Vísir - 05.03.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 05.03.1975, Blaðsíða 16
visir Miövikudagur 5. marz 1975 Friðrik að ná öðru sœtí í Tallin „Á eftir svipað lið og Keres" — sagði hann í morgun //Þetta mót er orðið lengra lagi, finnst mér," sagði Friðrik Ólafsson, viðtali við Vísi í morgun. ,,Það er bezt að tala ekki of mikið um góða frammistöðu, fyrr en mótið er búið, en þetta hefur verið ágætt." Friðrik er væntaniega að komast í annað sætið á hinu geysisterka skákmóti í Tallin í Sovét- rikjunum. „betta stendur skár hjá mér, en ekki er þar með sagt, að ég vinni skákina,” sagði Friðrik um biðskák sina við Nei, sovézkan stórmeistara. Verði hún jafntefli, verður Friðrik ásamt Bronstein i 2.-3. sæti. „Keres á biðskák við Taimanov og stendur betur,” sagði Friðrik, og það þýðir, að Keres heldur 1. sætinu eftir 12 umferðir, þótt Friðrik ynni Nei. Friðrik sagði, að þrjár umferðir væru eftir. Friðrik á eftir að tefla við Bronstein, Hernandez og Gipslis en Keres á eftir Espig, Spasski og Lombardi, og taldi Friðrik þetta nokkuð svipað liö, sem þeir eiga eftir hann og Keres. „Ég tefli hér ekki til aö fá verðlaun, heldur til að fá æfinguna. Ég byrjaði hægt, eins og ég væri ekki alveg búinn að taka við mér. Ég fékk þá nokkrar erfiðar biðskákir, en ég komst vel fram úr þeim. Siðan hefur gengið betur.” Friðrik sagðist vera farinn að þreytast nokkuð, þar sem mótið væri svo langt. „Maður lætur hverjum degi nægja slnar þján- ingar,” sagði hann. Mótinu lýkur 9. marz. — HH „Mér finnst mótið oröiö nokkuö langt,” segir Friörik. „Þekki bœndur að því að vera ábyggilega" — segir mjólkur- bústjórinn í Borgarfirði — Löggiltur eftirlitsmaður skipaður, en engin kœra ,,Ég hef nú löggilt eftirlitsmann til þess að taka mjólkursýni á bæjunum i Mýra- og Borgarfjarðarsýslum samkvæmt beiðni mjólkurbústjórans. Mér er og kunnugt um það, að hann hefur skrifað til sýslumanns- ins i Stykkishólmi um, að einnig verði löggilt- ur eftirlitsmaður fyrir Snæfellsnes.” betta sagði Asgeir Pétursson sýslumaður i Borgarnesi, þegar Visir ræddi við hann i morgun varðandi mál tveggja bænda, sem grunaðir voru um að blanda vatni i mjólkina. Aö sögn Asgeirs er hlutverk þessara eftirlitsmanna það að taka sýni beint úr mjólkurtönk- unum, þ.e.a.s. áður en mjólk- inni er dælt á bilana. bessir eft- irlitsmenn fara siðan með sýnin til mjólkurbúsins. Áður tóku bflstjórar sýnin. Asgeir sagði, að ekki hefði verið kært I málinu. bá kvaðst, hann halda, að þeim skiptum, sem mjólkursýni eru tekin, yrði fjölgað, en enn hefur þó ekki verið gerð nein áætlun um það. Mjólkursýni hafa verið tekin vikulega, en þegar við höfðum samband við mjólkurbústjór- ann, Sigurð Guðbrandsson, sagði hann, að sýnin hefðu mjög oft verið tekin oftar. Hér viröist vera um eitt tilfelli hjá tveimur bændum að ræða. Sigurður sagði, aö mál þetta hefði komið upp i júli, að mjólk- urprufa reyndist athugaverð. Eftir tvo daga var aftur tekin prufa, en þá reyndist allt vera i lagi, og ekkert hefur komið upp siöan, að sögn Sigurðar. bá sagði Sigurður, að þó að slikt hefði komið upp nú, væri engin sönnun fyrir hendi um, að þetta væri tiðkað. Fleira er það, sem þarf að rannsaka varðandi mjólkina, en að vatni sé blándað I hana. Heildargæði hennar verður að rannsaka. „En ég tel þetta ekkert stór- mál”, sagði Sigurður að lokum. „Ég þekki bændur að þvi að vera ábyggilega i viðskiptum.” Vill stokka upp sjóðakerfið Ráðherra leggur til að útgerðin greiði ekki olíuhœkkunina mm „bað er stefnt að því, að út- gerðin þurfi ekki að greiða þá oliuhækkun, sem varð um ára- mótin, og oliuhækkun, sem geng- isfellingin veldur,” sagði Matthias Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, i morgun. Með framlögum úr rikissjóði? „Hér verður um að ræða tilfærslur milli vinnslu og veiða.” „bað er fullur vilji fyrir þvi hérna megin,” sagði ráðherra, „að stokka upp sjóðakerfi sjávar- útvegsins . En við getum ekki breytt þvi einir, til þess þarf sam- komulag útgerðar og sjómanna. bað þarf að gerbreyta hlutaskipt- unum, ef þetta á að verða hægt. bað gengur ekki, ef allir halda dauðahaldi i sitt. Ég vona, að meirihluti þjóðarinnar stefni enn að þvi marki að halda útgerðinni i gangi.” Ráðherra sagði, að unnið væri að ráðstöfunum fyrir útgerðina „alla daga”. „Ég vona, að upp úr helginni • verði farið að siga á seinni hlutann i þessu,” sagði hann. — HH. Frost ó Fróni Sumir voru orönir svo bjart- sýnir að haida að vor væri I lofti. En þvl var nú ekki fyrir að ’fara, og það fundum við bezt þegar við skreiddumst fram úr I morgun. Nistandi kuldi og föl á jöröu var það, sem mætti okkur. En ekki þýöir að kvarta við veðurguði. Bezt er að vef ja sig I ullarflikur, þvi það er ullin sem blivur, þegar svona viðr- ar. — EA/ljósm BP Selja þeir rœkjufjallið ó góðu verði? — og vóntrúaðir „Söiuhorfur á rækju eru ekki góöar, sem stafar af mikiu framboði. Ég tel, aö verð þessa kaupanda I Sviþjóð, sem viil kaupa rækju fyrir 19 kr. sænsk- ar sé óraunhæft, og að hann geti ekki staðið við gerða samn- inga,” sagöi Ólafur Jónsson að- stoðarframkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar S.Í.S. i viö- tali við VIsi I morgun. Útflutningsfyrirtækið UNEX i Reykjavik hefur i höndunum samning við sænskan aðila um sölu á allt að 400 tonnum af rækju á mjög hagstæðu veröi, eða 19 kr. sænskum fyrir hvert kíló. Ólafur sagöi, að islenzkir framleiöendur hafi i Svíþjóð fengiðhæsta fáanlega verð, sem fæst fyrir rækju af þessum gæðaflokki. Óiafur upplýstienn- fremur, að rækjan væri seld svo að segja frá degi til dags, og hæsta raunhæfa verðið væri 17.50 til 18.00 kr. sænskar. „bað er vissulega gleðilegt, ef Unex tekst að selja nokkúrn veginn alla þá rækju, sem til er á tslandi fyrir gott verö. bað hljóta allir að vera ánægöir meö það”, sagði Richard Björgvins- son, forstjóri Langeyrar, eins stærsta útflytjanda rækju und- anfarin ár. Hann bætti viö, að sér kæmi þetta mjög á óvart. Hann hefði ekki verið mjög bjartsýnn á markaðinn á rækju, enda hefði hann verið mjög erfiður undan- farið, en þetta væri mjög ánægjulegt. — EVI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.