Vísir - 23.01.1975, Blaðsíða 3

Vísir - 23.01.1975, Blaðsíða 3
Vísir. Fimmtudagur 23. janúar 1975. 3 Nýtt leikrít og nýr leik- stjóri Þjóðleikhúsið frumsýnir nú bráðlega leikrit eftir sænska höfunda, sem Islendingar ættu að vera farnir að kannast aðeins við, þar sem tvö verk þeirra hafa verið sýnd hér áður. Einnig hefur verið flutt efni eftir þá i útvarpinu. Kent Andersson og Bengt Brat heita þeir, en leikritin Elli- heimilið og Sandkassinn eru einnig eftir þá. Þetta verk, sem nú verður sýnt, heitir Hvernig er heilsan? Leikstjóri »er Sigmundurörn Arngrlmsson, en þetta er í fyrsta skipti, sem hann stjórnar leikriti hjá Þjóðleikhúsinu. Hann hefur verið leikhússtjóri á Akureyri og stjórnað þar sýningum. Einnig hefur hann sviðsett leikrit i skólum og stjómað leikritum hjá útvarp- inu. Hvernig er heilsan? er nýlegt verk og gerist á heilsuhæli. Það fjallar um vandamál þeirra, sem þar dvelja vegna vanheilsu um lengri eða skemmri tima. Tekið er til meðferðar málefni vanheilla á geðsmunum og of- notkun lyfja. í leikritinu eru margir söngvar, sem sungnir eru af dvalargestum á heilsu- hælinu. Leikendur eru 14, en frumsýn- ing verður 30. janúar. — EA. Gjaldkeri Sóknar hótar mólsókn — vegna orðróms um tóma sjóði Nú er barizt um stjórn Starfsstúlknafélagsins Sókn- ar, og I þvi tilefni hótar núver- andi gjaldkeri, Marla Þor- steinsdóttir, að „sækja til saka” þann, sem hafi komið af staðorðrómi um tóma féiags- sjóði. ,,Ég hef fengið það staðfest af viðtölum við Sóknarkonur, að megin forsenda fyrir fram- boði gegn núverandi stjórn félagsins sé sú, að sá orðróm- ur gangi á nokkrum vinnu- stöðum Sóknar, að formaður félagsins, Guðmunda Helga- dóttir, hafi á slðastliðnu ári tæmt sjóði félagsins,” sagði Maria I yfirlýsingu. „Þennan áburð tel ég grófa ærumeiðingu, sem fyrst og fremst beinist gegn mér, sem ber ábyrgð á sjóðum Sóknar. Ég lýsi þennan orðróm hér með rakalaus ósannindi, og ef einhver getur bent mér á upp- hafsmann hans mun ég sækja hann til saka.” „Sjóöir Sóknar hafa fremur gildnað en rýrnað á siðast- liðnu ári. Hver tekjuafgangur verður, veit ég ekki nákvæm- lega, þar eð ársuppgjör félagsins er hjá endurskoð- anda.” Maria kveðst munu halda blaðamannafund, þegar endurskoðun uppgjörsins ljúki. Þá segir I lok yfirlýsing- ar hennar: ,,Að gefnu tilefni vil ég taka það fram um sumarfrl Guðmundu Helga- dóttur, að i júli var hún I sinu löglega sumarfrii, sem hún á samkvæmt orlofslögum, en I ágúst var hún ekki á launum hjá Sókn.” —HH NYI BARNASKÓLINN OF LÍTILL AÐUR EN BYRJAÐ ER A HONUM! — leysir varla núverandi þrengsli, hvað þó meira, segir skólastjórinn í Keflavík „ÞaO vantar núna neiminginn skóiastjóri Barnaskólans I af þvi húsnæöi, sem viö þurf- Keflavik. um”, sagöi ólafur Jónsson, „Og sumt af þvf húsnæöi, sem Það er ekki einfalt mál að búa sig á skiöi um þessar mundir. Skíöi eru vandvalin og helzt þurfa þau aö hafa cinhverja aukahluti eins og eru fremst á sklöum þessarar dömu. Bindingar eru listasmtö sem slagar hátt upp I maskínu að sjálfvirkni, og skórnir veröa að vera þannig, að þeir brjóti fremur legg en ökia. Svo setja menn stýri und- ir rass og bruna upp brekkurnar, og nú geta hundar ekki lengur hlaupið I snjó. — Myndina tók Bj.Bj. viö skiöalyftuna nýju I Skála- felli. viö höfum þó til umráöa er ófull- nægjandi, eins og til dæmis þaö húsnæöi, sem er undir handa- vinnu og söng. Þar er mun lægra undir loft en lög gera ráö fyrir”. Vegna húsnæðisskorts hefur barnaskólinn orðið að starfa á nokkrum stöðum I bænum. Gerir það stjórn hans alla nokk- uð erfiöa. Nokkuð er siðan fyrst var farið að tala um nýjan barnaskóla, en á fjárlögum rikisins fyrir árið I ár er fyrst veitt til hans fé. Eru þetta 12 milljónir sem rlkið leggur af mörkum. Keflavfkurbær hefur ekki enn ákveðiö hvert framlag hans verður I fyrstu, en senni- legt er, að það veröi svipuð upp- hæð. Ráðgert er að reisa hinn nýja skóla, er hýsa á 5-600 börn rétt viö nýja Garðahverfið. Ráðgert er, að gamli barnaskólinn verði eftir sem áður I fullri notkun, en að skólarnir tveir verði tvær sjálfstæðar stofnanir. Nú hefur skólanefnd haldið fund með arkitektum nýja skól- ans, en ekki er reiknaö með að teikningar liggi fyrir fyrr en seint á árinu. Sennilega veröur því ekki hafizt handa við byggingaframkvæmdir fyrr en á næsta ári. „Ég sé ekki fram á að jafnvel nýr skóli leysi okkar vanda,” sagði skólastjórinn, ólafur Jóns son. „Þörfin er orðin brýn, að nýr skóli leysti rétt vandann, eins og hann er i dag. Ef vel ætti að vera, þyrfti að hefjast handa við annan nýjan barnaskóla um leið og sá, sem nú er fyrirhugað- ur, verður fullbúinn”. „Já, það er hætta á þvi, að fjöldinn verði búinn að sprengja nýja skólann utan af sér óöar en hann er kominn upp,” sagði Jó- hann Einvarðsson bæjarstjóri um nýju barnaskólabygging- una. „Og ég vona líka fastlega að fólksfjölgunin I Keflavtk verði það ör, að þörf verði á enn nýju húsnæði undir barnaskólann,” sagði Jóhann bæjarstjóri i við- tali við blaðið. Ekki er nóg með, að riki og bær hafi nú lagt fram fjárhæðir til nýja skölans. Nemendurnir sjálfir hafa einnig sýnt nýju byggingunni áhuga og efnt til hlutaveltu, henni til styrktar, eins og getið hefur veriö um I VIsi. „Það var fyrir tilviljun aö ég kom inn til eins bekkjarins, sem bá hafði enga fasta stofu, og var að borða nestið sitt I stofunni, sem annars skal notuð til söng- kennslu,” sagði Ólafur Jónsson skólastjóri. „Þetta eru hinir ágætustu krakkar og þeir voru að spyrja mig að þvi, hvort ekki væri ein- hvers staðar laust pláss fyrir þau. Ég sagði þeim frá húsnæð- isleysinu og peningaleysinu og það varð úr að þau ákváðu aö grlpa til sinna ráða og efndu til hlutaveltu til styrktar nýrri skólabyggingu”, sagði Ólafur Jónsson. „Ég held að þetta verði nú að kallast jákvæð afstaða”. — JB Hús yfir útivirkið við Elliðaár óþarft — enda þótt slik bygging hafi komið til tals „1 þessari vindátt, sem veriö hefur undanfarna daga berst mikil selta yfir llnur og útivirki hér suövestanlands. Þá vill þaö henda, þegar blotnar i á ný, aö það slær yfir á einangruninni, eins og I fyrradag,” sagöi Aöal- steinn Guöjohnsen, rafmagns- stjóri I Reykjavik um bilunina I fyrradag. Yfir hið nýja útivirki á mótum Kringlumýrarbrautar og Sund- laugavegar hefur verið byggt stærðar hús, en við Elliðaárnar og Geitháls standa þau óvarin. Aðalsteinn var spurður að þvi, hvort ekki væri jafn nauðsynlegt að byggja yfir önnur útivirki til að hindra truflanir. „Það var fleira en væntanlegar truflanir, sem réð þvi, að byggt var yfir útivirkið við Kringlumýr- arbrautina. Þar var það einnig útlitssjónarmiðið, sem réð ásamt hættu, sem af stöðinni gæti stafað þarna I miðju hverfinu,” sagði Aöalsteinn. „Samsvarandi þörf er ekki fyrir hendi inni við Elliðaárnar. Hús yfir útivirkið þar hefur að vlsu komið til tals, en langt er frá þvi, að sllk bygging sé fyrirhug- uð, þótt hún gæti að visu hindrað rafmagnstruflanir eins og þær af truflununum, sem beinlínis áttu upptök sin þar”, sagði Aðalsteinn Guðjohnsen. Húsið við Kringlumýrarbraut- ina kostaði um 10 milljónir króna. Samsvarandi hús yfir allt útivirk- ið við Elliðaárnar yrði mun dýr- ara 1 byggingu. En slik bygging er undir þvi komin, hversu menn telja það mikilvægt að koma i veg fyrir rafmagnstruflanir af sama tagi og I fyrradag, sem eru frekar sjaldgæfar — JB. ÞOTURNAR SKOÐAÐAR HEIMA fá aðstöðu á Keflavíkurflugvelli til að skoða Boeing þoturnar Fokker vélarnar allar i fullu fjöri „Þaö hefur veriö ákveöiö að báöar þotur Flugfélagsins veröi skoðaðar hér heima. Eftir aö flugskýlið brann, gerðum við ráö fyrir aö þær þyrfti aö skoöa er- lendis, en svo verður ekki,” sagöi Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugleiöa." Hann sagði, að þessi aðalskoð- un á Boeing-þotunum færi fram á Keflavikurflugvelli. Tvær vikur tekur að skoða hvora þotu fyrir sig. Slðan fara þær út i viku til skoðana, sem ekki er hægt að framkvæma hér. Skoðunin hefst á mánudag. „Viðspörum mikiðfé og þá um leið gjaldeyri á þvi að geta fram- kvæmt þessar aðalskoðanir hér heima”, sagði Sveinn. Flugvirkjar vinna nú að þvi að koma upp verkstæðisaðstöðu I húsi, sem áður var tollvöru- geymsla, á Reykjavikurflugvelli. Það stendur rétt fyrir neðan gömlu vöruafgreiðsluna. Varahlutir I Fokker Friendship vélarnar eru farnir að streyma til landsins, samkvæmt pöntunum, sem þegar voru gerðar eftir flug- skýlisbrunann. Engin vélanna hefur þurft að stoppa vegna bil- ana, né varahlutaskorts. „Auðvitað höfum við orðið fyrir miklum erfiðleikum vegna þessa bruna. Hins vegar er ánægjulegt hvað starfsfólkið hefur staöið ein- huga að þvl að byggja sem fyrst upp alla aðstöðu. Þar hefur verið unnið með hugarfari frumbyggj- ans,” sagði Sveinn að lokum. -ÓH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.