Vísir - 10.02.1975, Blaðsíða 9
.>-*•'***'" *
m- m
Kári Marisson rennir knettinum
i körfu stúdenta. Ljósmynd
Bjarnleifur.
KR ótti fullt í
fangi með HSK!
— en náði sigri í lokin — Stúdentar
sigruðu Val með sex stiga mun
Það var heldur rólegt yfir 1.
deildarkeppninni i körfuknattleik
um helgina. Aðeins tveir leikir
fóru fram, og báðir fóru eins og
við var búizt, en slikt er farið að
verða óvenjulegt á körfuboltavig-
stöðvunum.
Það eina, sem vakti eitthvert
umtal i sambandi við þessa leiki,
var, að dómararnir, sem áttu að
dæma annan leikinn, þeir
Erlendur Eysteinsson og Þráinn
Skúlason, gengu út úr húsinu, áð-
ur en leikurinn hófst og neituðu að
dæma. Var Eysteinn óánægður
með að hafa ekki iengið greitt
vinnutap, er hann hljóp I skarðið
fyrir annan dómara fyrir nokkru,
og hinn fór f samúðarverkfall.
Vegna þessa geta þeir átt á
hættu, að tekið verði af þeim
dómarakortið og þeir settir af
sem dómarar hjá KKI í framtið-
inni.
Þeir áttu að dæma leik KR og
HSK. I þeim leik átti KR i miklum
vandræðum með austanmennina,
sem léku einn bezta leik i vetur.
Hafði HSK yfir i hálfleik 40:36 og
hélt þvi nokkuð fram i siðari hálf-
leikinn. En þá sendu KR-ingar
alla sina sterkustu menn inn á, og
þeir sneru dæminu við. Lokatöl-
urnar urðu 87:79 fyrir KR.
I hinum leikum áttust við 1S og
Valur. Var það mikil og hörð bar-
átta, sem stóð langt fram i siðari
hálfleik. Þá tóku stúdentarnir af
skarið og náðu forustu, sem nægði
þeim til leiksloka.
Var skapið ekki sem bezt hjá
Valsmönnum á lokaminútunum
— skömmuðust út i allt og alla —
og var þá ekki að sökum að
spyrja. IS hafði 6 stiga sigur út úr
leiknum — 74:68 — og gerðu þeir
sig fyllilega ánægða með það.
Ekki varð það
tvöfaldur Skoti
— Valur fœr Skota — FH missir Skota
Það verða ekki tveir skozkir
knattspyrnuþjálfarar hér i sumar
eins og reiknað var með. Valur
samdi i gær við Joseph Gilroy að
taka að sér þjálfun meistara-
flokks Vals i sumar, en á sama
tima misstu FH-ingar þjáifara
sinn, Pat Quinn, sem kom iiðinu
upp I 1. deild i fyrra.
FH var búið að semja við Quinn
og það fastmælum bundið, að
hann þjálfaði hjá félaginu i sum-
ar. Af þvi verður ekki. Quinn
hefur ráðið sig til Glasgowfélags-
ins Partich Thistle, sem leikur i 1.
deild.
Joseph Gilroy, sem þjálfar
Valsmenn, hefur verið lengi i
knattspyrnunni. Hann lék fyrst
með áhugamannaliðinu Queens
Park á Skotlandi — fór siðan til
Partich 1960, en 1962 til Clyde,
annars Glagow-liðs. Þar var hann
til 1967 að hann fór til Lundúna.
Lék með Fulham i tvö ár og kann-
ast eflaust margir við nafn hans
siðan. 1969 fór hann til Dundee og
lék þar i fjögur ár. Þá gerðist
hann þjálfari i Suður-Afriku um
tima — siöan hjá Falkirk á Skot-
landi.
—hsim.
Ungur ísfirðingur sló
í gegn í stórsviginu!
— og ung stúlka úr Reykjavík sigraði þœr norðlenzku í
búðum greinum ú punktamótinu í Skúlafelli
Sigurður H. Jón$son — 15 ára
piltur frá tsafirði — var stóra
stjarnan i stórsvigskeppninni á
fyrsta punktamóti vetrarins, sem
haldið var i Skálafelii um heigina.
Þar sigraði hann marga af okk-
ar beztu skiðamönnum, og var þó
með rásnúmer 44, sem þýðir
venjulega erfiða og slæma braut.
Hann kom i mark á timanum
58,23 sek — aðeins var farin ein
ferð — og var nokkrum sekúndu-
brotum á undan Tómasi Leifssyni
frá Akureyri, sem var með rás-
númer 1, en hann kom i mark á,
58,82 sek.
1 þriðja sæti varð Bjarni Þórð-
arson KR á 59,72, fjórði Arni
Óðinsson Akureyri á 60,40 — um 2
sekúndum á eftir Sigurði — Gunn-
ar Jónsson Isafirði komst svo i 5ta
sæti á 60,53 sek.
I sviginu gekk Sigurði ekki eins
vel. Hann fékk slæman tima i
fyrri umferðinni — farnar voru
tvær ferðir i tveim brautum— og i
þeirri siðari missti hann af sér
skiðið á miðri leið, og var þar með
úr leik. Árni óðinsson sigraði i
sviginu á samanlögðum tlma
102,37 sek. Annar var félagi hans
Haukur Jóhannsson — á tveim
hundruðustu úr sekúndu verri
tima — 102,39 — og þriðji varð
Hafsteinn Sigurðsson tsafirði á
105,26 sekúndum. Tómas Leifsson
varð fjórði og Gunnar Jónsson i
fimmta sæti eins og i stórsviginu.
Arni varð sigurvegari i alpatvi-
keppni. Tómas Leifsson annar,
Haukur þriðji, Hafsteinn fjórði og
Gunnar varð i fimmta sætinu.
1 stórsvigi kvenna varð Jórunn
Viggósdóttir KR sigurvegari á
66,92 sek. önnur varð Margrét
Baldursdóttir Akureyri á 70,9 sek.
Þriðja Steinunn Sæmundsdóttir
Armanni á 70,9 sek, fjórða Guð-
rún Frimannsdóttir á 72,37 sek og
fimmta Katrin Frimannsdóttir á
72,46 sek. Þær þrjár slðastnefndu
eru allar frá Akureyri.
1 sviginu sigraði Jórunn einnig
— ekki oft sem Akureyringarn-
ir þurfa að tapa i báðum greinum
— á 105,97 sekúndum.
Katrin varð önnur á 112,38 og
Sigrún Grimsdóttir Isafirði þriðja
á 116,49 sek.
Jórunn varð sigurvegari i alpa-
tvikeppninni, Margrét Baldurs-
dóttir önnur og Katrin Frimanns-
dóttir þriðja.
Veðurguðirnir voru KR-ingum,
sem sáu um mótið með glæsi-
brag, heldur betur hliðhollir um
helgina, og var það ekki til að
skemma fyrir neinum, nema sið-
ur væri. Alls tóku þátt i mótinu 57
karlar og 12 konur, og fóru allflest
ánægð úr Skálafellinu eftir þetta
fyrsta stórmót vetrarins.
—klp—
Óstöðvandi blóðnasir
— og Gils verður ekki með FH í bráð
Öruggt má telja að hinn
hrausti varnarmaður FH, Gils
Stefánsson, leiki ekki með FH i
næstu leikjum. Hefur hann legið
á sjúkrahúsi siðan FH-ingarnir
komu frá Austur-Þýzkalandi og
gengið þar undir þrjár aðgerðir.
Gils fékk blóðnasir skömmu
fyrir siðari leikinn við ASK Vor-
warts, en þær tókst að stöðva
rétt fyrir leikinn. 1 leiknum og
eftir hann byrjaði aftur að
blæða og svo i flugvélinni á leið-
inni heim.
Var þá ógjörningur að stöðva
blóðrennslið, og var hann fluttur
á sjúkrahús og siðan lagður inn
á gjörgæzludeild, enda hafði
hann þá misst óhemju blóð.
Þar voru gerðar á honum
þrjár aðgerðir. í þeirri siðustu
var gerð skurðaðgerð á nefinu
og tókst þá loks að hefta blóð-
rennslið. Mun hann verða frá i
nokkrar vikur af þessum sök-
um, og er bannað að leika hand-
knattleik á meðan.
—klp—
MERKJASALA
Á ÖSKUDAG
REYKJAVÍKURDEILD R.K.Í. afhendir
merki á neðantöldum útsölustöðum
frá kl. 9.30.
Börnin fá 10% sölulaun og þau
söluhæstu fá sérstök verðlaun.
Vesturbær:
Skrifstofa Reykjavikurdeildar
R.K.I., öldugötu 4
Efnalaug Vesturbæjar, Vesturgötu 53
iMelaskólinn, v/Furumel
Skjólakjör, Sörlaskjóli 42
Skerjaver, Einarsnesi 36
Verzlunin Perlon, Dunhaga 20.
Austurbær:
Skrifst. R.K.Í. Nóaatúni 21
Fatabúðin, Skólavörðustig 21
Verzlunin Barmahlið 8
Björgunartækni, Frakkastig 7
Silli og Valdi, Háteigsvegi 2
Sunnukjör, Skaftahlið
Hliðaskóli v/Hamrahlið
Dagheimiíið Lyngás, Safamýri 5
Álftamýrarskóli
Austurbæjarskólinn
Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54.
Smdíbúða-og
Fossvogshverfi:
Fossvogsskóli
Breiðagerðisskóli
Verzlunin Faldur, Háaleitisbr. 68.
Laugarneshverfi:
Laugarnes-apótek, Kirkjuteig 21
Laugalækjarskóli, v/Sundlaugaveg.
Kleppsholt:
Langholtsskóli
Vogaskóli
Þvottahúsið Fönn, Langholtsv. 113.
Árbær:
Árbæjarskóli
Árbæjarkjör, Rofabæ 9
Breiðholt:
Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1
Fellaskóli — Breiðholti III.
Hólabrekkuskóli v/Suðurberg
/Vesturberg