Vísir - 06.03.1975, Síða 7
Vlsir. Fimmtudagur 6. marz 1975
7
cTMenningarmál
Háskólabió: „Hinn blóðugi
dómari” (Judge Roy Bean)
Leikstjóri: John Huston
Aðalleikendur: Paul Newman,
Jacqueline Bisset, Victoria Prin-
cipal, Anthony Perkins, Roddy
McDowall, Stacy Keach, Ava
Gardner, John Huston.
Hann fæddist í Ken-
tuckyríki áriö 1825. 23 ára
gamall lagöi hann af stað
til mexíkönsku landamær-
anna með bróður sínum
Sam til að eiga viðskipti
við þarlenda.
Piltunum áskotnaðistféen voru
reknir úr landi fyrir að hafa verið
of nærgöngulir við innfæddar
konur, að þvi er talið er.
Þetta er það sem vitað er um
Roy nokkurn Bean, sem með tim-
anum átti eftir að verða ein af
★ ★ ★ Háskólabíó: „Hinn blóðugi dómari"
Ein af þjóðsögum
Villta vestursins
sem féll ofan af brú og hálsbrotn-
aði. Dómarinn fyrirskipaði rann-
sókn og þegar leit á likinu leiddi i
ljós 40 dali og byssu af gerðinni
Colt 45 þá lýsti dómarinn þvi yfir,
að likið skyldi sektað um 40 dali
fyrir að bera skotvopn.
Ibúar Langtry eru nú aðeins 200
talsins en i næsta bæ Del Rio, sem
er heldur stærri er að finna safn
til minningar um Roy Bean dóm-
ara. íbúar Langtry hafa aftur á
móti hjá sér gálgatré eitt mikið,
sem þeir segja að hafi tilheyrt
dómstól gamla Roy Bean.
Þetta er sagan sem leikstjórinn
John Ford spinnur kvikmynd sina
um Roy Bean dómara i kringum.
Efnismeðferðin er þó mjög frjáls
og mjög skemmtilegt dæmi um
það, hvernig handleika má þjóð-
sögu i kvikmynd.
Roy Bean dómari hefur áður
verið festur á filmu. Arið 1940
fékk Walter Brennan Óskars-
verðlaun fyrir að leika hann i
myndinni „The Westerner” og
Edgar Buchanan lék hann i sjón-
varpsþáttum fyrir nær tuttugu
árum.
Efnismeðferðin þar var á hefð-
bundin kúrekahátt, eins og efnið
gefur lika fullt tilefni til. En kvik-
myndagerð John Ford er i senn
fersk og nýstárleg. Sagan um Roy
Bean er fantasia og þvi er kvik-
myndin það að nokkru leyti líka.
Þarna sjáum við Paul Newman
i ágætu formi, Ava Gardner eftir
átta ára hlé, byrjandann Victoriu
Principal, apaplánetuleikarann
Roddy McDowal og Anthony
Perkins, i ágætu gervi prestsins.
En það er þó Stacy Keach sem
er frábær i stuttu atriði sem hvit-
ingjabófinn Bad Bob. Á tveim
minútum skapar hann persónu,
sem allt að þvi kippir fótunum
undan öllum þeim kúrekaill-
mennum, sem áður hafa birzt á
hvita tjaldinu.
hinum fjölmörgu þjóðsagnarper-
sónum Villta vestursins.
Það er einnig vitað, að þegar
Roy var 26 ára hafi hann haldið til
San Diego, þar sem annar bróðir
hans Joshua græddi vel sem krá-
areigandi. Þátttaka i einvigi sá
Bean fljótlega fyrir vist i fangelsi,
en hann flúði þaðan og gerðist fé-
lagi Joshua i rekstri nýrrar kráar
i öðrum bæ.
Joshua lét seinna lifið i einvigi
við uppstökkan viðskiptavin og þá
hélt Roy Bean fyrst til Nýju Mexi-
kó og siðan til Texas. 1 siðar-
nefnda rikinu græddist honum fé
með þvi að fylgja nýju járnbraut-
inni út frá San Antonio og reisa
krár og spilaviti samtimis þvi,
sem lestin teygði sig lengra og
lengra i vestur.
Siðan er vitað, að Roy Bean
settist að lokum að i námunda við
Eagles Nest Springs i Texas-riki
og opnaði enn eina krána. Hér
tekur þjóðsagan við og sam-
kvæmt henni átti hann að hafa út-
nefnt sjálfan sig sem „Dómara
vestan Pecos”. Hann átti að hafa
haldið uppi lögum og reglu með
aðstoð lagasafns og marghleypu.
Til heiðurs sinnar dýrkuðu Lilly
Langtry nefndi hann krá sina
„Jersey Lilly” og breytti nafni
bæjarins úr Vinegaroon i
Langtry, að þvi er sagan hermir.
1 sannleika var saga Roy Bean
nokkuð frábrugðin þessu. Það er
ekkert til vitnis um það, að hinn
snöruglaði dómari hafi virkilega
hengt nokkra sálu. Aftur á móti
var hann eitt sinn nær hengdur
sjálfur i Mexikó eftir að komið
hafði verið að honum á röngum
stað með röngum kvenkosti. Sú
misheppnaða henging sá fyrir
þvi, að æ siðan var hann með
stlfan háls.
Bærinn Langtry i Texas er þó
til, en i skýrslum er hann sagður
nefndur eftir Langtry nokkrum
brúarsmið, sem byggði fyrstu
járnbrautarbrúna yfir Pecosár-
gjána. Og ástarævintýri Roy
Beans og hinnar fögru Langtry
eru bara sögur, sem hugmynda-
flugið hefur spunnið i kringum
Roy Bean.
Paul Newraan.
Roy Bean dómari kvæntist árið
1866 og eignaðist fjögur börn. Það
var enginn frægðarljómi umvaf-
inn dauða hans árið 1903, þvi hann
varð hjartveiki og lungnabólgu að
bráð á 78. aldursárinu.
Hitt er aftur á móti sannleikan-
um samkvæmt, að hin fræga Lilly
Langtry stanzaði eitt sinn stutt-
lega i bænum Langtry, sem henni
hafði verið tjáð, að bæri nafn
hennar. Þetta var á einni af
hennar mörgu hljómleikaferðum
um Ameriku.
Þjóðsögurnar i kringum Judge
Roy Bean eru margar og litskrúð-
ugar. Þannig er til dæmis sagan
um járnbrautarstarfsmanninn,
Með illmennsku sinni kippir Stacy Keach (Bad Bob) fótunum undan
fyrirrennurum sinum á hvita tjaldinu.
★ ★ Hafnarbíó: „Vottur af glœsibrag"
Hálfgerður
bastarður
KVIKMYNDIR
Umsjón:
ión Björgvinsson
Hafnarbió: „Vottur af glæsi-
brag” (A Touch of Class).
Leikstjóri: Melvin Frank
Handrit: Melvin Frank og Jack
Rose
Aðalhlutverk: George Segal og
Glenda Jackson
Það er smávottur af
glæsibrag I leik þeirra
George Segal og Glendu
Jackson i myndinni,
sem Hafnarbió sýnir um
þessar mundir.
Skapgerðarleikkonan Glenda
Jackson hlaut Oskarsverðlaun
fyrir leik sinn I myndinni
„Women in Love” og sýndi jafn-
framt ýmis afrek i myndunum
„Maria Skotadrottning” og
„Sunday, Bloody Sunday”, sem
enn er ósýnd hér.
Hér tekst hún á við gamanhlut-
verk og hlýtur annan Óskar fyrir.
En það verður ekki sagt henni
Glendu til hróss að hún eigi vel
heima i gamanmyndum. Tilvist
Glendu I myndinni „Vottur af
glæsibrag” dregur hana nokkuð
niður sem gamanmynd.
Til að vega upp á móti þessú
fellur George Segal vel inn i léttar
myndir af þessu tagi, enda er
hann öllu vanari en Glenda með
gamanmyndir eins og „Ship of
Fools” og „Hot Rock” að baki.
Myndin „Vottur af glæsibrag”
verður hálfgerður bastarður fyrir
vikið, annars vegar bandarisk
gamanmynd um eiginmann, sem
hleypur móður og másandi
með hurðarskellum og öllu
tilheyrandi milli tveggja kvenna
og hins vegar brezk alvörumynd
um ástir fráskilinnar eiginkonu.
Sagan, sem rituð er af sjálfum
leikstjóranum, Melvin Frank, er
fremur einföld. Hin fráskilda
Vicki Alessio (Glenda Jackson)
og Steve Blackburn (George
Segal), sem er kvæntur trygging-
arsali, hittast af tilviljun I Hyde
Park. Það verða engir fagnaðar-
fundir, en þó dragast þau kyn-
ferðislega hvort að öðru.
Þau ákveða að halda til Spánar
til að svala þorsta sinum og eftir
ýmis vandamál heima fyrir
hrinda þau þeirri áætlun i fram-
kvæmd. En þegar i bólið er komið
fær Steve heiftarlegt þursabit og
verður að fá lækni sér til aðstoðar
um miðja nótt.
Nú slettist upp á vinskapinn en
eftir aö hafa veitt skapi sinu útrás
i heiftarlegum koddaslag, blossar
ástin upp á ný.
Þau halda þvi heim á leið I
sæluvimu og ákveða að halda
sambandinu áfram. En hvorugt
vill fórna f jölskyldum sinum fyrir
ástina og þvi verða fundir þeirra
með nokkrum vandkvæðum.
Þar kemur að þau verða að
velja á milli fjölskyldnanna og
ástarfundanna og fjölskyldurnar
verða ofan á. 1 táraflóði yfirgefa
þau hvort annað.
Þótt myndin „Vottur af glæsi-
brag” nái aldrei tökum á manni
hvorki sem gamanmynd né sorg-
arleikur má hafa af henni lúmskt
gaman á köflum, en einkum þó
vegna tilvistar þeirra Segal og
Jackson.
Eftir komuna til Spánar kulnar ást þeirra Steve og Vicki fljótlega.
'A nránudcig veróur dregió í 3. flokki