn að kommúnista-
samtökum Kinverja, sem staddir
voru i Evrópu.
Chou En-Lai áður en heilsan lét
sig.
Stonehouse segir ekki af sér
Brezki þingmaðurinn,
John Stonehouse, sem
hljópst á brott frá allri
streitunni i Bretlandi,
mun hættur við að segja
af sér þingmennsku.
Bob Mellish, einn framámanna
þingflokks Verkamannaflokks-
ins, skýrði frá þvi, að Stonehouse
mundi, hvað sem tautaði og raul-
aði, ekki segja af sér. — Hafði
verið géngið á Stonehouse með
þetta i gær.
„I ljósi þessa verður rikis-
stjórnin að ráðfæra sig við þing-
flokkana alla, og við ættum að
búa okkur undir að skipa nefnd til
þess að huga að þvi, hvernig
staða þingmannsins er, áður en
lagt verður til við þingheim,
hvernig bregðast skuli við”, sagði
Mellish, flokksbróöir Stonehouse.
Flestir eru þeirrar skoðunar, að
kjörbréf Stonehouse verði ónýtt,
og nýjar kosningar verði látnar
fara fram i kjördæmi hans.
Á mánudaginn hafði frétzt, að
Stonehouse segði af sér. Átti hann
að hafa sótt um stöðu hjá þvi
opinbera, en það embætti krefðist
þess, að hann sæti ekki jafnframt
á þingi.