Tíminn - 25.06.1966, Side 13
LAUGARDAGUR 25. júní 1966
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
Elns og sagt var frá á íþróttasíSunni í gær, lék Brazilía „upphituna-.-leik" á Spáni fyrr í vikunni og sigraSi meS 5:3. Pele skoraSi þrjú mörk —
og á myndinni hér aS ofan sést hann lengst til hægri skora eitt af mörkunum. Almennt er Brazilíumönnum spáS sigri í heimsmeistarakeppninni,
sem háS verSur i næsta mánuði.
Tvísýnt í
2. deild
Alf-Reykjavík. — Tveir leikir
fóru fram í 2. deild fslandsmáts-
ins i knattspyrnu í fyrrakvöld —
báðir í a-riðli. f öðrum leiknnm
mættust Haukar og Vestmanna-
eyingar og urðu úrslit þau, að
Haukar unnu með 5:1, og hafa
þar með tekið forystu í riðlinum.
f hinum leiknum mættust íþrótta-
bandalag Suðurnesja og Fram.
Vann Fram þann leik auðveldlega,
6:0. Með þessum síðustu úrslitum
hafa öll liðin í a-riðli tapað 2
stigum eða meira og er keppnin
því mjög tvísýn. Staðan er nú
þessi:
A-riðilI: .
Haukar 4 2 1 1 9:5 5
Víkingur 3 2 0 1 5:4 4
Fram 2 1 0 1 6:1 2
Vestm. 2 1 0 1 4:7 2
Suðurn. 3 0 1 2 4:11 1
B-riðiIl:
Breiðablik 3 2 1 0 4:2 5
ísafjörður 4 2 0 2 7:7 4
FH 3 1 0 2 4:5 2
Sigluf. 2 0 1 1 2:3 1
Dennis
Law á
sölulista
Manchester Utd. hefur sett
frægasta leikmann sinn, Skot-
ann Dennis Law, á sÖlulista.
Ástæðan er sú, að Law gerði
mjög háar kröfur, sem félagið
taldi sig ekki geta orðið við.
Setti Matt Busgy, framkv.stj.
Manchester Utd. því Law á
sölulista í fyrrakvöld. Búizt er
við, að Law hverfi úr brezku
knattspymunni, en talið er, að
fjársterk félög á meginlandinu
muni bjóða í hann 150—200
þús. sterlingspund.
Law byrjaði feril sinn hjá
Huddersficld aðeins 16 ára
gamall. Árið 1960 keypti Manch
City hann fyrir 55 þús. sterl-
ingspund, sem var metupphæð
á þeim tíma. Aðeins ári síðar
hvarf hann frá Manchester til
Torino á Ítalíu fyrir 100 þús.
sterlingspund. Manchester Utd.
Dennis Law
keypti hann svo 1962 fyrir 115
þús. sterlingspund, sem var
metupphæð á Brctlandscyjiim
fyrir knattspyrnumann. Law
hefur síðan leikið með Manch-
ester Utd. við góðan orðstír og
orðið bæði dcildar og bikar-
meistari með félaginu. Hann
er eins og kunnugt er, skozk-
ur Iandsliðsmaður og lék m.a.
með heimsliðinu á móti Eng-
landi.
Nýr grasvöllur opnaður á Selfossi:
Heimamenn vígðu völl
inn með stórum sigri
Valsmenn
deild eftir
Valur sigraði Þrótt í 1.
í' deildar keppninni i knattspyrnu i
Ifyrrakvöld með 4:1 og hefur þar
með tekið forystu í keppninni,
Sveinamót
háð um
helgina
hafa forystu í 1.
sigur gegn Þrótti
|hlotið 5 stig eftir 4 leiki. Leikur
|inn í fyrrakvöld var að mörgu
i leyti vel leikiun og skemmtileg-
ur sérstaklega í fyrri hálfleik en
: þá var um mjög jafna viðureign
að ræða. Hans Guðmundsson,
skoraði fyrsta mark Vals með lang
skoti cn Ölafur Brynjólfsson
jafnaði fyrir Þrótt þegar u.þ.b. 15
mínútur voru liðnar.
Fyrir hlé' skoraði Hermann
Gunnarsson 2:1 fyrir Val með
skalla eftir fyrirgjöf Reynis á
kantinum. Fleiri mörk voru ekki
skoruð í fyrri hálfleik.
í sípari hálfleik náðu Vals
menn snemma meiri ítökum í
leiknum og pressuðu til að byrja
með fast að marki Þróttar. Her-
mann miðherji átti uppptök að
þriðja marki Vals sem Ingvar rak
endahnútinn á — og fjórða og
síðasta markið skorðai Ragnar.
Það sást greinilega á leik Vals
í fyrrakvöld að liðið stefnir að
sigri í mótinu, og lætur sér ekkert
minna nægja. Það er athyglisvert
að liðið hefur skorað 8 mörk í
hinum 4 leikjum, eða 2 mörk að
meðalatali í leik. Framherjarn
ir eru óragir við að skjóta — og
Framhald á bls. U
Sveinameistaramót íslands fer
fram á Laugardalsvellinum um
helgina, þ.e. í dag og á morgun
og hefst kcppni báða daga kl. 14.
Tilkynnt hefur verið um þátt-
töku 39 sveina frá 7 félögum og
héraðssamböndum, en búast má
við, að einhverjir fleiri bætist í
hópinn um helgina.
íþróttafélag Reykjavíkur er með
flesta þátttakendur eða 10 alls,
og F.H. þar næst með 9.
Það verður áreiðanlega mjög
skemmtilegt að sjá hessa ungu
drengi þreyta keppni um helgina
og er ástæða að hvetja fólk til
þess að fjölmenna á Laugardals-
völlinn og horfa á piltana og
hvetja þá í keppninni. Margir
Framhald á bls. 14
Tilraunalið og
pressulið valin
Alf — Reykjavík- — N. k. þriðju
dagskvöld fer fram á Laugardals
vellinum pressulcikur — og mæt
as'. tilraunalið landsliðsnefndar
og lið blaðamanna. Lið lands-
Iiðsnefndar er skipað leikmönn-
um yngri en 24 ára, en eins og
kunnugt. er, leikur landsliðið und
ir 24 ára gegn Dönum 4. júlí- Lið
jblaðamanna er skipað leikmönn-
um yngrj og eldri en 24 ára.
Lið landsliðsnefndar er skip
að eftirtöldum leikmönnum, talið
frá markverði til vinstri útherja:
Guttormur Ólafsson, Þrótti, Jó
hannes Altason, Fram, Guðni
Kjartansson, Keflavík, Magnús
Torfason, Keflavík, Ársæll Kjart
ansson, KR, Magnús Jónatansson,
Akureyri, Hörður Markan, KR,
Eyleifur Hafsteinsson, KR, Her-
Framhald á bl. 14
Alf-Reykjavík, föstudagur.
Sl. þriðjudagskvöld var vígður
á Selfossi nýr knattspyrnuvöllur,
stór grasvöllur, en unnið hefur
verið að byggingu hans undanfar-
in ár. Völlurinn var opnaður með
leik í fslandsmóti 2. flokks óg
léku Selfoss og Breiðablik úr
Kópavogi.
Tveir landsleikir
Vestur-Þýzkalar.d og Júgóslavía
léku landsleik í knattspyrnu i
fyrrakvöld og urðu úrslit þau, að
V-Þjóðverjar sigru u með 2:0. Þá
gerðu Spánn og Uruguay jafn-
tefli, 1:1, i leik, sem fram fór í
La Corunni á Spáni.
Svo fóru leikar, að piltarnir á
Selfossi unnu með 5 mörkum gegn
engu. Má því segja, að heima-
menn hafi vígt völlinn á viðeig-
andi hátt. Annars virðist sem svo,
að á Selfossi sé í uppsiglingu efni-
legt knattspyrnulið þar sem 2.
flokkur staðarins er. í gærkvöldi
léku piltarnir æfingaleik gegn
Víking á nýia grasvellinum og
unnu með 8:1. Áður hafa piltarn-
ir leikið æfingaleiki gegn jafnöldr-
um sínum í Reykjavík og náð góð-
um árangri. Á sunnudaginn stend-
u r svo til, að þeir leiki gegn ungl
•ilandsliðinu og verður þá vænt 1
■ cga leikið á Selfossi.
Opnun hins nýja grasvallar á
Selfossi markar tímamót i íþrótta
sögu staðarins - og verður von
andi til enn frekari eflingar
íþrótta á Selfossi.
Knattspyrnuleikir um helgina
Alf — Reykjavík. — Mikið
verður um að vera í knatt-
spyrnunni í dag og á morgun
leikið í 1. og 2. deild og auk
þess fara fram margir leikir i
yngri aldursflokkunum.
Á morgun, sunnudag, leika
i 1. deild á Akureyri heima
menn gegn Akranesi og verð-
ur þetta fyrsti leikurinn fyrir
lorðan á þessu keppnistíma-
hili. Á Njarðvíkurvellinum
leika Keflvíkingar gegn KR.
Ráðir Ieikirnir hefjast klukkan
16 Þá leika í 2. deild á ísa
i~——m—miiririiniwiw i«
firði heimamenn gegn Siglu-
firði Á morgun á einnig að
fara fram leikur á Selfossi í 4.
fl UMF Selfoss gegn ÍBS Rl.
Í5.
í dag kl. 16 leika í Kópa-
vogi í 2. deild Breiðablik og
FH. í iandsmóti 2. fl. leika á
Akranesi heimamenn gegn Vík
ing kl. 16. í Hafnarfirði leika
í landsmóti 5. fl. kl. 15 FH
og ÍBS og strax á eftir í 3
flokki Haukar og ÍBS. í Kefla
vík eiga svo að leika i dag í
landsmóti 3 fl ÍBK og FH kl
16. Á Selfossi leika kl. 16 í 5
fl. UMF Selfoss og Haukar. Þá
leika loks í landsmóti í dag
á Víkingsvelli Víkingur og
Akranes í 5. 4. og 3. flokki
Hefst fyrsti leikurinn kl. 14
Rvíkurmóti yngri flokk
annna verður haldið áfram
; dag. Valsmenn leika gegn
Þrótti — og Fram gegn KR
Fara leikirnir fram á Fram
vellinum, Valsvellinum, KR-
vellinum, Háskólavelli og Mela
velli. Fyrstu leikir hefjast kl
14.