Tíminn - 26.07.1966, Qupperneq 5
5
ÞRHWUÐA<JUR 26. júlí 1986
i—SMbfflt—
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
6. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug-
lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur t Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur. Bankastræti 7. Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 105.00 á mán innanlands — 1
lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Er þetta viðunandi?
Seint í apríl 1963 hélt Sjálfstæðisflokkurinn lands-
fund og samþykkti þá m.a. stefnuskrá sína og ríkis-
stjómarinnar fyrir kosningarnar, sem í hönd fóru Eru
þar bæði talin unnin afrek stjórnarinnar og tilvonandi.
Segir þar á einum stað:
„Bændum hefur nú verið tryggt umsamið verð fyr-
ir framleiðsluna'.
Þessi yfirlýsing hlýtur mönnum að koma í hug nú.
þegar bændur eiga í harðri baráttu við að ná rétti sínum
hjá ríkisvaldinu og verða enn að búa við það, að stór
lega vantar upp á, að þeir fái „umsamið verð fyrir fram-
leiðsluna' á síðasta ári, hvað þá því, sem nú er hálfnað.
Svo haldgóð hefur þessi „trygging", sem ríkisstjórnin
lýsti yfir fyrir síðustu kosningar, reynzt.
Dýrtíðin hafði um síðustu áramót höggvið svo stórt
skarð í útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörur, að
þær dugðu alls ekki á framleiðslu síðasta árs. Ofan á
bættist svo, að ríkisstjórnin og Seðlabankinn lækkuðu
afurðalán landbúnaðarins um 14.5%. Þetta allt saman
og mikil smjörframleiðsla neyddi framleiðsluráð land
búnaðarins til þess að setja á innvigtunargjaldið svo-
nefnda sem tímabundna neyðarráðstöfun í því skyni að
losa málið úr sjálfheldunni. Viðbrögð bænda voru mynd-
arleg og eðlileg, er þeir með fjöldafundum, nefndakosn-
ingum og öðrum aðgerðum skipuðu sér að baki forustu-
mönnum samtaka sinna til þess að leita réttar síns á
hendur ríkisstjórninni
í fyrstu lotu lét rfkisstjórnin lítið eitt undan síga og
hét að hækka aíurðalánin aftu rtil jafns við sjávarútveg-
En fjárhagsvandinn var ekki leystur nema að mjög iitlu
leyti með því, og enn eiga bændur þriggja mjólkursam-
laga á Norðurlandi eftir að fá 40—50 aura af hverjum
mjólkurlítra, sem þeir lögðu inn s.l. ár. Þannig hefur
stjórnin efnt heitið um að „tryggja bændum umsamið
verð fyrir framleiðsluna". Forustumenn bænda í þess-
um málum hafa því eðlilega ákveðið að halda baráttunni
til þess að ná rétti sínum áfram.
Það er mjög athyglisvert, sem komið hefur fram í yfir-
lýsingum forustumanna bænda, að meginorsök smjör-
birgðanna í landinu nú er setning bráðabirgðalaganna
í fyrrahaust þar sem verðlagsgrundvöllurinn var lög-
bundinn sá sami og áður. Fyrir bragðið gat framleiðslu-
ráð ekki haldið áfram á þeirri braut að breyta verð-
hlutfalli mjólkur og kjöts, og þannig var stöðvuð sú hag-
ræðing, sem bændur höfðu sjálfir hafið til þess að koma
í veg fyrir söluvandræði. Af þeirri ástæðu einni ber
ríkisstjórnin þunga ábyrgð á þeim vanda, sem orðinn er,
og jafnframt skyldu til þess að leysa úr honum.
Um þessar mundir er það svo, að bændur fá útborg-
aðan tæplega helming grundvallarverðsins fyrir mjólk,
sem þeir leggja inn. Getur hver stétt litið í eigín barm
um það, hvort slíkt sé viðunandi til lengdar að fá ekki
greiddan nema helming vinnulauna og þegar útlagðs
kostnaðar við framleiðsluna.
Einnig birtist þarna skýr mynd af því, hvermg ríkis-
stjómin hefui haldið loforð sín og yfirlýsingar um, að
hún hafi tryggt bændum umsamið verð fyrir framleiðsl-
una
TÍMINN
r------—......... -
Sigurvín Einarsson alþm.:
Meðalíbúð - Milljón
Húsnæðiskostnaður er einn
stærsti útgjaldaliður fjöl-
skyldumanna. Er það að verða
lítt skiljanlegt, að ung og nær
því efnalaus hjón skuli þora
að leggja út í þá áhættu að
koma sér upp íbúð með núvcr
andi verðlagi. En neyðin kenn
ir naktri konu að spinna. Önn
ur ráð eru ekki til fyrir hin ný
giftu hjón.
Samkv. opinberum skýrsium
hefur byggingarkostnaður 37C
rúmmetra íbúðar verið í júní
mánuði ár hvert sem hér segir:
Ár þús. kr. Hækkun frá fyrra ári:
1957 399
1958 424 25 þús. kr.
1959 453 29 — —
1960 510 57 — —
1961 525 15 — —
1962 604 79 — —
1963 631 27 — —
1964 752 121 — —
1965 854 102 — ~
1966 1.007 153 — —
Á þessum 9 árum hefur í-
búðin hækkað í verði um 608
þús. kr. eða um kr. 67.500,oo
á ári að meðaltali. Mikill mun-
ur er á þessum verðhækkunum
fyrstu ár þessa tímabils og síð-
ustu árin. Fyrstu tvö árin 1957
—1959 hækkar íbúðin um 27
þús. krónur á ári að meðaltali.
Næstu 4 ár, 1959—1964 hækk
ar hún um kr. 44.500 á ári, en
síðustu 3 árin, 1963—1966,
hækkar íbúðin í verði um rúm
lega 125 þús. kr. á ári að með
altali, og þar af mest síðasta ár
ið. 1965—1966, eða um 153
þús. kr.
Þessar staðreyndir ættu að
nægja til sönnunar því, að verð
bólga síðustu ára er marg-
Sigurvin Einarsson
föld miðað við það, sem liún
var fyrir fáum árum. Þctia er
spegilmynd af verðbólguþróun
inni í Iandinu, hvort scm um
húsnæðiskostnað, eða verðlag
annarra lífsnauðsynja er að
ræða.
Það hefði ekki valdið neinu
öngþveiti í þjóðfélaginu þátt
íbúð hækkaði NÚ í verði um
25—30 þús. kr. á ári, eíns og
var 1957—1959, og eiu þó all-
ar slíkar verðhækkanír til
tjóns. En þegar verðhækkun í-
búðar er orðin yfir 150 þús.
kr. á einu ári eða meira en
helmingur þeirrar upphæðar,
sem lánuð er til byggingarinn
ar, þá er sannarlega alvara á
ferðum.
Þeir menn, sem liu vilja láta
á því bera, hversu óðfiuga verð
bólgan æðir nú fram, grípa til
þess ráðs að segja, að hér hafi
verið verðbólga í 25 ár, en eng
inn ráðið við hana. Þetta er
mönnum ætlað að ski:ja þann
ig, að ekki sé meiri vcrðbólga
nú en áður var.
Þessari b'ekkingu æiti
allur almenningur a8 vara
sig á. Verðbólguaukningin
sést bezt á því, að á síðustu
12 mánuðum hefur bygg-
ingarkostnaðurinn vaxið
sex sinnum meira en á 12
mánuðum 1951—1959.
Byggingarkostnaður mcðal í-
búðar er nú kominn yfir eina
milljón króna. Þessa staðreynd
getur enginn ábyrgur maður í
landinu látið sér í léitu rúmi
liggja. Hvað segja nýgíftu hjón
in, sem ef til vill eru nýbúin
að Ijúka dýru námi og þurfa
að eignast þak yfir höfuðið?
þau eru ef til yill skuldlaus en
þá sennilega eignaiaus líka.
Hitt er þó sennilegra, að þau
séu skuldug og eignalaus. Þótt
þau geti fengið 280 þús. kr.
byggingarlán skortir baa samt
um 725 þús. kr. til þess að
geta komið sér upp íbúðinni.
Hvaðan á það fjármagn að
koma? Og þótt fjármagnið
fengist, t.d. hjá mönnum, sem
ávaxta fé á öruggan og vinsæl
an hátt, hver yrði þá vaxta- og
afborgunarupphæðin á ári?
Ætli þetta ástand skapi ekki
launakröfur, sem ektí verður
staðið á móti, hvað sem forustu
menn verðbólgunnar segja.
ÞRIÐJUDAGSGREININ
Frá Skógræktarfélagi Rvíkur
Aðalfundur Skógræktarfélags
Reykjavíkur var haldinn 10. maí
sl.
Formaður félagsins Guðmundur
Marteinsson, setti fundinn og til-
nefndi Hákon Guðmundsson yfir
borgardómara sem fundarstjóra.
Fundarritari var tilnefndur Guð-
brandur Magnússon.
í upphafi fundarins minntist for
maður Kristjáns Takobssonar póst
manns, sem látizt hafði á umliðnu
ári, en hann var um margra ára
skeið áhugasamur og ötull skóg
ræktarmaður.
Skýrslur um starfsemi félagsins
á liðnu ári fluttu formaður félags
ins og framkvæmdastjórinn, Einar
G. E. Sæmundsen. Hið helzta, sem
fram kom í skýrslum, þeirra var
þetta:
Úr uppeldisstöð félagsins í Foss
vogi voru afhentar rúmlega 300
þúsund trjáplöntur af ýmsum teg
undum, og var það nokkru meira
plöntumagn en árið áður. Dreif
sett var úr sáðbeðum um 380 þús
und plöntur og settir niður rúm
lega 100 þúsund græðlingar. Er
það veruleg lækkun frá árinu á
undan, og að mestu leyti að kenna
röskun þeirri á framleiðsluáætlun,
og framkvæmdum í stöðinni,
sem hið mikla Fossvogsræsi olli.
Sáð var fræi 16 trjátegunda í rúm
lega 1300 fermetra svæði.
Á árinu var lögð ný vatnslögn
um þvert land stöðvarinnar úr 2Yí
þumlunga plastpípum. Kemur hún
í stað vatnslagnar sem lögð var ár
ið 1950, og var orðin allsendis
ófullnægjandi, og bætir hún því
úr brýnni þörf. Vatnslögnin er
tengd við Vatnsveitu Reykjavíkur.
Á Heiðmörk voru gróðursettar
134 þúsund trjáplöntur, og þar að
auki 3800 Alaskalúpínur í gróður
lausa mela, sem hún á nokkrum
árum breytir í gróið land. Þá var
borinn tilbúinn áburður úr flugvél
á mela og hálfgróið land beggja
vegna Hjallabrautar suður undir
Sneiðinga. Var þetta í framhaldi
af fyrri áburðargjöf á þessu svæði,
en mjög góður árangur er af
áburðargjöf fyrri ára. Melar, sem
fyrst var borið á, eru að gróa upp
sem óðast og hálfgrónir móar að
fyllast gróðri. Vegir á Heiðmörk
voru endurbættir og lagfærðir,
enda eykst umferð bifreiða um
Heiðmörk ár frá ári.
í og með því að Skógræktarfé
lagi Reykjavíkur var falin varð-
veizla jarðarinnar Elliðavatns fyr
ir þremur árum, hefur um 220 ha
land bætzt við Heiðmörk. Lokið
var við nýja girðingu um þetta við
bótarland norðan og atistan. Rauð
hóla, 1 km að lengd, og steypt
var vandað ristarhlið á nýjan veg
frá Suðurlandsbraut að Rauðhól-
um. Eldri girðingu um Heiðmörk;
var haldið við og stuttur kaflí
endurgirtur.
Veðurathugunarstöðin á Heið
mörk var starfrækt eins og undan
farin ár frá maíbyrjun til október
loka. Úrkoma á því tímabili mæld
ist helmingi meiri en í Reykjavík
eða 699.4 mm.
Skógræktarfélag Reykjavíkur á
20 ára afmæli í október þetta ár.
í tilefni af því, með tilliti til þess,
að Reykjavíkurborg nær nú upp
undir Rauðavatn, hefur stjórn fé
lagsins á prjónunum áform um að
breyta Rauðavatnsstöðinni í
skemmtigarð fyrir borgarbúa.
Gerður hefur verið tillöguupp
dráttur af slíkum garði. Er gert
ráð fyrir, að trjágróður setji meg-
insvip á garðinn, en inn á milli
verði grasi grónar flatir og leik-
vellir. Frá þessu var skýrt á aðal-
fundinum, en haft verður samráð
við borgaryfirvöldin um nánari
framkvæmdir.
Verið er að gera vandaðan upp
drátt að Heiðmörk í nokkuð stór
um mælikvarða, 1:5000 og er því
brátt lokið.
Efnt var til skemmtifundar í
marzmánuði sl. og 19. apríl var
efnt til fræðslufundar í félaginu.
Flutti þar erindi deildarstjóri í
norska landbúnaðarráðuneytinu,
Toralf Austin að nafni, um skóg
rækt í Vestur- og Norður-Noregi,
en hann kom hingað til lands á
vegum félagsins Ísland-Noregur.
Að loknum flutningi skýrslna
; formanns og framkvæmdarstjóra.
las gjaldkeri upp endurskoðana
reikninga félagsins, og voru þeir
samþykktir. Verulegur rekstr-
arhalli varð á árinu, um 70 þús
und krónur.
Framhald á bls. 15.