Vísir - 05.02.1975, Blaðsíða 6
6
Vlsir. Miövikudagur 5. febrúar 1975.
vísrn
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóifsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Ilelgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessón ~
•'Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
t lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Hættulegar hugmyndir
Þjóðhagsstofnunin hefur reiknað út, að tapið á
stóru skuttogurunum sé að meðaltali 28,5% og
8,8% á litlu togurunum, um 1% á loðnubátunum
og 11,5% á öðrum bátum. Samanlagt nemur þetta
tap tveimur til þremur milljörðum á ári og er þó i
tölunum ekki reiknað með hækkun oliuverðsins,
sem varð i janúar.
Þetta sýnir að vandi sjávarútvegsins er hrika-
legur og leiðir senn til rekstrarstöðvunar flotans,
ef ekkert verður að gert. Og að óbreyttum að-
stæðum er ekki unnt að hækka fiskverð, þvi að
fiskvinnslustöðvarnar geta ekki greitt meira, þar
sem útflutningsverð sjávarafurða hefur farið
lækkandi.
Með gengislækkun mætti gera vinnslustöðvun-
um kleift að greiða hærra fiskverð. Hins vegar
hafa talsmenn útgerðarinnar látið i ljós þá skoð-
un, að gengislækkun komi ekki að gagni að þessu
sinni. Sú skoðun byggist á þvi, að tilkostnaður út-
gerðarinnar hækkar lika, þegar gengislækkun
hækkar fiskverðið.
Sjómenn búa við hlutaskipti og fá sinn þátt i
hækkun fiskverðsins. Ennfremur veldur gengis-
lækkun þvi, að erlendar skipakaupaskuldir, er-
lend veiðarfæri og olia hækkar i hlutfalli við
auknar tekjur útgerðarinnar. Það er þvi skiljan-
legt, að útgerðarmenn efist um gagnsemi gengis-
lækkunar.
En ekki er unnt að sjá aðra betri kosti. Tals-
menn útgerðarinnar hafa nefnt uppbætur, þótt
rikið hafi enga fjármuni til sliks. Ekki er laust
við, að margir telji rikið þegar vera orðið of flækt
i sjávarútveginn, er millifærslusjóðir eru farnir
að greiða afborganir skipakaupalána og trygg-
ingar fiskiskipa, þótt nýju sé ekki bætt ofan á.
Slæmt væri að þurfa að stiga viðbótarskref i átt
til rikisrekstrar i sjávarútveginum i heild.
Uppbótakerfi fæli i sér slikt skref. Afskipti rikis-
ins hafa þegar dregið úr áhrifum dugnaðar og
hagsýni útgerðarmanna á velgengni útgerðar-
innar.
Augljóst er, að erfiðleikar sjávarútvegsins
stafa ekki af þvi, að hann sé ekki samkeppnisfær
i alþjóðlegum samanburði. Erfiðleikarnir stafa
af þvi, að versnandi viðskiptakjör gagnvart út-
löndum hafa skert gengi krónunnar. Hörmulegt
er að hugsa til þess, að vandinn kunni að verða
leystur með þvi að gera útgerðina að ómaga. Þá
er fokið i flest skjól.
Ekki má heldur gleyma útflutningsiðnaðinum,
sem býr við svipaða erfiðleika og sjávarútvegur-
inn. Allar lausnir, sem eingöngu miðast við
sjávarútveginn, verða rothögg á útflutningsiðn-
aðinn. Mönnum hættir til að gleyma þessum nýja
vaxtarbroddi, þar sem hann er ekki eins mikil-
vægur og sjávarútvegurinn. En menn mega ekki
gleyma honum, þvi að hann er ein helzta von
þjóðarinnar um góð lifskjör i framtiðinni.
Útflutningsiðnaðurinn hefur undanfarinn ára-
tug verið að ryðja sér til rúms við hin erfiðustu
skilyrði. Hann hefur að töluverðu leyti verið svik-
inn um aðlögunartimann, sem hann átti að fá i
kjölfar viðskiptasambandanna við Friverzlunar-
samtökin og Efnahagsbandalagið. Einnig á ann-
an hátt hefur hann verið meðhöndlaður sem
fjórða flokks atvinnugrein.
Hvernig á útflutningsiðnaðurinn að eflast nægi-
lega til að geta i framtiðinni staðið undir lifskjör-
um þjóðarinnar, ef hann býr langtimum saman
við rammskakkt gengi og stöðugan taprekstur?
Við megum ekki leysa skammtimavandamál á
kostnað framtiðarinnar.
Illlllllllll
M) MFM
UMSJÓN: G. P.
Eitt ár er nákvæmlega
liðið frá þvi, að Patriciu
Hearst var rænt úr ibúð
hennar i Berkeley, en
siðustu vikurnar hefur
mál hennar legið dautt
og grafið, eins og flestir
þeirra, sem rændu henni
á sinum tima.
Þar til i gær, að það
rifjaðist allt saman upp
aftur, þegar maðureinn i
Eldri mynd af Patriciu Hearst, nitján ára stúdent viö Berkeley-háskóla
i Kaliforníu.
HVAD VARD UM
PATTY HEARST?
Hollywood hélt þvi
fram, að hún ásamt
tveim blökkustúlkum
hefði rænt honum á
föstudag — eins og frá
var skýrt i Visi i gær.
Fram til þess sýndist sem Patty
Hearst hefði tekizt það sama og
byltingarkonunni Jane Alpert, að
láta sig hverfa i fjöldann i þessu
milljónariki. — Um fjögurra ára
skeið fór Jane Alpert huldu höfði,
þrátt fyrir eftirlýsingar lögreglu-
yfirvalda, sem áttu ýmislegt van-
talað við hana vegna sprengjutil-
ræöa kærasta hennar. Fyrir
skömmu kom hún fram og gafst
þá upp á flökkulífinu, en á fölsk-
um persónuskilrikjum tókst henni
að villa á sér heimildir og fela sig
sem þjónustustúlka á lélegri mat-
sölustöðum og annað i þeim dúr.
Ræningjar Patriciu Hearst
kölluðu sig „hermenn”
Symbonesisku frelsishreyfingar-
innar, sem menn vita ekki með
vissu, hvernig er til komin. Um
þau samtök var fátt annað vitað
en að þau hefðu staðið að morði á
skólastjóra einum i blökku-
mannaskóla i Kaliforniu. — Eftir
ránið á milljónaradótturinni voru
S.L.A.-samtökin þó á allra vör-
um.
Að kröfu þeirra flýtti faðir
Patty, blaðakóngurinn Randolph
Hearst, sér að setja á laggirnar
matargjafarstofnun, sem útbýtti
súpu og annarri saðningu til fá-
tækra fyrir nær tvær milljónir
dollara. Auk þess krafðist S.L.A.
einnig lausnargjalds i beinni
greiöslu.
Lausnargjaldið var aldrei sótt.
í staðinn tilkynnti Patty Hearst
foreldrum sinum, að hún hafnaði
þeim og hefði gengið i lið með
ræningjum sinum.
t fyrstu var haldið, að þessi orð-
sending væri fölsuð, eða stúlkan
hefði verið heilaþvegin ef ekki
beinlinis þvinguð til að skrifa
skilaboðin. En tvær grimur runnu
á fólk, þegar leynimyndavél I
banka náði af henni ljósmynd,
þar sem hún stóð vörð, vopnuð
byssu, meðan félagar hennar
rændu bankann og höfðu á brott
með sér 10 þúsund dollara.
Patricia Hearst tók sér dul-
nefnið „Tania” eftir byltingar-
konu, sem talin er hafa látið lifið
með Che Guevara I Boliviu hér
um árið.
Allur vafi, sem þótti geta leikið
á þvi, að hún hefði sjálfviljug
tekið þátt I bankaráninu, hvarf af
mönnum, þegar hún mánuði eftir
það sást I fylgd hjóna úr S.L.A.
ræna sportvöruverzlun eina i Los
Angeles. — Auk þess kom svo til
vitnisburðar átján ára unglings,
sem hjónin og „Tania” höfðu
rænt með sér. Hann sá engin
merki þess, að Patty Hearts væri
haldið gegn hennar vilja. — „Hún
talaði um ágæti byssukúlna, sem
dýft hefði verið i cyanid-eitur, og
hversu vel þær ynnu á fólki”,
sagði unglingurinn lögreglunni.
Sex félagar úr S.L.A. féllu fyrir
kúlum lögreglunnar eftir skot-
bardaga þann 17. mal, þegar
hafðist uppi á fylgsni þeirra i Los
Angeles. Þar á meðal var höfuð-
paurinn, Deonald deFreeze. —
Undan komust þó Harris-hjónin,
sem höfðu verið með Patty i
sportvöruverzlunarráninu. Patty
Hearst var heldur ekki meðal
fallinna.
Þau Harris-hjónin þóttu ekki
stiga I vitið og var lögreglan von-
góð um að þeim yrði fljótlega
fótaskortur og mundu nást.
Handtaka þeirra gat leitt til fund-
ar Patty Hearst. — Mánuðirnir
hafa liðið siðan hver af öðrum án
þess að sú von rættist.
Fyrir rétti eru núna tveir ungir
menn, sem halda þvi fram, að
þeir hafi verið félagar i S.L.A.
Yfir þeim hvilir ákæra um morðið
á yfirkennaranum Marcus Foster
i Oakland-skóla 6. nóvember 1973.
Sérfræðingar lögreglunnar röktu
slóð morðkúlnanna (sem reyndar
Foreldrar Patty, Catherine og
Randolph Hearst, hafa aldrei gef-
ið upp vonina.
hafði verið dýft I cyanid) til skot-
vopna, er voru skráð á Joseph
Remiro og Russell Little. Þeir
voru handsamaðir núna i byrjun
janúar sl., en reyndu þá að flýja.
Þrátt fyrir yfirheyrslur yfir
þeim, ótal yfirlýsingar S.L.A. og
segulspólur getur enginn gert sér
fulla grein fyrir þvi, hvert hafi
verið markmið þessa félagsskap-
ar.
Það er talið, að samtökin sem
naumast verða þó kölluð þvi
nafni, vegna þess hve fáliðuð þau
voru, hafi sprottið upp úr þeim
hópum, sem börðust fyrir betri
meðferð refsifanga. En öfgahóp-
ar stúdenta i skólum Kaliforniu,
sem einhver kynni höfðu af
S.L.A., segja allir, að þeir hafi á-
vallt litið á S.L.A. sem utan við
lög og rétt, en ekki á sama báti og
önnur mótmælasamtök.
Meðan ýmsir voru farnir að
halda, að Patricia Hearst væri
ekki lengur lifs, þá hafa foreldrar
hennar og aðstandendur aldrei
gefið upp vonina.
Faöir hennar sagði nýlega i út-
varpsviðtali, að hann vonaðist til
þess að hún mundi sjálfviljug
gefa sig fram við yfirvöld: „i
hreinskilni sagt held ég, að hún
verði aldrei hneppt i fangelsi.
Hún mun sjálfsagt koma fyrir
rétt bæði i Los Angeles og San
* Francisco, en naumast dæmd til
refsingar.”
Það siðasta, sem heyrðist frá
Patty Hearst sjálfri, var af segul-
spólu, sem flutti bölbænir og
klám. Hafði spólan verið skilin
eftir i útvarpsstöð I Los Angeles.
Hún hafði einnig að geyma yfir-
lýsingar frá Harrishjónunum.
Frásögn mannsins, sem kom
fram núna eftir helgina og sagðist
hafa verið neyddur til að aka
Patty Hearst og tveim blökku-
stúlkum um Hollywood, hafði
ekki verið staðfest i gær.
Fulltrúar alrikislögreglunnar
bandarisku eru enn sannfærðir
um að Harrishjónin eigi eftir að
koma upp um sig. „Einhvers
staðar, einhvern tima, kemur að
þvi”