Tíminn - 25.06.1966, Side 8
8
LAUGARDAGUR 26. júní 1966
TÍJVLIMM
B. Larsen næsti
heimsmeistari ?
í Moskvu var fyrir skemmstu
að ljúka einvígi þeirra Petrosjan
og Spassky um heimsmeistaratit
ilinn í skák og lyktaði þvi með
sigri Petrosjans, 12% v — 11% v,
eins og alkunna er. Að réttu lagi
ætti þessi þáttur að vera helgað
ur einvíginu, en þar sem ég hefi
ekki enn haft tíma til að kynna
mér skákirnar og önnur gögn
úr einvíginu nsegilega vel til að
geta gert gangi þess og tafl-
mennsku keppenda viðhlítar.di
skil, kýs ég heldur að láta það
bíða síðari tíma. Þess i stað
ætla ég að gera hér að umræðu
efni snjallan norrænan skák-
mann, sem jafnan hefur verið ís-
lenzkum skákunnendum hugstæð
ur, síðan hann tefldi hér á landi
fyrir u. þ. b. 10 árum síðan. Þessi
skákmaður vinnur nú hvern stór
sigurinn á fætur öðrum og getur
víst engum blandast hugur um,
að hér er átt við kunningja vorn,
Bent Larsen.
Larsen næsti heims-
mejstarakandidat?
Á síðasta ári, áður en Áskorenda
mótið fór í hönd, lýsti Bent Lar
sen því yfir, að hann ætlaði sér
nú að verða heimsmeistari og
gerði síðan grein fyrir því í stór
um dráttum, hvernig þetta mundi
ganga fyrir sig. Hann stóð dyggi
lega við orð sín í fyrsta hluta
keppninnar og sigraði júgóslav-
neska stórmeistarann, Boris Ivkov,
með miklum yfirburðum, en næsti
áfangj varð honum ekki eins
heilladrjúgur og varð hann þá að
lúta í lægra haldi fyrir Michael
Thal frá Sovétríkjunum, enda
þótt á tímabili liti út fyrir, að
sigurinn mundi falla honum í
skaut.
Þessi ósigur, tvímælalaust óverð
skuldaður, batt enda á vonir Lar
sens um skjótan frama að þessu
sinni. En Larsen er ekki einn
þeirra, sem lætur i,smá óhöpp“ á
sig fá. Síðan þetta skeði hefur
hann tekið þátt í fjölda skák-
móta, ávallt með góðum, jafnvel
framúrskarandi árangri, og má
Ijóst vera, að hann undirbýr þátt
töku sína í næstu heimsmeistara-
keppni af miklu 'meira kappi en
nokkru sinni fyrr. Sú reynsla,
sem hann öðlaðist í viðureigninni
við Tal, hefur reynzt honum ómet
anlegt vegarnesti og m. a. stuðl
að að því, að honum tókst að
leggja að velli einn fremsta skák
meistara Sovétrikjanna, í ein-
vígi nú fyrir skemmstu. Einvígi
þetta var háð til að fá úr því
skorið, hvorum þeirra, Larsen eða
Efim Geller, bæri þriðja sætið í
síðasta áskorendamóti, en þriðja
sief.itS veitir, sem kunnugt er, rétt
lil beinnar þátttöku í næsta milli
svæðamóti. Þarna vann Larsen
einn sinn frægasta sigur til þessa
og er nú óhætt að slá því föstu,
að með þessum árangri hefur hann
endaniega skipað sér í raðir
fremstu skákmeistara heims.
Hér á eftir fer úrslitaskákin i
einvíginu. Einvígi þetta var geysi
lega jafnt og tvísýnt og stóðu
keppendur jafnir að loknum þeim
átta skákum, sem ákveðið var' að
tefldar yrðu. Var einvígið þá
framlengt og sú ákvörðun tekin,
að sá, er fyrstur ynni skák, skyldi
talinn sigurvegari. Vann Larsen
strax fyrstu skákina og birtist
hún hér með skýringum hans.
Kaupmannahöfn 1966.
Hv: Efim Geller.
Sv: Bent Larsen.
I. c4 (Geller virðist hafa misst
löngunina til að tefla Opna afbrigð
ið í Spánska leiknum. (Opna af-
brigðið: 1 e4, e5. 2. Rf3, Rc6 3.
Rb5, a6 4. Ba4, Rf8 5. 0-0, Rxe4 6.
d4, b5 7. Bb3d5 8.dxe5,Be6 Larsen
beitti þessari vöm í tveimur skák
anna, fyrr í einvíginu og lyktaði
þeim báðum með jafntefli. Skýr.
Fr. Ól.) 1. —, e6 2.g3, d5 3. Bg2,
Rf6 4. Rf3, Be7 5. 0-0,0-0 6. d4,
Rbd7. (Þessari stöðu hefi ég ná-
in kynni af, því að ég hefi teflt
hana mörgum sinnum — á hvítt.)
7. Dc2,c6 8. b3, b5!? (Þessi leik-
ur hefur verið telkinn til ítarlegr
ar athugunar af yan Scheltinga í
hollenzka skáktímaritinu „Schak-
end Nederland" og hann mælir nú
með 9. Bf4, sem bezta leik hvíts.
Þetta byggist sennilega á því, að
hann telur leiðina 9. cxb5, cxb5
10. De6, Hb8 11. Bf4, Hb6 12.
De2, Bb7! hagstæða svarti, en
gætir þess ekki, að hvítur á í stað
12. Dc2 hinn sterka leik Dcl! Hins
vegar hafnaði Geller þessari leið
vegna möguleikans 10. —, Db6
II. Dxa8, Rb8! 12. Bf4, Rfd7 13.
Re5, Bb7 14. Rxd7,Rxd7 15. Dx
a8t, Kxf8 og hann áMtur, að svart
ur standi vel í þessari stöðu. Jafn
framt áleit hann, að 8. b3 væri
ónákvæmur leikur, betra væri 8.
Rbd2,) 9. Rbd2, bxc4 10. bxc4, B
a6 11. Bb2, Hb8 12. Habl, Da5 13.
Bc3, Bb4 14. Hxb4 (Geller mælir
hér með 14. Hb3, en sá leikur
breytir svo sem ekki neinu.) 14.
—, Hxb4 15. Hcl (í skákinni van
Scheltinga—Zuidema, Beverwijk
1964, varð áframhaldið 15. Bxb4,
Dxb4 16. Hbl og hvítum varð ekk
ert ágengt. — Gætið þess, að 15.
a3? strandar á — Da4! — Auð-
vitað ekki 15. —, Dxa3? vegna
16. Hal.) 15. —, Da4 16. Bxb4,
Dxb4 17. e3, Hc8 18. Db3, Da5
19. Bfl, h6 (Það gæti komið að
góðu gagni síðar í skákinni að
hafa skapað kóngnum útgönguleið,
enda hótaði hvítur engu í stöð-
unni. Slíkir „biðleikir" e’ru frem
ur sjaldgæfir í skákum mínum,
en Petrosjan t. d. beitir þeim oft.
Þeir geta haft viss sálræn áhrif
á andstæðinginn. Geller finnst, að
hann verði að tefla til vinnings
með hvítu. Lykti skákinni með
jafntefli verður hann að tefla
næstu skák með svörtu og hingað
til hefur svart ekki unnið neina
skák í einvíginu. Þess vegna vís-
ar hann á bug möguleikum á borð
við 20. cxd5, cxd5 21. Hxc8t, —
og 20. Dc3, Da4 21. Db3. En
næsti leikur hans gefur svarti
imöguleika til gagnsóknar.) 20.
He8, c5! 21. cxd5, (21 Da3, Dxa3
22. Hxa3, en eftir —, Bxc4 er
ekkert athugunarvert við stöðu
svarts.) 21. —, Rxd5 22. Hcl, (22.
Bxa6?, Hb8 leiðir til skiptamunar
taps og mun Geller hafa yfirsézt
þetta, er hann lék 20. leik sinn)
22. —, Bxfl 23. Rxfl, Hb8 24. Dc2,
Rb4 25. Dd2, Dxa2 26. dxc5, Dxd2
27. Rlxd2, Hc8. Hal, Hc7 29.
Rb3, e5 (Svartur vill koma í veg
fyrir, að riddarinn á f3 fái gripið
inn í atburðarásina á drottningar-
vænanum. Hvítur á vafalaust að
geta haldið stöðunni, en Geller
átti nú aðeins eftir 9 mínútur
fyrir 11 leiki.) 30. Ha4, Rd3 31.
c6 (Meðan á skákinni stóð áleit
ég 31. Hc4 vera betri leik, en í
riddaraendataflinu, sem á sér stað
eftir 31. —, R3xc5 32. Rxcö, Hx
c5 33. Hxc5, exc5 34. Rxe5 hefur
svartur vinningshorfur vegna
frelsingjans á a-línunni.) 31. —,
Rb6 32. Hal (Geller hélt því fram
síðar, að 32. HaS, f6 33. Rh4 hefði
verið sterkara áframhald og er
það örugglega rétt hjá honum.
Svartur svarar bezt með 33. —,
Kf7 og getur að minu áliti sífellt
skapað hvíti ný vandamál við að
glíma.) 32. —, Rc4 33. Ha4 (Eft
ir þennan leik álít ég, að hvíta
staðan sé töpuð. Góða jafnteflis
möguleika gaf 33. Ra5, Rxa5 34.
Hxa5, f6 35. Rh4, Hxc6 (35. —,
Kf7 er e. t. v. betra.) 36. Hxa7,
Hclt 37. Kg2, Hc2 38. g4!) 33.
—, Hxc6 34. Hxa7, Hf6! 35. Hd7
(35. Hc7 hafði ég ætlað mér að
svara með 35. —, Rxe3, en hið
einfalda 35. —, Hxf3 36. Hxc4,
Rxf2 er a. m. k. jafn sterkt.) 35.
—, Rxf2 36. Kxf2, e4 37. Rd4, R
e5 38. Hd8t, Kh7 39. He8, Rxf3
40. Ke2(?) (Síðasti leikurinn í
tímaþrönginni. Geller átti minna
en hálfa mínútu eftir og yfir-
sézt, hversu afgerandi 41. leikur
minn er.
Hróksendataflið, sem á sér stað
eftir 40. Rxf3, Hxf3t 41. Ke2,f5,
er auðunnið fyrir svart, hvita peða
staðan splundrast eftir h5—h4. En
eftir 40. Kg2!, Rxd4? er ekki leng
ur um vinningsstöðu að ræða.
Svartur á þó völ á sterkara fram
haldi: 40. —, Rd2 og ætti að
vinna.) 40. —, Rxh2 41. Hxe4
(Biðleikurinn.) 41. —, Rfl 42.
Hg4, g5 42. —, h§ nægði einnig til
vinnings, en g5-leikurinn er
skemmtilegri. Ef t. d. 43. Rf3 þá
—, Hxf3 eða 43. e4, Rh2.) 43.
Rb5, Kg6 44. Rc3, h5 — óg hvítur
gafst upp.
Eftir 45. Hxg5t, Kxg5 46. Re4t,
Kg6 47. Rxf6, Kxf6 48. Kxg3, Kg5
er vinningurinn auðsóttur og eft
ir 45. Ha4, Rxg3t gerir h-peðið út
um skákina.
MINNING
Jóhannes Samúelsson
Fyrir vestan Bröttubrekku
neðst í Sökkólfsdal er bærinn Gröf.
Þar liggur vegurinn í gegnum tún-
ið við hlið íbúðarhússins. Þetta
ágæta heimili hefur um áratugi
verið eins og opið gistihús, án
þess að taka gjald af gestunum.
Þarna hafa búið í áratugi hin
mestu sóma hjón þau Klemenz
Samúelsson og Sesselja Daðadóttir,
en þau eru nú háöldruð
Bræður og systir Klemenzar
hafa og dvalið þar mest af hans
búskap. Annar bróðirinn, Kristinn,
lézt fyrir einu ári, en hinn, Jó-
hannes, lézt nú 18. júní. Hefði
orðið 78 ára 23. þ.m. Ferðamenn
og flestir Dalamenn munu nú
sakna vinar í stað, er fara um
garð í Gröf, þegar Jóhannes er
horfinn. Hann var greindur vel
og fróður um menn og málefni,
bæði innan héraðs og utan. Ætt-
fróður var hann með afbrigðum.
Kunni hann vel að segja frá orð-
ræðum og tilsvörum manna viða
um land, sem hann hafði fest sér
í minni.
Hann hafði í hyggju að flytja
á Elliheimilið að Fellsenda, sem
nú er í smíðum, og þegar- gefið
í þá byggingu höfðinglega gjöf.
Þegar ég var barn að aldri kom
Jóhannes til foreldra minna og
var hjá þöim vinnumaður i 10
ár. Aldrei þurfti að segja honum
fyrir verkum, svo vel leysti hann
störf sín af hendi. Fjármaður og
skepnuhirðir var hann með af-
brigðum, svo að á orði var haft.
Jóhannes var alla tíð eins og einn
af okkar fjölskyldu og lét sér
mjög annt um okkar hag. Trygg-
lyndi hans var einstakt.
Nágrannar hans og sveitungar
munu lengi minnast Jóhannesar,
því að allir eiga um hann góðar
minningar.
Suðurdalir hafa nú misst einn
af sínum sérstæðustu persónuleik-
um, þar sem Jóhannes var.
Hjálmtýr Pétursson.