Vísir - 24.02.1975, Síða 6
6
Vfsir. Mánudagur 24. febrúar 1975.
vísrn
Ctgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
,/ Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Síöumúla 14. Slmi 86611. 7 llnur
Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasölu 35 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Áfram með orkuverin
Okkur hefur að undanförnu ekki gengið eins vel
og við hefðum óskað i virkjun orkulinda landsins.
Orkukreppan i heiminum hefur sýnt okkur, að
virkjun vatnsafls og jarðvarma þarf að vera eitt
af helztu forgangsverkefnum okkar. En ýmsar
ástæður valda þvi, að okkur miðar of hægt i þess-
um efnum.
Ein meginástæðan er sú, að vinstri stjórnin lét
hjá liða að taka ákvörðun um ný stórvirki á þessu
sviði. Hinar mikilvægu virkjanir, sem nýlokið er,
verið er að ljúka eða verður senn lokið, svo sem
Laxá, Lagarfoss og Sigalda, eru arfleifð frá
viðreisnarstjórninni. Hléið, sem siðan varð á
dögum vinstri stjórnarinnar, veldur þvi nú, að við
erum ekki nægilega vel búnir undir nýjar
virkjanir.
Önnur ástæða er fólgin i fjárhagserfiðleikum
undanfarinna mánaða. Rikisvaldið hefur átt i
erfiðleikum með að finna lausn á fjárhagslegri
fyrirgreiðslu vegna hitaveitu frá Svartsengi til
byggðanna á Suðurnesjum. Og Hitaveita
Reykjavikur hefur ekki fengið næga gjaldskrár-
hækkun til að ljúka hinu mikla dreifikerfi fyrir
Rey kja vikursvæðið.
Stjórnvöld eru nú að reyna að vinna upp fyrri
tafir og finna f járhagslegar lausnir á verkefnum,
sem komin eru á framkvæmdastig. Mikilvægt
er, aö þetta takist sem bezt og fljótast. Einna
ánægjulegasta sporið i rétta átt er, að tekizt hefur
að stytta áætlaðan byggingartima orkuversins
við Kröflu úrfjórumárum i tvö ár. Með þeirri
virkjun ætti hinum þráláta orkuskorti á Norður-
landi að linna.
Við megum ekki láta það taka okkur mörg ár
að búa svo um hnútana, að jarðhiti og vatnsafl
leysi oliuna alveg af hólmi i rafmagnsframleiðslu
og húsahitun. Lagning hitaveitu i nágranna-
byggðir Reykjavikur og um Suðurnes eru einna
veigamestu verkefnin á þessum sviðum og mega
ekki tefjast, þrátt fyrir fjárhagserfiðleika opin-
berra aðila.
Jarðhitinn er ekki siður mikilvægur en vatns-
aflið, þvi að fundnar hafa verið ódýrar leiðir til
að framleiða rafmagn úr jarðhita. Kröfluvirkjun
er fyrsta stóra skrefið á þessu sviði og verður
væntanlega fyrirboði mikillar útþenslu á nýtingu
þeirrar auðlindar.
Óttinn við stóriðju má ekki lama þessa þróun
eins og hann gerði á valdatima vinstri stjórn-
arinnar. Við megum ekki vera að þvi að heyja
stórstyrjöld um hvert einasta slikt iðjuver. Slag-
urinn um álverið var of illskeyttur og karpið um
málmblendiverksmiðjuna gengur út i öfgar.
Slikar deilur tefja þróun stóriðju hér á landi og
tef ja um leið möguleika okkar á að nýta orku-
lindirnar, sem nú eru verðmætari en nokkru sinni
fyrr vegna hins háa verðs á oliu.
Þótt við hefjum stórsókn i að byggja upp orku-
frekan iðnað með erlendu fjármagni, þarf það
ekki að dreifa huga okkar frá möguleikum okkar
sjálfra i þróun innlends léttaiðnaðar. Og við get-
um einnig samtímis hraðað athugunum á þvi,
hvernig nýta megi jarðhitann á hagkvæman hátt
til ylræktar. Við þurfum að sækja fram á öllum
sviðum i senn.
Okkur nægir ekki að framleiða eigin rafmagn
og húsahitagjafa. Við þurfum lika að láta
auðlindir landsins gera okkur að raunverulegri
iðnaðarþjóð. Olíukreppan á að vera okkur nægi-
leg hvatning á öllum þessum sviðum. -jk.
Richard Daley, æðst-
ráðandi stærstu flokks-
vélar demókrata i
Bandarikjunum, heyr
um þessar mundir
baráttu fyrir pólitisku
lifi sinu, sjötiu og
tveggja ára orðinn.
Hann leitar nú eftir þvi
að ná endurkjöri sem
borgarstjóri Chicago.
Það er i sjötta skiptið og
yrði met ef honum tæk-
ist það.
Flestar skoðanakannanir að
undanförnu benda tii þess að
þessum margherta stjórnmála-
manni mundi takast það. En það
er ávallt einhvers staðar eitt ef. 1
fyrsta sinn siðan han varð
borgarstjóri fyrir 20 árum, er ris-
in upp gegn honum skipulögð
andstaða innan flokksins. Hann
verður því að hafa sig allan við i
kosningabaráttunni.
Þegar demókratar á morgun
velja Sér frambjóðanda i for-
kosningum — sjálfar borgar-
stjórnarkosningarnar fara fram
1. april — verða þeir að gera upp
á milli Daley og tveggja sjálf-
Daley borgarstjóri (t.v.) og lögreglustjóri hans, Rochford. Spilling inn-
an Chicago-lögreglunnar gæti orðið Akillesarhæll Daieys.
Fyrsta skipulagða
andstaðan gegn Daley
stæðari flokksbræðra hans og
öldungadeildarþingmanns kjör-
dæmisins, sem er blökkumaður.
Flestir eru þeirrar skoðunar, að
geti einhver sigrað Daley i for-
kosningunum, þá sé það helzt
borgarstjórnarfulltrúinn Willi-
am Singer, sem þekktur er að þvi
að lúta litt flokksaganum. Hann
hefur róið að þvi öllum árum, sið-
ustu sautján mánuðina, að efla
fylgi sitt og safna atkvæðum.
Kosningavél demókrata i
Chicago er svo öflug, að enginn
lætur hvarfla að sér, að þetta
helzta vigi demókrata i Banda-
rikjunum falli i hendur repúblik-
önum. Þá gætu menn alveg eins
látið sér detta i hug, að sjálf-
stæðismenn misstu meirihluta
sinn i Reykjavik.
í þeim 3.211 kosningaumdæm-
um, sem Chicago er skipt i, starfa
trúnaðarmenn Demókrata-
flokksins af eldmóði við að smala
3,5 milljónum kjósenda borgar-
innar að kjörkössunum. Einn
þriðji kjósenda eru blökkufólk.
Daley er fyrir nokkru byrjaður
kosningabaráttuna og hefur kom-
ið viða fram og flutt ræður. Hann
nýtur þar stuðnings fjögurra upp-
kominna sona sinna og tveggja
dætra, sem láta ekkert tækifæri
ónotaö til þess að standa upp og
tala málstað „pabba”. 1
kosningaáróðrinum að undan-
fömu, hefur megináherzlan verið
lögöá það,sem demókratar undir
handleiðslu hans, hafa komið i
verk.
Til þessa hefur þó borgarstjór-
inn neitað að taka þátt i eldhús-
umræðum, þar sem hann þyrfti
að glima við keppinauta sing> inn-
an flokksins. Þeir hafa sjálfir all-
ir haft hann að skotspæni i
kosningaundirbúning sinum.
Enginn þeirra getur státað af
þvi, að hafa svipað þvi eins mik-
il áhrif á landsmálin, eins og
Daley, sem er með voldugustu
mönnum innan Demókrata-
flokksins i Bandarikjunum. Enn i
dag lita menn á hann sem þann,
er bjargaði þvi, að Illinois-riki
greiddi Kennedy atkvæði i for-
setakosningunum 1960. Sérhver
demókrati sem hyggur á forseta-
framboð, kemst ekki hjá þvi að
reyna að fá Daley á sitt band.
En aðstæður hafa þó á ýmsan
hátt breytzt fyrir Daley. Hann
fékk aðkenningu að hjartaslagi i
maimánuði og átti sautján
vikur i þvi. Þeir, sem íylgzt hafa
náið með ferli hans, segja, að
mesti móðurinn sé úr honum.
A siðasta kjörtimabili hans
hafa nokkrir pólitiskir banda-
menn hans og hjálparkokkar ver-
ið sendir i fangelsi fyrir skattsvik
og mútur. Og upp reis mál, sem
stundum hefur verið kallað
Waterga' Chicago. Einir
fimmtiu iglumenn borgar-
innar ha4„ ið dæmdir fyrir allt
milli f járþvingana og grimmdar i
starfi.
Ifíllllllllll
UMSJÓN: G. P.
Chicagoblaðið „Sun-Times”,
sem er óháð, og systurblað þess
„Daily News” (kvöldblað) hafa,
nú hlaupið frá Daley og styöja
Singer. — Hið ihaldssama blað1
„Chicago Tribune”, sem studdi
Daley i siðustu þrem borgar-
stjórnarkosningum, neitar nú al-
veg að styðja nokkurn frambjóð-
anda Demókrataflokksins.
Blaðið segir, að stjórn Daleys sé
orðin stöðnuð, innhverf og spillt.
„Dayley sýnist blindur á, hvernig
helztu bandamenn hans hegða
sér, og hafa þeir þó orðið Chicago
til jafnmikillar skammar á sið-
ustu tveim árum og A1 Capone
var á sinum tima,” segir i einum
leiðara Chicago Tribune.
William Singer, sem „Sun-
Times” og „Daily News” styðja,
ávann sér fjandskap Daleys, þeg-
ar hann fékk þvi áorkað, að
Daley og nefnd hans var ekki
send á þing Demókrataflokksins i
Miami 1972 sem fulltrúar demó-
kratadeildarinnar i Illinois. A þvi
þingi var afráðið, að Nixon for-
seti yrði i framboði fyrir flokkinn
aftur i forsetakostningunum.
Singer hélt þvi fram að nefnd
Daleys, væri þannig skipuð, að
hún gæti alls ekki talizt talsmaður
blökkumanna eða kvenna i
Chicago.
Singer beinir kosningabaráttu
sinni að spillingunni i lögreglunni,
og þvi, sem hann kallar sinnu-
leysi stjórnar Daleys i skólamál-
um borgarbúa. — Singer er 34 ára
að aldri, lágvaxinn og þrekinn,
lögfræðingur að mennt.
Hann hefur gefið upp (sam-
kvæmt bandariskum lögum), að
hann hyggist verja 750 þúsund
dollurum til kosningabaráttunn-
ar. Til að skipuleggja kosninga-
baráttuna fyrir sina hönd hefur
hann fengið sérfræðing frá New
York.
Hjálparkokkar hans segja, að
kosningaherferð hans sé smám
saman að komast i hámark á
réttum tima, viku fyrir sjálfar
kosningarnar. Hæst ris hún i dýr-
um sjónvarpsþáttum siðustu
kvöldin. — Þeir eru bjartsýnir á
sigur.
Annar andstæðinga Daleys er
fyrrum saksóknari Illinois
Edward Hanrahan, sem margir
litu áður á sem arftaka Daleys,
eða þar til hann náði ekki endur-
kjöri i saksóknaraembættið,
vegna sóknar blökkumanna i
þeim kosningum.
Sá ósigur átti rætur sinar að
rekja til húsleitar lögreglumanna '
frá hans embætti 1969 i aðalstöðv-
um „Svörtu pardusanna” i
Chicago. Leiddi hún til þess að
tveir „Svartir pardusar” létu lif
ið. Hanrahan lá undir ámæli um
að hafa ekki þar farið að lögum og
hindrað gang réttvisinnar i rann-
sókninni, sem á eftir fylgdi. —
Hann býður sig þó fram til þess að
hljóta útnefningu demókrata til
borgarstjórnarkosninganna, og
er búizt við þvi að hann muni taka
eitthvað af atkvæðum frá Daley.
Eini blökkumaðurinn, sem
býður sig fram gegn Daley, er
öldungadeildarþingmaðurinn,
Richard Newhouse, sem stendur
að þvi leyti til höllum fæti gagn-
vart hinum, að hann hefur ekki úr
eins miklum fjármunum að spila
til kosningabaráttunnar. Honum
er spáð meira brautargengi eftir
næsta fjögurra ára kjörtimabil.
I vangaveltunum um, hver þyki
liklegastur þessara fjögurra, gef-
ur naumast nokkur gaum fram-
boði repúblikana. Þar er aðeins
einn sem til greina kemur i
framboð til borgarstjórnarkosn-
inganna. John Hoellen, sem er
eini repúblikaninn i 50 manna
borgarstjórn Chicago.