Vísir - 12.04.1975, Blaðsíða 16
16___.________________________________ Vísir. Laugardagur 12. apríl 1975.
| í DAG j \ KVÖLD | í DAG | I KVOLP | I DAG j
PECK í LAUGARDAGSMYNDINNI
Sjónvarp kl. 21,35:
GREGORY
Gregory Peck, sá frægi leik-
ari, fer með eitt aðalhlutverkiö i
bfómynd sjónvarpsins i kvöld,
en myndin heitir Ungviði.
Ásamt Peck fara með stór
hlutverk Jane Wyman og
Claude Jarman.
Myndin er frá árinu 1946 og er
bandarisk. Segir hún frá fjöl-
skyldu sem býr í landnema-
byggð í Bandarikjunum.
Sonur hjónanna á bænum
finnur dádýrskálf og hefur hann
með sér heim, en foreldrarnir
eru ekki á því að taka kálfinn i
fóstur, þeir telja að það geti haft
slæmar afleiðingar.
Myndin hefst kl. 21.35.
— EA
Sjónvarp kl. 20,55:
Kíkt inn á sýningar í borginni...
- í Vöku
í kvöld
Sýnt verður úrFjöiskyldunni, sem leikin er hjá Leikfélagi Reykja-
vfkur um þessar mundir, f þættinum Vöku i kvöid.
Útvarp kl. 19,35:
Meira um iðn-
nóm ó íslandi
Siðari þátturinn um iðnnám á
Islandi i 30 ár er á dagskrá út-
varpsins i kvöld. Umsjónar-
menn eru þeir Þorbjörn Guð-
mundsson, Ragnar Bragason og
Arni Stefán Jónsson. Þeir þrir
eiga sæti i stjórn félagsmála-
skóla Iönnemasambandsins.
1 kvöld verður meðal annars
rætt við Rúnar Bachmann, sem
á sæti i nefnd sem nú endur-
skoðar löggjöfina um iðn-
fræöclu. Þá verður spjallaö viö
Guðmund Agústsson hag-
fræðing sem á sæti i iönþróunar-
nefnd hjá iðnaðarráðuneytinu,
og loks verður tekinn til viötals
Armann Magnússon sem segir
frá stefnu Iðnnemasambands-
ins.
Þátturinn hefst klukkan 19.35 i
kvöld. —EA
Blaðburðar-
börn
óskast
Sörlaskjól,
Tjarnarból,
Vesturgata,
Skúlagata
VISIR
Simi 86611
Hverfisgötu 44.
Þátturinn Vaka er meðal efnis
á dagskrá sjónvarpsins i kvöid,
og er umsjónarmaður Aöal-
steinn Ingólfsson.
Ráögert hafði verið að sýna úr
kvikmynd i þættinum i' kvöld, en
einhverra hluta vegna stendur á
forráðamönnum kvikmynda-
húsa að lána filmur til sjón-
varpsins, og verður þvi að hætta
við það að sinni.
t þættinum verður annars litið
inn á sýningu Steinunnar Mar-
teinsdóttur á Kjarvalsstöðum
og grafiksýningin i Norræna
húsinu skoðuð.
Þá verður fjallað um sýning-
una sem nú stendur yfir i Lista-
safni tslands og loks verður tek-
in fyrir ljósmyndasýning Leifs
Þorsteinssonar.
Við sjáum atriði úr Fjölskyld-
unni, sem Leikfélag Reykjavik-
ur sýnir um þessar mundir, og
rætt verður við gagnrýnendur
blaðanna um silfurhestinn sál-
uga. 1 þvi tilefni verður einnig
rætt við Hannes Pétursson,
þann er siðastur fékk silfurhest-
inn.
Vaka hefst klukkan 20.55 og
stendur til klukkan 21.35.
— EA
Útvarp sunnudag kl. 19,25: UlfAW LaHMIV IflX DÁl>l ■ M í-Mlll'O
II Wl ¥ 1V I If IUI VIIUI i — Vilhjálmur og Dagur leiða saman hesta sína
Hver kemur til með að keppa Einarsson frá Selfossi og Dagur urslitaleikinn við Pétur Gaut Þorleifsson héðan úr Reykjavik. Kristjánsson? Það ætti að koma i Ijós i þættinum „Þekkirðu Sá sem sigrar i þessum þætti land” i útvarpinu annað kvöld. keppir svo við Pétur Gaut, en eins og hann sagði i viðtali hér Að þessu sinni leiða þeir sam- um daginn, neitar hann að taka an hesta sina, Vilhjálmur sér i munn orðið „ósigur”. Liklega biða flestir lands- menn spenntir eftir úrslitum, að minnsta kosti virðist erfitt að finna þann mann sem ekki hefur fylgzt með þessum þáttum. „Þekkirðu land” hefst kl. 19.25 annað kvöld. —EA
SJÓNVARP >|
Laugardagur
12. apríl 1975
16.30 íþróttir. Knattspyrnu-
kennsla.
16.40 Enska knattspyrnan.
17.30 Aörar iþróttir. M.a.
myndir frá Norðurlanda-
móti i handknattleik
kvenna. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
maður Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
19.45 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Eisku pabbi. Breskur
gamanmyndaflokkur.
Strokiö að heiman. Þýöandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
20.55 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liöandi
stund. Umsjónarmaður
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.35 Ungviði. (The Yearling)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1946. Aðalhlutverk
Gregory Peck, Jane Wyman
og Claude Jarman. Þýðandi
Heba Júliusdóttir. Myndin
gerist á litlum bóndabæ i
landnemabyggð i Banda-
rikjunum. Jody, sonur hjón-
anna á bænum, finnur
dádýrskálf 1 skóginum og
tekur hann heim meö sér.
Drengurinn vill taka kálfinn
i fóstur, en foreldrarnir eru
tregir til, og grunar, aö það
kunni að draga dilk á eftir
sér.
23.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
13. april
18.00 Stundin okkar. Meðal
efnis I Stundinni eru teikni-
myndir um önnu og Lang-
legg, Robba eyra og Tobba
tönn. Einnig veröur þar lát-
bragðsleikur um litinn asna,
spurningaþáttur og annar
þáttur myndarinnar um
öskubusku og hneturnar
þrjár. Umsjónarmenn Sig-
riöur Margrét Guðmunds-
dóttir og Hermann Ragnar
Stefánsson.
18.55 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Heimsókn. „Það var hó,
það var hopp, það var hæ”.
Sjónvarpsmenn heimsóttu
þrjú félagsheimili á Suður-
landi á útmánuðum og
fylgdust með þvi, sem þar
fór fram. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson. Kvik-
myndun stjórnaði Þrándur
Thoroddsen.
21.10 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva i Evrópu.
Keppnin fór að þessu sinni
fram i Stokkhólmi seint i
marzmánuði, og tóku þátt i
henni keppendur frá nitján
löndum. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. (Nordvision-
Sænska sjónvarpið)
23.25 Að kvöldi dags. Sr.
Ólafur Skúlason flytur hug-
vekju.
23.35 Dagskráriok
ÚTVARP #
LAUGARDAGUR
12. april
7.00 Morgunútvarp Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunieikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttirkl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
veðrið og við kl. 8.50:
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Guðrún Jónsdóttir
heldur áfram að lesa
„Ævintýri bókstafanna”
eftir Astrid Skaftfells (11).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. óskalög
sjúkiinga kl. 10.25: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónjeikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöur fregnir.
13.30 lþróttirUmsjón: Jón As-
geirsson.
14.15 Að hlusta á tónlist, XXIV
Atli Heimir Sveinsson sér
um þáttinn.
15.00 Vikan framundan
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir. Islenzkt mál Ásgeir
Bl. Magnússon cand. mag.
flytur þáttinn.
16.40 TIu á toppnum örn
Petersen sér um dægulaga-
þátt.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga „Sadako vill
lifa” Annar þáttur. Leik-
stjóri: Sigmundur Orn Arn-
grímsson. Persónur og leik-
endur: Sadako... Þorgeröur
Katrin Gunnarsdóttir,
Shigeo... Einar Sveinn
Þórðarson, Tibbet... Hákon
Waage, Hawkins... Guö-
mundur Magnússon, Kenn-
an... Sigurður Skúlason,
Yasuko... Margrét Guö-
mundsdóttir, Spaatz hers-
höföingi... Arni Tryggva-
son, Sögumaöur... Bessi
Bjarnason.
18.00 Söngvar I léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Iðnnám á isiandi I 30 ár,
— sfðari þáttur Umsjónar-
menn: Þorbjörn Guð-
mundsson, Ragnar Braga-
son og Arni Stefán Jónsson.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 „Ungfrú Li” kínversk
saga frá 8. öld Erlingur E.
Halldórsson les þýðingu
sina.
21.25 Tónlist eftir' Strauss-
bræður Strausshljómsveitin
i Vlnarborg leikur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.