Vísir - 12.04.1975, Side 6
Vísir. Laugardagur 12. apríl 1975.
A
vísrn
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur llelgason
v Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 llnur
Askriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Austurför Einars
Ástæða er til að fagna heimsókn Einars )
Agústssonar utanrikisráðherra til Sovét- \
rikjanna. íslandi er gagn að þvi, að ráðamenn (
okkar haldi uppi sambandi við valdamenn stór- (
veldanna. Alltaf eru ofarlega á baugi einhver )
mál, sem snerta hagsmuni beggja aðila og )
skiptast þarf á skoðunum um. (
Þess vegna er lika gott til þess að vita, að i (
náinni framtið skuli vera von á heimsókn )
Gromykos, utanrikisráðherra Sovétrikjanna, \
hingað til lands. Slikar heimsóknir gefa tækifæri í
til að fækka ágreiningsefnum og koma sam- /
skiptum á vinsamlegra svið. )
Utanrikisráðherra okkar hefur að undanförnu (
haft tækifæri til að ræða við ráðamenn Sovét- (
rikjanna um ýmis vandamál, sem skipta okkur )
miklu. \
Við höfum um nokkurt skeið verið óánægðir (
með of hátt verð á oliunni frá þeim og of lágt (
verð á fiskafurðum til þeirra. Hafa raddir )
magnazt um, að heppilegra væri fyrir okkur að V
snúa þessum viðskiptum yfir á frjálsa (
markaðinn á Vesturlöndum. Nú virðist svo sem )
Sovétmenn hafi gefið nokkuð eftir i oliuverðinu og )
er það vissulega spor i rétta átt. ('
Við höfum einnig haft vaxandi áhyggjur af (
siaukinni andstöðu Sovétrikjanna við stefnu 200 )
milna efnahagslögsögu. Ekki er liklegt, að )
heimsókn Einars hafi breytt miklu i þeim efnum, (
en alténd er mikils virði að geta túlkað sjónarmið (
okkar i persónulegum viðræðum. )
Utanrikisráðherra okkar hefur einnig fengið \
tækifæri til að benda ráðamönnum Sovétrikjanna (
á furðu og gremju fslendinga út af miskunnar- )
lausri stefnu þeirra gagnvart föður Askenazys. )
Valdamenn Sovétrikjanna hafa jafnan gott af þvi (
að heyra raddir að vestan um slík mál, eins og (
um brottflutningsleyfi gyðinga og útskrifun )
stjórnarandstæðinga af geðveikrahælum. \
-JK
Ákvörðun um áburð
Rikisstjórnin hefur tekið þá vafasömu á- (
kvörðun að greiða niður verð á áburði um 750 )
milljónir króna. Niðurgreiðslur eru i eðli sinu )
illar, þvi að þær skekkja verðmyndunarkerfið i (
landinu. Þær stuðla að vanþekkingu almennings (
á raunverulegu verði ýmissa afurða og hvetja )
einnig til offramleiðslu á þessum afurðum, sem \\
siðan verður að flytja út með drjúgum út- (l
flutningsuppbótum. ))
Sú afsökun, að þetta sé til að halda verðlagi )
niðri i landinu er tóm blekking. Það skiptir ekki (
máli, hvort neytendur greiða þessar 750 milljónir (
yfir búðarborðið eða i mánaðargreiðslum skatta )
sinna. 1 báðum tilvikum eru 750 milljónirnar )
greiddar og stuðla að verðbólgu á hvorn veginn (
sem er. (
Rikisstjórninni ber fremur að beina kröftum )
sinum að þvi að rifa niður blekkingarvefinn, sem )
hefur magnazt i efnahagslifinu. Niðurgreiðslur, (
uppbætur, millifærslukerfi, fjármagnsmismun- (
un og lánakjaramismunun, innflutningsbönn, )
framkvæmdastyrkir og fleira slikt gerir efna- \
hagskerfi okkar að slikri grinfigúru, að fjárfest- (
ingarfé okkar fer I meira mæli i súginn en hjá (
flestum öðrum þjóðum heims. ))
-JK ((
Enn einn áfanginn
í kapphlaupi
kanslaraefnanna
I nyrzta riki Vest-
ur-Þýzkalands, Schles-
wig-Holstein, sem liggur
að landamerkjum Dan-
merkur, verður gengið
til kosninga á morgun.
Þótt kosið sé til heima-
þingsins, þá biða menn
úrslitanna með eftir-
væntingu, þvi að þar
sem annars staðar
þykja sveitarstjórnar-
kosningarnar geta gefið
góða visbendingu um,
hvernig gengi stóru
landsfiokkanna hefur
breytzt frá siðustu sam-
bandsstjórnarkosning-
um.
Auk þess eru möguleikar
flokksleiðtoganna til þess að
hljóta útnefningu flokka sinna til
framboðs fyrir kanslaraembættið
mikið komnir undir brautargengi
þeirra heima I héraði. Þannig séð
er margt í húfi fyrir Gerhard
Stoltenberg, forsætisráðherra I
Schleswig—Holstein, leiðtoga
kristilegra demókrata þar I hér-
aði. Mikið kjörfylgi á morgun,
sem tryggja mundi flokki hans á-
framhaldandi setu i stjórn
Schleswig-Holstein, mundi um
leið auka möguleika hans á að
hljóta útnefningu sem kanslara-
efni flokks hans.
A hinn bóginn er flokki Helmuts
Schmidts kanslara, sóslaldemó-
krötum, mjög I mun að sanna að
smávegis aukning fylgis, sem
þeir hlutu i kosningunum i Rinar-
löndum i siðasta mánuði, hafi
verið meira en rétt stundarblossi,
eftir margra mánaða fylgistap.
í kosningaundirbúningnum i
Schleswig-Holstein hefur sósial-
demókrötum tekizt að yfirgnæfa
vinstrisinna. Án vafa brennur
formanni landssamtaka flokks-
ins, Willy Brandt, i muna að sjá,
hvernig hinum hófsamari, sem
náð hafa yfirhöndinni i flokks-
deildinni i Schleswig-Holstein
vegnar á morgun. Taki kjósendur
þessari þróun innan flokksins vel,
munu landssamtökin að likindum
taka mið af þvi.
Schleswig-Holstein er þriðja
minnsta af þeim tiu rikjum, sem
mynda Sambandslýðveldiö
Þýzkaland. Þar eru á kjörskrá
1.880,000 manns. Þegar frá er tal-
inn skipasmiðaiðnaður og annar
léttari iðnaður i Lúbeck, er land-
búnaður aðalatvinnugrein ibú-
anna og kjör manna tiltölulega
lakari en viðast i V-Þýzkalandi.
Kristilegir demókratar hafa
setiö þar i stjórn siðan sambands-
lýðveldið var stofnað 1949. t sið-
ustu heimaþingskosningum þar
(fyrir fjórum árum) fengu kristi-
legir demókratar undir forystu
Stoltenbergs 51,9% atkvæða og
þar með hreinan meirihluta.
Sósial-demókratar fengu 41%,
en hinir frjálslyndu bandamenn
þeirra, frjálsir demókratar fengu
aðeins 3,8%. Þeir náðu þannig
ekki 5% markinu, sem stjórnar-
skráin krefst, að framboðslisti
hljóti til þess að eignast fulltrúa á
þingi.
Stoltenberg, sem er aðeins 46
ára að aldri, er sonur mótmæl-
endaprests. Hann var áður lektor
við háskóla og blaðamaður, en er
i tölu fremslu efnahagssérfræð-
inga flokks sins. Hann sat i ráð-
herrastól um þriggja ára bil i
Bonnstjórninni á siðasta áratug
og hafði á sinni könnu umsjón vis-
inda.
Ef hann hlýtur nógu sannfær-
andi sigur á morgun verður ekki
framhjá honum gengið, þegar
kristiiegir demókratar fara að
lita i kringum sig eftir heppilegu
kanslaraefni til sambandskosn-
inganna á næsta ári.
Eins og málin standa I dag fyrir
kosningarnar þykja tveir aðrir
flokksbræður hans liklegri til að
Strauss: Bakaði sér óþokka, þeg-
ar hann likti ástandinu I Vest-
ur-Þýzkalandi við aðstæður I
svinastiu.
hljóta útnefningu. Annar er
Helmut Kohl, formaður lands-
samtaka kristilegra demókrata,
og hinn er leiðtogi kristilegra
demókrata I Bæjaralandi, Franz
Jósef Strauss, fyrrum varnar-
mála- og fjármálaráðherra.
Stjarna Strauss hefur ögn
bliknað eftir ræðu, sem hann
flutti á dögunum og hefur sætt
mikilli gagnrýni fyrir. Þar likti
hann núverandi ástandi i Vest-
ur-Þýzkalandi við aðstæður i
svinastiu og lét þau orð falla að
frekari efnahagsörðugleikar gætu
komið að góðum notum til að
minnka brautargengi stjórnar
sósial-demókrata.
Ef vinsældir Strauss hafa beðið
hnekki af þessum ummælum
hans, aukast möguleikar hinna.
Þar stendur Kohl betur að vigi
eftir sigurinn i kosningum Rinar-
lands, þar sem fylgi flokksins
jókst um 3,9%, meðan sósial-
demókratar töpuðu 2%. Sá sigur
var þó ekki óblandinn hjá Kohl,
þvi að i öllum öðrum heimaþings-
kosningum siðasta hálfa árið hafa
sósialdemókratar tapað alls stað-
ar meiru.
Kosningarnar núna um helgina
eru þriðju heimaþingkosningarn-
ar af sex, sem verða á þessu ári.
Næstu kosningar verða I Norð-
ur-RIn og Westfalen 4. mai, en
þeirra er beðið með mikilli eftir-
væntingu, þvi að þar er fjórði
hluti kjörinna fulltrúa sambands-
þingsins kosinn. Þar sitja saman i
heimastjórn sósialdemókratar og
frjálsir demókratar eins og I
sambandsstjórninni I Bonn.
Schmidt kanslari: Stjórn hans yrði það mikill stuðningur ef sóslal-
demókratar felldu stjórn kristilegra I Schleswig-Holstein.
Stoltenberg: öðlast möguleika
sem kanslaraefni kristilegra
demókrata, ef hann færir flokkn-
um góðan sigur á morgun.
Formaður sósialdemókrata i
Schleswig-Holstein er að nafninu
til Jochen Steffen, róttækur
vinstrimaður. Hann hefur þó eng-
an þátt tekið i kosningaundirbún-
ingnum — vegna veikinda, að
sögn forráðamanna flokksins.
Aðrir telja þó, að þessi veikindi
Steffens séu meira sprottin af
marxiskum tilhneigingum hans,
sem flokkurinn óttast að muni
fæla kjósendur frá. Steffen hefur
t.d. lýst yfir þvi, að hann vilji láta
þjóðnýta alla banka.
Kosningabaráttu sósialdemó-
krata hefur þvi verið stýrt af
Klaus Matthiesen, 34 ára félags-
fræðingi, sem öfugt við Steffen er
1 góðum tengslum við Schmidt
kanslara og aðra hægfarasinn-
aðri flokksmenn. Hann hefur
reynzt flokknum drjúgur liðs-
maður á heimaþinginu i Kiel og
er enda formaður þingflokksins
þar. Matthiesen er mikill háðfugl
og ber kosningabaráttan að þessu
sinni keim þar af.
Báðir flokkar hafa helgað kosn-
ingabaráttuna heimastjórnar-
málum að mestu. Inn i umræð-
urnar hafa þó slæðzt áhyggjur
manna af atvinnuleysi, sem fylgt
hefur verðbólgu-ráðstöfunum
Bonnstjórnarinnar.