Tíminn - 22.06.1966, Blaðsíða 16
LlMÍJfíl’i'
138. tbl. — Miðvikudagur 22. júní 1966 — 50. árg.
Heildaraflinn
80 þúsund lestir
SJRvík, ÞM-Borgarf. Eystra, þrd.
Sl, laugardag höfðu síld
veiðiskipin aflað samtals tæpl. 80
þúsund lestir, þar af höfðu 5 þús.
lestir farið til frystingar, en af
gangurinn í bræðslu. Á sama tíma
í fyrra var heildaraflinn 78.028
lestir, eða 1924 lestum minni en í
ár.
Mest aflamagn hefur borizt til
Seyðisfjarðar, 16.711 lestir, til
Nesikaupstaðar hafa borizt 13.235
lestir og 12.275 lestir til Raufar
bafnar.
115 skip hafa fengið afla, þar
;af 100 skip með 100 lestir eða
meira. í síðustu viku bárust á land
23.660 lestir.
Síldarverksmiðjan á Borgarfirði
eystra er nú tilbúin að taka á
móti síld eftir gagmgcrðar breyt
ingar sem á henni hafa verið gerð
ar. Verksmiðjan gat tekið á móti
Framhald á bls. 11
GANGAAFUND
RÁDHERRANS
EJReykjavík, þriðjudag.
Eins og frá segir í Tímanum
í dag, sat Framleiðsluráð land
búnaðarins á fundi í gærkvöldi
og ræddi þar m.a. ályktun þá, sem
fundur héraðsnefnda bænda sam
þykkti á fundi sínum á mánudag
inn.
Næsti þáltup þessara mála mun
vera, að fulltrúar héraðsnefnd-
anha og fulltrúar Framleiðsluráðs
munu ganga á fund landbúnaðar
ráðherra, Ingólfs Jónssonar. Verð
ur sá fundur á miðvikudaginn.
214 milljónirnar
eru íslenzkt fé
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
Tíminn hafði í dag samband við
dr. Jóhannes Nordal, seðlabanka
stjóra, vegna fréttar er birtist í
blöðunum um veitingu 214 millj.
kr. af bundinni innstæðu til að
standa straum af kostnaði við
byggingu Búrfellsvirkjunar, kísil
gúrverksmiðju, svo og framlag 1il
Atvinnujöfnunarsjóðs.
Dr. Jóhannes sagði að það væri
á missikilningi byggt að hér væri
um lán að ræða frá Bandaríkjun
um. Hér er uim að ræða svonefnt
mótvirðisfé er liggur hér á bundn
um reikningi í íslenzkum krónuin
og hefur undanfarið verið gert
ráð fyrir að það yrði notað til
framangreindra famkvæmda. Form
lega var gerður samningur um
ráðstöfun fjárins milli rikisstjórna
Bandaríkjanna og íslands og í
haust verður samningurinn lagður
ur fyrir alþingi til staðfestingar,
en málið var reyndar reifað á al-
þingi í vetur sem leið.
Þessi fjárupphæð hefur á engan
•hátt áhrif á önnur viðsikipti Seðla
bankans.
Þriggja daga hátíiahöld
irii opnun héraisheimilis
ES—Egilsstöðum, þriðjudag.
Um næstu helgi verður opn
að hér á Egilsstöðum með
miklum glæsibrag nýtt héraðs-
hcimili, sem tíu hreppar standa
að. Verður hin nýja bygging
vígð á föstudag, en hátíðahöM
in eiga að standa fram til
sunnudagskvölds- Er búizt við
fjölda gesta v>ð opnunina og
verður margt gert til þess að
skemmta þeim.
Daigskrá hátíðahaldanna verð
ur í stuttu máli á þessa leið:
Kl. 14 á föstudag verður messu
gjörð og vígir séra Marinó
Kristinsson í Vallanesi húsið-
Við messugjörðina syngja sam
einaðir kirkjukórar Egilsstaða-
og Eiðahrepps. Eftir messu flyt
ur formaður bygiginganet'ndar,
Þórarinn Þórarinsson, fytTV.
skólastióri á Eiðum, ræðu um
sögu byggingarinnar. Síðan tala
byggingameistari og Þorsteinn
Jónsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri.
Að ræðum þeirra loknum gefui
formaður nefndarinnar, Ar
mann Halldórsson, kennari hús
inu nafn og síðan fer afhending
hússins fram. Þá syngur Karla-
kór Fljótsdalshéraðs vígslusöng
við lag eftir Jón Þórarinsson,
tónskáld og ljóð eftir Jón Sig
fússon, símstjóra á Eiðum. Kl.
14 verður svo hlé og veitingar
bornar fram.
Um kl. 16.30 verður hátíða
höldunum haldið áfram og
verða þá fluttar ræður og
ávörp. Fjórir kórar, Eiðakór,
Fellakór, Egilsstaðakór og
Vallakór syngja á milli. Þá
verður fluttur þáttur úr Skugga
Sveini og Stefanía Ósk og
Björn Magnússon syngja tví
söng.
Um kvöldið kl. 9 frumsýnir
Ungmennafélag Fellahrepps
leikþátt, en að því loknu verða
önnur skemmtiatriði og dans
leikur á eftir.
Á laugardagskvöld kl. 8 verð
ur fruimsýnt leikritið Skugga-
Sveinn en leikritið verður sýnt
aftur á sunnudag kl. 16. Dans
leikir verða haldnir eftir sýn
ingar.
Búizt er við allmörgum gest
um við hátíðahöldin og m. a.
verður talsvert boðsgesta.
Prestar ganga til legstaðar dr. Jóns'Helgasonar biskups. Fremstar ganga dætur biskupsins.
(Tímamynd G. E.)
Endurskoðun á skipun presta-
kalla aðalmál prestastefnunnar
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Prestastefnan hófst í Reykja
vík í morgun með messu í Dóm
kirkjunni, en eftir hádegið var
Prestastefnan sett í kapellu
Háskólans, þar sem biskupinn
herra Sigurbjörn Einarsson,
flutti ávarp og yfirlitsskýrslu
um starf kirkjunnar,
Minntist biskup í upphafi
ræðu sinnar á stöðu kirkjunn
ar á íslandi í dag og hið mikla
starf, sem þjónar hennar hafa
lagt af mörkum fram til þessa
dags, ekki aðeins sem prestar
heldur og á menningarsvið im
þjóðarinnar, og minnti á þá
staðreynd, að fyrr á árum
hefðu prestar staðið fremstir
í fylkingu bænda hvað breyt-
ingu á búnaðarháttum varðaði
en það virtist vera gleymt mörg
um i dag, þótt sú staðreynd
blasi við, að enn eru til prest
ar, sem eru meðal fremstu
bænda. Menn eru fljótir að
gleyma. sagði biskup, og það
Framhald á bls 14
Synti í land meö bát
og mann í eftirdragi!
HA—Egilsstöðum, þriðjudag-
f gær hvolfdi báti með tveiin
ur mönnum á Ánavatni á Jökul
dalsheiði og dró annar mannanna
1 bátinn i land, meðan hinn hékk í
j bátnum.
I Þeir Guðmundur Sæmundsson
frá Merki og HalLgrímur Jónsson,
! Gilsá, voru í gær við silungsveið
ar á Ánavatni á Jökuldalsheiði.
Þeir voru komnir 100—120 metra
frá landi, er bátnum hvolfdi undir
þeim. Guðmundur er ósyndur, og
náði hann taki á bátnum. Þess
ber að geta, að þeir félagar hö'fðu
verið svo forsjálnir að festa upp-
blásna bílslöngu við þóftu í bátn
um og hélt hún honum á floti.
Hallgrímur var klæddur sjóstíg-
vélurn og stórri úlpu, en þrát.t
fyrir það tók hann í bátinn og dró
hann og Guðmund með sér þessa
vegalengd til lands. Má segja, að
iþað sé vel af sér vikið.
Eins og áður er getið, höfðu
þeir félagar bundið gúmmíslöngu
við þóftu í bátnum og hélt hún
honum á floti. Báturinn var lir
tré, en orðinn vatnssósa og er vafi
á að svo giftusamlega hefði tekizt
til urn björgun ef forsjálni þeirra
hefði ekfki komið til.
SAUÐARKROKUR
Aðalfundur Framsóknarfélags
Skagfirðinga verður haldinn á
Sauðárkróki föstudaginn 24. júní
kl. 20.30. Ólafur Jóhannesson, al-
þingismaður mætir á fundinum.
Einnig verður haldinn aðalfun i
ur Suðurgötu 3 h. f. (Framsóknar
hússins).
SKEMMTI-
FERÐIN
Hin árlega skeinmtiferð Framsóknarfélaganna í Reykjavik
verður farin sunnudaginn 26. jún n. k. Að þessu sinni verður
farið um Reykjanes. í meginatriðum verður farin þessi
leið: Eklð verður til Keflavíkur, um Garð og Sandgerði og að
Reykjanesvita. Þá verður farið til Grindíivikur og með strönd-
inni til Krísuvíkur og Herdísarvíkur, um Selvog til Þorláks-
hafnar og um Þrengslaveginn heim.
Lagt vcrður af stað frá Tjarnargötu 26 kl. 8,30 stundvíslega.
Fararstjóri verður Hanncs Pálsson. formaður fulltríiaráð:
Framsóknarféiaganna, en leiðsögumaður Gísli Guðmundsson
en auk hans leiðsögumenn í hverjum bíl.
Miðapantanir og allar nánari upplýsingar er að fá á skrif
stofu Framsóknarfélaganna f Rcykiavík. símar 15564 op 16066
Mjög mikil aðsókn hefur verið að skemmtiferðum í'ram
sóknarfélaganna á undanförnum árum, svo að vissast cr sð
menn panti sér miða hið allra fyrsta.
:
». fifge.
.‘•i Mti
^iV.VJÍMV'A
t'. ; tÚÁ ItAUA
/