Vísir - 05.03.1975, Blaðsíða 1
65. árg. Miðvikudagur 5. marz 1975 — 54. tbl.
PÚSTRARí
LANDSLEIK
Tékki í valnum
íslendingur fallinn
— íþróttir í opnu
um landsleikinn
Úr háalofti
niður í
djúpin blá
— bls. 3
„Á svipað
lið eftir
og Keres"
— sagði Friðrik
í morgun
— baksíða
„Þekki
bœndur að
því að vera
ábyggilega"
- segir mjólkur-
bústjórinn í
Borgarfirði
- Sjá baksíðu
Koma og
kaupa 2.4
millj. kr.
bíla,
— þrátt fyrir
allt — bls. 3
Loðnubátur strandar við Ingólfshöfða í nótt:
Áhöfnin bjargaðist í
Vestmannaeyjabáturinn 3,8 milur vestur af Ingólfs- nótt. Kall barst til loft-
Isleifur VE-63 strandaði höfða um Klukkan eitt í skeytastöðvarinnar á
land
Hornafirði og kom hún
hjálparbeiðninni áfram til
björgunarsveitar slysa-
varnafélagsins í öræfum.
Björgunarsveitin bjó sig
þegar til aðgerða og hélt
niður á sandinn, en vegna
óveðurs var ófært niður að
strandstaðnum.
Björgunarsveitin varð því
að snúa við.
Um klukkan hálfsex i morgun
var haft samband viö skipstjór-
ann á ísleifi um borði bátnum. Þá
varð næstum komizt þurrum fót-
um i land frá bátnum.
Skipstjórinn kvaðst þá hafa
tekið á það ráð, að halda til lands
með gúmbát og hafast við i hon-
um á sandinum ásamt áhöfn sinni
unz hjálp bærist. Um klukkan 7.15
var öll áhöfnin tólf manns komin i
land.
Um klukkan sex i morgun lagði
björgunarsveitin i Oræfum enn til
atlögu við sandinn. Haldið var frá
Fagurhólsmýri á nokkrum jepp-
um og þess freistað að komast
niður á strandstaðinn. A leiðinni
er yfir illfær vötn að fara og verð-
ur að fylgja stikum niður á sand-
inn. A sandinum voru i morgun
um niu til tiu vindstig. Fyrir
björgunarsveitinni er Páll
Björnsson á Fagurhólsmýri.
Varðskip hélt þegar á strand-
stað er fréttist um strandið, en þá
voru einnig tveir loðnubátar þar
staddir, sem fylgdust með fram-
vindu mála.
Um neyöartalstöð i gúmbátn-
um gátu skipbrotsmennirnir haft
samband við varöskipiö og
er samband var haft við skipiö i
morgun var ekki annað vitað, en
áhöfnin á Isleifi væri hin hress-
asta.
Rétt fyrir ellefu hafði
björgunarsveitinni enn ekki tekizt
að ná á strandstaðinn, en hún er
talstöðvarlaus og þvi ekki hægt að
frétta af ferðum hennar. Sveitin
hafði verið á ferðinni frá þvi
klukkan sex um morguninn og er
þviljóst,að færðin er mjög slæm.
ísleifur VE-63 er 243 tonna
stálbátur smiðaður i Noregi 1967.
Hann var á loðnuveiöum er
óhappió varð. — JB
Gleymskan bjargaði íbúðinni!
kveikt í á þremur stöðum í gœr
„Við vorum að fara
út úr húsinu, og vorum
reyndar komin út, þeg-
ar það uppgötvaðist, að
hlutur hafði gleymzt.
Við snerum inn aftur,
og þá sá sonur minn
eldinn. Mér tókst strax
að kæfa hann með
teppi.”
Þetta sagði Orri Hjaltason,
sem býr á Hagamel 8, en i búri
við Ibúð hans kom upp eldur i
gær, og reyndist um ikveikju að
ræða.
Ef ekki hefði verið snúið inn
aftur, hefði getað orðið um mik-
inn bruna að ræða. Orri sagði,
að sézt hefði til ungra stráka,
sem voru með eldspýtur á göt-
unni.
Eru þeir grunaðir um að hafa
reynt að ýta virneti frá glugga á
búri við Ibúðina og troðið eld-
spýtu meðfram. Læstist eldur-
inn I gluggatjöld sem voru fyrir
glugganum og siðan komst
eldurinn i kassa með blöðum og
öðru dóti.
Mikill reykur myndaðist, en
engar skemmdir urðu af hans
völdum.
Tvær aðrar ikveikjur áttu sér
stað I gærdag og fór slökkviliðið
á báða staðina. A öðrum staön-
um hafði eldur verið kveiktur i
opnum hitaveitustokk uppi i
öskjuhlið og á hinum hafði veriö
kveikt I sinu við Tungu viö
Suöurlandsbraut. — EA/JB