Tíminn - 22.06.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.06.1966, Blaðsíða 2
2 TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 22. júní 19G6 GEVAFOTO OPNAR NÝJA VERZLUN artorg, en í hinni nýju verzlun munu aðalstöðvar fyrirtækis- ins verða. Rétt tíu ár eru nú síðan Lækjar torgsverzlunin var opnuð, og á þessum tíma sem síðan er liðinn hefur starfsemin vaxið mjög. í sambandi við verzlanirnar er rek in stór og mikil framköllunarstofa sem búin er góðum vélakosti. For stöðumaður framköllunarsc jf unnar er Ingimundur Magmis- son, sem blaðalesendum er ?ð góðu kunnur fyrir margar ág^et- ar myndir í dagblöðunum. Gevafótó verzlanirnar hafa á boðstólum allar venjulegar ljós myndavörur, svo sem filmur, ljós myndapappír, framkallara og vökva til ljósmyndagerðar, aus góðs úrvals af myndavélum, stækk urum, sýningartjöldum o.fl. Þess má geta, að þeir hjá C hafa umboð fyrir mörg þau merki sem hæst ber á lofti í heimi Ij'ós myndanna og nægir þar að nefn.a hinar gömlu og sígildu Leicu- myndavélar, Rolleiflex og Hassel blad myndavélina sem farið heftn* sigurför um heiminn jafnhliða geimförunum. Ásgeir Einarsson fulltrúi mun sjá um rekstur verzlunarinnar. Ekið utan í bíl HZ—Reykjavík, þriðjudag. Ekið var utan í kyrrstæða, rauða Skoda-bifreið Y-667 á móts við Miðbæjarskólann í morgun miílli kl. 9 — 10, og skemimdist hún talsvert mikið. Þeir, sem upplýs- ingar kunna að gefa um ákeyrsl una, eru beðnir að láta rannsókn arlögregluna vita. Kassaf jalir óskast f síðasta sunnudagsbl. Tímans var viðtal við Þorgeir Þorgeirs- son, kvikmyndastjóra, sem tekið var á leikvelli við Nýbýlaveg í Köpavogi, þar sem börn fá að byggja sér hús úr kassafjölum. í sambandi við það, hefur gæzlu- kona vallarins beðið okkur að láta þess getið, að allar kassafjalir séu þar þakksamlega þegnar, þar sem nokkur skortur er nú á fjölum, því að hinir áhugasömu smiðir eru langt komnir með þær birgð ir, sem fyrir lágu. KJ-Reykjavík. Ljósmyndavöruverzlunin Geva fótó opnaði á fimmtudaginn nýja verzlun í Austurstræti 6, í nýju húsi sem eigendur verlunarinn ar Sveinn Björnsson og Co. h.f. hafa reist ásamt Arnbirni Óskars syni. Hefur verzlunin þarna fengið til umráða mjög gott húsnæði, sem vel hefur verið innréttað, með sérstöku tilliti til þarfa Ijós myndavöruverzlunar og er höfund ur innréttingarinnar Helgi Hall- gímsson arkitekt. Gevafótó mun eftir sem áður líka verða við Lækj HLJ SAMNINGI FB—Reykjavík, þriðjudag. Hljómar frá Keflavík hafa nú gert fimm ára samning við skemmtikraftaskrifstofu eina í Chicago í Bandaríkjunum, Stev ens Kitazumi & Sands Ltd. og munu þeir halda héðan síðast í júlí eða fyrst í ágúst n.k. og freista gæfunnar í Vestur- heimi. Ekki er vitað enn, hvað þeir munu helzt taka fyrir þar vestra, en skemmtikraftaskrif- stofan undirbýr nú áætlun fyr Ir þá. Á morgun.kemur í búðir j?lötualbúm með tveimur 45 snúninga plötum, með 6 lög- um, og eru það lögin, sem TIL USA Hljómar leika í kvikmyndinni Umbarumbamba, sem nýlega var lokið við að gera og fjall ar um hljómsveitina. Myndin tekur 20 mínútur, og verður hún sýnd hér á landi í sumar. Nýlega var hún frumsýnd í Keflavík, en mjög bráðlega verður farið með hana í sýn- ingarferð út um allt land. fyrst um Suðvesturland, síðan norð- ur og austur og að lokum verð- ur hún sýnd hér syðra á hausti komanda. Með Umbarumbamba er sýnd kvikmyndin Um heitan sumardag, sem er frá jazzhátíð fyrir nokkrum árum. Framhald á bl. 14 Verðlagsráð þingar um saltsíldarverð SJ—Reykjavík, þriðjudag. Verðlagsráð sjávarútvegsins kom saman til fundar í dag til að ræða verð á saltsfld fyrir Norður- og Austurlandi. Verðlagsráð er skip að 12 mönnum. sem eru fulltrúar síldarseljenda og sfldarkaupenda. Gera má ráð fyrir. að samkomulag náist nú í vikunni um verðið, en hingað til hefur Verðlagsráðinu tekizt að ná samkomulagi um salt síldarverðið án íhlutunar yfir- .valda. Ástæðan fyrir því, hve seint er gengið til samninga um saltsíldar- verðið er sú, að nýlokið er samn- ingum um sölu saltsíldar á er- lendum mörkuðum. Vitað er, að búið er að semja við Svía og Finna, en Síldarútvegs nefnd mun gefa út fréttatilkynn- ingu um síldarsölusamninga næstu daga. LITSKUGGAMYNDIR AF IS- LENZKUM FRÍMERKJUM HZReykjavík, þiðjudag. Stjóm Félags frímerkja- safnara boðaði blaðamenn á fund í dag og sýndu þeim algera nýj ung á sviði frímerkjasöfnunar í heiminum. Er um að ræða lit- skuggamyndir af íslenzkum frí merkjum. Þessar litskuggamyndir em gefnar út í því skyni að auka landkynninguna og til þess að auralitlir safnarar, jafnt innan lands sem utan geti eignast „frí merkin“ á ódýran hátt, því að margar þessara litskuggamynda em af sjaldgæfum óg dýrum merkjum. Skuggamyndir þessar Drengur drukknar KT—Reykjavík, þriðjudag. Svo hörmulega vildi til á Siglu firði 16. júní s.l., að drengur féll í sjóinn og drukknaði. Drengur- inn, siem var 6 ára að aldri, hét Gunnar Hansson. Hafði hann ver ið að leika sér við höfnina og féll út af bryggju. Gunnar fannst skömmu eftir að slysið hafði átt sér stað og reynd ust þá allar lífgunartilraunir á- rangurslausar. Gunnar heitinp var sonur hjónanna Ernu Gestsdóttur og Hans Þorvaldssonar. eru 6 saman í umslagi og kostar það 85 krónur eða svipað og venjulegar skuggamyndir. Félag frímerkjasafnara er nú orðið níu ára og hefur látið mikið til sín taka á þeim árum. M. a. hefur það haldið tvær sýningar haft frímerkjaþátt í útvarpinu, gefið út handbók um íslenzk frí merki, gefið út blað í fimm ár, og nú hyggzt félagið gefa út á tíu ára afmæli félagsins á næsta ári myndarlegt alfræðirit um ís lenzk frímerki. Innganga í Félag frímerkjasafnara miðast-við 21 árs aldur en nú ætlar- félagið að stofna unglingadeildir og munu þá fróðir menn leiðbeina ungl- ingunum. Hugmyndin er, að þess ir unglingar fáist við „mótiv“ söfnun, sem er söfnun á blóma merkjum, flugmerkjum, skáta merkjum o. s. frv. Auk þessarar „mótív” söfnunar ryður sér mjög til rúms söfnun á sérstökum stimplum, en þeir eru notaðir við sérstök tækifæri, t.d. sérstök af- mæli, mót eða heimsóknir þekktra manna. Á landsmóti skáta að Hreðavatni sem haldið verður í júlílok, verður sérstakur stimpill notaður. Söfnun á fyrstadagsumslög um og merkjum er afar vinsæl og hefur Félag frímerkjasafnara, látið sérprenta umslög í því skyni mjög oft. Mikið úrfelli SG-Túni mánudag. Á laugardag kom hér í Fló anum feikna úrfelli með þrumuveðri og eldingum. Sá einstaki atburður átti sér stað að eldingu sló niður í kind á bænum Uppsölum og drapst hún þegar. Þegar að kindinni var komið, voru á henni sviða blettir á haus og víðar. Þá var stór rák á kindinni frá erya niður. Á bænum Stóra-Ármóti sió endingum niður í jörðina og komu holur í jarðveginn, þar sem eldingunum sló niður. Lágu rákir út frá þessum hol um. Eldingar eru nokkkuð fátíð- ar á þessum landshluta, eins og annars staðar og man ég ekki eftir að skepnur hafi drep izt áður hér af völdum þeirra. Hræið í hálfu kafi KJ-Reykjavík, miðvikudag. Einhvern tíma í vetur drapst hestur frá býli við Baldurs- haga við Suðurlandsveg, og var hræið látið liggja á lækjar bakka þar skammt frá. Núna, þegar vorleysingarnir komu, barst hræið út í Elliðavatn og marar nú í hálfu kafi í vík norð-vestantil í vatninu. Er þetta til mikils ama fyrir sum larbústaðaeigendur þarna við vatnið og aðra, sem koma þangað til þess að njóta útiveru við vatnið. Hlutaðeig. hverj- ir svo sem þeir eru nú, ættu að sjá sóma sinn í því að fjar lægja hræið, og ef til vill gæti lögreglan hlutast til um ,að svo verði gert. Hreiður við öxul EÍ-Rauðalæk, miðvikudag. Sá einstæði atburður vildi til ekki alls fyrir löngu, að skógarþröstur verpti í mjólkur húsinu að Ási í Ásahreppi. Bjó fuglinn sér hreiður við öxul, sem lá á milli mótors og loftdælu. Þarnia verpti hann tveimur eggjum. Heimamenn gerðu tilraun til þess að verja hreiðrið fyrir öxlinum, með því að stinga nið ur spjaldi milli þess og ö»uls ins, en þrestinum hefur trú lega ekki líkað það, því hann yfirgaf hreiðrið og hefur ekki sézt þar síðan. Óánægðir með póstinn BS-Hvammstanga, miðvikud. Mikil óánægja ríkir nú hér vegna hinna slæmu póstsam gangna, sem við eigum við að búa. Er ástandið nú miklu verra en undanfarin ár. Póstur kemur hingað aðeins á þriðjudögum og föstudögum og fer héðan á miðvikudögum og laugardögum í stað allra daga vikunnar, eins og var í fyrra. Þarf ekki að lýsa því, hve mikil óþægindi eru að þessu, t.d. ef um áríðandi bréf er að ræða. Dagblöðin koma hingað óreglulega, og eftir öll um mögulegum leiðum. Eru íbúar Hvammstanga að von- um mjög óánægðir yfir þessari skerðingu á hinni sjálfsögðu póstþjónustu. Mót fermingarbarna Fermingarbarnamót fyrir Austurland var haldið að Eið um, að frumkvæði Prestafélags Austurlands dagana 11. og 12. júní sl. Mótið hófst síðdegis á iaug ardag með helgistund í Eiða kirkju, er síra Trausti Péturs son. prófastur á Djúpavogi ann aðist en hann var stjórnandi mótsins. Síðan va rgengið í fylkingu til íþróttavaliarins, en þar fóru fram íþróttir og leikir undir stjórn skólastjóra Alþýðuskól- ans að Eiðum, Þokels Stein- ars Ellertssoniar. Um kvöldið var kvöldvaka í skólanum, þar sem ýmis skemmtiatriði fóru fram, er unglingarnir sjálfir önnuðust, að mestu leyti. M.a. sagði síra Árni Sigurðs son í Neskaupstað frá æsku- lýðsstarfi Þjóðkirkjunnar og sýndi skuggamyndir máli sínu til skýringar. Kvöldvökunni lauk með kvöldbæn í kirkj- unni. Á sunnudag fór fram fána- hylling, morgunbæn, skógar- ferð og sund, þar sem nokkrir þátttakendur syntu tvö hundr uð metrana. Kl. tvö var guðs- þjónusta í Eiðakirkju. Síra Bragi Benediktsson á Eskifirði prédikaði, en ungmenni aðstoð uðu við messuna. Að iokinni messu fóru fram mótslit í kirkjunni. Um 90 ung menni og 8 prestar sóttu mót- ið. Mótið þótti takast vel, enda var veður báða mótsdagana, eins gott og frekast var á kos ið. J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.