Vísir - 21.03.1975, Blaðsíða 13

Vísir - 21.03.1975, Blaðsíða 13
Vísir. Föstudagur 21. marz 1975. 13 Fröken Bella, segið nýju dömunni okkar allt, sem þér vitið um vinn- una hér á skrifstofunni. Ég kem aftur eftir tvær minútur. Nei takk, þú þarft ekki að kynna mig fyrir frúnni, en öðru máli gegnir um vinkonurnar! ÁRNAÐ HEILLA Þann 14. sept. voru gefin saman I hjónaband af séra Halldóri S. Gröndal i safnaðarheimili G r e n s á s s ó k n a r Mjöll Vermundsdóttir og Agúst Atla- son. Heimili þeirra er að Heiðargerði 37. (Nýja myndastofan) 21. sept. voru gefin saman i hjónaband af séra Guðmundi Þorsteinssyni i Arbæjarkirkju Ema Brynjólfsdóttir og Markús Sigurðsson. Heimili þeirra er að Sléttahrauni 19. (Nýja myndastofan) Þann 14. september sl. voru gef- in saman i hjónaband i Dóm- kirkjunni af séra Þóri Stephen- sen ungfrú Ingveldur Aðal- steinsdóttir og Óskar Jónsson. Heimili þeirra er að Grundar- Stig 4. (Studio Guðmundar) UQU * 4F m =»= * spa Spáin gildir fyrir iaugardaginn 22. marz. Sá E3 m ++++++*+*++++++++*++++*+*++*+**+*******+**■**+*+ t *■ k k k k Í i i * •k i k i i -V- ¥ I ! ¥ $ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ k ★ ★ í ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ¥ * ¥ ¥■ ¥ ¥ ■¥ ¥■ ¥ ¥ ■¥■ ¥* ¥• ¥■ ¥■ ■¥ ¥ ¥ ¥ ¥ Nt U A Hrúturinn, 21. marz—20. april. Þú munt aldeilis njóta lifsins i dag og skemmta þér vel. Vertu til- litssamur (söm) við börn sem verða á vegi þin- Nautið,21. april—21. mai. Reyndu nýjar aðferðir til þess að reyna að auka afköst þin, sérstaklega viðvikjandi störfum heimilisins. Fylgstu betur með. Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Allur lærdómur gengur mjög vel i dag. Smáferðalag getur leitt til margra góðra hluta. Vinur þinn ber hag þinn mjög fyrir brjósti. Krabbinn, 22. júni—23. júll'. Eitthvað er fjárhagsstaðan betri en hún hefur verið, og útlit er fyrir að hún muni batna. Taktu öllum leið- beiningum vel. Ljónið,24. júli—23. ágúst. Allt sem gerist i dag er þér fyrir beztu. Stundum þarf að rifa niður allt til þess að geta byggt á nýjum grunni. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Hafðu sem mest samskipti við það fólk, sem þú átt eitthvað sameiginlegt með. Þú ert mjög heppin(n) i dag. Kvöldið verður ánægjulegt. Vogin, 24. sept,—23. okt. Þetta verður mjög skemmtilegur dagur og þú kemur til með að hafa mikla ánægju af samskiptum við vini þina. Drekinn,24. okt.—22. nóv. Þú ert mjög áberandi i skemmtanalifinu i dag, og vinsældir þinar eru miklar. Forðastu samt sem áður að fara út i öfg- Boginaðurinn, 23. nóv.—21. des. Segðu þina skoðun á hlutunum og vertu ekki að draga neitt úr. Eitthvað vekur undrun þina um morguninn. Farðu i smáferðalag. Steingeitin,22. des,—20. jan. Þú færð góðar ráð- leggingar i dag, og þú ættir að fara eftir þeim. Vertu hreinskilin(n) og láttu ekki breyta skoðunum þinum of auðveldlega. Vatnsberinn,21. jan.—19. feb. Einhver, likast til vinur þinn, gerir þér stóran greiða i dag. Taktu engar ákvarðanir upp á eigin spýtur. Skoðaðu skemmtanalifið i kvöld. Fiskarnir, 20. feb,—20. marz. Reyndu að vinna upp það sem þú hefur trassað að undanförnu, og taktu i þjónustu þina nýjar aðferðir. Sýndu skilning og umburðarlyndi. ★ k í ★ ★ k k -v ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ * ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ u □AG | Lí KVÖLD | □ □AG | D KVOLD | □ □AG | „Kastljósið" í kvöld Fyrst og fremst efnahagsmálin í hverfulu þjóðfélagi er ekki ætið gott að gera áætianir langt fram i timann. Þessa staðreynd reka umsjónarmenn „Kast- ljóss” sig einatt á þegar þeir reyna að hafa efni þáttarins eins ferskt og mögulegt er. Þátturinn „Kastljós” er á dagskrá i kvöld og þar ætla umsjónarmenn þáttarins að reyna að gera efnahagsráðstöf- unum rikisstjórnarinnar skil. Staðreyndir i þvi máli lágu ekki á hreinu fyrr en i gærdag. En þar sem landslýður er sennilega farinn að þreytast á öllum efnahagsumræðunum (eldhúsdagsumræður i útvarp- inu i gærkvöldi) ætlar „Kast- ljós” að bjóða upp á fleira i kvöld. Fjallað verður um vetrar- samgöngur. Fulltrúi flutninga- bilstjóra varpar fram spurning- um, sem koma upp i hug þeirra er mikið ferðast um fjallvegina á vetrum og ætlar Snæbjörn Jónasson, yfirverkfræðingur Vegagerðarinnar, að leitast við að svara þeim spurningum. Ekki er ljóst, hversu miklu öðru verður hægt að koma að, en þeir i „Kastljósinu” eiga á lager spjall um öryggisreglur á sjónum, þar sem Hjálmar R. Bárðarson - siglingamálastjóri mun svara spurningum um hleðslu loðnubáta og skips- ströndin að undanförnu. Eins hefur verið i undirbún- ingi kafli um gjaldeyrismál flugmanna og farmanna og hvað þeir hafa átt mikinn þátt i gjaldeyrishallanum. Björgvin Guðmu.idsson hjá viðskipta- ráðuneytinu mun rabba við fréttamenn i þessu tilefni. Eins fór „Kastljósið” í nokkur hús með vélskólanemum, þar sem litið var t kynditæki og katla og gerðar á þeim mælingar. Eins var rætt við menn sem hafa eftirlit með kynditækjum og hitakötlum að atvinnu. Óvist er hversu mikið af þessu efni kemst að i kvöld. —jb ÚTVARP # FÖSTUDAGUR 21. marz 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan : „Himinn og jörð” eftir Carlo Coccioli Séra Jón Bjarman les þýðingu sina (24). 15.00 Miðdegistónleikar Kim Borg syngur finnsk þjóðlög og söngva eftir Oskar Mericanto, Pentti Koskimies leikur á pianó. Karl-Ove Mannberg og Sinfóniuhljómsveitin i Gavle leika fiðlukonsert op. 18 eftir Bo Linde, Rainer Miedel stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Vala” eftir Ragnheiði Jónsdóttur Sigrún Guðjóns- dóttir les (6). 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingsjá. Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar tslands i Háskóla- biói kvöldið áður. Hljóm- sveitarstjóri: Robert Satanowski frá Póllandi. Einleikari á fiðlu: Guðný Guðmundsdóttir. 21.30 tltvarpssagan: „Köttur og mús” eftir Guntcr Grass. Þórhallur Sigurðsson leik- ari les (6). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (46). 22.25 Frá sjónarhóli neytenda Reynir Hugason ræðir við Þórhall Halldórsson for- stöðumann heilbrigðiseftir- lits Reykjavikur. 22.40 Afangar.Tónlistarþáttur í umsjá Asmundar Jóns- sonar og Guðna Rúnars Ragnarssonar. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. SJONVARP m Föstudagur 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.35 Tökum lagið Breskur söngvaþáttur. Hljómsveitin „The Settlers” leikur og syngur létt lög. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. 21.00 Kastljós Fréttaskýringa- þáttur. Umsjónarmaður Ólafur Ragnarsson. 2 1.55 T ö f r a m a ð u r i n n Bandariskur sakamála- myndaflokkur. Gildran. Þý ð a n d i K r i s t m a n n Eiðsson. 22.45 Dagskrárlok

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.