Vísir - 12.04.1975, Side 4
4
Visir. Laugardagur 12. april 1975.
dr ÞTÓD 11M
Norrænt kristilegt
stúdentamót á íslandi i
sumar með allt að eitt
þúsund útlendum
mótsgestum.
Ys og þys, flestir voru á
fleygiferð og enginn verkefna-
laus, er tiðindamann bar að
garði á Amtmannsstig 2B, þar
sem Kristilegt stiidentafélag
hefur skrifstofu sina. Undirbún-
ingsnefnd fyrir hið norræna,
kristilega stúdentamót, Reykja-
vík '75 var að störfum. Erfitt
reyndist að finna kyrrlátan
stað, þar sem hægt væri að
spjalla við tvo þeirra, sem
standa i eldlinunni i undirbún-
ingi Reykjavik '75. Það tókst þó
að lokum og við spurðum kapp-
ana tvo að nafni. Annar var
Sigurbjörn Sveinsson, lækna-
nemi og formaður Kristilegs
stúdentafélags, en hinn Gisli
Jónasson, guðfræðinemi og auk
þess fjármálaráðherra félags-
ins. Á hann að sjá um að hvorki
verði kreppa né gjaldþrot i
félagsbúskapnum. Þeir tveir
tjáðu okkur að Reykjavik '75
yrði haldið i Menntaskólanum
við Hamrahlið og Kennarahá-
skóla Islands dagana 6.-12.
ágúst. Það eru norrænu kristi-
legu stúdentafélögin, sem halda
munu mótið.
Þungamiðja er fagnað-
arerindi Jesú Krists.
Hvað er norrænt, kristilegt
stúdentamót?
Sigurbjörn: — Það er einfald-
lega mót norrænna stúdenta,
Frelsarinn
góði
Frelsarinn góöi. Af fátækt
minni
flyt ég dýpsta þakkarmál.
Styrk þú mig, svo vel ég
vinni,
varist heimsins grimmd og tál.
Sálar myrkriö gef aö grynni,
glæð mitt, auk mitt trúarbál.
Unn þú mér af auðlegð þinni
alls, er göfgar mina sál.
Unn þú minum innri sýnum
öll að sjá þin fórnarspor.
Gef að kalda hjartað hlýni’ um,
hefjast lát þar trúarvor.
— Bvrgi ég mig aö barmi
þfnum,
bið um trúarstyrk og þor,
þakka dýpstu þökkum minum
þér fyrir blessaö „Faðir vor”.
fcg vil þreyttu höfði haila
— hjartans djúpa þörf ég finn,
gráta mina örbirgð alla
upp við náðarbarminn þinn.
Mér er hætt i myrkri að falla,
mér finnst grýttur vegurinn.
— Til þín hátt ég, Kristur,kalla,
kom, tnig snertu, Drottinn
m inn.
Kolbeinn Högnason
Kollafirði.
ÞUNGAMIÐJAN ER
FAGNAÐARERINDI
JESÚ KRISTS
— Norrœnt kristilegt stúdentamót ó íslandi
með allt að eitt þúsund útlendum mótsgestum
Þetta er mótsmerkið fyrir nor-
ræna stúdentamótið Reykjavik
'75, sem haldið verður I Reykja-
vik næstkomandi sumar.
að meta áhuga og afstöðu náms-
manna gagnvart Kristi. Ég hef
þó á tilfinningunni, að fjöldi
þeirra hugleiði ekki kristindóm
af neinni alvöru. Þó er enginn
vafi á þvi, að bein andstaða
gegnkristindómihefur minnkað
verulega. Margir virða kristna
trú, svo sem hverja aðra lifs-
skoðun, en ekki er áberandi vilji
eða áhugi á að kynna sér boð-
skap Krists nánar.
Verður stúdentamótið til að
vekja stúdenta til ihugunar?
Sigurbjörn svarar hógvær-
lega: — Vonandi, i það
minnsta hjá þeim, sem taka
munu þátt i mótinu. Ég vona
þvi, að þátttaka Islendinga
verði talsverð. — Gisli sam-
sinnti honum og lét i ljós þá
skoðun, að boðskapur stúdenta-
mótsins mundi hafa áhrif i
stúdentaheiminum og öðrum
hlutum islenzks þjóðlifs, svo
framarlega sem nokkur fjöldi
íslendinga tæki þátt i mótinu.
Þá álitur þú, að fleiri en
námsmenn njóti góðs af?
— Já, hélt Gisli áfram, auk
ferðanna eftir mótið munu all-
ar kvöldsamkomurnar verða
opnar almenningi. Þannig von-
um við að sem flestir komi, þvi
við stúdentafélagsmenn teljum,
að boðskapur Krists sé ekki ein-
skorðaður við námsmenn,
hvorki hér á landi né annars
staðar i heiminum.
Ysinn og þysinn hélt áfram,
þó nokkuð hefði lægt það gjörn-
ingaveður, sem fyrr hafði geis-
að. Þeir félagar héldu áfram við
vinnu sina við undirbúning fyrir
stúdentamótið, Reykjavik '75.
Vandamálin eru mörg, ræða
þarf vafaatriði og svara þarf
fyrirspurnum áhugamanna um
þátttöku þessa móts, einhvers
fjölmennasta norræna móts i
sögu Islands.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
þar sem fagnaðarerindið um
Jesúm Krist er þungamiðja i
ræðuflutningi og umræðu.-
En hvers vegna er þetta mót
haldið?
Gisli: — Tilgangurinn er
tviþættur. 1 fyrsta lagi er nor-
rænum námsmönnum gefið
tækifæri til að hittast og eiga
samfélag um frelsarann Jesúm
Krist. 1 öðru lagi má nefna boð-
un fagnaðarerindisins um Jes-
úm Krist. A það minnir yfir-
skrift mótsins. „Orð Guðs til
þin”.
Allt að 1000 velkomnir
— engum úthýst
Við hve mörgum mótsgestum
búizt þið?
Formaðurinn horfir hugsandi
út um gluggann og segir: — Við
bjóðum allt að 1000 gesti vel-
komna. Engum verður úthýst,
og þegar eru komnir tæplega 900
þátttakendur frá útlöndum. Um
okkur hér heima er meiri
óvissa. Dagskrá mótsins má
skipta i þrjá þætti 1. Bibliulestr
ar um grundvallarsannindi
kristindómsins. Mun sænski
biskupinn Bo Giertz halda lestra
um greinar trúarjátningarinn-
ar. 2. Umræðuhópar, þar sem
lögð verður áherzla á skoðana-
skipti námsmannanna sjálfra.
Viðfangsefnin eru vandamál
daglegs lífs og kristin trú. Meðal
efna má nefna „Trúarlifið-
Sálarlifið”, „Heilagur andi”,
„Vandamál þjáningarinnar”
auk 12 annarra efna. 3. Kvöld-
samkomur.þar sem almenningi
mun verða boðin þátttaka og
áherzla verður lögð á boðun
orðs Guðs.
Þá riðu hetjur um hér-
uð....
Hvað um ferðir útlendinganna
um landið?
Gisli varð fyrir svörum og
sagði, að ekki yrðu þátttak-
endur tjóðraðir við Menntaskól-
ann i Hamrahlið — einn móts-
daganna munu allir taka þátt i
ferð til Skálholts, þar sem herra
Sigurbjörn Einarsson biskup
mun syngja messu. Eftir mótið
munu nokkrir norrænir stúd-
entahópar ferðast um landið og
halda samkomur, þar sem flutt-
ur verður sami boðskapur og á
mótinu sjálfu. Auk þess eru öðr-
um þátttakendum boðnar kynn-
ingarferðir um landið, dags-
feröir eöa lengri ferðir. — Með
þessu gefst tækifæri til að skoða
landið og kynnast fólkinu, sem
hefur veriö á mótinu og eiga
áfram góðar stundir að þvi
loknu. —
Þarna höldum við
Reykjavik ’75.
Spurningunni um undirbúning
svaraði Sigurbjörn : — Að halda
stúdentamót á Islandi í annað
sinn hefur verið draumur fjöl-
margra. Ekki komst þó skriður
á gang mála fyrr en eftir 1970.
Fyrir nokkrum árum gisti Is-
land sænski stúdentaleiðtoginn
Thorsten Josepsson, sem er
mörgum Islendingum að góðu
kunnur. Mér er minnisstætt er
hann stóð uppi i Hallgrims-
kirkjuturni og beindi fránum
sjónum sinum yfir höfuð-
staðinn, benti með hendinni,
kvað upp dóm sinn og þrumaði:
Þeir gáfu sér tlma til þess féiagarnir.GIsli Jónasson og Sigurbjörn
Sveinsson, að tylla sér niöur á tröppur Háskólans, á meöan Bragi
ljósmyndari VIsis festi þá á filmu.
Hér höldum við stúdentamót
árið 1975. Hann hafði tekið
ákvörðun og fékk aðra norræna
stúdentaleiðtoga til fylgis við
sig. Undirbúningur hér heima
hófst síðla árs 1973. Siðan hefur
undirbúningsstarf vaxið
hröðum skrefum. — Gisli skýrði
siöan frá þvi, að samið hefði
verið við islenzku flugfélögin
um hina umfangsmiklu fólks-
flutninga. Ennfremur hefur
verið samið um húsnæði við
stjómvöld. Aðalmiðstöðin verð-
ur I M.H., en samkundur a 11-
flestar verða í hinu nýja, glæsi-
lega Iþróttahúsi Kennarahá-
skóla íslands.
Sögðu þeir félagar, að þakka
bæri ágæta fyrirgreiðslu varð-
andi húsnæðismálin. Hefðu allir
aðilar, sem skipt hefði verið við,
reynzt ljúfmenni hin mestu I
samningum.
En hve margir starfa að
undirbúningi mótsins?
Hér hófst nokkuð snörp hrið
skoðanaskipta milli þeirra Fé-
laga sem ekki voru á eitt sáttir
hve margir legðu hönd á plóg-
inn. I miðnefnd starfa 17 manns,
auk þess leggur fjöldi óbeint lið.
A mótinu sjálfu er þörf nær
hundraö sjálfboðaliða.
Kristin trú
einungis lifsskoðun?
Er ástæöa til að halda norrænt
kristilegt stúdentamót á ís-
landi?
— Kristilegt starf meðal is-
lenzkra stúdenta hefur staðið
heldur höllum fæti samanborið
við nágranna okkar i austri.
Okkur sýnist þvi i Kristilegu
stúdentafélagi full ástæða til að
grfpa þau tækifæri, sem gefast
til að efla þetta starf, — sagði
formaðurinn. Hann bætti siðan
við um kristindómjjálit náms-
manna: — Ahugi ér allnokkur
meðal stúdenta fyrir Kristi og
þeirri trú, er hann var höfundur
og fullkomnari að, eins og
hverju öðru sögulegu fyrirbæri.
En án efa er mikill minnihluti
þeirra, sem kærir sig um að
kynnast Kristi og kristindómi of
náið, þannig að til persónulegr-
ar afstöðu dragi.
GIsli horfði hugsi i gaupnir
sér: — Já, það er svolitið erfitt
mm >
j mtm mmt g mm mm j msd.
Orð Guðstíl þín
REYKJAVÍK 75
ÉNORRÆNT
STÚDENTAMÓT
a-12.AGÚST 1975