Vísir - 26.02.1975, Blaðsíða 8
r. Miðvikudagur 26. febrúar 1975
Vfsir. Mibvikudagur 26. febrúar 1975
Umsjón: Hallur Símonarson
Ólafur Einarsson. FH, skorar annaö mark Islands f leiknum hjá hinum snjalla Zorko. ólafur skoraöi þrjú mörk f leiknum
— eitt vfti — Zorko varöi 16 skot í leiknum og var inná allan timann. Ólafur Benediktsson varöi 12 skot — Gunnar Einars-
son, Haukum, var i marki smátima og varöi ekki. Ljósmynd Bjarnleifur.
Timbrið var aftur
fyrir Jóhannesi!
Jóhannes Eðvaldsson átti
mjög góðan leik með Hol-
bæk i gærkvöldi, en þá gerði
hið nýja lið hans jafntefli við
sænsku meistarana Malmö
FF. Átti hann mikinn þátt i
jöfnunarmarki Holbæk, sem
kom i síðari hálfleik að sögn
##
Ólafur Benediktsson:
Markvarzlan
bjargaði þeim
##
Ólafur Benediktsson átti góðan
leik á móti Júgóslövunum i gær-
kveldi, og sagði þjálfari þeirra
eftir leikinn, aö hann hefði veriö
bezti maður islenzka liðsins.
,,Ég er ekkert ánægður meö
mig, þvi það voru nokkur skot
sem ég átti aö taka. Siðasta
markió, sem þeir skoruöu, var
sæmt aö fá. Ég var millimeter frá
þvi að ná i boltann — hann rétt
straukst við læriö á mér.
Markvörðurinn þeirra bjargaöi
þeim i þessum leik. Ef hann hefði
ekki variö svona, heföum við unn-
iö leikinn. En hann fékk lfka oft
auðveld skot að glima viö — mun
auðveldari en þessi sem komu á
mitt mark”.
—klp—
þjálfara hans Bosse Ha-
konsson, sem við töluðum
við i morgun.
Stangirnar | vældust fyrir honum i
þessum leik eins og i leiknum i Pól-
landi á laugardaginn. Þá átti hann tvö
skoti stöng, en nú eitt, og auk þess átti
hann þrumuskot af löngu færi, sem
sænski markvörðurinn rétt náði að
verja i horn.
Hann lék i stöðu miðherja i þessum
leik, og var á móti sænska landsliðs-
manninum Kristen Kristensen. Mátti
hann hafa sig allan við til að stöðva Jó-
hannes, en var oft grátt leikinn.
Hakonsson sagðist hafa hug á þvi að
hafa mann i þessari stöðu i sumar —
láta hann liggja aftur og mata hina —
en annars væri hann svo fjölhæfur, að
hægt væri að nota hann i hvaða stöðu
sem væri á vellinum.
Hann sagði, að i gær hefði Knatt-
spyrnusamband Sjálands — SBU —
gefið út tilkynningu um, að Jóhannes
mætti leika með Holbæk i sumar, og
þyrfti hann ekki að vera 6 mánuði i
landinu til að fá að leika. Með þessu
teldu forráðamenn Holbæk það öruggt,
að þeir fengju að hafa hann áfram, en
Knattspyrnusamband Danmerkur —
DBU — ætti eftir að leggja blessun
sina yfir úrskurð SBU. —klp—
Norsku dómararnir:
Vonum bara að Noregur
fói ekki ísland í OL"
„Við höfum oft dæmt hjá islenzka
landsliöinu, og viö erum báöir sam-
mála um aö aldrei höfum við séö það
leika eins vel og I þessum tveim
ieikjum. Okkur er þaö alveg óskilj-
anlegt, aö þetta lið skuli ekki hafa
náð nema 4. sæti á Norðurlandamót-
inu i Danmörku”.
Þetta var það fyrsta, sem norsku
dómararnir Huseby og Nilsen sögðu,
er við töluðum við þá eftir leikinn I
gærkveldi.
„Við vorum rétt i þessu að tala um,
að það væri eins gott að Noregur
fengi ekki Island sem mótherja i
undankeppni olympiuleikana. Þar
yrðu úrslitin ekki nema á einn veg ef
ísland leikur svona.
Siðari leikurinn var betri en sá
fyrri — en mun erfiðari að dæma.
Það er stórkostlegt að dæma hér á
landi — fólkið er með i öllu og hefur
ótrúlega gott vit á handbolta og regl-
unum — svona fólk er gott fyrir leik-
mennina að hafa með sér.
Varnarleikur islenzka liðsins var
skemmtilega útfærður en þó ekki
grófur. Þetta er það eina, sem dugar
á atvinnumannalið eins og þetta
júgóslavneska landslið er. En sókn-
irnar mættu vera beittari. Það er t.d.
ægilegt aö sjá svona stóran leikmann
eins og Einar Magnússon, stökkva
upp, hvað eftir annað, og vera langt
yfir öllum, en snúa sér siðan víö og
senda boltann á næsta mann.
Markvörður islenzka liðsins var
mjög góður i báðum leikjunum — þó
öllu betri i siðari leiknum. Þá var
hann yfirleitt i réttri stöðu, en
vantaði herzlumuninn i að ná boltan-
um. Það er bara æfingarleysi og ekk-
ert annað.
Annars voru þeir beztir i islenzka
liðinu i þessum leik fyrirliðinn —
ólafur Jónsson — sá litli ljóshærði á
linunni — Björgvin Björgvinsson —
ogþessi rauðhærði sem talar dönsku
— Bjarni Jónsson — hann er kveikj-
an i öllu”.
- —klp—
Olympíumeistararnir sigruðu
ó mistökum stórskyttunnar!
Axel Axelsson, sem verið hefur móttarstólpi og aðalskotmaður íslands síðustu órin, bróst
hroðalega í gœrkvöldi og landsliðseinvaldurinn tók hann ekki út af fyrr en leikurinn var tapaður
Olympiumeistararnir höföu
þaö — Júgóslavia sigraöi island
19-17 i siöari leik landanna i þétt-
skipaðri Laugardalshöllinni i
gærkvöldi. Leikurinn var miklu
lakari af hálfu beggja liða en á
sunnudag — harður og grófur, þar
sem leikmenn gengu eins langt og
norsku dómararnir leyfðu, en
meistararnir, þrátt fyrir litinn
meisiarabrag, sigruðu á mistök-
um Islendinga og góöri mark-
vörzlu Zorko, sem varöi miklu
betur en þeir markmenn, sem
stóðu i markinu á sunnudag.
Mistök i islenzka liðinu voru
margvisleg og þar brást Axel
Axelsson hroðalega — leikmaður,
sem verið hefur máttarstólpi is-
lenzka landsliðsins og aðalskorari
undanfarin ár. Skoraði eitt mark,
þegar hann komst inn i sendingu
og brunaði einn upp, i átta skottil-
raunum og sex sinnum glataði
hann boltanum með röngum
sendingum eða tók of mörg skref.
Iðulega skoruðu Slavarnir eftir
mistök hans. Það er leiðinlegt, aö
þurfa að skrifa um þetta — en
ekki hægt að komast hjá þvi.
Þessi atriði skiptu sköpum i
leiknum.
Axel, sem fyrir nokkrum vikum
var skorinn upp við meiðslum I
olnboga, þoldi greinilega ekki það
mikla álag, sem verið hefur á
honum — þoldi ekki að leika
þriðja stórleikinn á fjórum dög-
um. Aðalgalli Axels var að hann
hélt áfram — reyndi og reyndi —
þó ekkert heppnaðist — og lands-
liðseinvaldurinn, Birgir Björns-
son, tók hann alltof seint útaf. Það
var eins og Birgir væri að vona i
lengstu lög að leikur Axels lagað-
ist og það voru hans stærstu mi's-
tök. Þegar Axel kom inn á eftir 8
min. leik var staðan 4-4 — þegar
Birgir loks tók hann út af eftir 9
min. i siðari hálfleik stóð 15-10
fyrir Olympiumeistarana og slikt
forskot láta þeir ekki ganga sér úr
greipum.
Allir landsliðsþjálfarar Islands
i handknattleiknum hafa verið
skammaðir fyrir innaskiptingar
— undantekningarlaust gegnum
árin. Birgir hefur oftast haldið ró
sinni i þvi starfi — en I gærkvöldi
var þvi ekki að heilsa. Innáskipt-
ingarnar voru misheppnaðar —
þó mestu mistökin væru að láta
Axel leika i rúmar 30 min. eins og
hann var fyrirkallaður. Það er
hættulegt að skipta á tveimur
leikmönnum eftir sóknarlotur —
þegar Slavarnir skoruðu fjórða
mark sitt voru íslendingar einum
færri. Pétur Jóhannesson var þá
að koma inn á völlinn. Einar
Magnússon hefur sjaldan eða
aldrei byrjað landsleik betur — i
þeirri stöðu, sem hann leikur i
Vikingsliðinu. Honum var kippt
út af eftir 11 min. og ekki meira
settur inn á i fyrri hálfleiknum
Hann lék mest allan siðari hálf
leikinn — annað hvort úti i horni
eða inn á linu — aldrei i þeirr
stöðu,sem hann hafði átt stórleik i
byrjunarkaflanum.
Bjarni Jónsson gerði sig sekan
um nokkrar villur i byrjun leiks-
ins — var þá snemma rekinn út
af. Haldið allt of lengi á bekknum
— en þegar loks hann kom inn á
aftur varð hann bezti maður ís-
lands eins og i fyrri leiknum á-
samt þeim nöfnum ölafi Ben. og
Ólafi Jónssyni. Sama má einnig
segja um Viðar Simonarson.
Hann var alltof litið notaður, en
var alltaf styrkur fyrir liðið, þeg-
ar hann var inn á. Hörður Sig-
marsson og Ólafur Einarsson eru
greinilega mjög vaxandi leik-
menn i landsliöi — en furðulegt
hve Slavarnir sluppu með brot á
Hörð.
Birgir kom á óvart með liðs-
skipan sinni i byrjun — Bjarni og
Björgvin i hornunum, Ólafur H. á
linunni að nokkru leyti einnig Við-
ar, en Einar og Ólafur Einarsson
fyrir utan. Þetta gekk. tsland
hafði forustu framan af — en
Slavarnir jöfnuðu 1-1, 2-2, 3-3.
Slavarnir komust yfir I 4-3 eftir
slæma skiptingu Ólafs Ein. og
Péturs. ólafur H. jafnaði eftir
góða línusendingu Einars — og
svo var farið að skipta um leik-
menn. Einar og Axel misnotuðu
báðir viti — Zorko hinn snjalli
varði, en greinilegt, að Einari var
þvert um geð að taka vitið.
Slavarnir sigldu fram úr — biliö
jókst allt upp i 15-10. Þá loks fór
Einar Magnússon skorar 3ja mark tslands — brauzt framhjá Horvat og
Pribanic. Hann skoraði tvlvegis og átti þær línusendingar, sem gáfu
mörk I leiknum. 1 kvöld verður Einar aftur I sviösljósinu þegar Víking-
ur Ieikur viö Gróttu i Laugardalshöll I 1. deild kl. 20.15. A eftir leika
Fram og FH.
Axel Axelsson:
„Þessum leik vil ég
gleymo sem fyrst"
„Ég held, aö þaö fari ekki á
milli mála, aö þetta sé ömur-
legasti leikur, sem ég hef leikiö
um dagana. Þaö var sama hvaö
ég gerði, þaö mistókst allt hjá
mér,” sagöi Axel Axelsson eftir
leikinn i gærtveldi.
„Ég vildi helzt gleyma þessum
leik sem allra fyrst. En það verð-
ur áreiðanlega erfitt, þvi þetta
var svo hroðalegt allt saman — ég
hlýt að fá martröð næstu vikurnar
við að hugsa um þetta.
Þeir gáfu mér hvað eftir annað
færi á að senda á linuna — á mann
i dauðafæri — og gerðu það með
vilja. Þegar svo sendingin kom
voru 4 eða 6 hendur komnar á
milli, og allt fór i vaskinn.
Aftur á móti hef ég enga skýr-
ingu á þessum lélegu skotum
minum — nema þá að ég er
þreyttur eftir þennan þeyting á
milli landa. Ég á alveg að vera
orðinn góður i hendinni, svo ekki
var það þvi að kenna.
Annars var ég ánægður með
leikinn — allt nema mitt framlag,
ef hægt er að kalla þaö þvi nafni.”
—klp
islenzka liðið að sýna hvað I þvi
býr — tókst að minnka muninn i
eitt mark 17-18, þegar tæpar þrjár
minútur voru tilleiksloka. Á þeim
tima höfðu þó bæði Arni Indriða-
son og Bjarni Jónsson komizt friir
að marki Slava — en látið Zorko
verja — og Einar og Hörður átt
stangarskot. Vissulega óheppni
að jafna ekki alveg — jafnvel
Nýtt for-
ustulið í
15. sinn!
1 15. sinn á leiktimabiiinu á
Englandi varð breyting á efsta
sætinu I 1. deildinni ensku. Ever-
ton, sem nú stendur vel aö vigi, er
aftur komið á toppinn eftir auö-
veldan sigur gegn Luton Town i
Liverpool. Nokkrir leikir voru
háöir og úrslit þessi:
1. deild:
Everton—Luton
Ipswich—Derby
Leeds—Carlisle
QPR—Middlesbro
2. deild:
Fulham—Sheff.Wed.
3. deild:
Bournemouth—Chesterfield
3:1
3:0
3:1
0:0
2:1
0:0
4. deild:
Lincoln—Mansfield 0:0
Barnsley—Rotherham 1:1
Sigur Everton var auðveldur.
Telfer, Colin Dobson og Bob Latc-
hford skoruöu, en Johnny Aston
eina mark Luton. Leeds fékk á sig
mark i fyrsta skipti síöan 11.
janúar, en það nægöi Carlisle
skammt. Lorimer, Eddie Gray og
Alan Clarke skoruöu fyrir Lceds.
Ipswich vann Derby á mjög sann-
færandi hátt með mörkum John-
son, Lampard og Beattie. 1 2.
deild virðist Sheff, Wed. á leið niö-
ur i 3. deild i fyrsta skipti i sögu
félagsins — félag, sem á glæsileg-
an feril að baki, Fjórum sinnum
orðið enskur meistari og þrisvar
sigrað i bikarkeppninni.
Eftir leikina i gærkvöldi er
staða efstu tiða þannig:
komast yfir, þvi Oli Ben. var i
miklum ham i marki. 1 lokin
sýnriu Slavarnir hvernig að leika
með marki yfir — og juku þá
muninn i stað þess að gefa is-
lenzka liðinu tækifæri á að jafna.
Þá er grátlegt að hugsa til loka-
kafla fyrri leiksins — mistakanna
að sigraekki Olympiumeistarana
þá.
Ýmislegthefur verið gagnrýnt i
þessari grein — þess minna getið,
sem vel var gert. Það var margt,
sem betur fer og það er ekki vafi á
þvi, að mikill kjarni er i þessu Is-
lenzka landsliði Birgis Björnsson-
ar. Þaö er afrek að ná þetta góð-
um árangri gegn Olympíumeist-
urunum og gott til þess að hugsa,
að við eigum landslið, sem átti og
gat, — ef rétt hefði verið haldið á
málunum, bæði hjá leikmönnum
og þjálfara, unnið Olympíumeist-
arana i báðum leikjunum.
—hsim.
Viöar Simonarson, FH, varö þritugur i gær og fékk blóm. Hann átti
snjallan leik — en var of litið notaöur. Ljósmynd Bjarnleifur.
Afmœlisbarnið Viðar Símonarson:
Leikur er við úttum
eins að geta unnið
##
##
Everton
Stoke
Burnley
Ipswich
Liverpool
Leeds
Man.City
30 12 14 4 44:28 38
31 13 11 7 48:36 37
31 15 7 9 52:45 37
31 17 2 12 45:29 36
30 14 7 9 42:31 35
31 14 7 10 43:32 35
7 9 42:41 35
30 14
1 Swansea vann Wales Skot-
land 2-0 I landsleik — leikmenn
23ja ára og yngri. Þeir Small-
mann (Wrexham) og Leighton
James (Burnley) skoruðu mörk-
in. —hsim.
Viöar Simonarson átti þritugs-
afmæli i gær, og jafnframt lék
hann sinn 76. landsleik fyrir ts-
land. Hann var alls ekki ánægöur
meö útkomuna, þegar viö töluö-
um viö hann eftir Ieikinn — hafði
gert sér von um að fá góöa
afmæiisgjöf.
„Þetta var leikur, sem við átt-
um alveg eins að geta unnið og
þeir, en við vorum ekki eins
heppnir og oft i fyrri leiknum.
Það var allt of mikið um mistök
og vafasöm skot i sókninni, en
aftur á móti var ég nokkuð á-
nægður með varnarleikinn. Við
fengum hvert dauðafærið á fætur
öðru og áttum að gera skorað
mikið fleiri mörk. En markvarzl-
an hjá þeim var ofsaleg ofan á allt
annað sem okkur gekk á móti”.
Björgvin Björgvinsson:
„Eg verð með ef ég
verð beðinn um það"
„Þaö hefur ekkert veriö um þaö
rætt, hvort ég verði meö áfram”,
sagði Björgvin Björgvinsson hinn
frábæri linumaöur landsliðsins —
eina liösins, sem hann leikur meö
um þessar mundir — er viö töluö-
um viö hann eftir leikinn i gær.
„Ég ætla mér að vera á Egils-
stöðum, þvi ég og fjölskylda min
kunnum m jög vel við okkur þarna
fyrir austan. En ég hef mikinn á-
huga á þvi að vera með landslið-
inu áfram og mundi gera það, ef
ég verð beðinn — en það hefur
ekki verið gert.
Aöstaða til æfinga á Egilsstöð-
um er ekkert sérstök, en þó
treysti ég mér vel til að halda mér
i formi — ég hef a.m.k. ekki verri
tima til þess en hér fyrir sunnan.
Ef til þess kæmi, myndi ég fara
eftir æfingaprógrammi frá lands-
liðsþjálfaranum og siðan skreppa
suður, ef eitthvað mikið er i húfi.
Ég óttast ekki, að ég falli ekki inn
i liðið þrátt fyrir það þvi með
þessum strákum hef ég æft og
leikið i tug ef ekki hundruð
skipta”.
—klp—