Vísir - 05.03.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Miövikudagur 5. marz 1975
5
REUNTTEBR morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í mo Umsjón: G.P.
Snúa Berlín við í
leit að rœningjunum
Naumast varð þverfót-
að í Vestur-Berlfn í
morgun fyrir vopnuðum
lögreglumönnum/ götu-
tálmunum hennar og við-
búnaði öðrum vegna um-
fangsmikillar leitar, sem
nú er gerð að ræningjum
Peter Lorenz.
Strax og hann kom
fram um miðnættið i nótt
og hringdi úr símaklefa
til þess að láta konu sína
vita, að hann væri laus úr
vörzlu ræningjanna, hófst
Berlinarlögreglan handa.
Aðallega er leitað átta grun-
aðra, en lögreglan lét dreifa
myndum af þeim og nöfnum
þeirra i nótt. Lögreglustjóri V-
Berlinar sagðist ekki lengur
telja sig bundinn af fyrri griðum
við ræningjana.
Léitað var i fjölda húsa.
Kommúna ungs fólks var rann-
sökuð, fjöldi fólks stöðvaður og
yfirheyrður og vörður hafður
við allar járnbrautarstöðvar,
flugvelli og landamærahlið.
En lögreglan hefur þó naum-
ast nokkuð eftir að fara til þess
að hafa hendur i hári 2. júni-
hreyfingarinnar, sem rændi
Lorenz.
Lorenz var sleppt i skrúðgarði
sex klukkustundum eftir að
Heinrich Albertz kom frá Suður-
Jemen og sagði að stjórn-
leysingjunum fimm hefði verið
veitt þar hæli með þvi skilyrði,
að Lorenz yrði sleppt. Lorenz
var festur með limböndum á
einn garðbekkinn, en hann fékk
auðveldlega losað sig. Gekk
hann þá til næsta simaklefa og
hringdi til konu sinnar, sem
sótti hann.
Heimilislæknir hans skoðaði
hann og skýrði svo frá, að Lor-
enz væri við beztu heilsu.
Meðal þeirra fyrstu, sem náðu
tali af Lorenz, var Klaus
Schuetz, borgarstjóri og keppi-
nautur Lorenz. — Schuetz
kvaðst þvi feginn, að Lorenz
hefði verið heimtur aftur.
Nær öll þýzka þjóðin horfði á
sjónvarpið, þegar séra Heinrich
Albertz flutti orðsendinguna frá
Suður-Jemen. Nær öll samtöl
ræningja og yfirvalda i þessu
máli hafa verið flutt samtimis i
útvarpi og sjónvarpi. Las
Peter Lorenz
kominn fram.
Rœningjarnir
slepptu honum
í gœrkvöldi
presturinn orðsendingu stjórn-
leysingjanna upp af miða.
Fögnuðu þeir þessum „yndis-
lega degi” og lofuðu að beita
allri orku sinni til þess, að aðrir
félagar gætu iifað slikan sigur-
dag.
Þessi mynd var tekin um miðnætti i nótt og sést hvar Peter Lorenz og konu hans er ekið i lögreglubifreið burt úr garöinum, þar sem ræningj-
ar hans skildu hann eftir.
Þýðir ekki oð
olíu-
draga
neyzlu,
Alsir hefur lýst þvi
yfir á ráðstefnu oliu-
framleiðslurikja, sem
nú stendur yfir, að oliu-
útflutningslöndin mundu
tilleiðanleg að frysta og
jafnvel lækka verð á
oliu. Iðnaðarrikin yrðu i
staðinn að taka höndum
saman til þess að endur-
skipuleggja efnahagslif
heimsins.
Houari Boumedienne, forseti
Alsír, lagði fram á ráðstefnu
OEPC i Alsfr i gær hugmyndir
um, hvernig oliuframleiðendur og
iðnaðarþjóðir gætu hjálpað hin-
um snauðari þjóðum til mann-
dóms.
Hann varaði Vesturlönd við
tilraunum til þess að reyna að
draga úr oliuneyzlunni, og þann
veg lækka oliuverðið. Kvað hann
slikt dæmt til þess að mistakast.
Boumedienne sagði, að auðvit-
úr
— segir Boumedienne
forseti Alsír, en segir
OPEC-ríkin tilbúin að
frysta eða lœkka
olíuverðið, ef
sanngirni verði sýnd
ó móti
að mundu oliuframleiðendur
frysta oliuverðið, ef þeir sæju sig
tilneydda, og jafnvel lækka það
lika. En þó þvi aðeins, að fátækari
löndum heims væru tryggð sann-
gjörn kjör I viðskiptum.
Jörgensen forsætisráðherra
boðar afskipti rikisstjórnar
Dana af kjara málunum, ef
samningar nást ekki.
Foringja-
skipti í
gríska
hernum
Frakkar halda áfram
tilraunum með kjarnorkuvopn
Yvon Bourges, varnarmálaráö-
herra Frakka, sagöi i gær, að
Frakkland mundi halda áfram
tilraunum neöanjaröar meö
kjarnorkuvopn á þessu ári.
Hann vildi ekki segja blaða-
mönnum, hvenær þessar tilraunir
mundu eiga sér stað á árinu, en
þær verða i Kyrrahafinu. Senni-
legast þá i námunda við Muru-
roaeyjaklasann, þar sem Frakk-
ar hafa undanfarin ár sprengt
kjarnorkusprengjur sinar.
Franska stjómin hætti að gera
tilraunir sinar i andrúmsloftinu
eftir mótmæli Ástraliu, Nýja
Sjálands, Japans, Perú og fleiri
Suður-Amerikulanda.
Danska stjórnin grípur-
inn í launadeiluna, ef....
Anker Jörgensen, for-
sætisráöherra, sagöi í gær-
kvöldi, að stjórn
sósía Idemókrata mundi
grípa inn í kjaradeilurnar í
Griska stjórnin vék i gær 22
foringjum hersins frá störfum i
samræmi við loforö sitt um að
hreinsa til innan hersins eftir
samsærið, sem komst upp um i
siðustu viku.
1 yfirlýsingu stjórnarinnar seg-
ir, að þessar uppsagnir séu bæði
til þess að tryggja, að æðst-
ráðendur hersins virði lýðræði.og
jafnframt eðlileg mannaskipti.
Um þessar mundir ter varnar-
málaráð Grikklands yfir skýrslur
foringjanna og ákveður, hverjir
verða hækkaðir i tign, hverjir
lækkaðir og hverjum vikið burt
eða settir á eftirlaun.
landinu, þar sem óttazt er,
að um 300 þúsund verka-
menn ýmist fari i verkföll
eöa lendi í verkbönnum. —
Það er um fjórðungur
vinnuaflsins i Danmörku
Forsætisráðherrann lýsti þessu
yfir, þegar i ljós kom i gær, að
samtök vinnuveitenda annars
vegar og launþegar hins vegar
höfðu ekki náð samkomulagi i
launadeilunni. Siðasta tveggja
ára samningstimabil rann út á
laugardaginn.
Jörgensen gerði grein fyrir þvi,
að stjórnin mundi leggja fram
frumvarp, sem mundi ákveða
laun og kjör, og var það
samþykkt á fundi þingflokksins i
gærkvöldi.
Ekkert hefur verið látið uppi
um, hvers vegna ekki gengur
saman i launadeilunni.
Lestarstjórinn síðastur
Björgunarmenn hafa nú náð
siðasta likinu úr neðanjarðarlest-
inni, sem rakst á endann á undir-
göngunum i i.ondon á föstudag. —
Alls fórst 41 með lestinni, og er
þetta versta slys I neöanjarðar-
brautum Breta.
Það torveldaði mjög
björgunarstarfið, hve þröngt var i
gangnaendanum, og hiti og eitur-
gufur gerðu björgunarmönnum
mjög erfitt fyrir.
Enn er ekkert vitað um, hvað
olli slysinu. Lestarstjórinn beið
bana og er þvi ekki til frásagnar.
Lik hans var það síöasta, sem
náðist úr brakinu.