Tíminn - 26.07.1966, Blaðsíða 12
12
DKiiI
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 26. júli 1966
Enski landsfóðsþjálfarinn eftir Argentínu-leikinn:
JErfitt að leika knatt-
spyrnu á móti villidýrum"
Eusebio skorar fyrsta markið gegn N-Kóreu.
Eusebio er tek
inn við af Pele
- sýndi stórkostlegan leik gegn N-Kóreu
Hver er bezti knattspyrnumaður
heims? Er það Pele frá Brazilíu?
Nei, Pele hefur misst titUinn í
bili til „svarta demantsins“ frá
Mozambique, Eusebio, sem næst-
um því upp á einsdæmi rétti portú
gölsku knattspyrnuskútuna við eft
ir ovænta árás Litlu-Asíumann-
anna frá Norður-Kóreu. Á Goodi-
son Park í Liverpool vissu menn
ekki hvaðan á þá stóð veðrið, þeg-
ar Kóreumennirnir brunuðu á 1.
Flest mörk
Markhæstu leikmenn HM,
eftir
gær-
leikinn, sem háður var í
kvöldi:
Eusebio, Portúgal 7
HaUer, V-Þýzkaland 5
Bene, Ungverjaland 4
Beckenbauer, V-Þýzkaland 4
Porkujan, Sovét 4
Artimé, Argentinu 3
Augusto, Portúgal 3
Hunt, England 3
Eusebio tók stórt stökk í leikn
um á móti. Norður-Kóreu, skor
aði fjögur mörk- Hefur enginn leik
maður.í keppninni skorað jafn
mörg mörk í einum leik.
mínútu upp vallarhelming Portú-
gals með ofsahraða og skoruðu
1:0 framhjá Jose Pereira.
Heppni! Þeir skora ekki fleiri
mörk. En aftur komu Kóreumenn
áhorfendum á óvart með því að
skora 2:0 á 22. mínútu. Og aðeins
3 mínútum síðar skorar Kook 3:0.
Hinir 20 þúsund áhorfendur voru
furðu slegnir.
Þessi óvænta árás hefði verið
rothögg fyrir marga, en ekki fyrir
Eusebio og félaga. Á 26. mínútu
skoraði Eusebio 1:3 og 2:3 úr víta-
spyrnu á 42. mínútu. Á 57. mínútu
jafnaði Eusebio 3:3 og Á 60. mín-
útu skorði hann 4:3 fyrir Portúgal.
Það var greinilegt, að Kóreumenn
irnir höfðu „sprengt" sig á fyrsta
hálftimanum, því hraðinn —• aðal
ógnunin — var ekki fyrir hendi
í síðari hálfleik. Augusto skoraði
5. og síðasta mark Portúgals á
80. mínútu.
í heild var leikurinn mjög vel
leikinn, einhver sá bezti í keppn-
inni til þessa. Þrátt fyrir tapið,
var leikurinn að vissu marki sigur
fyrir Kóreumenn, því að nú er
ekki lengur hlegið að þeim sem
viðvaningunum frá Asíu. Þeir hafa
áunnið sér virðingu og sess í heims
knattspyrnunni 1966.
„Villidýr," sagði Alf Ramsey,
enski landsliðsþjálfarinn, um Arg-
entínumennina eftir hinn sögulega
leik Englands og Argentínu á
Wembley á laugardaginn, sem lauk
með 1:0 sigri Englands. Og
Ramsey er ekki einn um þessa
skoðun. Flestir eru því dauðfegn-
ir, að hinir blóðhcitu Suður-Am-
eríkumenn skyldu ekki komast í
„semifinal.“ Þeir gerðu stóra
sprengingu á Wemblcy á laugar-
daginn með því að ganga allir sem
einn út af vellinum í mótmæla-
skyni, þegar fyrirliða þeirra, An-
tonio Rattin var vísað af leikvelli
á 30. mínútu fyrir grófan leik og
síendurtckin mótmæli við hinn
þýzka dómara leiksins, Rudolf
Kreitlin.
Af þessum sökum tafðist leik-
urinn í 9 mínútur, en þá loksins
tíndust Argentínuleikmennirnir
aftur inn á völlinn og léku einum
færri það sem eftir var. En það var
ekki auðvelt fyrir enska liðið að
notfæra sér það, að Argentínu-
menn voru færri, því það sem eftir
var leiksins lögðu þeir áherzlu á
vörnina með það í huga að knýja
fram jafntefli og láta hlutkesti
ráða, hvort landið kæmist í „semi-
final.“
En hinn 24ra ára gamli West
Ham lcikmaður, Geoff Hurst, gerði
vonir Argentinu að engu, þegar
hann á 77. mínútu skoraði eina
mark leiksins með skalla eftir send
ingu frá Peters. Allt ætlaði um
koll að keyra á Wembley. Og Alf
Argentinu-menn deila við dómarann — þungir á brúnina.
Ramsey þurfti ekki að hafa leng-1 mæltu markinu við dómarann og
ur samvizkubit af því að hafa sett héldu því fram, að um rangstöðu-
Hurst inn í liðið fyrir Jimmy mark hefði verið að ræða. En
Greaves. Argentínumenn mót-1 Framhald á bls. 15.
Létt hjá V-Þjóðverjum á
móti 9 Uruguay-mönnum
Tveimur Uruguay-leikmönnuin
var vísað af velli í leiknum á móti
Vestur-Þýzkalandi í Sheffield. í
báðum tilfellum var um gróf brot
að ræða, og enski dómarinn Finn-
ey sýndi blóðheitum Suður-Amer-
íkumönnunum enga miskunn. Mest
allan síðari hálflcikinn léku Uru-
guaymcnn aðeins níu — og það
var næstum of auðvelt fyrir þýzku
sóknarmennina að renna í gegn-
um uruguaysku vörnina og skora.
Sovézka vörnin lamaði hina
frægu sóknarm. Ungverja
Ungverjar fengu tvö ódýr mörk á sig og tókst ekki að jafna
Sovétríkin unnu Ungverjaland
með 2:1 á Roker Park I Sunder-
land á laugardaginn í frekar slök-
um leik. Allan fyrri hálfleikinn
hélt rússneska vörnin hinum frægu
sóknarmönnum Ungverja, Albert,
Bene, Farkas og Rakosi, niðri, svo
aldrci skapaðist veruleg hætta við
rússneska markið.
Eina markið í fyrri hálfleik skor
aði Igor Chislenko á 5. mínútu
eftir Maufaleg mistök ungverska
markvarðarins, Gelei, sem missti
knöttinn eftir langskot Porkjuan.
Ódýrt mark. Og á 2. mínútu síðari
hálfleiks skoruðu Rússar 2:0. Einn
ig þetta mark hefði ungverski
markvörðurinn átt að geta komið
í veg fyrir. í staðinn fyrir að koma
út á móti í aukaspyrnu, stóð hann
frosinn í markteignum. Og Pork-
juan náði knettinum og sendi
hann yfir ungverska varnarmúr-
inn og í mark.
Alls urðu mörkin fjögur, en Uru-
guay náði aldri að svara.
Uruguay-menn komu áhorfend-
um á Hillsborough í gott skap á
fyrstu mínútunum með því að
leika sóknarleik, en eins og kunn-
ugt er, hafa Uruguaymenn nær
eingöngu leikið varnarleik í keppn
ínni til þessa. En sóknin var ekki
mjög beitt. Vestur-Þjóðverjar skor
uðu fyrsta mark sitt á 11. mínútu
Framhald a bls iö
Með 2:0 yfir, lögðu Rússar aðal-
áherzluna á vörnina það sem eftir
var. Fyrir bragðið náðu Ungverjar
tökum á miðjunni og ógnuðu tals-
vert. Bene tókst að skora 1:2 á'
58. mínútu og komst spennan í \
algleyming við það. Þrátt fyrir |
ágætar tilraunir tókst Ungverjum !
ekki að jafna. Til þess var rúss-
neska vörnin of sterk — og mjög
örugg og góð markvarzla „gamla j Ungverskum leikmanni hjálpað inn a völlmn eftir að hafa dottið ofan I
mannsins" Jashin í markinu! ° i sryfju bak við ungverska markið. Þeir en» sterkir Rússamlr!