Tíminn - 21.06.1966, Page 16

Tíminn - 21.06.1966, Page 16
LOGREGLU- KÚRAMÚTIÐ HZ-Rcykjavík, mánudag. Söngmót norrænna lögreglu kóra var sett í kvöld við Sjó inannaskólann. Sigurjón Sig- urðsson lögreglustjóri setti mót ið með stuttu ávarpi og bauð hann gestina velkomna og kvaðst vona að þetta 3. norræna söngmót lögreglu- manna yrði ekki síðra en hin fyrri tvö, sem hefðu heppnazt með afbrigðum vel. (Myndina tók GE við setninguna). Gengu lögreglumennirnir í Framhald á Ws. 15 Norðursíld á Raufar höfn saltaði fyrstu sddina á SJ-Reykjavík, mánudag. Klukkan fjögur á laugardag kom síldveiðiskipið Sigurður Bjarnason með fyrstu söltunar- síldina til Norðursíldar á Raufar höfn, en þann dag var gefið leyfi til að hefja söltun. í fyrra sumar fékk Norðursíld einnig fyrstu söltunarsíldina á sama mán aðardegi — 18. júní. Jón M. Jónsson, verkstjóri hjá Norðursíld, sagði í viðtali við Tímann, að þeir hefðu saltað lít inn hluta aflans, þar sem hann var að mestu óhæfur til söltunar. Síldin, sem fór til söltunar fyr ir Sviþjóðarmarkað, var stór og góð, fitumagn hennar yfir 20%, og fóru um 300 síldar í tunnu. Norðursíl dhefur ráðið 60 stúlk- ur víðsvegar að af landinu. Þær fá greitt 60,73 kr. á tunnu fyrir stærstu sildina og meir, ef síld in er smá. Jón sagði, að sjómenn biðu óþreyjufullir eftir saltsíldarverð inu. Um sama leyti í fyrra var búið að ákveða saltsíldarverðið. sumrinu Ékkér't siídveibískip lá inrii á Raufarhöfn, enda veiði með minsta móti um helgina, Síldveiði svæðið er nú norðar en áður. HITINN BÚINN í BILI FB—Reykjavik, mánudag. Veðurfræðingar spá því. að úti sé um góða veðrið í bili, en hér syðra hefur verið óvenju heitt síð ustu 4 daga. eða frá þvi a 17. júní. Hefur hitinn komizt upp í 17 stig. eða þar um bil daglega. í dag var 12 stiga hiti í Reykja- vik kl. 18, en þá var komin norð- austanátt og rigning fyrir norðan j og náði rigningin jafnvel hingað | suður. Víða norðanlands var hit- ] inn kominn niður í 5 stig og kl. 18 var aðeins fjögurra stiga hiti á Hornbjargsvita. Hitinn eins og hann hefur verið a.m.k. hér sunn- anlands er óvenjumikill og óvenju langvarandi miðað við hitann í júní undanfarin ár. Landsmiöjumálið er um- fangsmikið og margbrotið KJ-Reykjavík, mánudag. Tíminn aflaði sér < iag upp lýsinga um hið svoKalIaða Land smiðjumál, sem áður hefur ver ið sagt frá hér í blaðinu, og verið hefur til athugunar hjá ríkisendurskoðuninni. en er nú í höndum cins sakadómar anna í Reykjavík. Þetta mál er all umsvifamikið og marg brotið, og erfitt er að segja lim hve miklar fjárhæðir hér er um að ræða. scm hinir tvei rbrottreknu starfsmenn Landsmiðjunnar hafa dregið sér úr sjóðum þessa umdeilda ríkisfyrirtækis við Sölfhóls- götu. Athugun ríkisendurskoðunar innar á bókhaldi Landsmiðj unnar náði allt aftur til árs ins 1960. en aðallega þó á gögnum frá árinu 1963 og til þess tíma er athugunin hófst. Að lokinni þessari at hugun fékk saksóknari málið til meðferðar og bað síðan Framhald á bls. 15. SLÁTTUR MEÐ SEINNA MÓTI KT—Reykjavík, mánudag. Sláttur mun víðast hvar hefjast með seinna móti í sumar og stafar það af því, hve seint vorið var á ferðinni. Seinlega hefur gengið að bera á tún vegna bleytu og klaka og hefur það að sjálfsögðu mikið að segja um sprettu. Blaðið hafði í dag samband við fréttaritara sína víða um land og fara uppiýsingar þeirra hér á eft ir: Austur í Flóa verður trúlega far jð að slá á fyrstu bæjum fyrir næstu mánaðamót. Það er að vísu með seinna móti, en jarðklaki hef ur háð gróðrinum talsvert í vor. Grasið er nú farið að spretta tals vert og þá sérstaklega á þeim tún um, sem ekki hefur verið beitt á. Fréttaritari blaðsins á Djúpa- vogi sagði í dag, að bændur þar myndu fara að slá á næsturini. Þeir fyrstu myndu byrja eftir viku en síðan bættust hinir við. Sagði hann, að tíð hefði verið mjög gáð að undanförnu, hlýindi og úr- koma annað slagið. Á Héraði eru tún mismunandi vel gróin, að því er fréttaritari blaðsins á Egilsstöðum sagði í dag. Bjóst hann við, að fyrst væri hægt að byrja að slá eftir viku, ef gott veður héldist. Yrði Sveinn á Egilsstöðum trúlega fyrstur til að slá, en tún hans væri orðið fal- lega grænt nú. f Eyjafirði er spretta mun SAUÐÁRKRÓKUR Aðalfundur Framsóknarfélag.s Skagfirðinga verður haldinn á Sauðárkróiki föstudaginn 24. júní kl. 20.30. Ólafur Jóhanne«son, al- þingismaður mætir á fundinum. Einnig verður haldinn aðatfuni ur Suðurgötu 3 h. f. (Framsóknar hússins). MIKLAR TAFIR Á VEGUNUM KJ-Reykjavík, mánudag. Geysilegur bílafjöldi streyimdi til Reykjavíkur eftir Suðurlands og Vesturladsvegi á sunnudags kvöldið um sjöleytið, og urðu miklar umferðartafir við gatnamót þessara vega efst í Ártúnsbrekk unni á áðurgreindum tíma. Bílaraðirnar náðu upp að Ár bæ á Suðurlandsvegi og að Grafarholti á Vesturlandveg, og söguðst sumir ökumennirnir hafa orðið fyrir allt að hálfar klukku stundar töfum. Góða veðrið um helgina or- sakaði það að gífurlegur fjöldi bíleigenda leitaði út fyrir höf- uðborgina til að njóta sólarinn ar, en hætt er við að sumir hafi þó farið heldur á mis við geisla hennar, þvi rykmökkurinn á Framhta-ld á bls. 15. SAMNINGAFUNDUR I DAG SJ-Reykjavík, mánudag. Fulltrúar atvinnurekenda koma saman til fundar í dag til að ræða niðurstöður sambandsstjórn arfundar Verkamannasambands- ins 15. júní sl., en þar var m. a. óskað eftir viðræðum við at vinnurekendur án tafar. Ákveð ið var að fjórir fulltrúar atvinnu rekenda skyldu mæta til fund ar við jafn marg,a aðila frá Verkamannasambandinu á morg un (þriðjudag) kl. 2. Á fundinum mæta fyrir hönd atvinnurekenda Kjartan Thors, Hjörtur Hjartar, Gunnar Guð- jónsson og Barði Friðriksson, en fyrir hönd Verkamannasambands ins Eðvarð Sigurðsson, Bjöm Jónsson, Jóna Guðjónsdóttir og Hermann Guðmundsson. seinni en venjulega og eru allar líkur á því, að sláttur verði hálf Framhald á bl> 14 1400 FARÞEGAR Á EINUM DEGI KJ-Reykjavík, mánudag. Miklar annir voru hjá Flug- félagi fslands í gærdag og voru fluttir upp undir fjórtán hundr- uð farþegar á vegum félagsins. Innanlands voru 890 farþegar fluttir, í millilandaflugi 427, og auk þess farþegar í leiguflugi. Síldarfólkið er nú að fara austur, og auk þess margir að fara í sumarvinnu viðsvegar um landið. Nýja Fokker Friendship vélin Snarfaxi kom í góðar þarfir í þessari farþegahrotu, en eins og kunnugt er á Flugfélagið nú tvær slíkar vélar, sem reynzt hafa mjög vel, og likar vel með al farþega félagsins. FÉLL FYRIR BORÐ OG DRUKKNADI KT-Reykjavík, mánudag. Á laugardagsmorgun varð það slys á Breiðafirði, að mann tók út af báti og vannst ekki tóm til þess að bjarga honum. Maður tnn hét Guðmundur Stein grímsson. Hann hefur starf að sem leigubifreiðarstjóri í Reykjavfk, þar sem hann heíur verið búsettur. Nánari tildrög slyssins voru þau, að Guðmundur heitinn fór með föður sínum, Steingrími Samú elssyni, Tjaldanesi, og 11 ára gömlum bróðursyni sín um á báti frá Heinabergi og ætluðu þeir út í Akur eyjar til þess uð vita um æðarvarp í eyju, sem Guð mundur heitinn átti. Var Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.