Vísir - 10.02.1975, Síða 6
6
Vlsir Mánudagur 10. febrúar 1975.
VÍSIB
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóifsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Slmi 86611
Ritstjórn: iSíðumúla 14. Slmi 86611. 7 llnur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakið. Blaöaprent hf.
Undanhald olíufurstanna
Brestur er kominn i oliuauðhring Araba, eins
og margir höfðu spáð. Stjórnmálamönnum á
Vesturlöndum hefur blöskrað, hvernig hækkun
oliuverðs leiddi til samdráttar. Rikin stóðu sem
varnarlaus gagnvart ofurvaldi Araba og ann-
arra oliuframleiðenda, og menn spurðu, hvort nú
væri að renna það skeið, sem kalla mætti hnignun
Vesturlanda, upphafið að endalokum aldalangs
veldis Evrópumanna.
Oliuráðherra Saudi-Arabiu sagði um helgina,
að hann byggist við óbreyttu oliuverði á þessu
ári. Helztu oliurikin virðast ætla að halda verðinu
óbreyttu fram i september og hugsanlega lengur.
Hvað veldur?
Fyrst má nefna hótanir Kissingers, utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna. Hann hefur gefið i
skyn, að valdbeiting kæmi til greina, ef oliufram-
leiðendur breyttu ekki stefnu. Arabar segjast
ekki taka slikar ógnanir alvarlega, en i rauninni
gera þeir sér grein fyrir hættunni á, að vestræn
riki efli Israelsmenn til árásar, sem vafalaust
yrði kölluð „varnarstyrjöld til að hindra árás
Araba á ísraelsmenn”. Þessi hætta er ávallt
raunveruleg. Fyrst og fremst geta Arabar skilið
af ummælum Kissingers, að valdamiklir menn á
Vesturlöndum eru reiðubúnir að leggja sitthvað i
sölurnar til að halda oliuverði i skefjum.
Enn skyrari hótun gagnvart oliurikjunum felst
i friðsamlegri vinnubrögðum iðnaðarrikjanna. Á
fundi átján iðnaðarrikja i Paris laust fyrir helgi
var samþykkt, að þau minnkuðu oliuinnflutning
sinn um sem svarar tveimur milljónum tunna á
dag. Þetta er að visu aðeins litill hluti af öllum
oliuinnflutningi þessara rikja, en þó sýnir sam-
þykktin, að mönnum er alvara með tali um að
spara oliu og auka aðra orkugjafa i hennar stað.
Kissinger beitir sér fyrir, að sett verði lágmarks-
verð á oliu i þvi skyni að vernda fjárfestingu i
öðrum orkugjöfum. Þetta lágmarksverð á að
vera talsvert lægra en heimsmarkaðsverð er nú.
Skal samkvæmt tillögum Kissingers bjóða oliu-
framleiðendum þá kosti að samþykkja lækkun
verðsins og fá tryggingu fyrir þvi, að það haldist,
eða þrjózkast við og eiga á hættu að tapa með
vaxandi notkun annarra orkugjafa i náinni fram-
°tið. Hvað tilboð Araba um óbreytt oliuverð til
hausts og vonandi lengur, kemur til með að þýða
er ekki ljóst enn, en greinilega hafaoliuframleið-
endur verið knúnir til undanhalds.
Olian er og verður lifsvökvi iðnaðar heimsins.
Með bandalagi við aðra framleiðendur oliu hafa
Arabar getað skapað sér að miklu leyti einok-
unaraðstöðu i sölu þessarar mikilvægu vöru. Hér
gildir i sjálfu sér hið sama og um alla einokun i
viðskiptum. Tilgangurinn er að hagnast meira en
lögmál framboðs og eftirspurnar segðu til um, ef
réttum leikreglum væri fylgt. Afleiðingin er og
hin sama og um aðra einokun, að neytendurnir
tapa. Einokun oliuframleiðenda er hins vegar
miklu fordæmanlegri vegna þess, að þeir ætla sér
ekki aðallega að græða f járhagslega, heldur kúga
litið riki, ísrael, með þvi að beita vinaþjóðir þess
ógnunum. Þetta hefur Aröbum tekizt að verulegu
leyti, en skiljanlegt er, að leiðtogum vestrænna
rikja þyki sárt að kyngja þeim bitanum. Þvi hafa
þeir hafið gagnsókn.
—HH
Við erum Iftill
dropi af þvf
mannhafí öllu
Fólksfjölgun er nú
örust í Afriku, eftir þvi
sem kemur fram i
skýrslu Sameinuðu
þjóðanna, er birt var i
siðustu viku.
í þessari árbók
mannfjölgunar er sagt,
að i þrjátiu og niu þeirra
fjörutiu og fimm
Afrikurikja, sem
upplýsingar lágu fyrir
um, hafi fjölgun ibúa
numið meira en 2%. Og i
niu þeirra var mann-
fjölgunin meira en 3%
Til viðmiðunar má líta á
tuttugu og tvö hinna þrjátlu og
fjögurra landa, sem heyra til
Evrópu, og greindu frá árlegri
fjölgun, sem náði ekki 1%.
1 þessari ársskýrslu er þvi
spáð, að mannkynið muni
tvöfaldast fyrir árið 2007, en I dag
eru taldar búa á jaröarkringlunni
um 3.860 milljónir manna. Er þar
áætlað, að árleg fjölgun Ibúa
jaröar muni verða um 2,1%.
Asía er enn sem fyrr mann-
flesta álfa heims, þar sem búa
nær 60% allra íbúa jarðar. Þar
eru lika tvær stærstu borgir
heims. Nefnilega Shanghai og
Tokyo. í annarri bjuggu 10.820.000
árið 1970, en hinni 8.796.293 árið
1972.
t þessari fróðlegu skýrslu um
hagi mannanna kemur fram, að
möguleikarnir á langllfi manna
eru éinna slakastir I Afrlku.
Meðaltal sýnir, að I flestum
Afrlkulöndum getur hvert nýfætt
barn búizt við að lifa aðeins
fimmtíu ár. I tuttugu og einu af
þeim Afrlkulöndum þar sem vitað
var um meðalaldur manna,
reyndist hann vera minni en
fjörutlu ár.
Lengstan meðalaldur karl-
manna reyndist Svlþjóð hafa.
Skýrslur sýna, að þar verða menn
72 ára gamlir að meðaltali. Það
er aðeins I sex löndum heims,
sem meðalaldur nær sjötlu árum.
Þau eru Noregur, Holland, Dan-
mörk, Japan, Israel og gamla
góða Frón.
Dánartala nýfæddra barna
reynist vera lægst I Svlþjóð, eftir
þessari skýrslu Sameinuðu
þjóðanna að dæma. Af hverjum
þúsund börnum, sem fæddust þar
1973, voru aðeins rúmlega nlu og
hálft barn, sem ekki lifðu.
Ef litið er á verri endann á
þessum óhugnanlega lista, ber
þar mest á Llberlu, þar sem 159,2
af hverjum þúsund nýfæddum
börnum dóu árið 1971.
í Evrópulöndum flestum þarf
að lita langt aftur I tlmann til þess
að finna jafn hrikalegar tölur um
ungbarnadauða.
Fjölmennasta ríki veraldar er
Kina, þar sem um fjóröungur alls
mannkyns á heima, eða átta
hundruö milljónir manna. í Aslu
allri búa 2.204, milljónir þeirra
3.860 milljóna manna, sem lifa á
jörðunni. Aslumenn eru þvi 57,1%
allra Ibúa jarðar.
1 Evrópu eiga heima aðeins 472
milljónir, eöa 12,2% Þar á eftir
kemur Afrlka með 374 milljónir
manna eða 9,7% Suður-Ameríka
er næst á lista með 309 milljónir
eða 8%. Sovétríkin svo með 250
milljónir eða 6,5%. Norður-Ame-
rlka telur 236 milljónir íbúa eða
6,1%. Astralia og eyjarnar I Suð-
ur-Kyrrahafi telja 20,6 milljónir
eða 0,5%.
Það er lltil dropi I þetta
mannhaf allt saman, þau litlu 210
þúsund, sem búa á tslandi. Við ts-
lendingar erum um það bil
0,00005% af öllu manöyni jarðar.
t þessu manntali Sameinuðu
þjóðanna er á það bent, að finna
megi nokkra vlsbendingu um
Ibúafjölgun einstakra landa I
náinni framtlö með þvl að huga
að þvl, hve marga Ibúa á aldrin-
um fimmtán ára, eða yngri,
viðkomandi land-á.
Þau lönd, sem eiga I dag fá
fimmtán ára gömlu ungmenni,
eða yngri geta ekki gert sér vonir
um öra Ibúafjölgun á næstu árum.
Meðal þeirra landa, þar sem
Ibúatala fimmtán ára og yngri er
hvað lægst, er Monaco með að-
eins 13%. Hæst er hún hinsvegar á
Cook-eyjum og Vestri Samoa I
Suður-Kyrrahafi eða 51%.
Evrópulöndin eiga flest minna
en 30% af þessum aldursflokkum,
meðanhinsvegar Afríka, þar sem
fólksfjölgunin er auðvitað örust, á
40% sinna íbúa á aldrinum
fimmtán ára eða yngri.
Itt