Vísir - 06.03.1975, Síða 3
Visir. Fimmtudagur 6. marz 1975
3
Taka Kanarí fram yfir Kaupinhöfn
Klipið af millilandafluginu
Ekkert verður flogið
til Kaupmannahafnar i
dag. Stafar þetta af
þotufæð Flugleiða h.f.,
og hefur nú tvo
fimmtudaga i röð orðið
að fella niður áætlað
fimmtudagsfiug til
Kaupmannahafnar af
þessum sökum.
Þá hefur þriðjudagsflugið
jafnframt færzt af miðjum
deginum fram á nótt. Stafar það
af því, að sama þotan þarf á ein-
um degi að fljúga til London
fram og aftur og siðan til Kaup-
mannahafnar og til baka.
Þessar niðurfellingar og
breytingar stafa af þvi, að önn-
ur Boeingþota félagsins er nú i
skoðun i Englandi. Væntanlega
verður skoðun lokiö nú eftir
helgina og kemst þá auglýst
áætlun aftur i réttar skorður.
Snemma i janúar tilkynntu
Flugleiðir, að vegna skoðana
þotanna yrði nokkur röskun á
flugi félagsins til óslóar og
Stokkhólms á timabilinu 27.
janúar til 21. febrúar.
Samgönguráðuneytinu var
tilkynnt um þessa breytingu. Er
ónógum flugvélakosti var kennt
um þessa röskun, bauðst Air
Viking til að taka að sér umrætt
flug til Skandinaviu, en sam-
gönguráðuneytið hafnaði þvi á
þeirri forsendu, að það teldi
ekki ástæðu til að skerast i
leikinn.
Skömmu eftir þetta var ferða-
skrifriofum svo tilkynnt um, að
nokkrar fimmtudagsferðir til
Kaupmannahafnar legðust
niður og jafnframt, að þriðju-
dagsflugið yrði kvöldflug.
Visir hafði samband við
Brynjólf Ingólfsson, ráðuneytis-
stjóra samgönguráðuneytisins
og spurði, hvort þessi breyting
hefði verið gerð með þeirra
samþykki.
„Okkur var tilkynnt um
breytingu á timabilinu 27. janú-
ar til 21. febrúar. En varðandi
þessa niðurfellingu Kaup-
mannahafnarflugs kem ég al-
veg af fjöllum”, sagði Brynjólf-
ur.
Flugáætlanir hvers árs eru
lagðar fyrir samgönguráðu-
neytið, sem samþykkir þær eða
hafnar. Ef ráðuneytið telur að
fjöldi ferða á áætlunarflugleið
fullnægi eftirspurn ekki nægjan-
lega, getur það skorizt i leikinn
og farið fram á fjölgun ferða.
„Við getum skorizt i leikinn,
ef við teljum sætafjölda ekki
nægjanlegan, en um þessa nið-
urfellingu fimmtudagsflugs get
ég ekki tjáð mig, þar eð okkur
hefur einfaldlega ekkert verið
um það tilkynnt,” sagði
Brynjólfur Ingólfsson.
Tvær niðurfellingar áætlunar-
flugs 27. febr. og 6. marz stafa
eingöngu af brunanum á
Reykjavikurflugvelli i janúar,
segja Flugleiðir.
Tjón varð á varahlutum i
flugvélar og skoðanir, sem ann-
ars hefði'Verið hægt að fram-
kvæma hér heima, urðu að fara
fram erlendis. Báðar Boeing-
þotur Flugleiða urðu þvi úr um-
ferð lengur en áætlað var.
A þriðjudögum og fimmtu-
dögum sköpuðust vandræði af
þessum sökum. A fimmtudög-
um fljúga Boeingþotur til
Kanarieyja og Kaupmanna-
hafnar.
Akveðið var að sleppa Kaup-
mannahafnarfluginu tvo
fimmtudaga og fljúga áfram til
Kanarieyja á umræddum degi.
Eftir sameiningu flugfélaganna
rikir nú engin samkeppni á
Kaupmannahafnarleiðinni, en
aftur á móti eru Flugleiðir i
samkeppni við Air Viking i
Kanariey jaferðunum.
„t farseðlum, sem menn
kaupa, og eins i áætlunum
félaga er tekið fram, að fella
megi niður flug án fyrirvara. Ef
viðkomandi félag vill breyta
brottfarartima til dæmis, getur
það gert það án fyrirvara”,
sagði Birgir Þorgilsson sölu-
stjóri.
„Þegar um breytingar á
áætlunarflugi er að ræða, er
venjulega leitað eftir samþykki
samgönguyfirvalda, jafnt og
upphaflegar áætlanir eru born-
ar undir samþykki þeirra,”
sagði Birgir Þorgilsson.
Eins og fram hefur komið hef-
ur samgönguráðuneytinu þó
ekki verið tilkynnt um niður-
fellingar Kaupmannahafnar-
ferðanna. Eingöngu var tilkynnt
um þessa breytingu til þeirra
ferðaskrifstofa, sem selja far-
seðla fyrir flugfélagið.
„Ég held ekki, að það sé nein
tilkynningaskylda um það til
ráðuneytisins, þótt svona ferðir
falli niður,” sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða i
viðtali við Visi.
Flugleiðir telja, að ekki hvili á
félaginu sú skylda að sjá við-
skiptavinum sinum fyrir flugi til
Kaupmannahafnar þá fimmtu-
daga, sem áætlunarferðum
félagsins er aflýst, enda ferðir
alla aðra dága vikunnar. Þó er
vitað til þess að á fimmtudaginn
i siðustu viku var Flugleiðaþota,
sem var að leggja af stað frá
Luxemburg látin fresta brottför
um stund á meðan hún beið eftir
farþega, sem sótti það-fast að
komast til íslands á umræddum
degi. Farþeginn hafði ráðgert
að fljúga frá Kaupmannahöfn,
en er hann komst að þvi, að
ferðin hafði verið felld niður,
krafðist hann þess að sér yrði
gert kleift að komast til Luxem-
burg. Þess má að lokum geta,
að skoðanir á Boeingþotum
Flugleiða hafa frá öndveröu
farið fram i janúar—-febrúar,
enda er þá minnst um að vera i
millilandafluginu. — jb
Hestvagn
úr villta
vestrinu...
Það var verið að leggja siö-
ustu hönd á undirbúning kaup-
stefnunnar islenzkur fatnaöur,
þegar Vísismenn litu inn á Hótel
Loftleiðir I morgun, en kaup-
stefnan verður sett I dag.
Eitt af þvi fyrsta, sem mætir
augum manns, er gamall hest-
vagn úr villta vestrinu. Ekki er
hann þó alveg ekta, heldur er
þetta einn sýningarbásinn, og
hefur hann að geyma gallabux-
ur og flauelsbuxur. Kúrekarnir
vestra fóru vist ekki i annað, svo
það er vel tilheyrandi að minna
svolitið á þá.
17 fyrirtæki sýna þarna vor-
og sumartizku sina, en kaup-
stefnan stendur yfir frá þvi i dag
til 9. þessa mánaðar. Er þetta i
14. sinn, sem kaupstefnan er
haldin.
Þeir, sem lita á sýninguna
ættu að kynnast islenzkum fatn-
aði nokkuð vel. Þarna er að
finna skó, buxur, leðurvörur,
prjónavörur, skó og fleira mætti
upp telja. Og þá er bara að bera
islenzku framleiðsluna saman
við þá erlendu. —EA
Friðrik í
öðru sœti
Frikrik Ólafsson er nú I ööru
sæti á skákmótinu I Tallin i Sovét-
rlkjunum meö 8,5 vinninga. 1
fyrsta sæti er Keres frá Sovét-
rikjunum, sem er meö 9 vinninga.
Friörik vann i gær stórmeistar-
ann Nei. Aðeins biðskákir voru
tefldar i gær, en þrjár umferöir
eru eftir og 12 lokið.
Friðrik á nú eftir að tefla við
Bronstein, Hernandez og Gipslis
en Keres á eftir: Espig, Spasski
og Lombardi. Sagði Friðrik I við-
tali við Visi i gær, að þetta væri
nokkuð svipað lið, sem þeir eiga
eftir, hann og Keres.
Staöa þeirra, sem Friðrik á eft-
ir að tefla við, er þessi:
Hemandez hefur 3,5 vinninga,
Bronstein hefur 8 vinninga og
Gipslis hefur 7 vinninga. — EA
VISIR flytur nýjar fréttir
Vísiskrakkamir bjóða fréttir sem
skrifaðar voru 2 H klukkustund fyrr.
" VÍSIR fer í prentun kL hálf-ellefu að
morgni og er á götunni klukkan eitt.
.,1
I' íyrstur meó
fréttimax
VISIR
Meðal vinninga: Brother prjónavél að
verðmæti 47.000.00 kr. Þrjár Spánar-
ferðir og vöruúttekt hjá Ingvari &
Gylfa að verðmæti 25.000.00 kr., auk
fjölda annarra stórglæsilegra vinn-
inga. ENGINN VINNINGUR UNDIR
10.000.00 KR.
VINNINGAR IIALF IVHUÓN KRÓNA.
Spiiaðar verða
18 umferðir.
ilúsið
opnað klukkan 7.
Knattspyrnudeild Fylkis.